Kolumbus efnir til áhugaverðrar ferðar til Þýskalands

Flogið verður til Munchen þar sem Adolf Hitler hóf ferilinn. Farið verður um söguslóðir Nasismans og kvöldverður snæddur á Hofbräuhaus. Dagsferð í Eagle’s Nest, Arnarhreiðrið, byggingu sem reist var foringjanum til heiðurs. Dachau heimsótt þar sem fangabúðirnar verða skoðaðar. Farið verður í réttarsal Nürnberg Trial og á leikvang Nasistaflokksins, Nürnberg Nazi Party Rallyground og bærinn Mödlareuth skoðaður sem var eins og Berlín skipt í tvo hluta á tímum Alþýðulýðveldisins. Skoðunarferð verður farin um Berlín þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir, m.a; Brandenburgar hliðið, minnisvarði um helförina, Olympíu leikvangurinn síðan 1936 og Fhurer Bunker svæðið. Farið verður í siglingu í Berlín og gefinn kostur á að skoða DDR safnið.

Gist er á Holiday Inn City Centre 4* í Munchen í tvær nætur, Hotel NH Collection 4* í Nürnberg í tvær nætur og loks á H10 Ku’Damm 4* í Berlín í 3 nætur.

Þórhallur Heimisson verður fararstjórinn okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005. Þórhallur fjallaði meðal annars um þessa miklu sögu í bók sinni Ragnarök – 10 áhrifamestu orrustur sögunnar. Bergsteinn Einarsson, skipuleggjandi ferðarinnar, ferðast með hópnum og verður Þórhalli til aðstoðar.

Ferðatilhögun

Munchen skoðunarferð

Flogið er með Icelandair FI532 kl. 07:35 til Munchen. Rúta bíður hópsins og farið er í 3 klst. langa skoðunarferð um borgina með áherslu á upphaf ferils Adolfs Hitler og Nasista en þar hélt hann sínar fyrstu ræður árið 1919, árið sem Weimar lýðveldið var stofnað eftir lok fyrri heimstyrjaldarinnar. Í upphafi skoðunarferðar verður staðnæmst á BMW Welt kynningarsvæði bílaframleiðandans.

Að lokinni skoðunarferð um Munchen er innritun á Holiday Inn City Centre 4* hótel þar sem gist verður í tvær nætur. Sameiginlegur kvöldverður er á hinu þekkta Hofbräuhaus veitinga- og brugghúsi í hjarta borgarinnar þar sem Hitler hélt margar ræður á fundum Nasistahreyfingarinnar á þriðja og fjórða áratugnum.

Eagle’s Nest, Arnarhreiðrið

Dagsferð í Eagle’s Nest, Arnarhreiðrið. Kehlsteinhaus eins og húsið var einnig nefnt er bygging sem Nasistar hönnuðu og reistu foringjanum til heiðurs fyrir fimmtugs afmæli hans í apríl 1939 á tindi Kehlstein, klettafjalls sem rís yfir Obersalzberg nálægt bænum Berchtesgaden.

Efsti hluti leiðarinnar er farinn í sérstökum bílum upp að byggingunni og til baka en staðnæmst verður á sögusafni Obersalzberg á leiðinni til baka þar sem fræðast má um söguna og veru nokkurra helstu leiðtoga þriðja ríkisins á svæðinu á valdatíma þeirra. Að því loknu er ekið til baka til Munchen þar sem eftirmiðdagur og kvöldið er frjálst.

Dachau fangabúðirnar, Memorial Concentration Camp safnið og Nürnberg Trial Chamber

Eftir morgunverð og útskráning af hótelinu er haldið af stað til Nürnberg með viðkomu í bænum Dachau þar sem fangabúðirnar og safnið er skoðað, Memorial Concentration Camp.

Búðirnar eru fyrstu fangabúðirnar sem Nazistar settu af stað, opnaðar í mars 1933. Þeim var upphaflega ætlað að vista pólitíska andstæðinga Nazista en urðu síðar að stórum vinnu- og útrýmingarbúðum með allt að 100 hliðar búðum á miklu landsvæði. Að heimsókn lokinni er ekið til Nürnberg og hádegisverður snæddur á leiðinni (ekki innifalinn). Við komu til borgarinnar verður farið í hinn sögufræga réttarsal Nürnberger Trial og safn, þar sem helstu foringjar og áhrifamenn þriðja ríkisins hlutu dóma eftir stríðslok.

Að lokinni heimsókn er haldið á Hotel NH Collection Nürnberg 4* og innritað þar og gist í tvær nætur.

Kvöldið er frjálst. Tilvalið er að skoða gamla bæjarhlutann á gönguleið frá hótelinu upp að kastalavirkinu en við rætur þess er er meðal annars að finna Albrect Dürer haus, safn um þann mikla miðalda listamann. Í miðborginni er fjöldi góðra veitingastaða.

