Menning, matur og vín
Einkasigling Kolumbus Ævintýraferða á Douro ánni um Portúgal og til Spánar
Í þessari ljúfu en spennandi ferð siglum við á skipinu MV Spirit of Chartwell frá Porto í Portúgal austur Douro dalinn að landamærum Spánar þar sem við heimsækjum hina fornfrægu borg Salamanca. Á leið okkar um Douro siglum við um mögnuð vínræktarsvæði en Douro dalurinn er komin á Heimsminjaskrá UNESCO sem eitt elsta skipulagða vínræktarsvæði heims. Við höfum það verulega huggulegt á þessari fallegu siglingarleið, heimsækjum sögustaði og víngerðarhús og kynnum okkur matargerð og aðra menningu heimamanna á stöðum s.s. Entre-os-Rios, Régua, Lamego, Castelo Rodrigo og Salamanca auk skoðunarferðar um Porto.

Spirit of Chartwell heitir eftir bústað Winston Churchill, Chartwell House, en skipið var gert upp árið 2012 í núverandi mynd vegna 60 ára krýningarafmælis Elísabetar II Bretadrottningar. Í tilefni þessara tímamóta sigldi drottningin og konungsfjölskyldan á Spirit of Chartwell upp Thames ána en skipið er innréttað í stíl Orient Express járnbrautarinnar. Skipið tekur aðeins 28 farþega í 14 huggulegum káetum sem eru með aðskildum rúmum (Twin bed). Áhöfnin telur 12 manns.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Flogið verður frá Keflavík með flugfélaginu SWISS til Zurich þann 21. maí kl. 09:05 þar sem lent verður kl. 15:00 að staðartíma. Þaðan verður svo flogið áfram með sama flugfélagi til Porto kl.16:50 og lent þar kl. 18:30.
Eftir komu til Porto verður ekið að hótelinu okkar, Forte de Gaia í Vila Nova de Gaia sem stendur nálægt Gaia Pier við Douro.

Siglt til Entre-os-Rios
Eftir morgunverð er upplagt að taka sér göngutúr meðfram bryggjunni og taka brúna yfir í miðbæinn. Tilvalið að fá sér létta hádegishressingu á einhverjum hinum fjölmörgu veitingastöðum sem standa við ána. Um 14:30 göngum við með farangurinn okkar frá hótelinu yfir í MV Spirit of Chartwell sem liggur skammt undan og innritum okkur í skipið. Í framhaldi leysum við landfestar og siglum til Entre-os-Rios þar sem lagst verður við bryggju yfir nóttina.
Kvöldverður um borð og skemmtun með portúgölskum tónlistarmönnum.

Régua – Lamego
Eftir morgunverð um borð siglum við áfram til Púrtvínsbæjarins Régua. Hádegisverður um borð en síðan haldið í skoðunarferð með rútu til fallega bæjarins Lamego sem er þekktur fyrir Barok arkitektúr og oft nefndur menningarhöfuðborg Douro dalsins. Þar smökkum við ýmislegt spennandi.
Kvöldverður í landi í víngerðarhúsi skammt frá Régua.

Mateus höllin
Flest könnumst við sjálfsagt við rósavín frá Portúgal og ekki síst rósavínið frá Mateus sem á sjöunda áratugnum virtist vera eitt af aðal léttvínum til sölu hjá ÁTVR. Í dag ætlum við að skoða Mateus höllina og garðana fögru í kringum hana. Höllin eða Casa de Mateus og eins og hún er kölluð í dag er frá 18. öld er enn í eigu Greifans af Vila Real en Mateus sjóðurinn kom að rekstri hennar árið 1970 og tók að sér að reka og viðhalda þessum menningarverðmætum og jafnframt nýta þau undir ýmsa menningartengda starfsemi s.s. tónleika og sýningar.
Mateus er í eigu Sogrape fjölskyldunnar sem er stærsti vínframleiðandi Portúgals.

Salamanca
Eftir morgunverð er ekið til spænsku borgarinnar Salamanca. Þessi fallega háskólaborg sem er á Heimsminjaskrá UNESCO á ríka sögu, glæsilegar byggingar og hér var fyrsti háskóli Spánar stofnaður árið 1218. Sagt er að Salamanca sé ákjósanlegasta borg Spánar ef þú ætlar að læra fullkomna spænsku, en hér varð spænska málfræðin til.
Við snæðum við hádegisverð og horfum á glæsilega Flamenco danssýningu.
Kvöldverður um borð í Spirit of Chartwell með portúgölsku þema.

Castelo Rodrigo
Nú er ferðinni heitið til Castelo Rodrigo, lítils þorps með mikla sögu þar sem Kristnir, Múslimar og Gyðingar lifðu um aldir í sátt og samlyndi. Grunnurinn Að Castelo Rodrigo var lagður af Rómverjum er þeir byggðu hér virki, en þorpið stendur í 670m hæð yfir sjávarmáli. Castelo Rodrigo og svæðið í kring byggir afkomu sína á landbúnaði s.s. kornrækt, ólífum, nautgriparækt og granítnámum. Síðan er það að sjálfsögðu vínið sem hefur verið framleitt hér síðan á 12. öld.
Við ætlum að skoða þorpið, upplifa söguna og smakka eitthvað spennandi.

Entre-os-Rios
Morguverður og siglt frá Régua til Entre-os-Rios.
Heimsókn og hádegisverður í landi. Siglum síðdegis frá Entre-os-Rios til Porto (Vila Nova de Gaia) og njótum samverunnar á efra dekkinu á þessari fallegu siglingarleið.
Kvöldverður um borð.

Heimferðardagur
Eftir morgunverð förum við í skoðunarferð um Porto.
Hádegisverður um borð og síðan frjáls tími.
Síðdegis verður svo ekið með rútu til Lissabon (um 3 klst. ferðalag) og flogið þaðan beint til Keflavíkur með Icelandair kl. 22.20 og lent kl. 01:50, aðfararnótt 29. maí.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð
Goði Sveinsson er skipuleggjandi og fararstjóri þessarar ferðar. Hann hefur langa reynslu af ferðaþjónustu eftir starf sitt m.a. sem sölu- og markaðsstjóri Úrval/Útsýn og fleiri ferðaskrifstofa um langt árabil.
Auk Goða verður enskumælandi staðarleiðsögumaður.
Verð á mann: 589.000 kr. Einungis er boðið uppá gistingu í tvíbýli.
Geiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför og þá er hægt að velja á milli greiðslu með greiðslu í gegnum heimabanka eða kreditkorti.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Flug og flugvallaskattar ásamt 20 kg tösku
• Ferðir til og frá flugvelli í Porto
• Ein nótt á hóteli í Porto
• Sigling með gistingu í 6 nætur
• Allar skoðunarferðir og aðgangur að söfnum skv. ferðalýsingu
• 7 morgunverðir, 6 hádegisverðir og 6 kvöldverðir
• Drykkir með hádegis- og kvöldverðum
• Íslensk fararstjórn og staðarleiðsögumaður
Ekki Innifalið
• Þjórfé
• Aðrar skoðunarferðir en tilgreindar í ferðalýsingu
• Sérvalin vín og drykkir aðrir en með máltíðum
Spirit of Chartwell
Douro dalurinn
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar


























