Enn á ný býður Kolumbus ævintýraferðir Íslendingum nýjung á ferðamarkaði

Í þessari ævintýralegu ferð mun Goði Sveinsson leiða hóp um hinar fögru Filippseyjar.
Það er óhætt að segja að ólíkir menningarheimar mætist í þessu landi sem telur alls 7.641 eyjar, hver annarri fegurri. Stærsti hluti landsmanna er kristinnar trúar og enska og filipino eru opinber tungumál. Mikilla spænskra áhrifa gætir á Filippseyjum, en þær heyrðu undir Spán í 333 ár. Auk þess eru sýnileg bandarísk áhrif frá því að landið heyrði undir Bandaríkin í tæp 50 ár. Samt sem áður eru Filippseyjar einstakar í allri sinni fjölbreytni og Filippseyingar brosmildir og gestrisnir.
Við hefjum ferðina í höfuðborginni Manila á eynni Luzon, fljúgum til Bohol og skoðum ótrúlega náttúru og dýralíf, fljúgum síðan yfir Sulu hafið til eyjarinnar Palawan. Þar njótum við góðra daga í El Nido áður en við ökum gegnum græna regnskóga þessarar fögru eyju til suðurs á vit nýrra ævintýra í grennd við Puerto Princesa. Þar upplifum við meðal annars Puerto Princesa neðanjarðarána frægu (New 7 Wonders of Nature).
Eftir dvöl á Palawan fljúgum við aftur til austurs og endum þessa fjölbreyttu ferð á eynni Boracay þar sem við munum vinda ofan af okkur í sól, sælu og heitum sjó á fallegu hóteli við ströndina áður en haldið er heim á ný. Boracay var valin næstbesta eyja í heimi í vali lesenda ferðatímaritsins Condé Nast árið 2019. Á heimleið hvílum við okkur eina nótt á góðu hóteli í Amsterdam.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Flogið með FI500 til Amsterdam kl. 07:40, lent þar 11:55. Upplagt að nýta daginn og skreppa inn í borg en flugið okkar með KLM, KL 807 Amsterdam-Manila er kl. 20:05. Töskur innritaðar alla leið til Manila í Keflavík svo ekki þarf að hafa áhyggjur af þeim ef fólk fer út úr Schiphol flugstöðinni yfir daginn.
Manila
Lent í Manila kl. 19:30 að staðartíma en tímamismunur er 8 klst. Ökum beinustu leið á hótelið okkar, Seda Residences Makati þar sem við tékkum inn og fáum langþráða hvíld.
Makati hverfið og skoðunarferð um höfuðborg Manila
Við tökum því rólega um morguninn, kíkjum í sundlaugargarðinn eða göngutúr um næsta nágrenni við hótelið. Makati hverfið er helsta viðskiptahverfi Manila og mikið úrval verslana og veitingastaða allt um kring.
Eftir hádegi höldum við síðan í skoðunarferð um höfuðborg Filippseyja, Manila með enskumælandi staðarleiðsögumanni. Við ökum um Makati hverfið, förum í Manila American Cemetery og safnið þar og höldum síðan í miðborgina í elsta og sögufrægasta borgarhlutann, Intramuros. Skoðum þar Fort Santiago, San Agustin kirkjuna sem er á Heimsminjaskrá UNESCO og heimsækjum Casa Manila, ríkra manna hús frá spænska nýlendutímanum. Ferðinni ljúkum við síðan með sameiginlegum kvöldverði á Barbara‘s Heritage Restaurant þar sem við eigum góða stund saman yfir mat og tónlist heimamanna.
Panglao eyjan við Bohol
Um hádegisbil yfirgefum við hótelið okkar og höldum út á flugvöll þar sem við tökum innanlandsflug kl. 15:20 Manila-Bohol. Við lendum á Tagbilaran flugvelli kl. 17:00 og ökum stutta leið á fallega hótelið okkar, The Bellevue Resort, 5- stjörnu hótel sem stendur við ströndina á Panglao Island við Bohol.
Frjáls eftirmiðdagur og kvöld.
Bohol – Chocolate Hills – Loboc áin
Við tökum daginn snemma og höldum í afar fjölbreytta skoðunarferð um hina yndislegu Bohol eyju með skemmtilegum staðarleiðsögumanni.
Meðal þess sem við fáum að kynnast er friðland hinna sjaldgæfu Tarsier dýra, kíkjum í áhugaverðar kaþólskar kirkjur og hlustum á Gospel tónlist ef við erum heppin.
Skoðum magnaða náttúrufyrirbærið Chocolate Hills og snæðum hádegisverð um borð í fljótabáti á Loboc River. Góður matur og skemmtileg tónlist í bland við magnaðan regnskóginn.
Frjálst kvöld.

