Fjölbreytileiki í menningu, tungumálum og landslagi einkennir Indland ásamt töfrandi sögu og litríkum fatnaði.

Fjölbreytileiki í menningu, tungumálum og landslagi einkennir Indland ásamt töfrandi sögu og litríkum fatnaði.

Stígðu inn í annan heim þar sem tíminn virðist standa í stað og hver dagur leiðir þig dýpra inn í töfra Indlands. Þú ferð frá iðandi mannlífi Nýju-Delí yfir í marmaraskart Taj Mahal, áfram í villta náttúru Ranthambhore þar sem tígrisdýr svífa hljóðlega milli trjáa – og síðan inn í hjarta hins konunglega Rajasthan. Gist er á glæsilegum hótelum í ferðinni.

Rajasthan er stærsta fylki Indlands og er oft líst með orðunum. “Land of Maharajas“. Nafnið vísar til Maharaja, sem merkir „mikill konungur“ á sanskrít, og var titillinn notaður af voldugu konungunum sem ríktu yfir hinum fjölmörgu furstadæmum Rajasthan. Rajasthan er þekkt fyrir merkilega sögu sína, stórfengleg hallarsvæði, voldug virki og konunglega arfleifð. Þetta er ferðalag fyrir skynfærin, hjartað og söguna – þar sem hver borg segir sína ógleymanlegu sögu og skilur eftir sig spor í sál ferðalangsins.

Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi

Brottför með flugi Finnair AY0992 til Helsinki kl. 10:00 þar sem lent verður kl. 15:25 að staðartíma. Áfram verður flogið með Finnair AY0121 kl. 18:00 og lent í Delhi á Indlandi að morgni 17. febrúar kl. 06:05.  Tímamismunur á Íslandi og Indlandi er +5 og hálf klukkustund.

Velkomin til Delhi!

Velkomin til Delhi! Staðarleiðsögumaður tekur á móti hópnum á alþjóðaflugvellinum. Farið verður í skoðunarferð að Qutb Minar sem er ein af þekktustu minjum Indlands. Turninn var reistur sem sigurmerki fyrir sigur múslima á konungsríki Hindúa og til að tákna upphaf íslamskrar valdatíðar á svæðinu. Hádegisverður snæddur áður en hópurinn bókar sig inn á hótel Le-Meridien 5* þar sem dvalið verður í tvær nætur. Eftir innritun á hótelið er frjáls dagur það sem eftir lifir dags. Delhi, höfuðborg Indlands, er borg sem gefur innsýn bæði í hið forna og nútímalega Indland. Hún er þriðja stærsta borg landsins og ein sú mest vaxandi í Asíu. Margar fornar rústir sem sjást víðsvegar um borgina eru þögul vitni um stórbrotna sögu hennar. Kvöldverður á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Hádegis- og kvöldverður.

Delhi

Eftir morgunverð munum við aka að bílastæðinu við Rauða virkið (Red Fort). Þar leggjum við rútunni og tökum hjólavagna um Chandni Chowk, sem er eitt elsta og líflegasta markaðssvæði í Delhi. Það var upphaflega hannað á 17. öld af Shah Jahan, Mógúl keisaranum sem lét einnig byggja Taj Mahal. Chandni Chowk er frægt fyrir fjölda verslana, götumarkaði og söguleg minnismerki.

Við heimsækjum Jama Masjid, aðalmoskuna á svæðinu, sem Shah Jahan lét reisa árið 1644.

Að því loknu skoðum við Rajpath, einnig þekktan sem Konungsveginn (Kings Way), sem er umlukinn skrautlegum tjörnum á báðar hliðar. Ekið verður fram hjá Rashtrapati Bhawan (Forsetahöllinni), opinberum bústað forseta Indlands og einnig fram hjá India Gate, 42 metra háum sigurboga úr steini. Hádegisverður á Club House.

Eftir hádegisverð kynnumst við sterkum samfélagsanda í Gurudwara Bangla Sahib, helgu musteri síkha, þar sem fólk af öllum trúarbrögðum, menningarheimum og uppruna er boðið að snæða saman daglega.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Delhi – Agra

Eftir morgunverð er ekið til Agra og tekur aksturinn um 4 klukkustundir. Agra er þekktust sem borg Taj Mahal, frægasta minnisvarða heims um ástina. Borgin stendur við bakka Yamuna-árinnar og laðar að sér þúsundir ferðamanna á hverjum degi frá öllum heimshornum. Með rólegu andrúmslofti sínu og ríkulegri arfleifð byggingarlistar, handverks og skartgripagerðar telst Agra meðal merkilegustu borga heims. Andrúmsloft borgarinnar ber enn sterk einkenni frá tímum Mógúlveldisins sem hófst þegar Babur kom til Indlands árið 1526. Við komuna til Agra förum við á hótelið Grand Mercure by Accor 5*, innritum okkur og gefum okkur tíma til að slaka á. Hádegis- og kvöldverður á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Agra

