Róm er án efa ein fegursta borg í Evrópu sem hefur að geyma áhrifamikla sögu Rómverja í árþúsund.
Róm er án efa ein fegursta borg í Evrópu og hefur að geyma áhrifamikla sögu sem spannar árþúsund. Borgin hrífur ferðamenn og margir koma þangað aftur og aftur því að aldrei verður hægt að skoða nóg í þessari stórfenglegu borg. Niko Travel býður upp á „Söguferð með sr. Þórhalli Heimissyni“ sem er öllum hnútum kunnugur í borginni og hefur starfað þar sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005. Í ferðinni fá farþegar að fræðast með sr. Þórhalli um sögu borgarinnar frá því að hún var höfuðborg rómverska heimsveldisins og allt til okkar daga. Auk þess fá ferðalangar sérstaka fræðslu um merkustu byggingar borgarinnar, sjálfa Péturskirkjuna og Vatíkanið auk Colosseumsem á sér ekkert líkt í þessum heimi.
Gist er á Hotel Morgana 4* hóteli í miðborginni, nálægt Colosseum þar sem er mikið mannlíf og fjöldi veitingastaða. Auðvelt er að ferðast með lestarkerfi borgarinnar (Metro) til hinna ýmsu staða en lestarstöðin er aðeins steinsnar frá hótelinu.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Flogið í beinu flugi með Icelandair kl. 07:50 og lent á FCO flugvellinum í Róm um kl. 14:25. Tímamismunur er 2 klst. Rúta bíður hópsins og sr. Þórhallur tekur á móti ferðalöngum ásamt Hildi Jónsdóttur svæðisstjóra Kólumbus – Ævintýraferða á Ítalíu. Ekið verður með rútu á Hotel Morgana 4* þar sem dvalið verður í 5 nætur. Komið er síðdegis til innritunar a hótelið. Boðið verður uppá valkvæðan kvöldverð í göngufæri við hótelið með fararstjóra fyrir hópinn sem hægt er að skrá sig í við komu.
Skoðunarferðir í Vatíkanið fyrir fyrstu 2 hópana af 3.
– Hópur 3 á frí þennan dag.
Fyrstu tvær skoðunarferðir af þremur í Vatíkanið. Sérstakar hámarksreglur gilda um stærð hópa og verður hópnum því skipt í þrennt og tekur skoðunaferðin 4-4,5 klst með rútuferðum fram og til baka.
Hópur 1: Morgunferð í Vatíkanið.
Hópur 2: Eftirmiðdagsferð í Vatíkanið.
Farið er með skutlum (minivan) að Vatíkansafninu þar sem skoðunarferðin hefst. Við skoðum stórkostleg listaverk, forn og ný. Skoðunarferðinni um Vatíkansafnið lýkur í Sixtínsku kapellunni sem er skreytt hinum frægu málverkum Michelangelos. Farið er með skutlum (minivan) til baka á hótelið.
Hópur 3 á frí þennan dag og getur skoðað sig um í borginni en sr. Þórhallur getur gefið góðar ábendingar um gönguleiðir, verslunargötur, veitingahús og áhugaverða staði að heimsækja.
Skoðunarferð í Vatíkanið fyrir hópana 3.
– Hópar 1 og 2 eiga á frí þennan dag.
Síðasta skoðunarferð af þremur í Vatíkanið.
Hópur 3: Morgunferð í Vatíkanið.
Farið er með skutlum (minivan) að Vatíkansafninu þar sem skoðunarferðin hefst. Við skoðum stórkostleg listaverk, forn og ný. Skoðunarferðinni um Vatíkansafnið lýkur í Sixtínsku kapellunni sem er skreytt hinum frægu málverkum Michelangelos. Farið er með skutlum (minivan) til baka á hótelið.
Aðrir eiga frí þennan dag og geta skoðað sig um í borginni en sr. Þórhallur getur gefið góðar ábendingar um gönguleiðir, verslunargötur, veitingahús og áhugaverða staði að heimsækja.
Colosseum
Snemma um morguninn gengur hópurinn að Colosseum ásamt Þórhalli og Hildi en gangan tekur aðeins 10-15 mín. Farið verður inná þennan gamla leikvang Rómverja undir leiðsögn sr. Þórhalls Heimissonar. Athugið að nauðsynlegt er að hafa gild skilríki eða vegabréf meðferðis samkvæmt reglum um aðgengi að Colosseum. Frá Colosseum er síðan haldið á rómversku torgin. Ferðin tekur um 3 klst. Eftir rómversku torgin er hægt að ganga til baka áleiðis að miðbænum með sr. Þórhalli eða taka leigubíl á hótelið.
Frjáls dagur í Róm
Engin skipulögð dagskrá og því tilvalið að nota daginn til að skoða sig um í miðborginni, heimsækja verslanir og veitingastaði. Boðið verður uppá valkvæðan kvöldverð með fararstjóra fyrir hópinn sem hægt er að skrá sig í við komu. Mun séra Þórhallur bjóða gestum að ganga með sér í gegnum gyðingahverfið sem endar svo með rómverskum kvöldverði við Campo de’ Fiori torgið í hjarta Rómar.
Heimfarardagur
Lagt verður af stað með rútu á flugvöllinn um kl. 11:30 og komið þangað 1 klst. síðar. Innritun í flug Icelandair sem er áætlað kl. 15:25 og lendir í Keflavík kl. 18:15 að íslenskum tíma.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð
Sr. Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.
Hildur Jónsdóttir svæðisstjóri Kolumbus á Ítalíu verður Þórhalli til aðstoðar.
Verð: 269.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 49.000 kr.
Geiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Flug Icelandair til Rómar fram og til baka – 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
• Gisting í 5 nætur á Hotel Morgana 4* með morgunverði.
• Skoðunarferð í Vatíkanið og Péturskirkjuna með skutlum (minivan) til og frá hóteli.
• Skoðunarferð í Colosseum.
• Íslensk fararstjórn og leiðsögn í öllum skoðunarferðum ásamt heyrnartólum.
• Rútuakstur frá flugvelli að hóteli og til baka.
Uppselt – Biðlisti!
Uppselt er í þessa ferð. Hægt er að skrá sig á biðlista með því að skrá sig á biðlista hér fyrir neðan.
Hotel Morgana 4*
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar








