Aloha Hawaii – láttu drauminn verða að veruleika!

Hawaii er staður sem marga dreymir um að heimsækja einhvern tímann á ævinni. Hvítar og gullnar strendur, hlýtt Kyrrahafið, pálmatré, stórbrotin náttúra og hin einstaka Aloha menning gera eyjarnar að einstökum áfangastað.

Í þessari ferð höldum við til eyjunnar Oahu og dveljum á hinu heimsfræga Waikiki strandsvæði í Honolulu. Hér erum við í hjarta alls þess sem Waikiki hefur upp á að bjóða, strönd, veitingastaði, verslanir og fjölbreytta afþreyingu.

Ferðin er hugsuð fyrir þá sem vilja njóta Hawaii í rólegheitum án þéttrar dagskrár. Fyrir utan skipulagða heimsókn til Pearl Harbor er dagskráin frjáls og því gefst nægur tími til að njóta Waikiki, sólarinnar og eyjunnar á eigin hraða. Á eyjunni eru 8 góðir golfvellir og því spennandi tækifæri fyrir golfáhugafólk að taka golfhring í fallegu og einstöku umhverfi Hawaii.

Fararstjóri fer með hópnum og verður til aðstoðar eftir þörfum alla ferðina.

Waikiki hjarta Honolulu

Honolulu er höfuðborg Hawaii og stærsta borg eyjaklasans. Borgin er staðsett á suðurströnd Oahu og sameinar afslappað eyjalíf, fallegar strendur og líflega stórborg með veitingastöðum, verslunum, menningu og afþreyingu. Þekktasti hluti Honolulu er Waikiki, þar sem við munum dvelja.

Waikiki er án efa eitt þekktasta strandsvæði heims og frábær bækistöð fyrir Hawaii frí.

Hin fræga Waikiki Beach teygir sig meðfram hverfinu og hér er hægt að byrja daginn á morgungöngu við sjóinn, njóta dagsins undir pálmatrjánum, synda í hlýjum sjónum eða prófa brimbrettin sem Hawaii er svo þekkt fyrir.

OUTRIGGER Reef Waikiki Beach Resort

Á Hawaii dveljum við á OUTRIGGER Reef Waikiki Beach Resort er frábærlega staðsettu hóteli á Waikiki. Staðsetningin hentar einstaklega vel fyrir þá sem vilja njóta þess besta sem svæðið hefur upp á að bjóða, með ströndina, veitingastaði, kaffihús, verslanir og líf Waikiki allt í næsta nágrenni.

Hótelið verður okkar bækistöð meðan á dvölinni stendur og gerir það auðvelt að njóta frjálsu daganna án þess að þurfa að skipuleggja akstur eða langar ferðir. Hér er hægt að njóta morgunsins við Kyrrahafið, verja deginum á ströndinni eða fara út að skoða Oahu og koma síðan aftur að kvöldi.

Hawaii á þinn hátt

Stór hluti ferðinnar er frjáls og það er einmitt einn af kostum hennar. Þeir sem vilja afslöppun geta notið Waikiki Beach, sundlaugarinnar, veitingastaðanna og mannlífsins. Þeir sem vilja sjá meira geta nýtt dagana til að kanna Oahu og fjölbreytta náttúru eyjunnar.

Meðal þess sem hægt er að upplifa á Oahu:
•  Diamond Head og stórkostlegt útsýni yfir Honolulu og Kyrrahafið
•  North Shore og hinar heimsfrægu brimbrettastrendur
•  fallegar strendur, útsýnisstaðir og gróðursælir dalir
•  snorkl og fjölbreyttar báts- og siglingaferðir
•  brimbrettakennsla og kajakferðir
•  hringferð um eyjuna og kynni af öðrum hliðum Oahu
•  Ala Moana Center, ein stærsta verslunarmiðstöð Bandaríkjanna
•  Einnig er hægt að plana skoðunarferðir yfir á nærliggjandi eyjar

Það þarf ekki að fylla alla daga af skoðunarferðum. Hawaii er staður þar sem það er jafn mikilvægt að gefa sér tíma til að gera lítið, njóta morgunkaffi í sólinni, fara niður á strönd, rölta um Waikiki og njóta þess einfaldlega að vera á Hawaii.

