Fá lönd vekja jafn sterkar tilfinningar og Egyptaland. Þetta forna og dularfulla ríki, sem hefur heillað ferðalanga í þúsundir ára, býður upp á stórbrotna sögu, magnað landslag og ógleymanlega upplifun fyrir öll skynfærin
Fá lönd vekja jafn sterkar tilfinningar og Egyptaland. Þetta forna og dularfulla ríki, sem hefur heillað ferðalanga í þúsundir ára, býður upp á stórbrotna sögu, magnað landslag og ógleymanlega upplifun fyrir öll skynfærin.

Kolumbus ævintýraferðir bjóða í annað sinn ferð til Egyptalands. Gist verður á 5* hótelum og um borð í lúxus fljótaskipi sem siglir eftir Níl. Í Egyptalandi mætast andstæður á dásamlegan hátt, iðandi mannlíf og friðsæl náttúra, háværir markaðir og hljóðlát hof, leifar fornaldar og lúxus nútímans. Þetta er ekki aðeins ferðalag um land og staði – heldur líka ferð inn í menningu sem mótaði heimssöguna.

Við skoðum m.a. Mohamed Ali Alabaster moskuna í Kaíró, Karnak-hofið, Grafirnar í Dal konunganna, Hórusarhofið, hof drottningarinnar Hatshepsut og margt fleira. Við munum að sjálfsögðu skoða píramídana við Giza ásamt Sfinxinum og Hástífluna í Aswan sem var verkfræðilegt undur þegar hún var byggð á sjöunda áratug síðustu aldar.
Að auki heimsækjum við hina sögufrægu Alexandríu þar sem við skoðum meðal annars Catacombs of Kom El Shoqafa og Pompey’s Pillar og kynnumst þannig enn betur ríkri menningararfleifð Egyptalands frá tímum Grikkja og Rómverja.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Flogið er með Icelandair FI 204 kl. 7:35 til Kaupmannahafnar og þaðan áfram til Kaíró með EgyptAir þar sem lent verður kl. 20:30 að staðartíma (tímamismunur eru +2 klst.).
Við komu á alþjóðaflugvöllinn í Kaíró tekur staðarleiðsögumaðurinn á móti hópnum og fylgir honum á Sofitel Downtown hótel 5* þar sem dvalið er í tvær nætur. Það sem eftir lifir kvölds er frjálst.
Kaíró
Eftir morgunverð hefst dagskráin með heimsókn í Citadel of Saladin eða Saladínsvirkið, miðaldavirki sem hýsir m.a. stórkostlega Mohamed Ali Alabaster moskuna sem er ein af glæsilegustu og þekktustu byggingum í Kaíró og tákn um íslamskan arkitektúr í borginni. Síðan er ekið til Gamla Kaíró, þar sem kristni, gyðingdómur og íslam mætast í sögu og menningu á einstakan hátt. Þar heimsækjum við Al Moallaka kirkjuna (Hengikirkjuna) og Ben Ezra-safnaðarsalinn, elstu og frægustu synagógu eða samkunduhús gyðinga í Egyptalandi.
Kvöldið er frjálst.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður
Kaíro – Lúxor
Dagurinn er tekinn snemma, ekið til Kaíró flugvallar og innritað í klukkustundar flug til Lúxor með brottför kl. 6:30. Við komuna þangað verður hópnum fylgt í M/S Moon Goddess Nile Cruise, lúxus fljótaskip á ánni Níl þar sem gist verður næstu fjórar nætur. Sigling á Níl, lengsta fljóti í heimi, er ein dásamleg leið til að skoða leyndardóma Egyptalands sem alls staðar eru örskotsferð frá árbakkanum. Um leið er sjálf siglingin einstök upplifun sem erfitt er að koma í orð.
