Kolumbus ævintýraferðir bjóða í þriðja sinn uppá einstaka golf- og skemmtiferð til Suður Afríku dagana 28. febrúar til 16. mars 2027. Ferðin er unnin í samstarfi við hjónin Kolbein Kristinsson og Ruth Gylfadóttur en þau hafa búið í landinu í rúm 20 ár. 

Golfvellirnir í Suður-Afríku eru í hæsta gæðaflokki. Þar hefur verið leikið golf síðan 1890 þegar fyrsti golfvöllurinn á suðurhveli jarðar, Royal Cape opnaði í Cape Town.
Kolumbus ævintýraferðir bjóða í þriðja sinn uppá einstaka golf- og skemmtiferð til Suður Afríku dagana 28. febrúar til 16. mars 2027. Ferðin er unnin í samstarfi við hjónin Kolbein Kristinsson og Ruth Gylfadóttur en þau hafa búið í landinu í rúm 20 ár.
Golfvellirnir í Suður-Afríku eru í hæsta gæðaflokki. Þar hefur verið leikið golf síðan 1890 þegar fyrsti golfvöllurinn á suðurhveli jarðar, Royal Cape opnaði í Cape Town.

Suður-Afríka er mjög áhugaverður áfangastaður. Þar er verðlag hagstætt, saga lands og þjóðar áhugaverð, matur og þjónusta í háum gæðaflokki og svo er sumar þar þegar vetur ríkir á norðurhveli jarðar, með hitastig á bilinu 25-35°. Það er því tilvalið að bregða sér á þessar suðrænu slóðir til að ferðast um og njóta þess að leika á þeim frábæru golfvöllum sem þar eru í boði. Fara í safarí ferð, heimsækja vínbúgarða og fleira áhugavert. Höfðaborg, Cape Town sem er elsta borg landsins var valin „the Worlds Best City“ af Time Out í janúar árið 2026. Þá var borgin einnig valin „the Worlds best Food city “ hjá  Condé Nast Travellers Readers Choice Awards, árið 2024.

Ferðatilhögun

Brottfarardagur

Lagt af stað frá Keflavík Kl. 11:50 með flugi British Airways til London Heathrow þar sem lent verður kl. 15:00 að staðartíma. Flogið áfram með sama flugfélagi (farangur innritast í Keflavík alla leið á áfangastað) til Jóhannesarborgar með næturflugi kl. 21:15 og lent að morgni 1. mars kl. 10:25 að staðartíma.

George – Fancourt Golf Resort

Eftir komu til Jóhannesarborgar verður stutt stop á flugvellinum og síðan flogið áfram í innanlandsflugi til borgarinnar George þar sem lent verður 2 klst. síðar. Ferðalagið er langt en þegar komið er á áfangastað er aðeins um 10 mín. akstur að fyrsta dvalarstað hópsins sem er hið glæsilega golfhótel Fancourt Golf Resort þar sem dvalið verður fyrstu 7 nætur í ferðinni. Fararstjóri aðstoðar við innritun og fólk kemst inn á rúmgóð herbergi fljótlega og golfsett verða sett í geymslu.

Frjáls dagur sem eftir lifir og hægt að njóta glæsilegs umhverfis og umgjarðar hótelsins, þ.m.t. sundlaugar, veitingastaða og annarrar þjónustu sem í boði er. Kvöldverður að eigin vali á La Cantina Restaurant á Fancourt. Fancourt Golf Estate hefur verið valið eitt af 10 bestu „Golf Estates“ í heiminum undanfarin 15 ár.

Fyrsti golfhringur á George Golf Club

Fyrsti golfhringur fer fram á George Golf Club sem er steinsnar frá hótelinu.  Hópnum verður ekið í rútu þangað og fararstjóri sendir rástíma daginn áður í gegnum WhatsApp samskiptaþráð sem notaður verður í öllum samskiptum meðan á ferðinni stendur.

Golfhringur á Pezula Golf Course

Við ökum stutta og einstaklega fallega leið til Pezula Golf Estate þar sem leikinn verður 18 holu hringur með rástímum kl. 09:30 – 11:00.

Eftir hringinn förum við í siglingu á Knysna Lagoon, fáum ostrur og hvítvín og fylgjumst með sólsetri, vonandi í fallegu veðri.

Kvöldverður verður á veitingastað við höfnina þar sem hljómsveit skemmir gestum og hægt verður að dansa áður en ekið er til baka á hótelið.

Golfhringur á Pinnacle Point – Ævintýri líkast!

