Upplifðu óendanlegan fjölbreytileika Suður-Ameríku! Litríkar menningarhefðir, töfrandi náttúru og stórkostlegan mat allt í einni ferð.

Upplifðu óendanlegan fjölbreytileika Suður-Ameríku! Litríkar menningarhefðir, töfrandi náttúru og stórkostlegan mat allt í einni ferð.

Ævintýraferð sem leiðir þig í gegnum þrjú af dýrmætustu svæðum Suður-Ameríku, frá víðáttumiklum ströndum Kyrrahafsins í Perú þar sem leyndardómar Inkaríkisins lifa enn. Chile þar sem nútími og náttúra mætast milli snæviþakina tinda Andesfjalla og að lokum til einnar af einangruðustu og mest töfrandi eyju jarðar: Páskaeyju (Rapa Nui) – þar sem þú stígur inn í dularfulla sögu Moai-styttna og forna siði sem lifa áfram í dansi og söng.

Lima, er ein áhugaverðasta borg Suður-Ameríku þar sem andi Inka, spænsk nýlendusaga og nútímaleg lífsgleði blandast saman. Heilagi dalurinn, eða Valle Sagrado eitt helgasta og mikilvægasta svæði í Inkaríkinu liggur meðfram hlykkjóttum fljótum og bröttum fjallshlíðum þar sem finna má minjar frá tímum Inkanna, þar sem hefðir lifa enn í gegnum handverk, tónlist og daglegt líf íbúanna. Upplifðu töfra Machu Picchu sem stendur stolt og dularfull í hjarta fjallanna – eitt af sjö undrum veraldar og er skráð á Heimsminjaskrá UNESCO.

Santiago, nútímaleg og lifandi höfuðborg sem stendur undir rótum Andesfjallanna. Valparaíso litrík, skapandi og sögurík borg sem stendur við brattar hlíðar með útsýni yfir Kyrrahafið og sameinar bóhemíska menningu og suðandi daglegt líf og er skráð á Heimsminjaskrá UNESCO.

Páskaeyja, eða Rapa Nui, er ein af afskekktustu og dularfyllstu stöðum jarðar staðsett í miðju Kyrrahafinu og býður upp á stórkostlega náttúru, fallegar strendur og einstaka möguleika til að upplifa forna menningu, skoða dularfullar Moai-styttur sem eru á Heimsminjaskrá UNESCO, njóta kyrrðar og ævintýra í einstöku umhverfi.

Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi

Ferðin hefst í Leifsstöð með flugi Icelandair FI-691 til Miami kl. 17:15 og lent þar kl. 21:55 að staðartíma. Farþegar fara í gegnum toll og eftirlit og eftir það er haldið með hótelskutlum stuttan spöl að Sonesta Miami Airport hótelinu þar sem gist verður fyrstu nóttina.

Miami og flogið til Lima

Sannkallaður hvíldardagur eftir flugið til Ameríku. Dagurinn frjáls og tilvalið að hlaða batteríin fyrir komandi ferðalag til Suður Ameríku. Herbergin eru bókuð þar til að við förum út á völl og hægt að nýta daginn til þess að slaka á við sundlaugarbakkann.

Farið verður upp á flugvöll eftir hádegi þar sem hópurinn innritar sig í flug LATAM 2481 með brottför kl. 15:55 í beinu flugi til Lima þar sem lent er á alþjóðaflugvellinum kl 21:40. Keyra þarf í rúman hálftíma inn til Lima frá flugvellinum þar sem innritun fer fram á Souma Hotel, glæsihótel í Miraflores-hverfinu með upphitaðri „rooftop“ sundlaug með stórfenglegu útsýni til Kyrrahafsins.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Lima

Dagurinn hefst með skoðunarferð um Lima, hina líflegu og litríku höfuðborg landsins þar sem við heimsækjum Plaza Mayor, friðsælt og fallega hannað svæði þar sem saga, trú og stjórnmál mætast í stórkostlegu andrúmslofti. Á þessu torgi standa nokkrar af mikilvægustu byggingum landsins þar á meðal forsetahöllin, glæsileg bygging með nýlendustíl, dómkirkjan með ríkulegri innréttingu, grafhýsi Francisco Pizarro og barokklistaverkum. Santo Domingo eitt elsta klaustur Perú með rómuðum hvelfingum, San Francisco þar sem katakombur og gömul bókasöfn gefa innsýn í arfleifð nýlendutímans.