Eftir morgunverð heimsækjum við Taj Mahal. Taj Mahal er stórkostlegt meistaraverk í byggingarlist og er yfirleitt aðalástæðan fyrir heimsókn ferðamanna til Agra. Taj Mahal var reist af Shah Jahan sem hvítmarmaraminnisvarði um hans ástkæru eiginkonu, Mumtaz Mahal. Það tók 22 ár að fullklára bygginguna sem var hönnuð og skipulögð af persneska arkitektinum Ustad Isa. Auk þess að vera ótrúlegt samspil hönnunar og fullkominnar samhverfu, er Taj Mahal einnig þekkt fyrir sín glæsilegu hvelfingarturnþök og fagurlega út skorna glugga. Bygginguna einkenna mörg falleg smáatriði, þar á meðal flókin innlagningarvinna (inlay work) úr steinum sem gefa byggingunni enn meiri sjarma. Hádegisverður á The Salt Cafe Kitchen & Bar.

Eftir hádegisverð heimsækjum við Agra virkið. Virkið er byggt af hinum mikla Mógúlkeisara Akbar árið 1565 e.Kr. og er að mestu leyti úr rauðum sandsteini. Í hinum víðfeðmu sölum bergmála raddir liðinna alda og gestir upplifa ferð í gegnum tímann. Innan virkisins er hin myndræna Pearl Mosque sem er einn af helstu ferðamannastöðum borgarinnar. Pearl Mosque er fallegur minnisvarði um menningu Mógúl-tímans, einfaldleika og friðsæld sem er mikilvægt í trúarlegum byggingum. Kvöldverður á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Morgun- hádegis- og kvöldverður.

Agra – Ranthambore National Park

Eftir morgunverð er ekið til Ranthambore-þjóðgarðs með viðkomu í Fatehpur Sikri. Þessi sögufræga borg er staðsett um 40 km frá Agra og var byggð af Mógúlkeisaranum Akbar árið 1569. Hún var hins vegar yfirgefin eftir aðeins 15 ár vegna vatnsskorts. Fatehpur Sikri var höfuðborg Mógúlaveldisins frá 1570 til 1586 og er þekkt fyrir stórfenglega byggingarlist sem sameinar bæði hindúísk og íslömsk áhrif. Borgin er að mestu byggð úr rauðum sandsteini og helsta aðkomuleiðin er í gegnum hið glæsilega Buland Darwaja hlið sem er 53 metrar á hæð.

Hádegisverður á Bhanwar Vials Palace.

Að hádegisverði loknum heldur ferðin áfram til Ranthambore þjóðgarðsins. Eftir innritun á Tiger Den Resort hótelið geta gistir slakað á og kynnt sér svæðið.

Ranthambore þjóðgarðurinn er staðsettur á milli hinna hrjóstrugu Aravalli- og Vindhya hálanda og er eitt af fyrstu “Project Tiger” verndarsvæðunum á Indlandi. Þjóðgarðurinn er enn einn besti staðurinn í heiminum til að sjá tígrisdýr í sínu náttúrulega umhverfi. Garðurinn státar af stórbrotnu landslagi með vötnum, ám og klettasléttum þar sem einnig má finna fornar virkisleifar og yfirgefnar moskur. Allt þetta skapar hrífandi aðstæður fyrir dýraskoðun. Kvöldverður á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Ranthambore National Park

Morgun- og eftirmiðdags safarí með enskumælandi náttúrufræðingi.

Eftir að hafa hresst sig við með te eða kaffi og kexi um morguninn leggur hópurinn af stað í fyrra safarí dagsins. Frá hóteli til þjóðgarðsins er um 10 mínútna akstur.

Við heimkomu verður morgunmatur og nokkrir tímar í afslöppun við sundlaugina, á gönguferð um svæðið eða hvað sem hugurinn girnist.

Morgunsafarí byrjar kl. 6:30 og stendur til kl. 10:00.
Eftirmiðdagssafarí byrjar kl. 14:30 og stendur til kl. 18:00.

