Róm er án efa ein fegursta borg í Evrópu og hefur að geyma áhrifamikla sögu sem spannar árþúsund. Borgin hrífur ferðamenn og margir koma þangað aftur og aftur því að aldrei verður hægt að skoða nóg í þessari stórfenglegu borg. Niko Travel býður upp á „Söguferð með sr. Þórhalli Heimissyni“ sem er öllum hnútum kunnugur í borginni og hefur starfað þar sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005. Í ferðinni fá farþegar að fræðast með sr. Þórhalli um sögu borgarinnar frá því að hún var höfuðborg rómverska heimsveldisins og allt til okkar daga. Auk þess fá ferðalangar sérstaka fræðslu um merkustu byggingar borgarinnar, sjálfa Péturskirkjuna og Vatíkanið auk Colosseumsem á sér ekkert líkt í þessum heimi.
Gist er á Hotel Morgana 4* hóteli í miðborginni, nálægt Colosseum þar sem er mikið mannlíf og fjöldi veitingastaða. Auðvelt er að ferðast með lestarkerfi borgarinnar (Metro) til hinna ýmsu staða en lestarstöðin er aðeins steinsnar frá hótelinu.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Flogið í beinu flugi með Icelandair kl. 08:00 og lent á FCO flugvellinum í Róm um kl. 14:00. Tímamismunur er 1 klst. Rúta bíður hópsins sr. Þórhallur tekur á móti ferðalöngum ásamt Hildi Jónsdóttur svæðisstjóra Kólumbus á Ítalíu. Ekið verður með rútu á Hotel Morgana 4* þar sem dvalið verður í 5 nætur. Komið er síðdegis til innritunar a hótelið. Boðið verður uppá valkvæðan kvöldverð í göngufæri við hótelið með fararstjóra fyrir hópinn sem hægt er að skrá sig í við komu.
Skoðunarferðir í Vatíkanið fyrir fyrstu 2 hópana af 3.
– Hópur 3 á frí þennan dag.
Fyrstu tvær skoðunarferðir af þremur í Vatíkanið. Sérstakar hámarksreglur gilda um stærð hópa og verður hópnum því skipt í þrennt og tekur skoðunaferðin 4-4,5 klst með akstri fram og til baka.
Hópur 1: Morgunferð í Vatíkanið.
Hópur 2: Eftirmiðdagsferð í Vatíkanið.
Ferðin hefst í Vatíkansafninu þar sem við skoðum stórkostleg listaverk, forn og ný. Skoðunarferðinni í Vatíkansafninu lýkur í Sixtínsku kapellunni sem er skreytt hinum frægu málverkum Michelangelos. Heimilt að taka ljósmyndir án flashljósa.
Hópur 3 á frí þennan dag og getur skoðað sig um í borginni en sr. Þórhallur getur gefið góðar ábendingar um gönguleiðir, verslunargötur, veitingahús og áhugaverða staði að heimsækja.
Skoðunarferð í Vatíkanið fyrir hópana 3.
– Hópar 1 og 2 eiga á frí þennan dag.
Síðasta skoðunaferð af þremur í Vatíkanið.
Hópur 3: Morgunferð í Vatíkanið.
Ferðin hefst í Vatíkansafninu þar sem við skoðum stórkostleg listaverk, forn og ný. Skoðunarferðinni í Vatíkansafninu lýkur í Sixtínsku kapellunni sem er skreytt hinum frægu málverkum Michelangelos.
Aðrir eiga frí þennan dag og geta skoðað sig um í borginni en sr. Þórhallur getur gefið góðar ábendingar um gönguleiðir, verslunargötur, veitingahús og áhugaverða staði að heimsækja.
Colosseum
Haldið af stað í rútu kl. 8:00 í Colosseum og farið inn á þennan gamla leikvang Rómverja undir leiðsögn sr. Þórhalls Heimissonar. Athugið að nauðsynlegt er að hafa gild skilríki eða vegabréf meðferðis samkvæmt reglum um aðgengi að Colosseum. Frá Colosseum er síðan haldið á rómversku torgin. Ferðin tekur um 3 klst. Eftir rómversku torgin er hægt að ganga til baka áleiðis að miðbænum með sr. Þórhalli eða taka rútuna sem bíður hópsins.
Frjáls dagur í Róm
Engin skipulögð dagskrá og því tilvalið að nota daginn til að skoða sig um í miðborginni, heimsækja verslanir og veitingastaði. Boðið verður uppá valkvæðan kvöldverð með fararstjóra fyrir hópinn sem hægt er að skrá sig í við komu. Mun séra Þórhallur bjóða gestum að ganga með sér í gegnum gyðingahverfið sem endar svo með rómverskum kvöldverði við Campo de’ Fiori torgið í hjarta Rómar.
Heimfarardagur
Lagt verður af stað með rútu á flugvöllinn um kl. 11:30 og komið þangað 1 klst. síðar. Innritun í flug Icelandair sem er áætlað kl. 15:30 og lendir í Keflavík kl. 18:45 að íslenskum tíma.
Fararstjórn, verð, greiðslur og innifalið
Sr. Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.
Hildur Jónsdóttir svæðisstjóri Kolumbus á Ítalíu verður Þórhalli til aðstoðar.
Verð: 249.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 55.000 kr.
Geiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 60 dögum fyrir brottför og þá er hægt að velja á milli greiðslu með peningum eða kreditkorti.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Flug Icelandair til Rómar fram og til baka – 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
• Gisting í 5 nætur á Hotel Morgana 4* með morgunverði.
• Skoðunarferð í Vatíkanið og Péturskirkjuna.
• Skoðunarferð í Colosseum.
• Íslensk fararstjórn og leiðsögn í öllum skoðunarferðum ásamt heyrnartólum.
• Allur rútuakstur frá flugvelli að hóteli og til baka og í allar skoðunarferðir skv. lýsingu.
Hotel Morgana 4*
Bóka
Örfá sæti laus!
Þegar þú hefur staðfest bókun verður
stofnaður greiðsluseðill í heimabanka fyrir staðfestingargreiðslu.
Uppselt – Biðlisti
Uppselt er í þessa ferð. Hægt er að skrá sig á biðlista með því að hafa samband við okkur á niko@niko.is.
2 sæti laus!
Eingöngu er hægt að bóka 2ja manna herbergi þar sem einstaklingsherbergi eru uppseld. Hægt er að skrá sig á biðlista fyrir einstaklingsherbergi með því að hafa samband við okkur á niko@niko.is