Eftir að hafa heimsótt gamla bæinn liggur leið okkur niður að hafinu á veitingastaðinn Rosa Nautica sem er einn glæsilegasti sjávarréttarstaður borgarinnar og stendur beint við Kyrrahafið á hinni frægu strandgötu „Circuito de Playas. Hér sameinast hágæða matur, afslappað andrúmsloft og stórkostlegt útsýni við ölduhljóð Kyrrahafsins. Rútan keyrir hópinn svo upp á hótel og er eftirmiðdagurinn frjáls.

Fyrir áhugasama er tilvalið að heimsækja Larco safnið sem gefur innsýn í fjölbreytta menningu og list Perú. Aðrir geta notið þess að ganga um Miraflores hverfið þar sem hótelið er staðsett sem er eitt af vinsælustu og fallegustu hverfum Lima og frábær staður til að kynnast matarmenningu Perú á einum af mörgum veitingastöðum á svæðinu eða taka því rólega á hótelinu á meðan sólin sekkur í sjóndeildarhringinn og varpar gylltum litum yfir Kyrrahafið og njóta ógleymanlegs sólseturs við strendur Lima.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Cusco og hinn heilagi dalur

Lagt er af stað snemma morguns þar sem við fljúgum áfram í stuttu innanlandsflugi til Cusco kl. 8:10 og lendum þar kl. 9:30 þar sem við hefjum ferðalagið um töfrandi slóðir, sögulegar rústir og stórbrotna náttúru sem leiðir okkur áfram inn í hjarta Inka menningarinnar.

Frá flugvellinum í Cusco liggur leið okkur til Pisco sem eru meðal mikilvægustu fornleifasvæða í Andesfjöllum og hluti af hinum heilaga dal Inkanna (Valle Sagrado de los Incas). Rústirnar sýna stórbrotinn arkitektúr, verkfræðilega snilld og djúpa tengingu við náttúru og landbúnað. Við heimsækjum einnig Pisac markaðinn þar sem finna má bæði landbúnaðarafurðir og handverk sem er áhugaverð upplifun sem gefur nýja sýn á menningu svæðisins.

Dvalið verður í 2 nætur á Sonesta Posadas del Inca sem er í hjarta dalsins og umkringt fjöllum og fallegum görðum. Hótelið er til húsa í endurgerðri gamalli klausturbyggingu frá 18. öld sem skapar einstakt andrúmsloft, rólegt, hlýlegt og nátengt sögu og menningu svæðisins.

Komið verður upp á hótel að loknum löngum degi í hinum heilaga dal og hægt að njóta kvöldsins í hótelgarðinum sem býður upp á marga möguleika í bæði mat og drykk.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður og perúskur nestispakki.

Skoðunarferð til Maras, Moray og Chinchero

Eftir morgunverð á hótelinu leggjum við af stað í heilsdagsferð sem sameinar menningu og stórkostlegt landslag þessa heilaga dals og keyrum meðfram hlykkjóttum fljótum og bröttum fjallshlíðum þar sem hefðir lifa enn í gegnum handverk, tónlist og daglegt líf íbúanna.

Við byrjum á að heimsækja, Maras saltnámurnar eða Salineras de Maras einstakt dæmi um náttúru, sögu og hefðir sem lifa enn í nútímanum.

Ferðinni er svo heitið til Moray, þar sem er að finna eitt af áhrifamestu og dularfyllstu fornleifa svæðum Inkanna og er einn af þeim stöðum sem gefa innsýn í dýpt landbúnaðar- og vísindalegrar þekkingar Inkanna.

Hádegisverður verður undir berum himni og verður efnt til sannkallaðrar veislu þar sem tekið verður á móti okkur með veitingum og drykkjum eins og heimamönnum einum er lagið. Einstök upplifun þar sem matur, náttúra og saga blandast saman. Dagurinn endar svo í Chinchero þorpinu sem er þekkt fyrir vandaða textílgerð og ríka sögu frá tíma Inkanna. 