Pearl Harbor – innifalin skoðunarferð

Í ferðinni er innifalin heimsókn til Pearl Harbor, eins þekktasta sögustaðar Hawaii og Bandaríkjanna.  Árásin á Pearl Harbor 7. desember 1941 markaði þáttaskil í síðari heimsstyrjöldinni og leiddi til þess að Bandaríkin gengu formlega inn í stríðið. Heimsóknin gefur okkur tækifæri til að kynnast þessum mikilvæga hluta sögunnar og sjá staðina þar sem atburðirnir áttu sér stað. Rúta sækir hópinn á hótelið og fararstjórinn verður með í för ásamt enskumælandi staðarleiðsögumanni.

Ferðatilhögun

17. febrúar: Keflavík – Seattle – Honolulu
Flogið er með Icelandair frá Keflavík til Seattle og þaðan áfram með Alaska Airlines yfir Kyrrahafið til Honolulu á Hawaii. Aðeins er ein millilending á hvorri leið. Hawaii er 10 klukkustundum á eftir Íslandi og því ávinnst mikill tímamunur á útleiðinni. Flugin eftirfarandi:

Icelandair: Keflavík 17:00 – Seattle 17:00
Alaska Airlines: Seattle 19:30 – Honolulu 23:45

26.–28. febrúar: Honolulu – Seattle – Keflavík
Á heimleið lendum við í Seattle snemma morguns og höfum nokkurn tíma til stefnu áður en Icelandair flugið heldur til Keflavíkur síðdegis. Þar sem ferðalagið frá Hawaii til Íslands er langt og tímafrekt er okkur mikið í mun að gestum okkar líði vel og að heimferðin verði eins þægileg og mögulegt er. Því verður boðið upp á herbergi til afnota á Marriott flugvallarhóteli í Seattle. Eftir næturflugið frá Honolulu gefst þar tækifæri til að hvíla sig, fara í sturtu og fríska sig upp áður en haldið er áfram með flugi Icelandair kl 14:35 síðdegi sama dags.

Alaska Airlines: Honolulu 22:30 – Seattle 06:00 + 1
(Hótelherbergi til afnota á Marriott flugvallarhóteli í Seattle)

Icelandair: Seattle 14:35 – Keflavík 06:15 + 1

Þessi Hawaii ferð sameinar það besta úr tveimur heimum. Ferðalangar njóta þess öryggis og þæginda sem fylgir skipulagðri hópferð frá Íslandi en hafa um leið mikið frelsi þegar komið er á áfangastað.

Flug, gisting, akstur og Pearl Harbor ferðin eru skipulögð fyrirfram og íslenskur fararstjóri er með hópnum. Á Waikiki ræður hver og einn hins vegar sínum tíma að mestu sjálfur.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Sigurður K. Kolbeinsson er fararstjóri í þessari ferð. Hann hefur leitt margar hópaferðir á vegum Kolumbus víðsvegar um heim og býr að langri reynslu við skipulagningu fjölmargra ferða á vegum Niko Travel Group.

Verð: kr. 779.000 á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.

Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er kr. 239.000.

Greiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu kolumbus.is

  Flug frá Keflavík til Honolulu með millilendingu í Seattle og til baka.
  Gisting á OUTRIGGER Reef Waikiki Beach Resort 9 nætur ásamt morgunverði.
  Framlengdur aðgangur að herbergi á brottfarardegi allt þangað til rútur fara út völl.
  Akstur til og frá Honolulu-flugvelli.
  Skoðunarferð til Pearl Harbor.
  Aðgangur að hótelherbergi yfir biðtímann á Seattle flugvelli.
  Íslenskur fararstjóri sem ferðast með hópnum allan tímann.
  Bagbee þjónusta fyrir alla sem gista á höfuðborgarsvæðinu eða í Reykjanesbæ nóttina fyrir brottför. Boðið er uppá að innrita farþega og sækja farangur þeirra degi fyrir brottför, þannig að hægt er að ganga beint að öryggishliði í Leifsstöð á brottfarardegi.
  Aðgangur að hraðhliði (Fast track) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega).

OUTRIGGER Reef Waikiki Beach Resort ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.