Kvöldstund með Tom Gaebel; glæsileiki, tónlist og tímalaus stíll – Tryggðu þér sæti
Hverfum inn í tímabil sem á engan sinn líka. Salur fylltur hlýlegri birtu. Hljómur heillar hljómsveitar sem magnast hægt og rólega. Rödd sem flytur þig milli New York og Las Vegas; aftur til glæstrar fortíðar.
Tom Gaebel lífgar við heim Frank Sinatra, ekki sem eftirherma, heldur fullkomin eftirmynd af hæfileikum hans og andrúmslofti. Áreynslulaust, fágað og fyrsta flokks. Þetta eru ekki aðeins tónleikar, þetta er einstakt kvöld fyllt glæsileika og þokka.
Aðeins 200 sæti í boði, fyrstur kaupir, fyrstur fær.
Tónleikarnir
Á tónleikunum mun Tom flytja frumsamin lög og ódauðleg lög úr flóru Frank Sinatra. Þetta verður notaleg kvöldstund þar sem „Fly Me To The Moon“, „My Way“, „New York, New York“, „Strangers in the night“ og fleiri Frank Sinatra perlur ásamt Tom Gaebel lögum s.s. „It’s a Good Life“ fá að hljóma í hlýlegum tónleikasal Sviðsins á Selfossi.
Tom Gaebel fæddist í Köln í Þýskalandi og ólst upp í músíkalskri fjölskyldu þar sem tónlist var á hverju strái. Hann lærði á trompet, trommur, píanó og fleiri hljóðfæri áður en hann fann sína rödd sem söngvari. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í djassöng frá Konservatoríinu í Amsterdam og stofnaði síðar eigin stórsveit sem hann hefur stýrt frá árinu 2005.
Stíll Toms er djörf blanda af klassískri stórsveitartónlist, djassi, poppi og sjónvarps- og kvikmyndatónlist frá sjöunda og áttunda áratugnum. Hann er þekktur fyrir að flytja frumsamin lög með sama glæsibrag og hann túlkar klassísk djasslög með einstakri útsetningu, fíngerðum húmor og sjarma sem minnir á Frank Sinatra. Þess vegna er hann oft kallaður „Sinatra Þýskalands“, og eins og Siggi Kolbeins, forstjóri Kolumbus, segir:
„Tom er eins og Sinatra á sínum yngri árum – með kraftmikla rödd og einstakan sviðsþokka.“
Fyrsta platan hans Good Life (2007), inniheldur m.a. lagið „It’s a Good Life“, sem fjallar um að finna tilgang og hamingju. Við hjá Kolumbus ævintýraferðum höfum notað það lag sem stef í auglýsingum okkar og nú færð þú tækifæri til að heyra það í lifandi flutningi, ásamt fleiri perlum úr hans tónlist.
„Þýski Sinatra.“ – Bild
„Frábær skemmtikraftur.“ – Ruhr Nachrichten
„Stórkostlegir tónleikar.“ – Westfälische Nachrichten
„Áhrifamikill virðingarvottur við Frank Sinatra.“ – Fränkische Nachrichten
„Tom Gabel er góður söngvari sem hefur sérhæft sig í tónlist Frank Sinatra og fleiri söngvurum frá fimmta og sjötta áratugnum, jazz og einnig stórbanda tónlist sem var undanfari popptónlistar og oft nefnd the Great American songbook. Flutningur hans er einstakur.“
Bergsteinn Einarsson
„Þetta var dásamleg kvöldstund með einskökum söngvara sem gladdi og heillaði alla viðstaddra með söng sínum og framkomu. Munum virkilega vilja að koma á tónleika Toms Gaebels aftur.“
Ólöf og Sigurður Ingi Blöndal.
„Þykist heppinn að hafa komist á tónleika Tom Gaebel í fyrrahaust, þeir voru hreint út sagt frábærir. Maðurinn söng einstaklega vel og ekki var undirleikurinn síðri. Þetta var hreint konfekt í eyru þeirra sem finnst gaman að þessháttar tónlist, og ég hvet fólk til að missa ekki af tónleikum með þessum frábæra söngvara og listamanni.“
Sigmundur Sigurgeirsson
„Tónleikar með Tom Gaebel á Sviðinu þann 8. október s.l. eru mér ógleymanlegir. Hann er með ótrúlega fallega rödd. Það er eitthvað við söng hans sem minnir mig á Sinatra – þessi hlýi, djúpi og klassíski tónn. Virkilega vel gert hjá honum 🎶“
Kær kveðja Jónbjörg Kjartansdóttir
Sviðið er einn flottasti tónleikastaður landsins, búið fyrst flokks tækjabúnaði og aðstöðu fyrir hljómsveitir. Mikið er lagt upp úr hljóðvist og er hljóðkerfið í hæsta gæðaflokki. Markmiðið var að gera fallegan, hlýlegan og vel hljómandi tónleikasal fyrir Selfyssinga og gesti þeirra.
Sviðið er staðsett í hjarta nýja bæjarkjarnans á Selfossi á neðstu hæð Friðriksgáfu, húsi við Brúartorg í nýja miðbæ Selfoss. Á miðhæðinni er skemmtistaðurinn Miðbar starfræktur og tengist hann Sviðinu – beint og óbeint – enda í eigu sömu aðila og staðirnir reknir samhliða.
Kaupa miða
Tónleikarnir eru á vegum Kolumbus ævintýraferða. Miðaverð fyrir netklúbbsfélaga 5.900 kr. og hægt er að kaupa allt að 4 miða.
Smelltu á „KAUPA MIÐA“ hér fyrir neðan til að panta miða. Greiðsluhlekkur verður sendur þar sem hægt er að greiða með korti. Eftir greiðslu verður sendur staðfesting fyrir miðakaupum.
Kaupa miða
Tónleikarnir eru á vegum Kolumbus ævintýraferða. Miðaverð fyrir netklúbbsfélaga 5.900 kr. og hægt er að kaupa allt að 4 sæti.
Greiðsluhlekkur verður sendur á þann sem bókar þar sem hægt er að greiða með korti.