Við heimsækjum Karnak-hofið sem staðsett er á austurbakka Nílar. Hofið var byggt af nokkrum miklum konungum Egyptalands, þar á meðal Ramses II konungi, Tutmosis III konungi og drottningunni Hatshepsut. Hofin í Karnak og Luxor mynda samstæðu og voru tileinkuð Þebu-þrenningunni svokölluðu; guðinum Amun Ra, eiginkonu hans gyðjunni Mut og syni þeirra guðinum Khonsu. Þebu-þrenningin var helsta guðaþrenningin í hinni forna Þebu þar sem nú er Lúxor. Dýrð Karnak var sem mest á öldunum frá því um 1500 f.kr og fram undir 1200 f.kr. Musterissvæðið þekur um 2 ferkílómetra. Frægasta musterið er musteri Amun-Ra. Lúxor musterið er byggt af faraóunum Amenhotep og Ramses II sem voru uppi um 1400-1200 fyrir Krist. Líklegast er Ramses II sá sem Móses og gyðingar glímdu við forðum daga. Þær byggingar sem Amenhotep og Ramses II byggðu eru reistar á mun eldri grunni og haldið var áfram að byggja við musterissvæðið allt fram á daga Rómverja. Lúxor og Karnak tengjast með hinni svokölluðu “Breiðgötu Sfinxana”. Heimsókn til Lúxor og Karnak er eins og að ferðast í tímavél þúsundir ára aftur í tímann.
Máltíðir innifaldar: Morgun- hádegis- og kvöldverður
Konungadalurinn – Edfu
Áður en sólin rís er mögulegt að fara í valkvæða ferð í loftbelg. Flogið er yfir Konungadalinn og Vesturbakka Nílar til að njóta stórbrotins útsýnis yfir Karnak og borgina á þessum töfrandi tíma dagsins, við sólarupprás.
Eftir morgunverð höldum við yfir á Vesturbakka Nílar við Lúxor. Vesturbakki Lúxor var einn helsti grafreitur faraóanna allt frá því um 2100 fyrir Krist en það voru faraóar Nýja ríkisins svokallaða, um 1500 – 1000 fyrir Krist, sem gerðu hinn einangraða dal við fjallið Al Qurn, eða Hornið, að sínum hinsta dvalarstað. Þaðan kemur hið fræga nafn hans “Dalur konunganna”. Í dalnum er að finna 63 stórkostleg konungleg grafhýsi frá tímum Nýja ríkisins. Þar á meðal eru hin frægu grafhýsi faraóanna Tutankhamun, Set I. og Ramsesar VI. Við munum einnig skoða grafhýsi Hatshepsut við Deir el-Bahir en það er eitt glæstasta grafhýsi Egyptalands hins forna. Hatshepsut var kona sem ríkti sem faraó um 1480-1460 fyrir Krist. Áður en hópurinn yfirgefur Konungadalinn heimsækir hann verkstæði þar sem alabastursteinninn er unninn og sér hvernig vasar og styttur eru búnar til í hefðbundnum fornum stíl.
Um nóttina er siglt til Edfu í gegnum Esna skipaskurðinn.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður
Edfu musterið – Kom Ombo – Aswan
Morgunverður snæddur um borð en að honum loknum er farið í heimsókn í Edfu-musterið sem er helgað fálkaguðinum Horus. Þangað er ferðast frá skipshlið í hestvögnum. Ferðin er mögnuð upplifun. Musterið var algjörlega grafið undir eyðimörkinni, nema efsti hluti þess. Það er fullkomnasta og best varðveitta musteri forn-Egypta. Lítið magn af steini hafði verið fjarlægt af þeim hluta sem stóð upp úr sandinum en við uppgröft kom í ljós að musterið var í næstum fullkomnu ástandi. Eftir hádegisverð sem notið er um borð í skipinu heimsækjum við Kom Ombo musterið sem er helgað Sobek, krókódílaguðinum og Horus, fálkaguðinum. Musterið hefur tvö aðskilin svæði, með tveimur inngöngum, tveimur forsölum, tveimur súlnagöngum, eitt fyrir hvorn guð. Það er í göngufæri frá skipshlið.
