Við kynnumst töfrum Norður-Spánar og Baskalands þar sem menning, matarhefðir og landslag renna saman í eina ógleymanlega upplifun

Ekið er um vín- og matarhéruðin Castilla y León, Rioja, Navarra og Aragon. Við heimsækjum Burgon, kynnumst framleiðslu heimamanna, heimsækjum nautahlaupsborgina Pamplona, förum í Guggenheim-safnið í Bilbao og verjum tveimur síðustu dögunum í San Sebastian, sem oft er sögð fegursta strandborg Spánar.

PARADORES

Við gistum í Paradores, en það er keðja 4* vandaðra og spennandi gististaða í uppgerðum sögufrægum byggingum um allan Spán, t.d. fyrrum klaustrum, höllum, spítölum og köstulum, sumum hverjum við hinn fornfræga Jakobsveg sem pílagrímar hafa þrætt í aldanna rás á leið sinni til Santiago de Compostela. Á Paradores-hótelum eru frábærir veitingastaðir þar sem mikið er lagt upp úr upplifun í mat og víni frá viðkomandi héraði.

Þegar komið er til Bilbao og San Sebastian gistum við í 4–5* hótelum á góðum stað í þessum frábæru borgum.

Flogið með Icelandair og SAS til Madrid gegnum Kaupmannahöfn. Í bakaleið fljúgum við frá Bilbao til Kaupmannahafnar með SAS og áfram til Keflavíkur með Icelandair.

Ferðatilhögun

Flogið gegnum Kaupmannahöfn og áfram til Madrid. Lent á Barajas  flugvellinum í Madrid kl. 17:40.  Tímamismunur er 2 klst. Rúta bíður hópsins og ekið er í um hálfa klukkustund til bæjarins Alcalá de Henares skammt norður af borginni, en bærinn er á Heimsminjaskrá Unesco. Þar gistum við fyrstu nóttina á Parador Acálas de Henares sem er í grunninn klaustur frá 18. öld sem byggt hefur verið við.

Sameiginlegur kvöldverður á Paradornum (innifalið).

Eftir góðan morgunverð leggjum við af stað norður á bóginn og ökum út á slétturnar í héraðinu Castilla y León, beint til borgarinnar Burgos.  Dómkirkjan í Burgos er á heimsminjaskrá Unesco. Við snæðum sameiginlegan hádegisverð (innifalið), göngum um þessa fallegu borg og skoðum stórkostleg listaverk í dómkirkjunni.

Síðdegis er ekið inn í Rioja hérað, en þar gistum við næstu tvær nætur í smábænum Santo Domingo de la Calzada. Gististaður okkar Parador Santo Domingo de la Calzada, fyrrum sjúkrahús fyrir pílagríma á Jakobsveginu, byggt á 13. öld og stendur við aðaltorg gamla bæjarins.

Sameiginlegur kvöldverður á Paradornum (innifalið).

Eftir morgunverð förum við í gönguferð um Santo Domingo de la Calzada sem er einn af þekktari áningarstöðum pílagríma á leið til Santiago de Compostela. Um hádegisbil heimsækjum við svo vínframleiðandann Baigorri sem er einn yngsti og framsæknasti vínframleiðandi héraðsins. Þarna snæðum við góðan mat með vínpörun að hætti hússins (innifalið). Síðdegis verður ekið til litla, fallega vínbæjarins Laguardia þar sem við röltum eftir steinlögðum strætum og öndum að okkur sögunni og fegurðinni.

 

Við kveðjum Santo Domingo de la Calzada og ökum í austurátt og heimsækjum elsta vínframleiðandann í Rioja og einn af þekktustu vínframleiðendum Spánar, Marques de Riscal.

Við njótum vínsmökkunar (innifalið) með skemmtilegum og fræðandi starfsmönnum og skoðum síðan framleiðsluna og staðarhætti. Hótelið á staðnum er stórkostleg bygging, teiknuð af einum þekktasta arkitekt veraldar, Frank Gehry, sem hannaði einnig Guggenheim-safnið í Bilbao.

Að lokinni þessari skemmtilegu heimsókn ökum við til Logrono, núverandi höfuðborgar Riojahéraðs. Logrono er falleg og nútímaleg borg sem gaman er að heimsækja. Við kíkjum á helsta matarmarkað borgarinnar, röltum um fallega miðborgina og fáum okkur Pintxos (Tapas á Baskamáli). Fyrir þá sem hafa áhuga þá er gott úrval verslana af öllu tagi.

