Hefur þig alltaf dreymt um að koma til Suður Ameríku?
– Nú er tækifærið

Uppgötvaðu Buenos Aires, „París Suður Ameríku“, njóttu breiðstrætanna og sjáðu Tango þar sem hann er þjóðdans. Haldið til Ushuaia sem er eitt syðsta byggða ból í heiminum við 55° og fylgst með lífi sæljóna og mörgæsa sem lifa á þessum slóðum.  Flogið til El Calafate þar sem stærsti innanlands skriðjökull heims, Perito Moreno, er barinn augum. Þaðan er ekið yfir landamæri Chile suður á bóginn til Puerto Natales í Patagóníu og þjóðgarðurinn Torres del Paine heimsóttur.Santiago í Chile er stórbrotin borg og þar kynnumst við menningu þessa lands og förum m.a. í vínsmökkun. Haldið norður til Iguazú fossanna sem eru eitt af undrum veraldar og flogið þaðan til Rio de Janeiro og farið að Kristsstyttunni og á Sykurtoppinn. Ólýsanleg ævintýraferð þegar sumar ríkir í Suður Ameríku.  Flug um Miami báðar leiðir með Icelandair og síðan með American Airlines. Gríptu tækifærið og komdu með.

Ferðskrifstofan Kólumbus gekkst fyrir glæsilegum ferðum til Suður Ameríku í janúar 2023, 2024 og 2025. Nú lengist ferðin sem nemur 2 nóttum vegna dvalar í Miami á leiðinni út og á leiðinni heim. Viðtökur hafa verið með ólíkindum en allar ferðirnar seldust upp á skömmum tíma þegar þær voru auglýstar í apríl.

Ferðast verður til Buenos Aires, Ushuaia, El Calafate, Puerto Natales, Santiago, Iguazú og loks til Rio de JaneiroSædís Íva Elíasdóttir er fararstjóri í ferðinni en hún hefur ferðast víða um heim á undanförnum árum. Henni til aðstoðar verða staðarleiðsögumenn sem veita fræðslu um staðarhætti og annað sem áhugavert er að upplifa. Þetta er stórkostleg ferð sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Ítarlegar upplýsingar eru í ferðatilhögun sem finna má hér að neðan og auk þess í rafrænum bæklingi sem hægt er að nálgast með því að smella hér.  

Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi 

Ferðin hefst í Leifsstöð með flugi Icelandair FI691 til Miami kl. 17:15 og lent þar kl.20:55 að staðartíma.  Farþegar fara í gegnum toll og eftirlit og eftir það er haldið með hótel skutlum stuttan spöl að Sonesta Miami Airport hótelinu þar sem gist verður fyrstu nóttina.

Miami og flogið til Buenos Aires 

Sannkallaður hvíldardagur eftir flugið til Ameríku. Dagurinn frjáls og tilvalið að hlaða batteríin fyrir komandi ferðalag til Suður Ameríku. Herbergin eru bókuð þar til að við förum út á völl um kvöldið og hægt að nýta daginn til þess að slaka á við sundlaugarbakkann, taka leigubíl inn til Miami eða kíkja í næstu verslunarmiðstöð. Farið verður upp á flugvöll um kl 20 þar sem hópurinn innritar sig í flug American Airlines AA 0931 með brottför kl. 23:50 í beint næturflug til Buenos Aires þar sem lent er á alþjóðaflugvellinum EZE að morgni 13. janúar kl. 10.45.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Koma til Buenos Aires

Fararstjóri mun safna hópnum saman við komuna og þegar allir hafa heimt farangur sinn heldur hópurinn að rútu sem bíður fyrir utan flugstöðina ásamt staðarleiðsögumanni. Ekið verður inn í stórborgina (ca. 40 mín.) og keyrt um borgina miklu þar sem við kynnumst risavöxnu umfangi og iðandi mannlífi Buenos Aires og hlýðum á áhugaverða leiðsögn staðarleiðsögumanns okkar.

Snæddur verður 3ja rétta hádegisverður á veitingastaðnum Mirasol de Puerto (drykkir eru ekki innifaldir) sem er á fallegum stað við nýju höfnina. Rútan kemur farangri upp á hótel og að hádegismat loknum er gengið örstutt frá veitingastaðnum og upp á hótel þar sem innritun fer fram frá og með kl. 15:00 að staðartíma. Tímamismunur er -3 klst. m.v. íslenskan tíma. Fyrstu 3 nætur ferðarinnar verður gist á HILTON HOTEL Buenos Aires, góðu 4* hóteli með frábærri útisundlaug og bar með útsýni yfir háhýsi borgarinnar.  Eftir innritun mun fararstjórinn halda stutta kynningu um Buenos Aires. Hótelið er miðsvæðis í borginni í Puerto Madero hverfinu við höfnina þar sem helstu fínni veitingastaðir borgarinnar eru staðsettir.