Áhugavert er að náttúrufræðingar nota fyrst og fremst heyrn sína frekar en sjónina til að finna tígrisdýrin. Þegar hirtir og apar finna að tígrisdýr nálgast, gefa þau frá sér sérstakt viðvörunarhljóð sem vekur athygli villtra dýra og leiðsögumanna okkar á nálægð tígrisdýrsins. Næst munu leiðsögumennirnir áætla hvar líklegt er að sjá tígrisdýrin koma úr skóginum. Auk Bengal tígurs er mjög fjölbreytt dýra- og plöntulíf í garðinum. Tígrisdýraferðir fara yfirleitt fram við sólarupprás og sólsetur þegar stórir kettir eru á ferð, stundum við veiðar. Þess vegna er farið bæði að morgni og síðdegis til að fá sem besta upplifun í garðinum.

Hádegis- og kvöldverður á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Ranthambore National Park – Jaipur

Að loknum morgunverði er lagt af stað kl. 9:00 og ekið til Jaipur. Á leiðinni má sjá fjölmarga áhugaverða staði og fjölbreytt landslag Rajasthan sem einkennist af eyðimörkum, fjöllum og þurrum svæðum. Snæddur er hádegisverður á leiðinni. Við komuna til Jaipur er innritun á Hilton hótel 5* þar sem gist er í 2 nætur. Kvöldverður snæddur á hótelinu.

Jaipur, höfuðborg Rajasthan, stærsta fylkis Indlands, var reist af Maharaja Sawai Jai Singh á 18. öld. Líflegar og litskrúðugar götur borgarinnar sýna áhugaverða blöndu hins gamla og nýja. Borgin sem er umkringd virkisveggjum og hrjóstrugum hæðum státar af vel varðveittum sögulegum byggingum og ríkulegri konunglegri arfleifð. Jaipur er hluti af hinum svokallaða Gullna þríhyrningi Indlands og er þekkt fyrir breiðstræti sín, glæsilegar styttur og stórfenglegar hallir. Síðdegis könnum við Bleiku borgina (Pink City), sem iðar af lífi, litum og iðandi markaðstorgum. Þar má fylgjast með handverksfólki við störf þegar það býr til brúður, silfurskartgripi, armbönd og ýmsa aðra handgerða muni í verkstæðum sínum. Kvöldverður á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Morgun- hádegis- og kvöldverður.

Jaipur

Eftir morgunverð njótum við jeppaferðar að hinu stórbrotna Amer-virki (Amber Fort), sem er á heimsminjaskrá. Að því loknu heimsækjum við Borgarhöllina (City Palace), einstaka byggingu þar sem byggingarstílar Mógúla og Rajputa sameinast á glæsilegan hátt. Í hluta hallarinnar er safn sem geymir meðal annars smámyndamálverk, handrit, mógúlateppi, hljóðfæri, konunglegan klæðnað og vopn. Hádegisverður á Heritage Cuisine.

Eftir hádegisverð skoðum við Jantar Mantar, stjörnuathugunarstöðina sem reist var árið 1728 og hýsir afar nákvæm mælitæki sem voru hönnuð til að rannsaka og mæla hreyfingar himintunglanna. Við stöldrum einnig við Hawa Mahal, hina frægu Vindahöll sem er þekkt fyrir glæsilega framhlið úr bleikum sandsteini.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Jaipur – Jodhpur

Brottför af hóteli kl. 08:30 og ekið sem leið liggur til Jodhpur eða „Bláu borgarinnar“ eins og hún er oft kölluð vegna fjölda húsa sem máluð eru í mismunandi bláum tónum. Aksturinn  tekur um 5-6 klst. Akstursleiðin liggur í gegnum fallegt landslag Rajasthan þar sem fyrir augu ber m.a. eyðimerkurlandslag og litríkir smábæir. Hugsanlega sjáum við hjarðmenn með kameldýr á beit en mikið er af kameldýrum á þessu svæði. Á leiðinni snæðum við hádegismat á Megh Malhar Hotel. Við komuna til Jodhpur er innritun á Welcomhotel by ITC 5* þar sem gist er í 2 nætur. Kvöldmatur á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Jodhpur

Eftir morgunverð heimsækjum við hið glæsilega Mehrangarh virki sem þekur landsvæði upp á 486 hektara. Virkið er staðsett á um 122 hæð metra yfir borginni og var byggt um 1459 af Rajput-höfðingjanum Rao Jodha, þó flestar núverandi byggingarnar séu frá 17. öld. Innan virkisins eru nokkrar hallir sem eru þekktar fyrir einstakan arkitektúr, víðáttumikla garða, auk safns sem geymir ýmsar fornar minjar. Á öðrum hliðargarðinum má enn sjá merki um sprengjuskot eftir árásir herja frá Jaipur. Að því loknu heimsækjum við Jaswant Thada, minnismerki sem Maharaja Sardar Singh lét reisa árið 1899 til minningar um föður sinn. Minnismerkið er byggt úr fíngerðum plötum af Makrana-marmara sem eru svo þunnar og vel slípaðar að þær geisla þegar sólin skín á þær. Hádegisverður á Sky Deck.