El Nido
Við tökum því rólega um morguninn og njótum fyrirtaks aðstöðu á hótelinu.
Yfirgefum hótelið okkar um hádegi og eigum flug kl. 15:40 frá Bohol og vestur yfir Sulu hafið beint til litla bæjarins El Nido á norðurhluta Palawan eyju. El Nido er einn af vinsælustu áfangastöðum erlendra ferðamanna á Filippseyjum. Hótelið okkar Seda Lio El Nido stendur við ströndina steinsnar frá flugvellinum.
Frjáls eftirmiðdagur og kvöld.
Frjáls dagur og kvöld í El Nido
Glæsilegur sundlaugargarðurinn og ströndin fyrir framan hótelið munu sannarlega freista margra. Síðan er auðvelt að taka TukTuk (leigubíl) inn í litla miðbæinn, kíkja í búðir og á veitingastaði.
Eyjahopp
Eftir morgunverð setjum við á okkur sólgleraugun og nóg af sólarvörn því dagurinn fer í svokallað „Eyjahopp“. Við siglum milli fallegra eyja og voga þar sem við njótum náttúrufegurðarinnar og góðs félagsskapar fram eftir degi.
Kvöldið frjálst.
Palawan eyja – Sabang
Við tökum daginn snemma, útritum okkur af Seda Lio hótelinu og ökum suður Palawan eyju í gegnum sígræna regnskógana og fjölbreytt landslag. Ferðin tekur 5 – 6 klst með stuttum stoppum. Við komum til strandbæjarins Sabang í eftirmiðdaginn og innritum okkur á Four Points by Sheraton hótelið þar sem við munum dvelja næstu tvær nætur.
Hótelið er glæsilegt með fallegum sundlaugagarði, frábærri strönd og í stuttu göngufæri frá litla miðbænum í Sabang.
Puerto Princesa Underaground River
Eftir morgunverð gerum við okkur klár í ævintýralega heimsókn í Puerto Princesa Underground River. Ferðin hefst með stuttri siglingu frá miðbæ Sabang á svokölluðum „Banka“ bátum yfir í þjóðgarðinn við neðanjarðarána. Þar skiptum við yfir í litla árabáta með leiðsögumönnum sem taka okkur inn í þessa undraveröld sem er á Heimsminjaskrá UNESCO og eitt af „Nýju 7 náttúruundrum veraldar“ (New 7 Wonders of Nature). Áin er alls um 8,2km löng inn í kalksteinsfjöllin en við förum um einn fjórða af þeirri vegalengd. Þarna upplifum við einstaka undraveröld.
Þegar við komum aftur til Sabang förum við á skemmtilegan veitingastað og fáum okkur sameiginlegan hádegisverð sem er innifalinn.
Eftirmiðdagur og kvöldið frjálst.
Boracay
Við vöknum eldsnemma, útritum okkur af hótelinu og ökum út á flugvöllinn í Puerto Princesa sem er í um eins og hálfs tíma fjarlægð. Þar tökum við innanlandsflug til Boracay en með millilendingu í Manila þar sem við skiptum um flugvél.
Áætluð koma til Caticlan Airport (Boracay) er kl. 11:30. Við höldum niður að höfn, tökum bát yfir á Boracay eyjuna sjálfa og síðan er ekið að hótelinu okkar, Mövenpick Resort & Spa Boracay.
Frjáls eftirmiðdagur og kvöld.
Frjáls dagur
Dagurinn er frjáls til að njóta lystisemda lífsins, hvort sem sundlaugargarðurinn verður fyrir valinu, einkaströndin, nudd eða fyrsta flokks veitingar og dekur á einhverjum þriggja veitingastaðanna eða strandbarnum – allt í einstaklega fallegu umhverfi og með þjónustulunduðu starfsfólki.
Skemmtisigling og kveðjukvöldverður
Eftir morgunverð njótum við saman þessa síðasta dags okkar á Filippseyjum og förum í skemmtisiglingu með ströndum Boracay. Við kíkjum á Puka Beach sem er falleg strönd fjarri mannabústöðum, snorklum (fyrir þá sem vilja skoða litríkt sjávarlíf og fagurt kóralrif) við Coral Garden og fáum okkur hádegisverð í landi sem er innifalinn. Semsagt góður dagur í sól og sælu.
Um kvöldið er sameiginlegur kveðjukvöldverður fyrir hópinn á ítalska veitingastaðnum BREZZA sem er í hótelinu okkar.
Flogið til Amsterdam
Við yfirgefum Mövenpick hótelið um hádegi, komum okkur aftur út á Caticlan Airport og tökum flug til Manila kl. 15:10. Lendum þar kl. 16:25 og eigum síðan flug með KLM til Amsterdam kl. 20:45.
Frjáls dagur í Amsterdam
Áætluð lending í Amsterdam er kl. 08:15.
Við tökum kærkomna hvíld í Amsterdam á Mövenpick Amsterdam City Centre hótelinu í miðborginni.
Dagur og kvöld frjálst.
Heimfarardagur
Við eigum frítíma í Amsterdam fram eftir degi en ökum út á Schiphol flugvöll síðdegis og fljúgum heim með Icelandair FI 505 kl. 20:20. Áætluð lending í Keflavík kl. 22:50.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð

Goði Sveinsson er skipuleggjandi og fararstjóri í þessari ferð. Hann hefur ferðast um heiminn í áratugi og hefur langa reynslu af flug- og ferðaskrifstofurekstri.
Goði er sérfræðingur og framleiðslustjóri Kolumbus í Asíuferðum og þekkir vel til á Filippseyjum.
Verð á mann: 929.000 kr. Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 195.000 kr.
Geiða þarf 150.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Flug fram og til baka til Filippseyja auk flugvallaskatta
• Bagbee og Fast Track í Leifsstöð
• Málsverðir og drykkir um borð í breiðþotum KLM
• Gisting og morgunverður á völdum gæðahótelum samkvæmt ferðatilhögun
• Fjórir hádegisverðir
• Tveir kvöldverðir
• Allar ferðir innan Filippseyja, þ.m.t. allt innanlandsflug
• Allur aðgangur að söfnum og ferðamannastöðum
• Íslensk fararstjórn
• Enskumælandi staðarleiðsögumenn á Filippseyjum
• Vatnsflöskur í rútum
• Þjórfé
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar






































































