Í göngufjarlægð við hótelið (2 km)  er hægt að heimsækja hverfi eins og San Telmo og hið fjölfarna breiðstræti Florida. Þar er fjöldi verslana auk hinnar stóru verslunarmiðstöðvar Galerias Pacifico sem er þess virði að heimsækja sökum stórbrotinna listaverka sem umlykja verslunarmiðstöðina. Eftir hádegisverð og ferðakynningu er frjáls dagskrá það sem eftir lifir dags og fólk getur skoðað sig um í Buenos Aires. Fararstjóri mun jafnframt veita góð ráð um hvað hægt er að upplifa og benda á hentuga veitingastaði í nágrenni hótelsins.

 Máltíðir innifaldar: Morgunverður og hádegisverður

Skoðunarferð um Buenos Aires og Tangósýning

Þennan dag ferðast hópurinn um borgina, sem oft hefur verið nefnd „París Suður-Ameríku“, og nýtur breiðstrætanna og annarra heillandi ökuleiða víðsvegar um þessa stórbrotnu höfuðborg Argentínu. Bæjarferðin hefst við Maí-torgið sem fram til dagsins í dag er vettvangur Argentínumanna fyrir pólitísk mótmæli. Við heyrum um sögu Argentínu og heimsækjum dómkirkjuna, þar sem hershöfðinginn og frelsishetja Suður- Ameríku, José San Martin, er grafinn, og sjáum þar hinn „eilífa loga“.

Á Maí-torginu er hin bleika höll ríkisstjórnar landsins, Casa Rosada, og gamla ráðhúsið Cabildo sem hefur staðið við torgið allt frá spænska nýlendutímanum. Við ökum út af hinu mikla 12 akbrauta breiðstræti, 9 de Julio, meðfram helsta kennileiti Buenos Aires, súlunni miklu, sem kölluð er Obelisk, og sjáum fallega óperu- og ballet húsið sem heitir „Colón-leikhúsið“. Við förum líka í gegnum hið heillandi gamla Tangó- og nýlendu hverfi, San Telmo, sem hefur verið endurnýjað á síðustu tveimur áratugum. Síðan höldum við í hið glæsilega Recoleta hverfi, sem er skammt frá hótelinu okkar, og heimsækjum Recoleta kirkjugarðinn og heyrum frásagnir af frægustu forsetafrú Argentínu, Evu Perón, sem er betur þekkt undir nafninu Evita.

Leiðin liggur loks til La Boca hverfisins við ána þar sem hinn eini og sanni Tangó er sagður hafa verið fyrst stiginn meðal fátækustu innflytjendanna sem komu til landsins frá Ítalíu, Spáni og Þýskalandi. Þetta hverfi er einnig þekkt fyrir knattspyrnu, þjóðaríþrótt Argentínumanna sem eru eins og alþjóð veit ríkjandi heimsmeistarar í knattspyrnu. Tækifæri gefst til að kaupa sér léttan hádegisverð við La Boca og þeir sem kjósa halda síðan með rútu áleiðis að hótelinu. Aðrir dvelja áfram í hverfinu og taka síðan leigubíl til baka.

Tangó er hinn argentínski þjóðardans. Um kl. 19:30 er haldið með rútu á skemmtistaðinn La Ventana þar sem við sjáum stórkostlega Tangó sýningu, „Tango show“. Hér munum við njóta ekta argentískrar veislumáltíðar en allur matur og hálf vínflaksa á mann er innifalinn þetta kvöld.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður og kvöldverður 

Frjáls dagur í Buenos Aires

Dagurinn er til frjálsrar ráðstöfunar og mun fararstjórinn gefa góð ráð um hvað hægt sé að gera og benda á skemmtilega veitingastaði. Einnig er hægt að skreppa í dagsferð til Uruguay með ferju yfir stórfljótið River Plate til Colonia de Sacramento sem er 26 þús. manna bær. Ferja þangað gengur reglulega og tekur siglingin um 90 mín. hvora leið.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Frá Buenos Aires syðst á bóginn til Ushuaia

Við fljúgum áfram frá Buenos Aires kl. 11:05 til borgarinnar Ushuaia þar sem lent verður kl. 14:45.

