Sr. Þórhallur Heimisson
skrifar Borg hinna dauðu
eða Necropolis, sem finna
má undir Péturskirkjunni.

Það bar við í fréttum frá Vatikaninu í Róm fyrr í vetur, að opna ætti fyrir almennum ferðalöngum Borg hinna dauðu eða Necropolis, sem finna má undir Péturskirkjunni. Hún hefur hingað til verið lokuð öllum nema þeim sem hafa sérstakt leyfi til heimsóknarinnar. En sjálfur hef ég komið þangað í undirdjúpin tvisvar. Frá því skömmu fyrir síðari heimsstyrjöldina hafa staðið yfir fornleifarannsóknir á grunninum undir Péturskirkjunni sem er höfuðkirkja Vatikansins. Sú Péturskirkja sem nú stendur var vígð árið 1626. Hún er reist á grunni eldri kirkju frá tímum Konstantínusar keisara á 4. öld, en kirkja Konstantínusar var aftur byggð á fornum grafreit og helgistað. Kirkjunni var valinn staður þarna vegna þess að heimildir sögðu að þar væri að finna gröf Péturs postula, lærisveinsins sem Jesú fól að vera leiðtogi hinnar ungu kirkju.
Fornleifafræðingar hafa í áratugi unnið að því að grafa sig í gegnum hin mörgu lög undir núverandi Péturskirkju. Í ljós hefur komið einstök borg sem kölluð er “Borg hinna dauðu” undir gólfi miðaldakirkjunnar. Þar er að finna stórkostlega skreytt grafhýsi og götur sem hægt er að ganga um eftir að hreinsað hefur verið frá mold og jarðvegur aldanna. Og þarna undir miðaldakirkjunni, fundu fornleifafræðingarnir gröf sem talin er geta geymt jarðneskar leifar Péturs postula. Allt hefur þetta magnaða völundarhús undirheima kirkjunnar verið endurreist og innsiglað og hefur ekki verið opið almenningi fyrr.

Það var ákaflega áhrifaríkt að sækja þennan stað heim í bæði skiptin sem ég kom þangað. Ferðin í Borg hinna dauðu hefst hjá svissnesku vörðunum við hlið Vatikansins. Þar tekur leiðsögumaður við ferðalöngum og fer með þá í kjallara Péturskirkjunnar. Aðeins 10 manns eru í hverjum hóp. Frá kjallaranum er gengið æ dýpra niður í undirdjúpin undir Péturskirkjunni, úr einu hólfi í annað sem afmarkað er með skotheldum glerhurðum. Þarna í undirdjúpunum gengum við um götur þessarar borgar dauðans og sáum hvernig fólk á fyrri tíð hafði útbúið grafir forfeðra sinna. Þar var meðal annars að finna tröppur sem lágu upp á þök yfir grafhýsunum. Þangað fór fólk gjarnan á frídögum með mat og vín, naut hvíldar og drykkjar og helti síðan víni niður í grafirnar svo hinir látnu gætu tekið þátt í samfélagi fjölskyldurnar. Mikil listaverk, lágmyndir og styttur prýða marga grafreitina sem fyrir augu ber. Og listaverkin eru bæði frá kristnum tíma og tímanum fyrir kristni. Þar má sjá egypsku guðina Hórus, Ísis og Ósíris í bland við gríska og rómverska guði og kristna dýrlinga. Einn legsteinn fannst mér öðrum hjartnæmari og sýnir hann hversu lítið við höfum nú breyst í gegnum aldirnar mennirnir og hversu vænt okkur þykir um ástvini okkar, hvort sem er í dag eða Róm fyrir 2000 árum. Á steininn, sem var frá fyrstu öld eftir Krist og einfaldur af allri gerð var ritað á latínu:

„Hér hvílir Flavíus, hann lifði í 36 ár, þrjá mánuði og fjóra daga. Hann var hinn besti bróðir, alltaf spaugsamur og með bros á vör og hann deildi aldrei við nokkurn mann“.

Stórkostlegt listaverk af Jesú

Þarna gat einnig að líta stórkostlega listaverk af Jesú frá þriðju öld eða um það leiti sem kristin trú var að sigra Rómaveldi. Hann er gulli prýddur eins og sólguðinn sjálfur í himinhæðum og greinilegt að listamaðurinn hefur nýtt sér skreytihefðina frá því þegar Rómverjar tilbáðu Sol Invictus eða hina ósigrandi sól. Þá hefð tileinkaði kirkjan sér líka því upphaflega var 25. desember dagur sólarinnar, dies solaris, í Rómaveldi, en varð síðar gerður að mestu hátíð Kristninnar, jólum, eða kristsmessu, hátíðinni þegar ljósið, sol invictus, kom í heiminn í barninu í Betlehem. En það er nú önnur saga. ​Áfram lá leiðin í gegnum borg hinna dauðu þar til við komum loks að hvelfingu við undirstöður grafhýsanna fyrir ofan okkur. Þá staðnæmdist leiðsögumaðurinn og benti okkur á lítið op í marmaranum þar sem greina mátti horn af fornum kistli. Sagði hann okkur að þessi kistill væri skrín það sem talið væri að Pétur postuli hefði verið jarðsettur.

​Eftir stutta stund héldum við frá Pétri postula, upp gegnum jarðlög og forn kirkjugólf þar til er við aftur vorum komin í hvelfingarnar sem eru kjallarar núverandi Péturskirkju. Þar eru miklar kapellur gulli og dýrum gripum prýddar og listaverkum aldanna. Svo opnaði leiðsögumaðurinn dyr og við gengum inn í nútímann.

Það var eins og að snúa aftur í sólina úr ríki hinna dauðu.

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.