Komið verður upp á hótel að loknum löngum degi í hinum heilaga dal og hægt að njóta kvöldsins í hótelgarðinum sem býður upp á marga möguleika í bæði mat og drykk.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Ollantaytambo – Aguas Calientes

Nú pökkum við öllum farangri þar sem næsti sólarhringur fer í það að ferðast að einum af hápunktum ferðarinnar, heimsókn að hinni fornu og dularfullu Inka borg, . Heimilt er að taka með sér 8 kg bakpoka fyrir næstu næturgistingu og verða allar ferðatöskur sendar á næsta áfangastað i Cusco.

Dagurinn byrjar því á heimsókn í Ollantaytambo, forna virkisborg sem var helgur staður í menningu Inkanna og er í dag lykil staður til að komast til Machu Picchu.

Eftir áhugaverða heimsókn þar verður verður ekið á veitingastað þar sem við fáum að njóta hefðbundins “Pachamanca” hádegisverðar. Þetta er er sérstök eldunaraðferð þar sem matur er eldaður í heitu grjóti sem grafið er í jörðina. Að hádegismat loknum hefst ferðalag okkar þar sem við förum um borð í Vistadome-lestina sem tekur okkur upp til Aguas Calientes sem er síðasta hvíldarstaðurinn áður en haldið er upp að rústunum næsta dag.

Hér gistum við í eina nótt á Hotel El MaPi by Inkaterra og undirbúum okkur fyrir loka hnykkinn að sjálfu Machu Picchu.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegis.

Machu Picchu

Í dag er komið að því að bera Machu Picchu augum, eitt af undrum veraldar og eitt af merkustu og fallegustu fornminjum heims staðsett í um 2.430 metra hæð.

Hópurinn gengur ásamt leiðsögumanni um svæðið og frjálst tími gefst til að njóta útsýnisins og smella í póstkortamynd til að senda heim!

Nestispakki verður svo í boði fyrir hópinn þegar við komum niður og eftir það er ferðst með lestinni til baka þar sem rútur bíða okkur og taka hópinn til borgarinnar Cusco þar sem gist verður á Hotel Novotel Cusco næstu 2 næturnar. Eftirmiðdagurinn er frjáls.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður og perúskur nestispakki.

Cusco og nágrenni

Í dag skoðum við hina sögulegu borg Cusco, fyrrum höfuðborg Inkaríkisins sem er í dag á Heimsminjaskrá UNESCO og það ekki að ástæðulausu. Borgin er einstök blanda af fornri Inka menningu og spænskri nýlenduarfleifð, þar sem Inkasteinlög og spænskar byggingar mynda samfellda sögu í hverju horni. Þröngar götur, sögufræg torg og stórbrotnar kirkjur segja frá dýrð Inkatímans og áhrifum landvinninga Spánverja. Göngum um borgina og skoðum dómkirkjuna sem er eitt áhrifamesta mannvirki borgarinnar ásamt öðrum helstu kennileitum gamla miðbæjarins.

Eftir það er stutt rútuferð að Sacsayhuamán sem er eitt af áhrifamestu og dularfyllstu fornminjasvæðum Inkaveldisins, staðsett rétt fyrir ofan borgina. Þetta stórbrotna vígi var bæði hernaðarlegt mannvirki og trúarlegur helgistaður sem margir telja að búi yfir andlegri orku.

Við kveðjum þetta einstaka land í loka kvöldverði þar sem við fáum að njóta matargerðar Perúbúa í bland við sýningu heimamanna, með litríkum þjóðdönsum og tónlist frá fjöllunum. Glæsileg lokastund í landi Inkanna.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Santiago, Chile

Í dag kveðjum við Perú, ríkt af sögu og menningu, og leggjum af stað í ný ævintýri yfir Andesfjöllin til Chile. Við fljúgum frá Cusco kl. 9:40 til Santiago, borgar sem liggur á fallegum slóðum milli snævi þakinna tinda Andesfjalla og á sér merka sögu.

Lent er í Santiago kl. 14:00 og síðdegis komum við á hótelið okkar, þar sem við gistum í þrjár nætur á hinu glæsilega Hotel Renaissance. Hótelið býður upp á litla útisundlaug og frábæran veitingastað.

