Róm er án efa ein fegursta borg í Evrópu sem hefur að geyma áhrifamikla sögu Rómverja í árþúsund.

Róm er án efa ein fegursta borg í Evrópu og hefur að geyma áhrifamikla sögu sem spannar árþúsundir. Enda er hún kölluð „Borgin eilífa“. Róm hrífur ferðamenn og margir koma þangað aftur og aftur því aldrei verður hægt að skoða nóg í þessari stórfenglegu borg.

Kolumbus – Ævintýraferðir bjóða upp á einstaka söguferð með sr. Þórhalli Heimissyni sem er öllum hnútum kunnugur í borginni og hefur starfað þar sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005. Í ferðinni fá farþegar að fræðast um sögu Rómverja á öldum áður og allt til nútímans og njóta sérstakrar leiðsagnar um merkustu byggingar borgarinnar, sjálfa Péturskirkjuna, Vatikansafnið og Kólóseum, hringleikahúsið fræga, sem á sér engan líka í þessum heimi.

Gist er á Hótel Morgana, 4* hóteli í miðborginni, nálægt Kólóseum þar sem er mikið mannlíf og fjöldi veitingastaða. Boðið er upp á gönguferðir með leiðsögumanni um Gyðingahverfið og heimsóknir á frábær ítölsk veitingahús að kvöldi til þar sem stemmningin er einstök.

Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi

Flogið í beinu flugi með Icelandair kl. 08:20 og lent á FCO flugvellinum í Róm um kl. 14:00. Tímamismunur er 1 klst. Rúta bíður hópsins og sr. Þórhallur tekur á móti ferðalöngum ásamt Hildi Jónsdóttur svæðisstjóra Kolumbus ævintýraferða á Ítalíu. Ekið verður með rútu á Hotel Morgana 4* þar sem dvalið verður í 5 nætur. Komið er síðdegis til innritunar a hótelið.

Eftir að hópurinn hefur innritað sig á hótelið og komið sér fyrir á herbergjunum verður gengið saman á nærliggjandi veitingahús í nágrenninu þar sem gestir njóta ljúfrar stemningar og fá tækifæri til að kynnast hvert öðru betur. Kvöldið verður prýtt þriggja rétta máltíð ásamt víni. 

Skoðunarferðir í Vatíkanið fyrir fyrstu 2 hópana af 3.
– Hópur 3 á frí þennan dag.

Fyrstu tvær skoðunarferðir af þremur í Vatíkanið. Sérstakar hámarksreglur gilda um stærð hópa og verður hópnum því skipt í þrennt og tekur skoðunaferðin 4-4,5 klst með rútuferðum fram og til baka.
Hópur 1: Morgunferð í Vatíkanið.
Hópur 2: Eftirmiðdagsferð í Vatíkanið.

Farið er með skutlum (minivan) að Vatíkansafninu þar sem skoðunarferðin hefst. Við skoðum stórkostleg listaverk, forn og ný. Skoðunarferðinni um Vatíkansafnið lýkur í Sixtínsku kapellunni sem er skreytt hinum frægu málverkum Michelangelos. Hópurinn hefur síðan forgangsaðgang beint frá Sixtínsku kapellunni yfir í Péturskirkjuna, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að skoða með leiðsögn eina stærstu og áhrifamestu kirkju sögunnar. Farið er með skutlum (minivan) til baka á hótelið. 

Hópur 3 á frí þennan dag og getur skoðað sig um í borginni en sr. Þórhallur getur gefið góðar ábendingar um gönguleiðir, verslunargötur, veitingahús og áhugaverða staði að heimsækja.

Kólóseum

Gengið er frá Hótel Morgana að Kólóseum ásamt Þórhalli og erlenda leiðsögumanninum en gangan tekur aðeins 15-20 mín. Farið verður inná þennan gamla leikvang Rómverja og síðan er haldið á rómversku torgin í framhaldinu. Ferðin tekur um 3 klst.

Sérstakar hámarksreglur gilda um stærð hópa í Kólóseum og til að gera upplifun gesta sem besta verður hópnum skipt upp í tvær ferðir:

Hópur 1: Morgunferð í Kólósum undir leiðsögn sr. Þórhalls Heimissonar.

Hópur 2: Eftirmiðdagsferð í Kólósum undir leiðsögn sr. Þórhalls Heimissonar.

Eftir rómversku torgin er hægt að ganga til baka áleiðis að miðbænum eða upp á hótel. Kvöldið er frjálst.

Athugið að nauðsynlegt er að hafa gild skilríki eða vegabréf meðferðis samkvæmt reglum um aðgengi að Kólóseum.

Skoðunarferð í Vatíkanið fyrir hópa 3
– Hópar 1 og 2 eiga á frí þennan dag.

Síðasta skoðunarferð af þremur í Vatíkanið.
Hópur 3: Morgunferð í Vatíkanið. 

Farið er með skutlum (minivan) að Vatíkansafninu þar sem skoðunarferðin hefst. Við skoðum stórkostleg listaverk, forn og ný. Skoðunarferðinni um Vatíkansafnið lýkur í Sixtínsku kapellunni sem er skreytt hinum frægu málverkum Michelangelos. Hópurinn hefur síðan forgangsaðgang beint frá Sixtínsku kapellunni yfir í Péturskirkjuna, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að skoða með leiðsögn eina stærstu og áhrifamestu kirkju sögunnar. Farið er með skutlum (minivan) til baka á hótelið.

Aðrir eiga frí þennan dag og geta skoðað sig um í borginni en sr. Þórhallur getur gefið góðar ábendingar um gönguleiðir, verslunargötur, veitingahús og áhugaverða staði að heimsækja.

Frjáls dagur í Róm

Engin skipulögð dagskrá og því tilvalið að nota daginn til að skoða sig um í miðborginni, heimsækja verslanir og veitingastaði. Boðið verður uppá valkvæðan kvöldverð með fararstjóra fyrir hópinn sem hægt er að skrá sig í við komu. Mun séra Þórhallur bjóða gestum að ganga með sér í gegnum gyðingahverfið sem endar svo með rómverskum kvöldverði við Campo de’ Fiori torgið í hjarta Rómar.

Heimfarardagur

Lagt verður af stað með rútu á flugvöllinn kl. 07:30 og komið þangað 1 klst. síðar. Innritun í flug Icelandair sem er áætlað kl. 11:25 og lendir í Keflavík kl. 15:30 að íslenskum tíma. 

Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð

Sr. Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.

Hildur Jónsdóttir svæðisstjóri Kolumbus á Ítalíu verður Þórhalli til aðstoðar. 

Verð: 259.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi  er 59.000 kr.

Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

Flug Icelandair til Rómar fram og til baka – 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
Gisting í 5 nætur á Hotel Morgana 4* með morgunverði.
Gistináttagjald, €15 pr. nótt.
Skoðunarferð í Vatíkanið og forgangsaðgangur í Péturskirkjuna með skutlum (minivan) til og frá hóteli.
Skoðunarferð í Kólóseum.
Kvöldverður á komudegi.
Íslensk fararstjórn og leiðsögn í öllum skoðunarferðum ásamt heyrnartólum.
Rútuakstur frá flugvelli að hóteli og til baka.

Hotel Morgana 4*

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.