Einstök ævintýraferð til Madeira í beinu flugi með Icelandair þar sem dvalið verður á lúxushótelinu Savoy Palace, einu af glæsilegustu hótelum Evrópu.
Savoy Palace er fyrsta flokks fimm stjörnu hótel sem býður upp á gæði fyrir kröfuharða gesti sem leita slökunar og lúxus með fullkominni blöndu af fágun, nútímalegum þægindum og þjónustu. Sérhönnuð svæði innan hótelsins skapa þægilegt andrúmsloft þar sem innblástur er sóttur í gróskumikið landslag og hefðir Madeira eyju.

Madeira er einstök eyja að heimsækja og oft kölluð „Eyja blómanna“ og tilheyrir Portúgal. Paradísareyja að heimsækja með heittempruðu loftslagi undan ströndum Marokkó og á þessum tíma árs er hitastigið 23-27°C. Hægt er að fara í fjölbreyttar skoðunarferðir og spila golf á tveimur frábærum golfvöllum og því tilvalið fyrir litla golfhópa.

Ferðatilhögun

Flogið í beinu flugi með Icelandair kl. 09:20 sunnudaginn 27. september og lent kl. 15:05 að staðartíma á Madeira. Þann 4. október er brottför frá Funchal flugvelli kl. 16:05 og lent kl. 19.55 í Keflavík.

Enginn fararstjóri verður í þessari ferð en landþjónustuaðili Kolumbus verður ferðalöngum til aðstoðar við ráðleggingar og bókanir á skoðunarferðum. Þá mun Heimir Karlsson ráðleggja þeim sem hafa áhuga á að leika golf og aðstoða við bókanir á golfhringjum.

Verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Verð: 369.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi, engin einstaklingsherbergi eru í boði.

Greiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

Flug Icelandair, 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
Akstur til og frá hóteli.
Gisting í tvíbýli á Savoy Palace í 7 nætur ásamt morgunverði.
Farangursþjónusta á vegum Bagbee.
Aðgangur að hraðhliði í Leifsstöð.
Landþjónustuaðili Kolumbus verður ferðalöngum til aðstoðar við ráðleggingar og bókanir á skoðunarferður. Þá mun Heimir Karlsson ráðleggja þeim sem hafa áhuga á að leika golf og aðstoða við bókanir á golfhringjum.

Hótelið

Savoy Palace ★★★★★

Golfvellir

Palheiro Golf

Þessi völlur er í hæðunum fyrir ofan Funchal, mjög hæðóttur og skemmtilegur.
Akstur frá hóteli tekur aðeins um 15 mín.

Santo de Serra Golf Club

Þessi er meira „pro“, 3 x 9 holu golfvöllur og fæst aðgangur að „golf pro“ sem myndi leiðbeina og leika með eftir hentugleika og því sem hægt er að koma við.
Akstur frá hóteli tekur um 40 mín.

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.