Business Class, nokkur sæti í boði!

Hvernig hljómar það að byrja daginn á morgunverði í Keflavík og enda kvöldið á suðrænum kvöldverði í Rio de Janeiro allt á einum degi og í tveimur heimsálfum?

Í samstarfi við Moggaklúbbinn bjóða Kolumbus ævintýraferðir í fyrsta sinn uppá beint flug frá Íslandi til Rio de Janeiro með Boeing 787 Dreamliner!

Láttu drauminn rætast og ferðastu til Suður-Ameríku meðan þar er sumar og skammdegið ríkir á Íslandi. Þú færð allt sem þú þarft í einni ferð; beint flug frá Íslandi, sól og dýrðlegt veður, strandstemning sem á sér engan líkan og gistingu á miðri Copacabana ströndinni. Pakkaðu sundfötunum og láttu ævintýrið byrja. 

Rio de Janeiro slær taktinn fyrir alla Suður-Ameríku bíður þín með sól, sandi og samba – án millilendinga. Upplifðu stórbrotna náttúru, líflegar götur, gullinn sand og ómótstæðilega samba-stemningu eftir beint flug frá Keflavík.

Í þessari einstöku ferð mætir Stuðlabandið sjálft á svæðið með íslenskt stuð, alþjóðlega tónlist og suðræna stemningu í farteskinu. Þessi vinsælasta danshljómsveit Íslands mun halda sögulega tónleika á sjálfri Copacabana-ströndinni og tryggja að íslensk gleði mæti brasilískum sólardansi í ógleymanlegri veislu þar sem norðrið og suðrið slá taktinn saman. Tónleikarnir eru öllum opnir, einnig Brasilíumönnum og öðrum sem staddir verða í Rio á þessum tíma. Það verður stuð!

Flogið verður frá Keflavík kl. 08:15 og lent í Rio de Janeiro rúmum 12 klst. síðar eða um kl. 17:30 að staðartíma. Tíminn hefur farið aftur en dagurinn heldur áfram. Matur og léttir drykkir eru innifaldir um borð og flugvélin er búin afþreyingarkerfi til að stytta þér stundina.

Business Class, nokkur sæti í boði!

Gisting: Fairmont Rio de Janeiro Copacabana 5

Fairmont Rio de Janeiro Copacabana er staðsett við hina frægu Copacabana-strönd og í 600 metra fjarlægð frá Ipanema-ströndinni en það býður upp á fallegt útsýni yfir Pão de Açúcar og sundlaug með víðáttumiklu útsýni. Nútímaleg og rúmgóð 5-stjörnu herbergin eru loftkæld og með svölum með borgar- eða sjávarútsýni. Forte de Copacabana er 550 metra fjarlægð.

Hotel Othan Rio Palace 4
Flest sætin eru á economy class með gistingu á Hotel Othan Rio Palace 4. Sjá nánar hér.

Skoðunarferðir & afþreying

Sögulegir tónleikar

Innifalið í verði ferðar.

Þessi vinsælasta danshljómsveit Íslands mun halda sögulega tónleika á sjálfri Copacabana-ströndinni og tryggja að íslensk gleði mæti brasilískum sólardansi í ógleymanlegri veislu þar sem norðrið og suðrið slá taktinn saman. Tónleikarnir eru öllum opnir, einnig Brasilíumönnum og öðrum ferðamönnum sem staddir verða í Rio á þessum tíma. Það verður stuð!

Sykurtoppurinn með kláf

Þessi skoðunarferð er valkvæð og verður bókanleg síðar hér á vefnum, gegn gjaldi. Þeir sem hafa bókað ferð munu fá tilkynningu.

Sugar Loaf Trip Tour“, skoðunarferð á stað sem hugsanlega er enn frægara tákn fyrir Rio de Janeiro en Krists­styttan en það er „Sykurtoppurinn“. Farið er upp að endastöðinni í 396 metra hæð með tveimur svifbrautum þar sem stórfenglegt útsýni er yfir Guanabaraflóann og innsiglinguna frá Atlantshafi. Stórkostlegt útsýni er þarna á efsta hluta efri klettsins þar sem strendur Rio blasa við ásamt öðrum borgarhlutum, smábátahöfn og innanlandsflugvelli borgarinnar.

