Róm er án efa ein fegursta borg í Evrópu sem hefur að geyma áhrifamikla sögu Rómverja í árþúsund.

Róm er án efa ein fegursta borg í Evrópu og hefur að geyma áhrifamikla sögu sem spannar árþúsund. Borgin hrífur ferðamenn og margir koma þangað aftur og aftur því að aldrei verður hægt að skoða nóg í þessari stórfenglegu borg. Niko Travel býður upp á „Söguferð með sr. Þórhalli Heimissyni“ sem er öllum hnútum kunnugur í borginni og hefur starfað þar sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005. Í ferðinni fá farþegar að fræðast með sr. Þórhalli um sögu borgarinnar frá því að hún var höfuðborg rómverska heimsveldisins og allt til okkar daga. Auk þess fá ferðalangar sérstaka fræðslu um merkustu byggingar borgarinnar, sjálfa Péturskirkjuna og Vatíkanið auk Colosseum sem á sér engan líka í þessum heimi.

Gist er á 4* hóteli í miðborginni, nálægt Colosseum þar sem er mikið mannlíf og fjöldi veitingastaða. Auðvelt er að ferðast með lestarkerfi borgarinnar (Metro) til hinna ýmsu staða en lestarstöðin er aðeins steinsnar frá hótelinu.

Fararstjóri og leiðsögumaður: Sr. Þórhallur Heimisson og honum til aðstoðar er Hildur Jónsdóttir, svæðisstjóri Kólumbus á Ítalíu.

4. desember er flogið í beinu flugi með Icelandair kl. 08:00 og lent á FCO flugvellinum í Róm um kl. 14:00. Tímamismunur er 1 klst. Rúta bíður hópsins þar sem sr. Þóhallur tekur á móti ferðalöngum og ekur með þá í rútu á Hotel Morgana 4* þar sem dvalið verður í 5 nætur. Komið er síðdegis til innritunar a hótelið. Boðið verður uppá valkvæðan kvöldverð í göngufæri við hótelið með fararstjóra fyrir hópinn sem hægt er að skrá sig í við komu

5. desember eru fyrri skoðunarferðir af þremur í Vatíkanið. Sérstakar hámarksreglur gilda um stærð hópa og verður hópnum því skipt í þrennt og tekur skoðunaferðin 4-4,5 klst með rútuferðum fram og til baka.
Hópur 1: Morgunferð í Vatíkanið.
Hópur 2: Eftirmiðdagsferð í Vatíkanið.

Ferðin hefst í Vatíkansafninu þar sem við skoðum stórkostleg listaverk, forn og ný. Skoðunarferðinni í Vatíkansafninu lýkur í Sixtínsku kapellunni sem er skreytt hinum frægu málverkum Michelangelos.

Hópur 3 á frí þennan dag og getur skoðað sig um í borginni en sr. Þórhallur getur gefið góðar ábendingar um gönguleiðir, verslunargötur, veitingahús og áhugaverða staði að heimsækja.

6. desember er síðasta skoðunaferð af þremur í Vatíkanið.
Hópur 3: Morgunferð í Vatíkanið. Ferðin hefst í Vatíkansafninu þar sem við skoðum stórkostleg listaverk, forn og ný. Skoðunarferðinni í Vatíkansafninu lýkur í Sixtínsku kapellunni sem er skreytt hinum frægu málverkum Michelangelos. Heimilt að taka ljósmyndir án flashljósa.

Aðrir eiga frí þennan dag og geta skoðað sig um í borginni en sr. Þórhallur getur gefið góðar ábendingar um gönguleiðir, verslunargötur, veitingahús og áhugaverða staði að heimsækja.

7. desember verður verður haldið af stað í rútu kl. 8:00 í Colosseum og farið inn á þennan gamla leikvang Rómverja undir leiðsögn sr. Þórhalls Heimissonar. Athugið að nauðsynlegt er að hafa gild skilríki eða vegabréf meðferðis samkvæmt reglum um aðgengi að Colosseum. Frá Colosseum er síðan haldið á rómversku torgin. Ferðin tekur um 3 klst. Eftir rómversku torgin er hægt að ganga til baka áleiðis að miðbænum með sr. Þórhalli eða taka rútuna sem bíður hópsins.

8. desember er frídagur á Ítalíu. Fararstjóri fer með þá farþega sem vilja, á útiguðsþjónustu Fransiskusar páfa við Spænsku tröppurnar (The Spanish Steps). Um kvöldið verður snæddur sameiginlegur gómsætur jólakvöldverður að hætti Ítala á veitingastaðnum Verso Sera við Campo de’ Fiori torgið

9. desember er heimfarardagur. Lagt verður af stað með rútu á flugvöllinn um kl. 07:45 og komið þangað 1 klst. síðar. Innritun í flug Icelandair sem er áætlað kl. 11:40 og lendir í Keflavík kl. 15:35 að íslenskum tíma.  

Sr. Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.

Hildur Jónsdóttir svæðisstjóri Kolumbus á Ítalíu verður Þórhalli til aðstoðar.

Verð: 244.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi  er 44.000 kr.

Geiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför og þá er hægt að velja á milli greiðslu með peningum eða kreditkorti. 

Flug Icelandair til Rómar 4. desember og til baka 9. desember – allir skattar og gjöld og 23 kg innrituð taska ásamt handfarangri. 
Gisting í 5 nætur á Hotel Morgana 4* með morgunverði.
Skoðunarferð í Vatíkanið og Péturskirkjuna 5. eða 6. desember.
Skoðunarferð í Colosseum 7. desember.
Aðventukvöldverður 8. desember með drykkjum.
Íslensk fararstjórn og leiðsögn í öllum skoðunarferðum ásamt heyrnartólum.
Allur rútuakstur frá flugvelli að hóteli og til baka og í allar skoðunarferðir skv. lýsingu.

Hotel Morgana

Bóka

Uppselt – Biðlisti

Uppselt er í þessa ferð. Hægt er að skrá sig á biðlista með því að hafa samband við okkur á niko@niko.is.

Skilaboð með pöntun geta t.d. verið óskir um séraðgengi, tegund herbergis (t.d. aðskilin rúm), spurningar til okkar varðandi ferðina. Hér er einnig góð hugmynd að taka það fram ef ferðast er með öðrum sem hafa bókað ef áhugi er fyrir því að vera með herbergi nálægt viðkomandi.

Þegar þú hefur staðfest bókun verður
stofnaður greiðsluseðill í heimabanka fyrir staðfestingargreiðslu.

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.