KOLUMBUS – HEILSUFERÐIR Hugarró við hafið Heilsuferð til Svíþjóðar og Kaupmannahafnar 20.–25. október 2026 með Evu Katrínu Sigurðardóttur og Silju Hrund Einarsdóttur

Lúxus vellíðunarferð með jóga, öndun, spa og sjódýfum

Í hraða nútímans er auðvelt að missa tengslin við líkamann og fara á sjálfstýringu. Í þessari ferð gefst þér tækifæri til að stíga út úr amstri dagsins og færa athyglina inn á við – þar sem ró, skýrleiki og orka fá að njóta sín.
Þátttakendur verða leiddir í gegnum djúpar og uppbyggilegar æfingar í öruggu og styðjandi umhverfi, þar sem hver og einn fær að mæta á sínum forsendum.

Þessi ferð er fyrir alla sem vilja hægja á, tengjast sjálfum sér og öðlast verkfæri til að styðja við jafnvægi og vellíðan í daglegu lífi. Ferðin hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum – allir velkomnir, óháð kyni, aldri og bakgrunni.

Í ferðinni munt þú kynnast því hvernig taugakerfið starfar og hvaða áhrif streita hefur á líkamann – bæði til skamms og langs tíma. Farið verður yfir muninn á heilbrigðri og langvinnri streitu og hvernig við getum með einföldum en áhrifaríkum hætti stutt við eigið jafnvægi.

Í ferðinni verður unnið með fjölbreyttar aðferðir sem styðja við líkama og huga:

  • Áhersla verður lögð á andardráttinn – eitt öflugasta verkfæri líkamans. Þú lærir hvernig meðvituð öndun og markvissar öndunaræfingar geta haft bein áhrif á líðan, dregið úr streitu og aukið almenna heilsu.
  • Fjölbreyttar jógaæfingar (jógaflæði, Yin jóga, Yoga nidra) þar sem áhersla verður lögð á að losa um spennu og streitu í líkamanum, auka styrk og orku ásamt því að ná djúpslökun og ró fyrir huga, líkama og sál
  • Bandvefslosun
  • Stigvaxandi hita- og kuldaþjálfun (e. Contrast therapy)
  • Sjódýfur
  • Sauna
  • Djúpslökun

Ferðaskipulag

20. október verður farið með flugi Icelandair FI 204 til Kaupmannahafnar kl. 7.40 og lent kl. 12.55.

Ekið með rútu yfir Eyrarsundsbrúnna til Svíþjóðar (Ystad). Aksturstími er ca. 1 klst. Innritun á hótelið, Ystad Saltsjöbad.

Ystad Saltsjöbad – Æfingar og fræðsla

Ystad Saltsjöbad er í fallegu og róandi umhverfi þar sem náttúran og aðstaðan skapa kjöraðstæður fyrir djúpa endurheimt og vellíðan.

Í Ystad Saltsjöbad hefst dagskráin með rólegri komu og stuttri kvöldstund þar sem farið er mjúklega af stað. Hver dagur byrjar síðan á frískandi sjódýfu og mjúku jógaflæði fyrir morgunmat fyrir þau sem vilja, þar sem unnið er með andardrátt, líkamsvitund og hugræna seiglu.

Yfir daginn fara fram 2–3 skipulagðir tímar þar sem dýpkað er í æfingum og fræðslu, ásamt nægu rými fyrir hvíld, næringu og endurheimt.

Eftir þrjá daga við sænsku ströndina hefst næsti hluti ferðarinnar. Haldið frá Ystad Saltsjöbad með rútu til Kaupmannahafnar. Þar tekur við dvöl á glæsilegu hóteli á besta stað í Kaupmannahöfn, 1 Hotel Copenhagen, í tvær nætur fram að heimflugi að kvöldi sunnudags 25. október.

Dvalið á 1 Hotel Copenhagen – Frjáls dagskrá

Í Kaupmannahöfn verður frjáls dagskrá þar sem þátttakendur fá tækifæri til að njóta borgarinnar á sínum eigin forsendum. Borgin býður upp á fjölbreytta möguleika – hvort sem það er rólegt rölt um fallegar götur miðbæjarins, heimsækja menningarviðburði og söfn, njóta góðrar veitingamenningar, setjast á notaleg kaffihús eða fara í verslunarleiðangur í einstökum búðum borgarinnar.

Þessi hluti ferðarinnar skapar tóm til að melta upplifun verunnar í Ystad Saltsjöbad, njóta léttleika og sækja innblástur í lifandi umhverfi Kaupmannahafnar áður en haldið er heim á leið.

Þetta er einstakt tækifæri til að stíga út úr daglegu amstri, hlúa að sjálfum sér og öðlast verkfæri sem nýtast langt umfram námskeiðið sjálft.

25. október er brottför af hóteli kl. 19:00 með rútu sem ekur hópnum á flugvöllinn þar sem innritað er í flug Icelandair FI 217 með brottför kl. 21:30 og lendingu í Keflavík 23:55.

Þar með lýkur þessari uppbyggjandi og fræðandi ferð.

Leiðbeinendur, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Eva Katrín Sigurðardóttir
Eva er almennur læknir sem brennur fyrir auknum forvörnum og bættri lýðheilsu almennt. Hún er viðurkenndur Thermalist instructor frá Soeberg Institute, Wim Hof Method leiðbeinandi og HRV breathwork leiðbeinandi með réttindi frá Aria Breath. Samhliða læknisstörfum síðastliðin ár hefur Eva haldið ýmis námskeið og fyrirlestra með áherslu á mátt andardráttarins til bættrar heilsu.

Silja Hrund Einarsdóttir
Silja er með B.Sc. í umhverfis- og byggingarverkfræði, viðurkenndur yogakennari (200 klst yogakennaranám) og hefur einnig bætt við sig réttindum í Yin yoga, Bandvefslosun/Body Reroll og Yoga Nidra. Silja hefur undanfarin ár kennt yoga bæði hérlendis og erlendis. Samhliða kaffihúsarekstri og yogakennslu stundar Silja daglega útiveru og yoga til að minnka streitu og auka jafnvægi í daglegu lífi.

Verð á mann: 399.000 kr. 
Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 79.000 kr.

Greiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför með greiðslutengli sem sendur er í tölvupósti.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

Beint flug með Icelandair fram og til baka, innrituð 23 kg taska, 1 handfarangurstaska
Allar rútuferðir
• Hótelgisting í 3 nætur á Ystad Saltsjöbad ásamt morgunverði, léttum hádegis- og kvöldverði
• Aðgangur að SPA heilsulind Ystad Saltsjöbad á meðan dvöl stendur
• Jóga & öndunarviðburðir alla dagana á Ystad Saltsjöbad
• Sauna gusa leidd af reyndum sænskum gusumeistara
• Hótelgisting í 2 nætur á 1 Hotel Copenhagen ásamt morgunverði

Hótelin sem við dveljumst á

Ystad Saltsjöbad ★★★★
1 Hotel Copenhagen ★★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.