Nürnberg Nazi Party Rallyground

Eftir morgunverð er lagt af stað í skoðunarferð um Nürnberg þar sem meðal annars er staðnæmst á safni og leikvangi Nasistaflokksins, Nürnberg Nazi Party Rallyground. Þar hélt flokkurinn miklar fjöldahátíðir og Adolf Hitler beittar þjóðernis og stríðs hvatningaræður.

Nürnberg skipaði sérstakan sess í viðburðum og áróðri Nazista og varð táknrænn helgistaður þriðja ríkisins af sögulegum ástæðum með vísan til 1000 ára ríkisins og helgigripa þess.

Komið er á hótel eftir hádegi og eftirmiðdagur og kvöld er frjálst.

Mödlareuth

Morgunverður og útskráning af hótelinu og haldið af stað til Berlínar. Eftir léttan hádegisverð (ekki innifalinn) á leiðinni með áningu við Hirschberg er staðnæmst í bænum Mödlareuth og farið í leiðsagða skoðunarferð um svæðið.

Bænum var eins og Berlín skipt upp í tvo hluta á tímum kalda stríðsins og Alþýðulýðveldisins og var hann því oft kallaður Litla Berlín. Komið er til Berlínar síðdegis og hópurinn skráir sig inn á H10 Ku’Damm 4* hótel þar sem gist er í 3 nætur.

Berlín

Að loknum morgunverði er haldið í skoðunarferð um Berlín. Í ferðinni eru staðir sem tengjast valdatíð nasista skoðaðir m.a. Brandenburgar hliðið, minnsvarði um helförina, safn við fyrrum aðalstöðvar Gestapó, ýmsar stjórnarbyggingar, mannvirki og staðir, m.a. Olympíu leikvangurinn þar sem leikarnir voru haldnir 1936. Staðnæmst verður á svæðinu yfir byrgi foringjans þar sem hann framdi sjálfsmorð í stríðslok.

Höfuðborgin Berlín var vettvangur valdatöku Nazista 30. janúar 1933 og falls þriðja ríkisins eftir orustuna um Berlín í apríl og fram til 2. maí 1945. Þar endaði foringinn ævi sína þann 30. apríl 1945 rúmum aldarfjórðungi eftir fyrstu ræðu sína í Munchen og þriðja ríkið var fallið. Hann var þá nýlega orðinn 56 ára gamall.

Sigling um Berlín

Haldið verður í siglingu um síki borgarinnar um morguninn en um Berlín liggja tugir kílómetra af síkjum og kanölum. Margar fallegar brýr eru yfir þær vatnaleiðir og mjög áhugavert er að skoða borgina, byggingar, mannlíf og sögu frá því sjónarhorni.

Þeim sem þess óska er bent á að skoða DDR safnið á eigin vegum. Safn um Alþýðulýðveldi austur Þýskalands sem segir mikla sögu um tíma tvískiptrar borgar, kalda stríðið og loks sameiningu þýsku ríkjanna eftir fall Berlínarmúrsins. Sameiginlegur loka kvöldverður er í Berlín á vel völdum veitingastað um kvöldið.

Heimferðardagur

Lagt af stað frá hótelinu kl. 11.00 áleiðis á flugvöllinn í Berlín. Brottför flugs Icelandair FI529 til Keflavíkur er kl. 14:05 og lending þar er kl. 15:50.

Fararstjórn, verð, greiðslur og innifalið

Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.

Bergsteinn Einarsson, skipuleggjandi ferðarinnar, ferðast með hópnum og verður Þórhalli til aðstoðar.

Verð á mann: 425.000 kr.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 63.000 kr.

Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald per farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

Flug Icelandair frá Keflavík til Munchen, 23 kg taska og allir skattar og gjöld.
Flug Icelandair frá Berlín til Keflavíkur, 23 kg taska og allir skattar og gjöld.
Gisting í 2 nætur á Holiday Inn Munich City Centre 4* m/morgunverði.
Gisting í 2 nætur á Hotel nh Collection Nürnberg 4* m/morgunverði.
Gisting í 3 nætur á H10 Ku’Damm 4* Berlín m/morgunverði.
Allur rútuakstur skv. ferðalýsingu.
Allur aðgangseyrir í söfn og skoðunarstaði skv. ferðalýsingu.
Farmiði í almenningssamgöngutæki í Berlín sem gildir í 72 klst.
Íslensk fararstjórn og leiðsögn Þórhalls Heimissonar.
Aðstoð staðarleiðsögumanna í Þýskalandi.
2 kvöldverðir skv. ferðalýsingu.

Ekki innifalið
• Þjórfé.

Hótelin sem við dveljumst á

Holiday Inn City Centre ★★★★
Hotel NH Collection Nürnberg ★★★★
H10 Ku’Damm ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.