Róm er án efa ein fegursta borg í Evrópu sem hefur að geyma áhrifamikla sögu Rómverja í árþúsund.

Róm er án efa ein fegursta borg í Evrópu og hefur að geyma áhrifamikla sögu sem spannar árþúsundir. Enda er hún kölluð „Borgin eilífa“. Róm hrífur ferðamenn og margir koma þangað aftur og aftur því aldrei verður hægt að skoða nóg í þessari stórfenglegu borg.

Kolumbus ævintýraferðir bjóða upp á einstaka söguferð með Þórhalli Heimissyni sem er öllum hnútum kunnugur í borginni og hefur starfað þar sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005. Í ferðinni fá farþegar að fræðast um sögu Rómverja á öldum áður og allt til nútímans og njóta sérstakrar leiðsagnar um merkustu byggingar borgarinnar, sjálfa Péturskirkjuna, Vatikansafnið og Kólóseum, hringleikahúsið fræga, sem á sér engan líka í þessum heimi.

Gist er á Hótel Morgana 4* í miðborginni, nálægt Kólóseum þar sem er mikið mannlíf og fjöldi veitingastaða. Boðið er upp á gönguferðir með leiðsögumanni um Gyðingahverfið og heimsóknir á frábær ítölsk veitingahús að kvöldi til þar sem stemmningin er einstök.

Farþegar þurfa að vera vel göngufærir. Reglur í Vatíkani og Péturskirkju heimila því miður ekki notkun göngustafa eða göngugrinda. Þá eru miklar tröppur í Kólóseum.

Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi

Flogið í beinu flugi með Icelandair FI 930 kl. 08:20 og lent á FCO flugvellinum í Róm um kl. 14:00. Tímamismunur er 1 klst. Þórhallur tekur á móti hópnum og ekið verður með rútu á Hotel Morgana 4* þar sem dvalið verður í 5 nætur. Komið er síðdegis til innritunar á hótelið.

Að lokinni innritun og stuttri hvíld verður gengið að hinni stórbrotnu Santa Maria Maggiore, einni af fjórum páfakirkjum Rómar. Þórhallur segir frá sögu kirkjunnar, mikilvægi hennar í sögu kristninnar og þeim undrum og atburðum sem tengjast þessum einstaka helgistað. Heimsóknin er kærkomið tækifæri til að hefja ferðina á því að kynnast einum merkasta trúar- og menningararfi Rómar.  Að heimsókn lokinni verður gengið saman á notalegan veitingastað í nágrenni hótelsins þar sem hópurinn kemur saman yfir góðum kvöldverði og fær tækifæri til að kynnast betur. Boðið verður upp á þriggja rétta máltíð með víni, sem er innifalin í verði ferðarinnar.

Skoðunarferðir í Vatíkanið

Sérstakar hámarksreglur gilda um stærð hópa og verður hópnum því tvennt og tekur skoðunarferðin 4-4,5 klst. með keyrslu fram og til baka.
Hópur 1: Morgunferð í Vatíkanið.
Hópur 2: Eftirmiðdagsferð í Vatíkanið.

Farið er með skutlum (minivan) að Vatíkan safninu þar sem skoðunarferðin hefst. Við skoðum stórkostleg listaverk, forn og ný. Skoðunarferðinni um Vatíkan safnið lýkur í Sixtínsku kapellunni sem er skreytt hinum frægu málverkum Michelangelos. Hópurinn hefur síðan forgangsaðgang beint frá Sixtínsku kapellunni yfir í Péturskirkjuna, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að skoða með leiðsögn eina stærstu og áhrifamestu kirkju sögunnar. Farið er með skutlum (minivan) til baka á hótelið. 

Til upplýsinga viljum við taka fram að við skiptingu í ferðir verður alfarið raðað niður af handahófi frá söluaðila við miðakaup. Tryggt er að fólk sem bókað er saman í bókun sé í sama hópi. Ekki er mögulegt að breyta hópaskiptingum eftir á eða færa sig á milli hópa þar sem allir miðar eru nafngreindir á hvern gest eins og reglur gera ráð fyrir.

