Flórens er töfrandi borg og algerlega ómótæðileg

Borgin er vagga endurreisnarinnar og heimaborg helstu listamanna hennar eins og Michelangelo, Leonardo da Vinci, Dante Alighieri og Filippo Brunelleschi. Um leið er hún hjarta ítalskrar matarmenningar, höfuðborg Toskana héraðs og hvergi betra að upplifa það besta sem Ítalía hefur upp á að bjóða í mat og drykk.

Í Flórens nýtur þú þess að heimsækja Galleria dell’Accademia undir leiðsögn sr. Þórhalls Heimissonar en það er listasafn sem meðal annars geymir styttuna Davíð eftir Michelangelo um leið og þú færð tækifæri til að ganga um hinar fornu götur þessarar ljúfu borgar, sækja heim markaðinn, kíkja í búðirnar á Piazza Santo Spirito og njóta fegurðar dómkirkjunnar Santa Maria Del Fiore og umhverfis hennar.

Einn af hápunktum ferðarinnar er heilsdags matar- og vínferð til hins undurfagra Toskana héraðs.

Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi

Flogið með Icelandair kl. 08:15 og lent á FCO flugvellinum í Róm kl. 15:00. Tímamismunur eru +2 klst. Rúta bíður hópsins og sr. Þórhallur tekur á móti ferðalöngum ásamt Hildi Jónsdóttur svæðisstjóra Kolumbus – Ævintýraferða á Ítalíu. Ekið er á hótel Grand Hotel Adriatico sem er í hjarta Flórens þar sem dvalið er í 5 nætur. Þórhallur nýtir tímann til að fara yfir dagana sem eru í vændum og segja frá því sem fyrir augu ber. Rútuferðin til Flórens tekur rúmar þrjár klukkustundir og er stoppað einu sinni á leiðinni svo fólk geti farið á salerni og fengið sér hressingu. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Kvöldverður.

Fyrri dagur skoðunarferða um Flórens

Sérstakar hámarksreglur gilda um stærð hópa og verður hópnum því skipt í tvo hluta á mismunandi tímum og dögum en þó ávallt undir leiðsögn Þórhalls. Minni hópar gera okkur einnig kleift  að veita betri og nánari þjónustu og útskýringar leiðsögumanns.

Hópur 1 – Akademían

Gengið er frá hótelinu um morguninn,  Þórhallur leiðir hópinn með sér í Galleria dell’Accademia sem er staðsett í hjarta borgarinnar. Þar er að finna einhver þekktustu listaverk sögunnar og þeirra fremst höggmyndir Michelangelo en meðal þeirra er hin fræga höggmynd af Davíð. Ekki síðra er safn gamalla og nýrra ítalskra málverka sem þar er að finna og safn gifsmynda eftir Lorenzo Bartolini og nemenda hans Luigi Pampaloni svo fátt eitt sé nefnt. Skoðunarferðin tekur um 2 tíma. 

Hópur 2 – Akademían

Gengið er frá hótelinu í eftirmiðdaginn, Þórhallur leiðir hópinn með sér í Galleria dell’Accademia sem er staðsett í hjarta borgarinnar. Þar er að finna einhver þekktustu listaverk sögunnar og þeirra fremst höggmyndir Michelangelo en meðal þeirra er hin fræga höggmynd af Davíð. Ekki síðra er safn gamalla og nýrra ítalskra málverka sem þar er að finna og safn gifsmynda eftir Lorenzo Bartolini og nemenda hans Luigi Pampaloni svo fátt eitt sé nefnt. Skoðunarferðin tekur um 2 tíma. 

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Seinni dagur skoðunarferða um Flórens

Hópur 1 – Dómkirkjan

Gengið er frá hótelinu um morguninn og upplifum við hin fornu torg og sjáum m.a. Palazzo Vecchio á Piazza della Signoria, hina yfirbyggðu brú Ponte Vecchio og markaðinn. Hápunktur göngunnar er heimsókn í dómkirkjuna Santa Maria del Fiore sem reist var á 15. öld og er þriðja stærsta kirkja í Evrópu. Yfir kirkjunni gnæfir hvelfing Filippo Brunelleschi sem var vígð 1436. Við skoðum kirkjuna og rústir hinnar fornu kirkju í hvelfingunum undir henni. Einnig sækjum við heimskírnarkapellu heilags Jóhannesar sem stendur á torginu við kirkjuna. Þau sem vilja geta síðan gengið upp í hvelfinguna eða kirkjuturninn (valbundið fyrir þá sem treysta sér til). Göngunni lýkur í miðbænum. 

