Róm er án efa ein fegursta borg í Evrópu sem hefur að geyma áhrifamikla sögu Rómverja í árþúsund.
Róm er án efa ein fegursta borg í Evrópu og hefur að geyma áhrifamikla sögu sem spannar árþúsundir. Enda er hún kölluð „Borgin eilífa“. Róm hrífur ferðamenn og margir koma þangað aftur og aftur því aldrei verður hægt að skoða nóg í þessari stórfenglegu borg.
Kolumbus – Ævintýraferðir bjóða upp á einstaka söguferð með sr. Þórhalli Heimissyni sem er öllum hnútum kunnugur í borginni og hefur starfað þar sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005. Í ferðinni fá farþegar að fræðast um sögu Rómverja á öldum áður og allt til nútímans og njóta sérstakrar leiðsagnar um merkustu byggingar borgarinnar, sjálfa Péturskirkjuna, Vatikansafnið og Kólóseum, hringleikahúsið fræga, sem á sér engan líka í þessum heimi.
Gist er á Hótel Morgana, 4* hóteli í miðborginni, nálægt Kólóseum þar sem er mikið mannlíf og fjöldi veitingastaða. Boðið er upp á gönguferðir með leiðsögumanni um Gyðingahverfið og heimsóknir á frábær ítölsk veitingahús að kvöldi til þar sem stemmningin er einstök.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Flogið í beinu flugi með Icelandair kl. 07:50 og lent á FCO flugvellinum í Róm um kl. 14:25. Tímamismunur er 2 klst. Rúta bíður hópsins og sr. Þórhallur tekur á móti ferðalöngum ásamt Hildi Jónsdóttur svæðisstjóra Kólumbus – Ævintýraferða á Ítalíu. Ekið verður með rútu á Hotel Morgana 4* þar sem dvalið verður í 5 nætur. Komið er síðdegis til innritunar a hótelið. Boðið verður uppá valkvæðan kvöldverð í göngufæri við hótelið með fararstjóra fyrir hópinn sem hægt er að skrá sig í við komu.
Skoðunarferðir í Vatíkanið fyrir fyrstu 2 hópana af 3.
– Hópur 3 á frí þennan dag.
Fyrstu tvær skoðunarferðir af þremur í Vatíkanið. Sérstakar hámarksreglur gilda um stærð hópa og verður hópnum því skipt í þrennt og tekur skoðunaferðin 4-4,5 klst með rútuferðum fram og til baka.
Hópur 1: Morgunferð í Vatíkanið.
Hópur 2: Eftirmiðdagsferð í Vatíkanið.
Farið er með skutlum (minivan) að Vatíkansafninu þar sem skoðunarferðin hefst. Við skoðum stórkostleg listaverk, forn og ný. Skoðunarferðinni um Vatíkansafnið lýkur í Sixtínsku kapellunni sem er skreytt hinum frægu málverkum Michelangelos. Farið er með skutlum (minivan) til baka á hótelið.
Hópur 3 á frí þennan dag og getur skoðað sig um í borginni en sr. Þórhallur getur gefið góðar ábendingar um gönguleiðir, verslunargötur, veitingahús og áhugaverða staði að heimsækja.
Skoðunarferð í Vatíkanið fyrir hópana 3.
– Hópar 1 og 2 eiga á frí þennan dag.
Síðasta skoðunarferð af þremur í Vatíkanið.
Hópur 3: Morgunferð í Vatíkanið.
Farið er með skutlum (minivan) að Vatíkansafninu þar sem skoðunarferðin hefst. Við skoðum stórkostleg listaverk, forn og ný. Skoðunarferðinni um Vatíkansafnið lýkur í Sixtínsku kapellunni sem er skreytt hinum frægu málverkum Michelangelos. Farið er með skutlum (minivan) til baka á hótelið.
Aðrir eiga frí þennan dag og geta skoðað sig um í borginni en sr. Þórhallur getur gefið góðar ábendingar um gönguleiðir, verslunargötur, veitingahús og áhugaverða staði að heimsækja.
Kólóseum
Snemma um morguninn gengur hópurinn að Kólóseum ásamt Þórhalli og Hildi en gangan tekur aðeins 10-15 mín. Farið verður inná þennan gamla leikvang Rómverja undir leiðsögn sr. Þórhalls Heimissonar. Athugið að nauðsynlegt er að hafa gild skilríki eða vegabréf meðferðis samkvæmt reglum um aðgengi að Kólóseum. Frá Kólóseum er síðan haldið á rómversku torgin. Ferðin tekur um 3 klst. Eftir rómversku torgin er hægt að ganga til baka áleiðis að miðbænum með sr. Þórhalli eða taka leigubíl (ekki innifalið) á hótelið.
Frjáls dagur í Róm
Engin skipulögð dagskrá og því tilvalið að nota daginn til að skoða sig um í miðborginni, heimsækja verslanir og veitingastaði. Boðið verður uppá valkvæðan kvöldverð með fararstjóra fyrir hópinn sem hægt er að skrá sig í við komu. Mun séra Þórhallur bjóða gestum að ganga með sér í gegnum gyðingahverfið sem endar svo með rómverskum kvöldverði við Campo de’ Fiori torgið í hjarta Rómar.
Heimfarardagur
Lagt verður af stað með rútu á flugvöllinn um kl. 11:30 og komið þangað 1 klst. síðar. Innritun í flug Icelandair sem er áætlað kl. 15:55 og lendir í Keflavík kl. 18:45 að íslenskum tíma.
Fararstjórn, verð, greiðslur og innifalið
Sr. Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.
Hildur Jónsdóttir svæðisstjóri Kolumbus á Ítalíu verður Þórhalli til aðstoðar.
• Flug Icelandair til Rómar fram og til baka – 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
• Gisting í 5 nætur á Hotel Morgana 4* með morgunverði.
• Skoðunarferð í Vatíkanið og Péturskirkjuna með skutlum (minivan) til og frá hóteli.
• Skoðunarferð í Kólóseum.
• Íslensk fararstjórn og leiðsögn í öllum skoðunarferðum ásamt heyrnartólum.
• Rútuakstur frá flugvelli að hóteli og til baka.
Hotel Morgana 4*
Bóka
Þegar þú hefur staðfest bókun verður
stofnaður greiðsluseðill í heimabanka fyrir staðfestingargreiðslu.
Uppselt – Biðlisti
Uppselt er í þessa ferð. Hægt er að skrá sig á biðlista með því að hafa samband við okkur á niko@niko.is.
2 sæti laus!
Eingöngu er hægt að bóka 2ja manna herbergi þar sem einstaklingsherbergi eru uppseld. Hægt er að skrá sig á biðlista fyrir einstaklingsherbergi með því að hafa samband við okkur á niko@niko.is
Örfá sæti laus!
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar








