Þórhallur Heimisson skrifar um Síle.

Myndin efst á síðunni er frá Torre del paine.

Einhver eftirminnilegasta flugferð sem ég hef farið í var frá Buenos Aires í Argentínu til Santíagó í Síle. Það var heiðskírt og Andesfjöllin blöstu við megnið af leiðinni með sinni stórkostlegu fegurð. Þess vegna er það að þegar ég hugsa um Síle sé ég fyrst fyrir mér risavaxin Andesfjöll. En svo líka Kyrrahafið, eyðimerkurnar í norðri, jökla og firði í suðri – og á milli alls þessa fólk sem hefur skapað sér líf í einu lengsta og mjósta landi heims.
Atacama eyðimörkin.

Landið er rúmlega 4.000 kílómetra langt frá norðri til suðurs en sums staðar aðeins um 150 – 200 km. breitt og þar búa um 20.000.000. Í austri rísa Andesfjöllin og í vestri liggur Kyrrahafið. Þessi óvenjulega lega hefur mótað allt; loftslagið, atvinnulífið, byggðirnar og jafnvel hugarfar fólksins.

Norðurhluti Síle er eitt þurrasta svæði jarðar. Þar er Atacama-eyðimörkin, ótrúlegt landslag þar sem sum svæði fá nánast enga úrkomu árum saman. Þar er að finna eldfjöll og víðáttumiklar eyðimerkur sem minna stundum meira á yfirborð annarrar plánetu en venjulegt landslag á jörðinni. Þegar ferðast er suður breytist allt. Loftslagið verður mildara, gróðurinn meiri og landslagið grænna.

Lengst í suðri tekur Patagónía við með fjöllum, jöklum, vötnum og djúpum fjörðum. Patagónía er ævintýraveröld sem lítur engan ósnortinn. Alla vega ekki mig. Patagóníujökullinn (Campo de Hielo Patagónico Sur) er þriðja stærsta jökulbreiða jarðarinnar og jafnframt þriðja stærsta ferskvatnsforðabúr plánetunnar, á eftir ísbreiðum Suðurskautslandsins og Grænlands. Jökulbreiðan teygir sig með fram Andesfjöllunum á landamærum Síle og Argentínu. Þar er að finna marga frægs jökla, til dæmis Uppsaljökulinn sem heitir eftir minni heimaborg. 

Uppsala jökullinn.
Flestir ferðamenn byrja ferðina eins og ég gerði fyrst þegar ég kom til Síle, í Santiago, höfuðborginni. Borgin liggur í dal milli Andesfjalla og strandfjallanna og á góðum degi eru snævi þakin fjöllin eins og risavaxinn bakgrunnur borgarinnar.
Santiago er nútímaleg stórborg en á sama tíma má finna þar sterka tengingu við sögu landsins. Þar er að finna hæstu bygginguna í Suður-Ameríku, Gran Torre Santiago. Turninn er 300 metra hár og telur 62 hæðir ofanjarðar. Útsýnið er magnað og að horfa á sólina setjast úr turninum er engu líkt.
Gran Torre Santiago.
Á götum miðborgarinnar mætist nýi og gamli tími. Kaffihús, veitingastaðir og verslanir standa við hlið sögulegra bygginga og torga. Stærstu hluti Sílebúa eru kaþólskir og höfuðkirkja kaþólsku kirkjunnar er Catedral Metropolitana de Santiago, sem stendur við torgið Plaza Armas í miðbæ Santiago.
Santiago liggur um 120 kílómetra inni í landi en við ströndina er hafnarborg hennar Valparaiso sem er falleg borg við við Kyrrahafið, byggð í bröttum hlíðum með útsýni yfir hafið. Litrík hús, götulist og gömlu kláfferjurnar gefa borginni einstakan sjarma. Valparaiso var kölluð „nafli heimsins“ vegna þess að hún var á 19. öld ein mikilvægasta höfn Suður-Ameríku og lykiláfangastaður skipa sem sigldu milli Atlantshafs og Kyrrahafs áður en Panamaskurðurinn opnaði árið 1914. Valparaiso varð því eins konar hlið milli heimshluta – borg þar sem austrið og vestrið mættust.
Valparaiso.

Saga Síle er löng og flókin. Áður en Evrópumenn komu bjuggu þar fjölmargir frumbyggjahópar, meðal annars Mapuche-fólkið sem hefur gegnt mikilvægu hlutverki í sögu landsins. Inkaríkið ríkti yfir hluta þess svæðis sem í dag heyrir undir Síle.

Á blómatíma sínum í lok 15. aldar og byrjun þeirrar 16. náði Inkaríkið yfir norður- og miðhluta Síle, allt suður að Maule-fljóti. Þar var útþensla Inka stöðvuð í blóðugum átökum við Mapuche-indíána.

Spánverjar komu á 16. öld og Síle varð hluti af spænska nýlenduveldinu. Sjálfstæðisbaráttan hófst í upphafi 19. aldar og landið varð sjálfstætt ríki árið 1818.

En saga nútíma-Síle er ekki síður merkileg. Árið 1970 varð Salvador Allende forseti og reyndi að koma á sósíalískum samfélagsumbótum eftir lýðræðislegri leið. Þann 11. september 1973 var ríkisstjórn hans steypt af stóli og hann myrtur  í valdaráni hersins undir forystu Augusto Pinochet.

Pinochet-stjórnin stóð í nærri 17 ár og einkenndist af einræði, mannréttindabrotum, fjöldamorðum og ofsóknum gegn pólitískum andstæðingum. Á sama tíma voru gerðar miklar efnahagslegar breytingar sem áttu síðar eftir að hafa mikil áhrif á þróun landsins. Þegar maður ferðast um Síle er erfitt að horfa fram hjá þessari sögu sem enn hefur ekki verið gerð upp að fullu. Hún er enn hluti af samtalinu um þjóðina, stjórnmálin og sjálfsmynd fólksins.

Síle er eitt af merkustu vínlöndum heims og vínrækt á sér þar langa sögu. Í dölunum milli fjalla og Kyrrahafsins eru framleidd frábær vín, meðal annars Cabernet Sauvignon, Carmenère og Sauvignon Blanc. Maturinn ber líka sterk einkenni strandríkis. Fiskur og sjávarfang eru mikilvægur hluti matarmenningarinnar og empanadas, grillað kjöt og ýmsir pottréttir eru meðal þess sem ferðamaður ætti að prófa.

Já Síle er eins og landið við enda alheimsins. Svo eru það páskaeyjar – Rapa Nui – sem eru langt úti í Kyrrahafinu, hluti af Síle en samt heill heimur út af fyrir sig, með hinum frægu moai-steinstyttum og heillandi sögu. Ég segi frá þeim hér á öðrum stað.

Patagónía.
En eitt er víst. Ferð til Síle er ógleymanlegt ævintýri.

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.