Eftir að hafa farið til baka niður með kláfnum ferðumst við um miðborg Rio. Við skoðum hina nýju og sérstöku dómkirkju Lipa Cathedral, gamla fallega óperuhúsið og förum að hinu þekkta listasafni borgarinnar við höfnina í Rio de Janeiro. Þeir sem áhuga hafa gefst kostur á að heimsækja hinar heimsfrægu tröppur „Selarons“ og koma sér síðan til baka á eigin vegum með leigubíl.

Kristsstyttan skoðuð

Þessi skoðunarferð er valkvæð og verður bókanleg síðar hér á vefnum, gegn gjaldi. Þeir sem hafa bókað ferð munu fá tilkynningu.

Christ the Redeemer Tour“, þegar upp er komið að Kristsstyttunni er ótrúlegt og ógleymanlegt útsýni suður í átt að Ipanema-ströndinni, norðan við hótelið okkar á Copacabana-ströndinni og ef litið er enn lengra má sjá hið mikla stöðuvatn enn norðar. Á toppnum, bíður eitt af opinberum sjö undrum heims: „Kristsstyttan“ sem gnæfir hátt yfir „Borg Guðs“. Sjálf styttan er 38 m há og vegur 1145 tonn. Haldið niður eftir 1 klst. dvöl við Kristsstyttuna og komið á hótelið um miðjan dag.

Heilsueflandi viðburðir í boði Evu Katrínar læknis og Silju Hrundar yogakennara

Heilsustundirnar eru valkvæðar og verða bókanlegar síðar hér á vefnum, gegn gjaldi. Þeir sem hafa bókað ferð munu fá tilkynningu.

Meðal viðburða í boði verða:

Slakandi öndunaræfingar – náum endurheimt eftir langt flug, róum hugann og dýpkum tengslin við okkur sjálf.

Mjúkt yogaflæði á ströndinni – losum um spennu og streitu í líkamanum áður en við tökumst á við ævintýri dagsins.

Yin Yoga og Nidra – teygjur og djúpslökun fyrir huga, líkama og sál. Fullkomin endurheimt fyrir langan dag eða djúpann svefn.

Um er að ræða viðburði sem henta öllum, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Takmarkaður fjöldi.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Draupnir Rúnar Draupnisson, Norðfirðingurinn sem hefur ferðast til 138 landa. Hann býr að langri reynslu sem fararstjóri og hefur farið með fjölda hópa víðs vegar um heiminn. Hann er fjölmenntaður, m.a. sem kennari og leiðsögumaður. Honum til aðstoðar verða Sigurður K. Kolbeinsson, forstjóri Kólumbus ævintýraferða og Hildur Jónsdóttir, svæðistjóri Kólumbus í Suður-Ameríku. 

Verð: 795.000 kr. á mann með flugi í Business Class sætum og gistingu á Fairmont Rio de Janeiro Copacabana. 

Greiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka. Staðfestingargjald er óafturkræft eftir 30. september 2025.

Eftirstöðvar verða innheimtar 60 dögum fyrir brottför.

Um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko ehf. sem nálgast má á heimasíðu skrifstofunnar.

Beint flug frá Keflavík – Rio de Janeiro – Keflavík, allir skattar og gjöld. 
23 kg innrituð taska er innifalin og handfarangur sem er lítill persónulegur hlutur/taska að hámarki 5 kg.
Gisting á Fairmont Rio de Janeiro Copacabana 5 í 7 nætur.
Morgunverður alla daga.
Rútuakstur til og frá flugvelli að hóteli.
Tónleikar Stuðlabandsins á Copacabana 6. febrúar.
Íslensk fararstjórn.

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.