Tími til að slaka á eftir ferðalagið og fá sér hressingu á hótelinu áður en haldið er kl. 19:00 í útsýnisturninn Sky Costanera, hæsta mannvirki í Suður-Ameríku. Þaðan njótum við stórkostlegs 360° útsýnis yfir borgina og Andesfjöllin, þar sem sólin sest á bak við fjallatoppana þar sem hæstu tindar í nágrenni höfuðborgarinnar ná yfir 5.000 metra hæð.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Skoðunarferð um höfuðborgina Santiago

Fyrri hluta dagsins gefst tími til að slaka á á hótelinu eða rölta um borgina á eigin vegum eða ganga í verslunarmiðstöðina í grennd við hótelið

Klukkan 15:00 leggjum við af stað í skoðunarferð um miðborg Santiago þar sem við fræðumst um sögu Chile og skoðum helstu kennileiti borgarinnar. Við heimsækjum meðal annars Plaza de Armas, hið sögufræga torg sem er umkringt fallegum safnahúsum, dómkirkjunni og forsetahöllinni La Moneda.

Í fáum borgum Suður-Ameríku er andrúmsloftið jafn heillandi og í höfuðborg Chile. Santiago sameinar nútímalegt borgarlíf, ríka sögu og stórbrotna náttúru á einstakan hátt. Hér mætast glæsilegir skýjakljúfar, sögulegar byggingar og tignarleg Andesfjöll sem setja svip sinn á borgina og skapa einstaka umgjörð.

Að lokinni skoðunarferð höldum við beint á veitingastaðinn Pecados Capitales þar sem við njótum saman dýrindis kvöldverðar og eigum notalega kvöldstund áður en ekið er aftur á hótelið.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Heilsdagsferð til Valparaiso

Eftir morgunverð, býður okkur heilsdagsferð til Valparaiso, hafnarborgar við strendur Chile. Borg full af sögu, listum og menningu og þar ríkir annað andrúmsloft en í höfuðborginni Santiago. Á 19. öld setti straumur evrópskra innflytjenda mark sitt á arkitektúr og menningarstofnanir borgarinnar.

Leiðsögumaður gengur með okkur um litríkar götur borgarinnar, heimsækjum fiskmarkaðinn „Caleta Portales“ áður en við setjumst niður í sameiginlegan hádegisverð á eitt besta veitingahús bæjarins „Mar Alegre“, staðsett inn á hinu glæsilega Hotel Casa Higueras, með stórbrotnu útsýni yfir höfnina og flóann frá veröndinni. Hér verður boðið upp á 3ja rétta matseðil sem rennur ljúflega niður með chilensku vínglasi.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Ferðalag til Páskaeyju

Í dag liggur leið okkur til Páskaeyju sem er algjörlega einstök upplifun sem fáir fá tækifæri til að njóta og enn færri geta státað af að hafa komið til. Menning Rapa Nui er einstök blanda af pólýnesískum hefðum, goðsögnum og andlegum siðum sem lifa áfram í dag, eyjan er ein af afskekktustu byggðum í heimi og heimkynni hinna dularfullu Moai-styttna, sem hafa heillað fólk um allan heim.

Flogið er af stað frá Santiago kl. 09:30 og lent kl 13:00 þar sem leiðsögumenn taka á móti hópnum. Við byrjum á að kynnast eyjunni strax við komu og keyrum beint frá flugvelli þar sem við munum sjá Ahu Tahai sem er einn merkasti og best varðveitti fornleifastaður Páskaeyju

Einnig er gaman að ganga hingað frá hótelinu og sjá sólsetrið og hinar tignarlegu moai-líkneskjur speglast sem skuggamyndir í sjónum.

Gist er á Hotel Taha Tai næstu þrjár nætur. Kvöldverður á eigin vegum – fjölmargir veitingastaðir í boði í Hanga Roa.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Páskaeyja

Í dag munum við upplifa töfra eyjarinnar, Moai-stytturnar og menningu Rapa Nui-fólksins.