Siglt er til Aswan.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður
Hástíflan í Aswna – Filai hofið – skútusigling
Aswan borg stendur við Aswan stífluna, sem reist var á árunum 1960 – 1970 til að ná stjórn á árlegum flóðum Nílar. Borgin sjálf er iðandi verslunarborg með mörkuðum og veitingahúsum og gefst hér einstakt tækifæri til að skoða líf heimamanna. Sjálf stíflan er gríðarlegt mannvirki, 4000 m löng, 980 m breið og 111 metra há. Stífluvatnið sem kennt er við Nasser forseta færði stóran hluta neðri Núbíu undir vatn og 120.000 manns voru fluttir frá heimkynnum sínum vegna þessara framkvæmda. Núbía var hið forna menningarríki sem stóð milli Egyptalands og Súdan þúsundum ára fyrir Krist. Að loknum morgunverði um borð er haldið í skoðunarferð upp að Aswan stíflunni. Síðan er siglt í Ísis musterið á Philea eyju en það er frá því um 200 fyrir Krist. Þar er að finna Philae, einsteinunginn með egypskum híróglýfa, eða myndletri og grískum texta sem varð til þess, ásamt Rosettu steininum svokallaða, að hægt var að þýða hið forna táknmál Egypta.
Eftir hádegisverð sem snæddur er um borð í skipinu er sigling með Felucca, dæmigerðri seglskútu, á Níl þar sem útsýnis yfir grasagarðinn á Kitchener eyju og grafhýsi Agha Khan er notið.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður
Aswan – Kaíró
Eftir morgunverð kveðjum við skipið og setjum töskurnar í rútuna. Þá er haldið í stutta ferð til þorps á Sohail-eyju þar sem við heimsækjum hefðbundið núbískt heimili, fáum innsýn í sögu og menningu Núbíumanna og njótum gestrisni þeirra. Eftir hádegisverð er ekið til flugvallarins og flogið til Kaíró kl. 14:40, lent 16:10. Við komuna til Kaíró er hópnum ekið á Sofitel Downtown hótel 5* til innritunar þar sem aftur er gist í 2 nætur. Kvöldið er frjálst.
Máltíðir innifaldar: Morgunverður
Pýramídarnir í Gísa
Að loknun morgunverði er komið að einum af mörgum hápunktum ferðarinnar, Pýramídunum og Sfinxinum í Gísa. Pýramídarnir standa á Gísa sléttunni um 13 kílómetrum frá miðborg Kaíró. Þeirra frægastir eru Keops, Kefran og Mykerinos pýramídarnir. Þetta eru stærstu byggingar sem hafa verið reistar og stærstur þeirra og þekktastur er Keops pýramídinn, byggður um 2500 árum fyrir Krist, eða fyrir 4500 árum. Hann var eitt af sjö undrum veraldar til forna og það eina þeirra sem enn stendur. Sfinxinn stóri var reistur á svipuðum tíma, en hann er byggður úr sandsteini, með ljónslíkama og mannshöfuð. Hægt er að fara inn í hjarta pýramídans eftir göngum sem þangað liggja fyrir þau sem treysta sér. Undir lok skoðunarferðarinnar lítum við inn á verkstæði sem framleiðir papýrus og ilmvötn að fornum sið.
Eftir hádegisverð heimsækjum við hina fornu höfuðborg í Memfis sem er um 10 km fyrir sunnan Kaíró. Þar skoðum við meðal annars Sakkara pýramídann sem þar stendur, eða Tröppu pýramídann. Þar er einnig að finna fjölmargar grafir og pýramída en staðurinn var grafreitur Faraóanna í ein 3000 ár. Sakkara pýramídinn er elsta varðveitta bygging í heimi, reistur um 3000 fyrir Krist.
Áður en haldið er heim á hótel heimsækjum við teppaverkstæði þar sem hefðbundin handgerð teppi eru framleidd með fornum aðferðum sem rekja má aftur til valdatíma Farouk konungs. Þessi vefnaðar kúnst er talin forn egypsk arfleifð. Eftir komuna á hótelið er frjáls tími.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður
Kaíró – Alexandría
Eftir morgunverð er ekið til Alexandríu. Heimsóttir verða merkir fornleifastaðir, þar á meðal Catacombs of Kom El Shoqafa sem eru ein merkustu fornleifasvæði Alexandríu og teljast meðal stærstu og merkilegustu grafhýsa frá grísk-rómverskum tíma í Egyptalandi. Grafhýsin voru líklega byggð á 2. öld eftir Krist og sameina áhrif frá egypskri, grískri og rómverskri menningu í arkitektúr og skreytingum.