Eftir viðdvöl Logrono ökum við áfram austur gegnum Navarrahérað í átt að Pýreneafjöllum og inní Aragon héraðið. Næsti gististaður okkar er Paradorinn í Sos del Rey Católico í samnenfndum bæ. Einstakur gististaður sem að hluta til er herragarður reistur á miðöldum. Hér snæðum við sameiginlegan kvöldverð í Paradornum (innifalið).

 

Eftir morgunverð ökum við til borgarinnar Pamplona, en hún er heimsfræg fyrir hið árlega nautahlaup sem dregur að fífldjarfa einstaklinga ár hvert – víðsvegar að úr heiminum.

Eftir að hafa skoðað Pamplona og heimsótt nautaatshringinn þar sem við sjáum áhugaverða sýningu um hlaupið liggur leið okkar til Vitoria-Gasteiz sem er höfuðborg Baskalands en þar situr þing Baskalands. Þar er upplagt að fá sér hádegisverð og skoða miðborgina áður en við höldum för okkar áfram til Bilbao.

Við komuna til Bilbao innritum við okkur á The Artist 5* hótel í miðborginni. Síðdegið er svo frjálst og tilvalið að fá sér göngutúr um þessa skemmtilegu og fallegu borg.

Eftir morgunverð göngum við yfir í hið víðfræga Guggenheim safni í Bilbao sem er steinsnar frá hótelinu. Ekki aðeins eru sýningar safnsins í heimsklassa heldur er byggingin sjálf eitt stórt listaverk, hannað af Frank Gehry, sem er ótrúlega gaman að skoða og njóta. Eftir hádegi er ferðinni heitið til San Sebastian sem oftast er talað um sem fegurstu strandborg Spánar. Hér eru fallegar byggingar, fjölbreytt mannlíf, urmull góðra veitingastaða og verslana og mikil náttúrufegurð. Hér innritum við okkur á Hotel Catalonia Donostia 4* í miðborginni, en Donostia er nafn San Sebastian á basknesku.

Eftirmiðdagurinn er frjáls eftir að komið er á hótelið og tilvalið að skella sér í bæjarrölt eða á ströndina. Kvöldið er einnig frjálst og góð hugmynd að rölta á milli bara og fá sér Pintxos (Tapas) en Pintxos eru meira í ætt við smárétti sem oft er mikið lagt í og geta verið algjör veisla fyrir bragðlaukana.

Dagurinn er frjáls. Tilvalið að skella sér á ströndina ef veður er gott en hvernig sem viðrar er alltaf gaman að labba um þessa vinalegu og fallegu borg og njóta arkitektúrs, landslags og kíkja í verslanir og veitingastaði.

Um kvöldið sameinast hópurinn í kveðjukvöldverði á góðum veitingastað (innifalið).

Þá er komið að heimfarardegi. Eftir mogurverð ökum við yfir á Bilbao flugvöll en flug okkar til Kaupmannahafnar er kl. 12:25, lent þar kl. 15:10.

Upplagt er að kíkja inn í Köben og fá sér kvöldverð áður en flogið er til Keflavíkur kl. 22:35. Lending í Keflavík kl. 23:50 að íslenskum tíma.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Goði Sveinsson er skipuleggjandi og fararstjóri í þessari ferð. Hann er með áratuga reynslu af flug- og ferðaskrifstofurekstri. Goði er áhugamaður um mat og vín og þekkir Norður-Spán og Baskaland vel eftir fjölda ferða um þessi mögnuðu héruð Spánar. 

Verð á mann: 499.000 kr.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 115.000 kr.

Greiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

Flug, 23kg taska og allir skattar og gjöld.
Gisting í 7 nætur á Paradors 4* og völdum hótelum 4–5* með morgunverði.
Allur rútuakstur.
Hádegisverður í Burgos, hádegisverður og vínpörun í Rioja, vínsmökkun hjá Marques de Riscal.
Kvöldverðir í Paradorunum í Alcalá de Henares, Santo Domingo og Aragon.
Kveðjukvöldverður í San Sebastian.
Aðgangur að Guggenheim-safninu í Bilbao.
Þjórfé.
Íslensk fararstjórn.

Ekki Innifalið

Aðrar máltíðir en getið er hér að ofan.

Gististaðir í ferðinni

Parador Acálas de Henares ★★★★
Santo Domingo de la Calzada ★★★★
Sos del Rey Católico ★★★★
Radisson Collection Bilbao ★★★★★
Hotel Catalonia Donostia ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.