Napólí, Pompei, Sorrento, Amalfíströndin og Capri

Napólí er án efa ein af áhugaverðustu borgum Ítalíu, iðandi af mannlífi á hverju götuhorni, mörkuðum, og veitingahúsum. Campania hérað er rómað fyrir matarmenningu, enda fæðingarstaður pizzunnar, og þekkt fyrir dásamlegu Mozzarella Osta og sítrónuræktina svo eitthvað sé nefnt. Í þessari einstöku ferð munum við ekki aðeins heimsækja Napólí sjálfa, heldur einnig fjölmarga áhugaverða staði í grennd við borgina. Þar má nefna Amalfíströndina, Pompei sem er á heimsminjaskrá UNESCO, að ógleymdri siglingu til Capri sem verið hefur áfangastaður ferðamanna allt frá tímum Rómverja.

Þórhallur Heimisson er fararstjóri í þessari ferð og fræðir gesti um sögu og menningu svæðisins og heimsækir með þeim heillandi þorp, sólrík torg og staði þar sem má njóta útsýnis yfir landið og miðin. Töfrandi ferð um eitt fallegasta svæðið við Miðjarðarhaf sem skartar sínu fegursta í landslagi, matargerð og mannlífi. Sannkölluð perla Ítalíu.

Ferðatilhögun

Komudagur

Flogið er með beinu flugi Icelandair kl. 07:50 og lent á FCO-flugvellinum í Róm um kl. 14:35. Tímamismunur er 2 klukkustundir. Fararstjórinn Þórhallur Heimisson tekur á móti hópnum á flugvellinum í Róm og ekur með honum í rútu til hótelsins okkar í hjarta Sorrento.

Á leiðinni verður stoppað og hægt að kaupa sér léttan kvöldverð.

Við komum svo að kveldi til Sorrento og gistum á Grand Hotel Cesare Augusto, sem státar af þaksundlaug og glæsilegu útsýni yfir Vesúvíus.

Gönguferð um Sorrento

Við hefjum daginn á notalegri gönguferð um Sorrento þar sem helstu kennileiti bæjarins verða skoðuð. Þórhallur leiðir hópinn og með í för verður ítalskur leiðsögumaður til aðstoðar.

Að lokinni gönguferð er tilvalið að rölta um bæinn og setjast niður á einum af þeim fjölmörgu veitingastöðum sem þar er að finna.

Eftirmiðdagurinn og kvöldið eru frjáls til að njóta þess að rölta um Sorrento og kanna bæinn á eigin vegum eða setjast upp við sundlaugarbakkann.

Dagsferð til Capri

Siglt yfir til Capri frá Sorrento sem er aðeins um 20 mínútna ferð. Þegar komið er að landi verður farið í minni bát sem siglir með hópinn í klukkustundar bátsferð um eyjuna. Síðan er farið í rútum upp til Anacapri og í stólalyftu (fyrir þá sem treysta sér og greitt er fyrir það aukalega) upp á efsta topp eyjarinnar, á Monte Solaro, þar sem útsýnið er engu líkt.

Eftir útsýnisferðina í stólalyftunni er boðið upp á sameiginlegan hádegisverð í Anacapri. Að því loknu verður ekið til Capri þar sem frjáls tími gefst til að skoða sig um og versla.

Eftir yndislegan dag í Capri göngum við saman niður að höfn þar sem báturinn leggur af stað til baka til Sorrento og komið til Sorrento fyrir kvöldmat.

Amalfi ströndin

Brottför frá hótelinu með farangurinn um morguninn  í heilsdagsferð þar sem siglt er meðfram ströndum Amalfi-skagans. Ekið verður niður að höfninni í Salerno þar sem einkabátur bíður hópsins. Siglt verður frá Salerno til Positano og gengið um sannkallaðan „póstkortabæ”.

Eftir það verður siglt yfir til Amalfi þar sem hópurinn snæðir sameiginlegan hádegisverð við sjóinn, í framhaldinu er frjáls tími til að ganga um þann sögufræga bæ. Þeir sem hafa áhuga getað skoðað dómkirkjuna (greiða þarf aðgang) í fylgd með okkar leiðsögumanni.

Siglt er til baka til Salerno þar sem rúta bíður hópsins og ekur ferðalöngum á Hotel Royal Continental í Napoli sem er staðsett á einstökum stað beint við höfnina og með útsýni yfir hafið.

Kvöldið er frjálst. 

Gönguferð um Napólí

Hótelið okkar er á frábærum stað við ströndina og nærri miðbænum í Napólí. Við göngum þess vegna beint frá hótelinu og niður í bæinn eftir morgunverð, þar sem Þórhallur segir okkur frá öllu sem fyrir augu ber, allt frá konungshöllinni, kastalanum og dómkirkjunni, yfir í göngugöturnar í gamla bænum, verslunarhverfi og hverfi Maradonna. Gönguferðin endar í hjarta borgarinnar þar sem hver og einn getur sest niður í hádegismat í gamla bænum.

Eftirmiðdagurinn er frjáls og veitir leiðsögumaður allar upplýsingar um það sem er hægt að nota daginn í.

Pompei og vínsmökkun

Eftir morgunverð leggjum við af stað í heilsdagsferð þar sem við skoðum hina einstöku fornu borg Pompei og njótum síðan vínsmökkunar í hlíðum Vesúvíusar.

Ekið verður til Pompei þar sem gengið er um hina fornu borg sem grófst undir ösku og gjósku þegar Vesúvíus gaus árið 79. Þórhallur leiðir ferðina og lýsir því sem fyrir augu ber ásamt heimaleiðsögumönnum.

Eftir magnaðan morgun í Pompei verður farið í einn af hápunktum ferðarinnar – vínsmökkun á yndislegum og sólríkum stað nærri Pompei, í hlíðum Vesúvíusar. Þar fáum við að ganga um vínekrurnar og njóta dýrindis máltíðar með útsýni yfir Napólíflóann. Boðið verður upp á árstíðabundinn mat sem paraður er við vínin frá svæðinu.

Sannkölluð sælkeraferð.

Heimferð

Lagt af stað frá hóteli eftir morgunverð og keyrt til FCO-flugvallarins í Róm. Lagt verður af stað með rútu á flugvöllinn um kl. 07:30 og komið þangað 3,5 klst. síðar.

Innritun í flug Icelandair sem er áætlað kl. 15:45 og lendir í Keflavík kl. 18:35 að íslenskum tíma.

Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð

Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.

Verð: 409.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi. Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 105.000 kr.

Geiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

●  Flug frá Keflavík til Rómar fram og til baka, allir skattar og gjöld
●  23 kg innrituð taska
●  Gisting á Hotel Grand Hotel Cesare Augusto 4* í Sorrento í 3 nætur með morgunverði
●  Gisting á Hotel Royal Continental 4* með svölum og sjávarútsýni yfir Napólí flóann
●  Allur rútuakstur til og frá flugvelli, hóteli og að öllum stöðum skv. ferðalýsingu
●  3 hádegsiverðir og vínferð
●  Aðgöngumiðar, bátsferðir og þjónusta staðarleiðsögumanna skv. ferðalýsingu
●  Íslensk fararstjórn og leiðsögn Þórhalls Heimissonar

Grand Hotel Cesare Augusto ★★★★
Hotel Royal Continental ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.