Sr. Þórhallur Heimisson
skrifar um Caprí.

Það er næstum því dulúðug upplifun að mæta snemma að morgni dags niðri við bryggju í miðri Napolí á Ítalíu, stíga um borð í litla ferju eða flugbát og halda út á Napolíflóann í átt til hinnar yndisfögru eyjar Caprí sem kúrir lengst úti á flóanum. Þangað er um klukkutíma sigling frá meginlandinu. Caprí hefur frá fornu fari lokkað til sín gesti enda ótrúlega falleg og einstök náttúruperla.
Á leiðinni til Caprí siglir gestur framhjá eldfjallaeyjunum Procida og Ischia, en sjálf er Caprí miklu eldri en þær, gerð úr setlögum, og var eitt sinn hluti af Amalfí skaganum. Þegar nær kemur rís eyjan úr sæ umgirt háum klettum þar sem hæsti punktur hennar er fjallið Monte Solaro. Siglt er i höfn í Marina Grande sem er aðalhöfn eyjarinnar og þar rétt fyrir ofan er Capri bær, fallegur lítill bær með þröngum götum, litlum verslunum og veitingahúsum.

Frá höfninni og til Caprí liggur togbraut sem flytur mann beint inn í hjarta bæjarins. Annars er mikil upplifun að byrja heimsókn til Caprí með siglingu kringum eyjunna. Á leiðinni blasa við yndislegar strendur, himinblátt hafið, hrikalegir klettar og hellar sem hægt er að sigla inn í ef báturinn er ekki of stór. Frægastur þeirra er Azzurra hellirinn, eða Blái hellirinn, þar sem litadýrð hafsins er engu lík.

Blái hellirinn

Þar er líka að finna Marina Piccolo sem er lítill fiskimannabær á suður hluta eyjarinnar.

Caprí á sér langa og litríka sögu. Það voru Grikkir sem fyrstir byggðu bæji á eynni eins og víða á Suður Ítalíu um þúsund árum fyrir Krist. Seinni varð Caprí einn vinsælasti sumar davalarstaður Rómverskra fyrirmanna. Keisararnir Ágústus og Tíberíus byggðu sér „sumarhús“, eða með réttara sagt, sumarhallir á eynni. Tíberíus sem var keisari á þeim árum þegar Jesús gekk um og predikaði í Galíleu, flutti að lokum alfarinn frá Róm til Caprí og dvaldi þar síðustu tíu ár ævinnar. Sagt er að þegar gest bar að garði með einhver mál í farteskinu sem Tíberíusi leiddist að ræða, þá hafi keiasarinn einfaldlega látið kasta viðkomandi fram af klettunum. Og þar með var það mál úr sögunni!

Villa Jovis

Á miðöldum var Caprí mikilvæg verslunarmiðstöð og skipti oft um eigendur. Í dag er hægt að skoða ríkulegar byggingar og rústir frá allri þessari merku sögu, meðal annars Villa Jovis, rústir „sumarhúss“ Tíberíusar keisara. Hann lét reyndar reisa tólf slíkar hallir á eynni.

Á Caprí eru tveir litlir bæjir, Caprí bær sem fyrr er nefndur og Anacapri, sem liggur efst uppi á norður hluta eyjarinnar. Það er eins og að koma í aðra veröld að aka þrönga götuna þangað, hangandi utan í klettunum.

Í Anacapri ríkir kyrrð og næði, öfugt við fjöldann sem gjarnan er að finna í Caprí. Þar er hæsti staður eyjarinnar, fjallið Solaro og þangað er hægt að komast alveg upp á toppinn í stólalyftu. Ferðin upp er algert ævintýr og útsýnið stórkostlegt yfir eyjuna, flóann og Amalfí ströndina.

Á leið upp á Solaro tíund

Bæði í Caprí og Anacapri er að finna fjöldann allan af veitingahúsum með mat sem einkennir Caprí. Enginn sem þangað kemur ætti að missa af að smakka á réttum með sítrónu eyjarskeggja. Sítrónurnar sem þar vaxa eru algert lostæti í kökum, ís, eftirréttum, sósum, drykkjum og hverju sem nafn er á gerandi. Þá fyrst þegar þú hefur smakkað sítrónu í Caprí veistu hvað sítróna er.

Við Íslendingar eigum auðvitað okkar eigin tengingu við Caprí og það er lag Hauks Mortens „Caprí Katarína“. Þegar siglt er í land eftir heimsókn út í þessa náttúruperlu er við hæfi að hlusta á Hauk Mortens syngja lagið á meðan Caprí kveður. Það er ekki laust við að tár falli af hvarmi í kvöldsólinni þar sem Caprí speglast í Napolíflóa á meðan Haukur Mortens syngur um Katarínu og ástina og fegurðina og eyjuna fögru.

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.