Einnig heimsækjum við Pompey’s Pillar, sem er stór og glæsileg granítsúla og eitt þekktasta minnismerki borgarinnar frá tímum Rómaveldis. Súlan var reist um árið 300 eftir Krist til heiðurs rómverska keisaranum Diocletianusi, en nafnið „Pompey’s Pillar“ er í raun rangnefni þar sem hún tengist ekki rómverska hershöfðingjanum Pompeiusi. Súlan er um 27 metra há og talin stærsta forna einsteinssúla sem enn stendur utan Rómar og Konstantínópel. Hópurinn innritar á Four Seasons San Stefano Alexandria Hotel 5*. Kvöldið er frjálst.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður
Alexandría
Eftir morgunverð er haldið í skoðunarferð. Við heimsækjum Citadel of Qaitbay, virki frá 15. öld sem stendur við Miðjarðarhafið á stað þar sem hinn frægi Viti í Alexandríu stóð áður, eitt af sjö undrum fornaldar. Virkið var reist til að verja borgina gegn árásum frá sjó.
Bibliotheca Alexandrina er nútímalegt bókasafn og menningarsetur sem var opnað árið 2002 til að endurvekja anda hins forna bókasafns Alexandríu sem var eitt mikilvægasta þekkingarsetur fornaldar. Byggingin sjálf er einstök í hönnun, með stórum hringlaga lestrarsal og veggjum skreyttum táknum og leturgerðum frá ólíkum menningarheimum. Þar eru bókasöfn, sýningar, söfn og vísindamiðstöð sem gera staðinn að mikilvægu menningar- og fræðasetri í Egyptalandi í dag.
Heimsókn á þessa staði sameinar sögu Alexandríu frá fornum tíma til nútímans — annars vegar varnarvirki með tengingu við undur fornaldar og hins vegar tákn um þekkingu, menningu og alþjóðlegt samstarf. Kvöldið er frjálst.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður

Alexandría – Kaíró
Að loknum morgunverði er ekið til baka til Kaíró þar sem innritað er á hótel Hilton Heliopolis Cairo.
Frjáls tími eftir innritun.
Máltíðir innifaldar: Morgunverður
Kaíró – Keflavík
Útritun af hóteli snemma morguns og ekið á flugvöllinn í Kaíró þar sem innritun fer fram í flug EgyptAir með brottför til Amsterdam klukkan 9:50.
Frá Amsterdam er flogið áfram til Keflavíkur kl. 20:20 og lent 22:50.
Máltíðir innifaldar: Morgunverður
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð
Þórhallur Heimisson verður fararstjóri í ferðinni. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005 og farið með fjölda hópa Íslendinga víða um heim.
Verð: 1095.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 100.000 kr.
Greiða þarf 150.000.- kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko ehf. sem nálgast má á heimasíðu skrifstofunnar.
• Flug með Icelandair og EgyptAir – 23 kg innrituð taska ásamt 8 kg handfarangurstösku, allir skattar og gjöld.
• Innanlandsflug Lúxor – Aswan – Kaíró, allir skattar og gjöld
• Gisting í 4 nætur á Sofitel Downton Hotel 5*.
• Gisting í 4 nætur á Moon Goddess Nile cruise, lúxus fljótaskipi á ánni Níl með fullu fæði.
• Gisting í 2 nætur á Four Seasons San Stefano Alexandria Hotel 5*
• Gisting í 1 nótt á Hilton Heliopolis Cairo Hotel 5*
• Morgun-, hádegis- og kvöldverðir eins og tilgreint er í ferðalýsingu.
• Skoðunarferðir skv. ferðalýsingu ásamt leiðsögumanni.
• Allur rútuakstur skv. lýsingu.
• Íslensk fararstjórn Þórhalls Heimissonar.
• Enskumælandi staðarleiðsögumaður.
• Bagbee töskuþjónusta og Fast Track í Keflavík.
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar























































