Eftir hádegisverð förum við í um tíu mínútna ferð með túk-túk um líflegar götur Jodhpur að hinu fræga Ghanta Ghar (Klukkuturnsmarkaðnum). Kvöldverður á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Jodhpur – Udaipur

Brottför frá hótelinu kl. 10:00 og ekið til Udaipur, um sex klukkustunda akstur. Leiðin liggur um hæðótt og skógi vaxið landslag. Á leiðinni er stoppað til að snæða hádegisverð. Eftir hádegisverð heldur aksturinn til Udaipur áfram og á leiðinni má sjá falleg vötn og konunglegar hallir. Innritun á hótel Tatsaraasa Resort & Spa 5* þar sem gist er í 2 nætur.

Borgin glæsilega – Udaipur er þekkt undir mörgum nöfnum, þar á meðal Borg sólarupprásarinnar, Gimsteinn Mewar og Borg vatnanna. Án efa ein rómantískasta borg Indlands, hún liggur milli glitrandi vatnanna og hinna fornu Aravalli-hálsa. Þrátt fyrir að vera ein stærsta borg Rajasthan, heldur Udaipur áfram að geisla af heillandi smábæjarstemningu. Kvöldverður á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Morgun- hádegis- og kvöldverður.

Udaipur

Eftir morgunverð er heimsókn í City Palace sem er staðsett á austurbakka Pichola-vatns og er einn vinsælasti áfangastaðurinn í Udaipur. City Palace er stór hallarsamstæða með fjórum aðalhöllum og mörgum smærri höllum. Þar er einnig safn með fjölbreyttum gripum. Frá svölum, turnum og hvelfingum hallarinnar er magnað útsýni yfir vatnið og borgina. Hallarsamstæðan var byggð fyrir framlag margra konunga Mewar-ættarinnar og heillar stórfengleg byggingarlist gesti. Hádegisverður á veitingastað við vatnið.

Eftir hádegisverð njótum við einkabátsferðar á Pichola-vatni sem er ein eftirminnilegasta upplifun sem Udaipur hefur upp á að bjóða. Vatnið er umkringt glæsilegum höllum, sögulegum bryggjum og fallegum hæðum. Stórkostlegt útsýni er yfir hina frægu Lake Palace-höll og Jag Mandir-eyju. Bátsferðin er sérstaklega töfrandi við sólarlag, þegar borgin baðar sig í gylltum litum og myndar einstakt og rómantískt andrúmsloft sem seint gleymist.

Máltíðir innifaldar: Morgun- hádegis- og kvöldverður.

Udaipur – Delhi

Eftir morgunmat er ekið til Udaipur-flugvallar  og innritað í flug til Delhi með Indigo Airline kl. 13:05 með komu til Delhi klukkan 14:25. Hádegisverður er snæddur á veitingastað á flugvellinum. Við komuna til Delhi er akstur og innritun á hótel Roseate House 5*. Kvöldverður á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Heimferð

Brottför eldsnemma af hótelinu og ekið á alþjóðaflugvöllinn í Delhi þar sem innritað er í flug Finnair til Helsinki með brottför kl. 07:50. Lent í Helsinki um 14:10. Flogið áfram með Finnair kl. 15:20 og lent í Keflavík kl. 17:15 að íslenskum tíma.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Þórhallur Heimisson verður fararstjóri og leiðsögumaður okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005 og farið með fjölda hópa Íslendinga víða um heim.

 

Verð: 915.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.

Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 220.000 kr.

Greiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko ehf. sem nálgast má á heimasíðu skrifstofunnar.

Allir flugleggir, 23 kg. farangursheimild – allir skattar og gjöld.
Gisting í 13 nætur á hótelum skv. ferðalýsingu.
Morgun-, hádegis- og kvöldverðir eins og tilgreint er í ferðalýsingu.
Skoðunarferðir skv. ferðalýsingu ásamt leiðsögumanni.
Allur rútuakstur skv. lýsingu.
Íslensk fararstjórn Þórhalls Heimissonar.
Bagbee töskuþjónusta og Fast Track í Keflavík.

Hótelin sem við gistum á

New Delhi: Le Méridien ★★★★★
Agra: Grand Mercure by Accor ★★★★★
Ranthambore: Tiger Den Resort ★★★★
Jaipur: Hilton ★★★★★
Jodhpur: Welcomhotel by ITC ★★★★★
Udaipur: Tatsaraasa Resort & Spa ★★★★★
Lokanótt í New Delhi: Tatsaraasa Resort & Spa ★★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.