Við ökum snemma morguns frá Fancourt Golf Resort stutta leið að Pinnacle Point þar sem leikinn verður 18 holu hringur á mjög sérstökum og fallegum velli sem er umlukinn miklu og stórfenglegu klettabelti. Umgjörð vallarins minnir einna helst á Pebble Beach í Californíu. Eftir hring og góða stund á 19. holu er ekið til baka á Fancourt Golf Resort þar sem fólk eyðir kvöldinu í góðu yfirlæti og velur sér veitingastað fyrir kvöldverð en þeir eru 3 á hótelinu.

Fyrsti hringur á Fancourt og skoðunarferð eftir hádegi

Nú er loksins komið að því að leika á svæðinu sjálfu sem býður uppá þrjá glæsilega velli. Þennan dag leikum við 9 holur á einum þeirra, Links Experience en á þeim velli er lagt  upp úr frábærri upplifun á 9 holum. Þessi nýi völlur hefur fengið mjög góða dóma. Leikið verður snemma morguns en strax í framhaldi verður farið í skemmtilega safarí skoðunarferð þar sem gestir komast í nána snertingu við helstu dýr Suður Afríku.

Fyrst verður ekið með rútu í u.þ.b. 45 mín. til Oudtshoorn þar sem við heimsækjum strútabúgarð og fáum að kynnast þeim dýrum. Þar verður hægt að kaupa sér snarl. Eftir það er heimsókn til Buffelsdrift Game Lodge þar sem við fáum að gefa fílum að borða og mynda okkur með þeim. Þá er tveggja tíma safarí þar sem eru gíraffar, sebrahestar, nashyrningar og fleiri dýr. Kvöldverður á Game Lodge og síðan ekið til baka á hótelið.

Golfhringur á Fancourt Montague Course

Leiknar 18 holur á Montague vellinum á Fancourt. Rástímar frá kl. 9:00–10:40.

Eftir golfhring mun fararstjóri skipuleggja ferð á veitingastað í bænum George ef áhugi er fyrir hendi.

Golfhringur á Fancourt Outeniqua Course

Leiknar 18 holur á Onteniqua vellinum á Fancourt, með rástímum kl. 08:50–10:40.

Ferðast til Pearl Valley

Við leggjum snemma af stað frá Fancourt Hotel áleiðis til Pearl Valley og ökum hina frægu akstursleið ”Route 62”. Við stoppum í Barrydale og fáum okkur hádegisverð og komum síðdegis á áfangastað þar sem innritun fer fram í gistingu næstu 7 nætur.

Kvöldverður á hótelinu að eigin vali en um er að ræða tvo veitingastaði, annars vegar í klúbbhúsinu og síðan á litlu veitingahúsi beint fyrir framan gistiaðstöðu hópsins. Þar er tilvalið að fá sér morgunverð þá daga sem dvalið verður og þar er einnig góð sundlaug sem gott er að heimsækja að golfhringjum loknum.

Ath: Morgunverður er ekki innifalinn á Pearl Valley en kostar sáralítið.

Golfhringur á De Zalze Golf Club

Við leggjum af stað snemma frá Pearl Valley og ökum um 45 mín. að glæsilegum golfvelli, De Zalze sem er við fjallsrætur Stellenbosch þar sem stórkostlegt útsýni er að fjallgarðinum og í miðju helsta vínræktarhéraðs Suður-Afríku. Leiknar verða 18 holur með rástímum á miðjum morgni.

Eftir hring og stund á 19. holu verður borðað á veitingastaðnum á De Zalze áður en ekið verður til baka að hótelinu á Pearl Valley.

Valkvæð skoðunarferð að Góðravonarhöfða

Þennan dag verður hægt að velja um að fara í dagsferð að Góðrarvonarhöfða og upp á Table Mountain við Höfðaborg. Þaðan er einstakt útsýni í góðu veðri og fjöldi ferðamanna heimsækir þessa heimsfrægu staði ár hvort. Þá verður einnig komið við á „Boulders Beach“ ströndinni þar sem hægt er að berja augum þúsundir mörgæsa sem spóka sig þar á þessum árstíma. Dagsferðinni lýkur með heimsókn á Water Front í Höfðaborg þar sem mikið mannlíf er og hægt að velja sér borð á ótal veitingastöðum. Á móti er hægt að velja að vera um kyrrt á Pearl Valley og bóka sér auka golfhring.

Ath: Þetta eru valkostir sem eru ekki innifaldir í verði ferðar en þegar skráningu lýkur verður boðið uppá þessa valkosti og verð á þeim útlistað.

Golfhringur á Steenberg Golf Club

Leikinn verður hringur á þessum glæsilega velli, Steenberg Golf Club, sem er í nágrenni Pearl Valley. Ekið með rútu báðar leiðir og ræst út á miðjum morgni. Steenberg völlurinn er í Concstantia hverfinu sem er í Cape Town. Þar er elsta og frægasta víngerð SA.

Eftir hring njótum við veitinga í klúbbhúsi.