Hópur 2 – Dómkirkjan

Gengið er frá hótelinu í eftirmiðdaginn og upplifum við hin fornu torg og sjáum m.a. Palazzo Vecchio á Piazza della Signoria, hina yfirbyggðu brú Ponte Vecchio og markaðinn. Hápunktur göngunnar er heimsókn í dómkirkjuna Santa Maria del Fiore sem reist var á 15. öld og er þriðja stærsta kirkja í Evrópu. Yfir kirkjunni gnæfir hvelfing Filippo Brunelleschi sem var vígð 1436. Við skoðum kirkjuna og rústir hinnar fornu kirkju í hvelfingunum undir henni. Einnig sækjum við heimskírnarkapellu heilags Jóhannesar sem stendur á torginu við kirkjuna. Þau sem vilja geta síðan gengið upp í hvelfinguna eða kirkjuturninn (valbundið fyrir þá sem treysta sér til). Göngunni lýkur í miðbænum. 

Máltíðir innifaldar: Morgunverður. 

Matar- og vínferð um Toskana-hérað

Lagt er af stað snemma morguns frá hótelinu í Flórens og ekið út í hið fallega Toskana-hérað. Fyrsti viðkomustaður dagsins er hinn heillandi miðaldabær San Gimignano, þekktur fyrir steinturna sína, þröngar götur og einstakt andrúmsloft. Þar gefst tími til að ganga um bæinn, njóta útsýnisins yfir vínekrur og kynnast sögu og menningu staðarins ásamt staðarleiðsögumanni.

Að heimsókninni lokinni er ekið áfram að vínbúgarði í nágrenninu þar sem við erum boðin velkomin af heimamönnum. Þar fáum við fræðslu um vínrækt og vínframleiðslu á svæðinu og njótum vínsmökkunar á ljúfum vínum Toskana-héraðs. Í kjölfarið er boðið upp á ljúffengan hádegismat, unninn úr ferskum og staðbundnum hráefnum, þar sem matarmenning svæðisins fær að njóta sín til fulls.

Seinnipart dags er ekið til baka til Flórens og komið á hótel seinni hluta dags. Kvöldið er frjálst til að njóta borgarinnar á eigin vegum.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður og vínsmökkun.

Frjáls dagur í Flórens

Tækifæri til að njóta gamla bæjarins og markaðarins og heimsækja einhvern af þeim fjölmörgu veitingastöðum og kaffihúsum sem er að finna í Flórens. Um kvöldið er sameiginlegur hátíðarkvöldverður á veitingahúsi í gamla bænum. Gengið er saman frá hótelinu ásamt Þórhalli og Hildi.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Heimfarardagur

Lagt verður af stað með rútu á flugvöllinn um kl. 10:00 og komið þangað 3 klst. síðar. Innritun í flug Icelandair, FI 563 sem er áætlað kl. 16:20 og lendir í Keflavík kl. 19:10 að íslenskum tíma.

Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð

Sr. Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.

Hildur Jónsdóttir svæðisstjóri Kolumbus á Ítalíu verður Þórhalli til aðstoðar.

Verð: 349.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.

Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi  er 120.000 kr.

Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

• Flug Icelandair til Rómar fram og til baka – 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
• Gisting í 5 nætur á Grand Hotel Adriatico 4* með morgunverði.
• Máltíðir samkvæmt ferðalýsingu.
• Skoðunarferð í dómkirkjuna Santa Maria del Fiore og aðgöngumiði sem gildir í 3 daga í alla hluta kirkjunnar ásamt aðgangi upp í kúpulinn fyrir þá sem treysta sér upp.
• Skoðunarferð í Galleria dell’Accademia.
• Heilsdagsferð um Toskana, vínsmökkun og veglegur hádegisverður.
• Allur flutningur og skoðunarferðir, þ.m.t. aðgangseyrir samkvæmt ferðaáætluninni.
• Íslensk fararstjórn og leiðsögn í öllum skoðunarferðum ásamt heyrnartólum.
• Rútuakstur frá flugvelli að hóteli og til baka. 

Grand Hotel Adriatico 4*

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.