Kólóseum

Gengið er frá Hótel Morgana að Kólóseum ásamt Þórhalli og erlenda leiðsögumanninum en gangan tekur aðeins 15-20 mín. Farið verður inná þennan gamla leikvang Rómverja og síðan er haldið á rómversku torgin í framhaldinu. Ferðin tekur um 3 klst.

Sérstakar hámarksreglur gilda um stærð hópa í Kólóseum og til að gera upplifun gesta sem besta verður hópnum skipt upp í tvær ferðir:

Hópur A: Morgunferð í Kólóseum undir leiðsögn Þórhalls Heimissonar.

Hópur B: Eftirmiðdagsferð í Kólóseum undir leiðsögn Þórhalls Heimissonar.

Eftir rómversku torgin er hægt að ganga til baka áleiðis að miðbænum eða upp á hótel. Kvöldið er frjálst.

Athugið að nauðsynlegt er að hafa gild skilríki eða vegabréf meðferðis samkvæmt reglum um aðgengi að Kólóseum.

Til upplýsinga viljum við taka fram að við skiptingu í ferðir verður alfarið raðað niður af handahófi frá söluaðila við miðakaup. Tryggt er að fólk sem bókað er saman í bókun sé í sama hópi. Ekki er mögulegt að breyta hópaskiptingum eftir á eða færa sig á milli hópa þar sem allir miðar eru nafngreindir á hvern gest eins og reglur gera ráð fyrir.

Frjáls dagur í Róm

Engin skipulögð dagskrá er þennan dag og því hafa ferðalangar frjálsar hendur til að njóta Rómar á eigin vegum. Tilvalið er að rölta um heillandi götur miðborgarinnar, skoða falleg torg og sögufrægar byggingar, kíkja í verslanir eða setjast niður á notalegu kaffihúsi og njóta ítalskrar kaffimenningar. Borgin býður upp á ótal möguleika og fátt er skemmtilegra en að upplifa mannlífið, villast um þröngar göturnar og uppgötva litlar perlur sem leynast víða í borginni.

Frjáls dagur í Róm

Engin skipulögð dagskrá er þennan dag og því tilvalið að njóta Rómar á eigin vegum, rölta um miðborgina, kíkja í verslanir eða setjast niður á notalegum veitingastað.

Seinni part dags býður Þórhallur gestum með sér í fróðlega gönguferð um gyðingahverfið í Róm, þar sem hann segir frá sögu og leyndardómum þessa heillandi borgarhluta, sem margir ferðamenn láta fram hjá sér fara.

Gönguferðinni lýkur með sameiginlegum kvöldverði við Campo de’ Fiori-torgið í hjarta Rómar. Kvöldverðurinn er valfrjáls og greiðist sérstaklega. Skráning fer fram á komudegi til Rómar.

Dásamleg leið til að ljúka ferðinni í góðum félagsskap yfir ljúffengum ítölskum mat!

Heimfarardagur

Lagt verður af stað með rútu á flugvöllinn kl. 07:45 og komið þangað 1 klst. síðar. Innritun í flug Icelandair FI 931 sem er áætlað kl. 11:25 og lendir í Keflavík kl. 15:30 að íslenskum tíma.

Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð

Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.

Hildur Jónsdóttir svæðisstjóri Kolumbus á Ítalíu verður Þórhalli til aðstoðar. 

Verð: 295.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 59.000 kr.

Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

• Flug Icelandair til Rómar fram og til baka – 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
• Gisting í 5 nætur á Hotel Morgana 4* með morgunverði.
• Gistináttagjald, €15 pr. nótt.
• Skoðunarferð í Vatíkanið og forgangsaðgangur í Péturskirkjuna með skutlum (minivan) til og frá hóteli.
• Skoðunarferð í Kólóseum.
• Kvöldverður á komudegi.
• Íslensk fararstjórn og leiðsögn í öllum skoðunarferðum ásamt heyrnartólum.
• Rútuakstur frá flugvelli að hóteli og til baka.
• Bagbee þjónusta fyrir alla sem gista á höfuðborgarsvæðinu eða í Reykjanesbæ nóttina fyrir brottför. Boðið er uppá að innrita farþega og sækja farangur þeirra degi fyrir brottför, þannig að hægt er að ganga beint að öryggishliði í Leifsstöð á brottfarardegi.
• Aðgangur að hraðhliði (Fast track) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega).

Hotel Morgana ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.