Golfhringur á Pearl Valley

Pearl Valley er í hópi bestu golfvalla í Suður Afríku enda svokallaður „Jack Niclaus Signature Course“. Við leikum 18 holur á þessum glæsilega velli, Pearl Valley, sem valinn hefur verið sá þriðji besti í Suður Afríku, með rástímum frá kl. 10:00 – 11:30. Gengið er beint frá gistiaðstöðu á hótelinu á teig eftir að golfbílar hafa verið sóttir og ræst út á miðjum morgni. Frjáls tími eftir það.

Skipuleggendur ferðarinnar, Kolbeinn og Ruth eru búsett á svæðinu og munu þau verða hópnum innan handar um veitingastaði og annað áhugvert á staðnum.

Dagsferð á vínbúgarð og glæsilegur hádegisverður

Þennan dag hvílum við golfið og förum snemma í 15 mín akstur til Franschhoek á La Motte Wine Estate. Morgunverður í bakarí La Motte og gönguferð með leiðsögn frá La Motte (innifalið í verði ferðarinnar). Á leiðinni er komið við fyrir utan fangelsið þaðan sem Nelson Mandela hélt fótgangandi áleiðis til Cape Town, frjáls ferða sinna eftir 27 ára vist sem fangi. Við innkeyrsluna er glæsileg stytta af Mandela sem áhugavert er að skoða og mynda um leið.

Við snæðum glæsilegan hádegisverð á La Motte sem innifelur vínpörun og tökum við smá tíma í þennan dagskrárlið en eftir heimsóknina á La Motte ökum við stutta leið að bænum Franschhoek en þar gefst fólki kostur á að verða eftir og skoða þenna fræga ferðamannabæ og taka svo Uber til Pearl Valley.

Pearl Valley – Síðasti golfhringur ferðarinnar

Síðasti golfhringur ferðarinnar á Pearl Valley hefst með rástímum kl. 10:00 – 11:30.

Kvöldverður á hótelinu þar sem ferðaskipuleggjendur standa fyrir kvöldskemmtun með lifandi tónlist og dansi fram eftir kvöldi.

Heimferðardagur

Tékkað er út af hótelinu í Pearl Valley um hádegisbil og haldið af stað með rútu til De Grendal Wine Estate þar sem við borðum saman hádegisverð. Um miðjan dag verður svo ekið áleiðis á alþjóðaflugvöllinn í Cape Town.

Innritun í flug British Airways með brottför til London Heathrow kl. 18:55 og lent í London að morgni 16. mars kl. 04:55. 

Heimkoma

Flogið með sama flugfélagi, British Airways, til Keflavíkur kl. 07:35 og lent í Keflavík kl. 10.55 að staðartíma. Þar með lýkur þessari stórkostlegu ævintýraferð.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

 

Ingi Þór Hermannsson er fararstjóri í þessari ferð en hann þekkir svæðið vel og hefur farið í nokkrar ferðir þangað á undanförnum árum. Ingi mun sjá um að raða á rástíma og fylgjast með gangi mála meðan leikið er á golfvöllunum.

Honum til aðstoðar eru hjónin Kolbeinn Kristinsson og Ruth Gylfadóttir sem eru ábyrg fyrir skipulagi ferðarinnar. Þau búa að mikilli reynslu í Suður-Afríku, hafa enda verið búsett þar um árabil og tekið á móti fjölda íslenskra gesta.

Verð: 1.095.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.

Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 190.000 kr.

Greiða þarf 300.000.- kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar 90 dögum fyrir brottför eða um 1. desember Eftir það er staðfestingargjald ekki endurgreiðanlegt.

Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko ehf. sem nálgast má á heimasíðu skrifstofunnar.

  Flug British Airways til og frá Suður-Afríku, og innanlandsflug frá Jóhannesarborg til George – 23kg taska, golfsett, allir skattar og gjöld.
  10 golfhringir skv. ferðalýsingu á 9 golfvöllum ásamt golfbíl fyrir hverja tvo farþega
  „Half-way House“ snarl og drykkir á 10. teig á öllum völlum
  7 gistinætur með morgunverði á Fancourt Hotel 5*.
  7 gistinætur á Pearl Valley Mantis Hotel 5*, morguverður ekki innifalinn.
  Allur rútuakstur í fyrsta flokks loftkældum rútum.
  Skoðunarferðir skv. ferðalýsingu
  Inneign á La Motte búgarðinum að andvirði Rd 500.
  Íslensk fararstjórn Inga Þórs Hermannssonar.
  Aðgangur að hraðhliði (Fast track) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega).

Hótelin sem við gistum á

Fancourt ★★★★★ (George)
Pearl Valley Mantis Hotel ★★★★★ (Cape Winelands) 

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.