Við heimsækjum Rano Raraku. Staðurinn er einskonar „verkstæði“ þar sem Rapa Nui-fólkið vann að gerð hinna frægu risastóru steinstyttna sem standa um alla eyjuna. Hér sjáum við hvernig stytturnar voru skornar út, hvenær þær hættu að vera í vinnslu og hversu stórar þær urðu. Það er líka einstakt að ganga um þennan stað þar sem saga og handverk blandast við náttúrufegurð eldfjallsins.

Næst er farið að Ahu Tongariki, þar sem við sjáum stærstu Moai-styttur eyjarinnar. Stórbrotinn og töfrandi staður með útsýni yfir hafið.

Leið okkur liggur að Anakena-ströndinni sem er eitt fallegasta svæði eyjunnar, þekkt fyrir hvítan sand, fölblátt kristaltært haf og einstakt umhverfi meðal eldfjalla og gróðurs og sá staður sem sagan segir að fyrstu íbúar eyjunnar hafi komið að landi á. Hér munum við njóta þess að borða undir berum himni og verður boðið upp á grillaðan mat í náttúrulegu og afslöppuðu umhverfi með útsýni yfir hafið. Þetta er tilvalinn staður til að njóta og slaka á og anda að sér andrúmslofti Páskaeyju.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Páskaeyja

Enn höldum við áfram að skoða þessa mögnuðu eyju. Að loknum morgunverði leggjum við af stað í skoðunarferð um nokkra af merkustu sögustöðum eyjarinnar.

Fyrst heimsækjum við eldfjallið Rano Kau, sem státar af einum stærsta eldfjallagíg heims með fallegu ferskvatnsvatni í botni gígsins. Þaðan höldum við áfram til Orongo, hins forna helgi þorps. Frá klettabrúninni við Orongo blasir við stórbrotið útsýni yfir Kyrrahafið og litlu eyjarnar undan ströndinni.

Næst heimsækjum við Ahu Vinapu, fornleifasvæði sem er þekkt fyrir einstaklega nákvæma steinhleðslu sem hefur oft verið líkt við byggingaraðferðir Inkanna í Perú. Eftir sameiginlegan hádegisverð höldum við áfram að Ahu Akivi, eina moai-svæðinu þar sem sjö styttur snúa í átt að hafinu. Samkvæmt þjóðsögum tákna þær fyrstu landkönnuði eyjarinnar. Að lokum heimsækjum við Puna Pau, rauða gjall keiluna þar sem steinninn var unninn í hina einkennandi rauðu hatta sem prýða sumar moai-stytturnar.

Við komum aftur á hótelið um kl. 16:00 og gefst þá tími til að slaka á áður en við höldum um kvöldið á glæsilega sýningu með Kari Kari dansflokknum, þar sem við njótum kvöldverðar ásamt hefðbundnum pólýnesískum dans- og tónlistarflutningi.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Páskaeyja – Ferðadagur

Langur ferðadagur er fram undan og því byrjum við daginn rólega. Eftir morgunverð gefst tími til að njóta síðustu stundanna á þessari einstöku eyju, hvort sem er við sundlaugina á hótelinu eða á stuttri göngu um Hanga Roa.

Um hádegisbil sækir rútan okkur og við höldum saman í hádegisverð áður en ekið er út á flugvöll. Þaðan fljúgum við frá Páskaeyju til Santiago og höldum áfram þaðan í kvöldflugi til Miami.

Við lendum í Miami að morgni 9. apríl, full af ógleymanlegum minningum frá einni af dularfyllstu og heillandi eyjum heims.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Slökun og brottför til Íslands

Komið til Miami kl. 6:40. Farþegar sækja töskur sínar og halda ásamt fararstjóra í hótelrútu sem ekur mannskapnum að Sonesta Miami Airport hótelinu þar sem morgunverður bíður hópsins ásamt herbergi sem er til ráðstöfunar fram að brottför síðdegis.

Eftir morgunverð er hægt að taka því rólega fram og er áætluð brottför frá hóteli kl. 14:30 með hótel skutlum á flugvöllinn þar sem innritun fer fram í flug Icelandair FI690 með brottför kl. 18:15

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Koma til Íslands

Lent er í Keflavík að morgni 10. apríl kl. 05:55.

Þar með lýkur þessari glæsilegu ferð um Suður-Ameríku, Perú, Chile og Páskaeyju.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

   

Hildur Jónsdóttir er svæðisstjóri Kolumbusar á Ítalíu. Hún hefur ferðast margoft um Suður-Ameríku á undanförnum árum og leitt fjölda hópferða um álfuna á vegum Kólumbusar. Með víðtæka reynslu og góða þekkingu á svæðinu sér hún um skipulag og framkvæmd ferðarinnar og leggur áherslu á að skapa ánægjulega og eftirminnilega upplifun fyrir alla þátttakendur.  

Vernharð Guðnason er reynslumikill sjúkraflutningamaður og sérþjálfaður í neyðaraðstoð. Hann hefur ferðast víða um heim, bæði á eigin vegum og sem öryggisfulltrúi fyrir Kolumbus. Víðtæk reynsla hans og fagþekking veitir hópnum aukið öryggi og stuðning á ferðalaginu.

Á öllum áfangastöðum verða reyndir enskumælandi staðarleiðsögumenn sem sjá um leiðsögn í skoðunarferðum og miðla af þekkingu sinni á sögu, menningu og náttúru hvers svæðis.

Verð: 1.590.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.

Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 225.000 kr.

Greiða þarf 150.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Greiða þarf 720.000 kr. inn á ferðina 15. október 2026 og lokagreiðsla fer fram þann 14. Janúar 2027.

Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt eftir 15. október 2026.

ATH: Ekki er hægt að fá endurgreiddan hluta ferðarinnar ef farþegi ákveður að yfirgefa ferðina fyrr eða á öðrum áfangastað en kemur fram í ferðalýsingu. Þar sem um hópabókun er að ræða er ekki heimilt, samkvæmt þessum fargjalds skilmálum, að óska eftir breytingum á flugleiðum eða uppfærslu á flugsætum. Slíkar breytingar eru einungis mögulegar á flugum Icelandair til og frá Miami, ef sérstaklega er óskað eftir því og framboð leyfir og er greitt fyrir það aukalega.

Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu kolumbus.is.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 499-2960 eða á netfanginu niko@niko.is.

•  Flug á Economy Class frá Keflavík til Lima (um Miami) og heimflug frá Santiago (um Miami), þ.m.t. skattar og gjöld.
•  Allt innanlandsflug í Perú og Chile þ.m.t. skattar og gjöld.
•  Gisting í tveggja manna herbergi í góðum og vel staðsettum hótelum í 15 nætur.
•  Máltíðir samkvæmt ferðalýsingu.
•  Allur flutningur og skoðunarferðir, þ.m.t. aðgangseyrir samkvæmt ferðaáætluninni.
•  Aðgangur að Machu Picchu ásamt lestarferðum.
•  Perú, allar máltíðir og skemmtanir samkvæmt ferðalýsingu.
•  Santiago, aðgangur í Costanera turninn of máltíðir samkvæmt ferðalýsingu.
•  Páskaeyja, hádegisverðir, grill, kvöldverður og þjóðdanssýning.
•  Svæðisleiðsögumenn.
•  Fararstjórn sem ferðast með hópnum allan tímann.
 Bagbee þjónusta fyrir alla sem gista á höfuðborgarsvæðinu eða í Reykjanesbæ nóttina fyrir brottför. Boðið er uppá að innrita farþega og sækja farangur þeirra degi fyrir brottför, þannig að hægt er að ganga beint að öryggishliði í Leifsstöð á brottfarardegi.
 Aðgangur að hraðhliði (Fast track) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega).
•  Sérstakur kynningarfundur í ársbyrjun 2027 þar sem fararstjóri og starfsfólk Kolumbus ævintýraferða mun upplýsa þátttakendur um helstu atriði sem hafa ber í huga áður en lagt er upp í þessa langferð.

Hótelin sem við gistum á

Perú: Souma Hotel ★★★★★
Perú: Hotel Sonesta Posadas del Inca ★★★★
Perú: Hotel El MaPi by Inkaterra ★★★★
Perú: Hotel Novotel Cusco ★★★★
Chile: Renaissance Santiago Hotel ★★★★★
Páskaeyja: Hotel Taha Tai ★★★
Miami: Hotel Sonesta Miami Airport ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.