Dvalið verður í 2 nætur á Hotel Albatros sem staðsett í miðjum bænum. Ushuaia (Djúpavík) er opinberlega syðsta borg heims og stendur á „ heimsenda“, Eldlandi við 55° suðlægrar breiddar. Flogið er inn yfir Beaglesundið (Beagle Canal) sem er nefnt eftir skipinu sem náttúrufræðingurinn heimskunni, Charles Darwin, sigldi með á rannsóknarferð sinni um þessar slóðir. Beaglesund er fallegt en kalt og tengir Atlantshaf við Kyrrahaf. Efnt verður til kvöldverðar á veitingastaðnum Jeremy Button Gin Bar ef áhugi er fyrir hendi (ekki innifalið í verði) þar sem hópurinn getur safnast saman og átt notalega kvöldstund saman.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Sigling á Beaglesundinu

Þennan dag er farið í bátsferð á Beaglesundi* kl 9. Innfæddur staðarleiðsögumaður mun veita náttúruleiðsögn um borð og segja okkur frá mergð albatrossa og ýmissa andategunda sem við munum sjá meðal ótal annarra fuglategunda. Við sjáum sæljón og mörgæsategundir sem dvelja líka á þessum slóðum. Snævi þaktir tindar fjallanna í bakgrunninum eru á landamærum Argentínu og Chile og voru áður heimili flökkufólks sem hafði logandi eld alls staðar meðferðis, jafnvel í kanóbátum sínum. Þess vegna ber svæðið heitið „Eldsland“.

Siglt verður að hinum fræga vita, Les Eclaireus, í gegnum skerjótt hafsvæði sem geymir á botni sínum fjölmörg sokkin hafskip. Heildarferðartími ásamt siglingunni er 5 klukkustundir og komið til hafnar í Ushuaia um kl.14. Kvöldið er frjálst til að kanna og njóta svæðisins á eigin vegum og kvöldverðar hugmynd sem hægt er að mæla með og njóta er Kingcrab (krabbi) eða Merluza Negra (Suðurhafsþorskur) – sem er eiginlega skylda að prófa á þessum breiddargráðum.

*Sigling um Beaglesund er háð veðri en ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að fella ferðina niður ef veður hamlar og bann við siglingu þennan dag er í gildi frá hafnaryfirvöldum.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Dagur í þjóðgarðinum Tierra del Fuego
og ferðalag til El Calafate í Argentínu

Í dag tökum við daginn snemma og komum töskum fyrir í rútunni áður en haldið er af stað í þjóðgarðinn Tierra del Fuego rétt fyrir utan Ushuaia en þar er svokallaður tempraður regnskógur vegna hinnar miklu árlegu úrkomu á svæðinu. Hér ber fegurð náttúrunnar vitni um hin einstöku vaxtarskilyrði við endimörk heimsins. Mörg trjánna vaxa í 45 gráðu vinkil, hafa sveigst undan öflugum suðvestan vindinum sem ríkir á vissum tímabilum á þessu svæði. Farið verður í nokkrar stuttar gönguferðir til að líta betur á gróðurinn þar sem suðurhafs beyki er meðal trjátegunda. Með smá heppni mun sjást til refa og kanína og við blasir hin mikla eyðilegging sem innfluttir bjórar frá Kanada hafa valdið víða á Eldlandi. Þá gefst einstakt tækifæri til að njóta náttúrunnar í kring þegar „nestið“ verður snætt á hádegi undir berum himni.

Á síðustu ísöld var svæðið þakið mikilli þykkri jökulbreiðu. Þannig einkennist þjóðgarðurinn af jökulruðningum og hér er einnig stöðuvatn sem hefur áður verið fjörður út í Beaglesund. „Pan American-þjóðvegurinn“, sem hefst í Alaska og liggur suður Norður-, Mið- og Suður-Ameríku, endar hér. Hann er lengsti samfelldi vegur í heimi eða um 17.000 km að lengd. Einnig verður syðsta pósthús í heimi heimsótt en þar er aldinn maður að störfum eftir áratugi í þessu litla merkilega pósthúsi. Eftir að hafa notið dvalarinnar í þjóðgarðinum ökum við út á flugvöll þar sem stutt flug bíður okkar beint til El Calafate kl 16:30. Lending kl 17:50 og innritun á fallegt hótel í bænum, Hotel Posada Los Alamos, þar sem gist verður í 1 nótt.

Við endum þenna viðburðarríka dag í heimsókn á fjár búgarðinn 25 de Mayo Ranch sem er nálægt bænum og lýkur kvöldinu með góðum kvöldverði þar sem boðið verður upp á ferskt lamb, lagað og framreitt á hefðbundinn patagónískan hátt. Mettir af hinum ágæta mat og eftirminnilegum degi snúa ferðalangar aftur á hótelið.

Innifalið: Morgunverður, nestispakki og kvöldverður 

Frá El Calafate til Puerto Natales í Chile

Við notum daginn til skoðunarferðar sem hefst meðfram stærsta stöðuvatni Argentínu, Lago Argentino. Vatnið er mettað af leir og steinefnum frá bráðnandi jöklum á svæðinu og er gráhvítt yfirborð vatnsins kallað „jökulmjólk“. Landslagið er ákaflega fallegt og við sjáum hinar óviðjafnanlegu patagónísku sléttur, jökulbráð í vötnunum og hin voldugu snæviþöktu Andesfjöll við landamæri Argentínu og Chile. Við höldum inn í þjóðgarðinn til að komast í snertingu við stærsta innanlands skriðjökul heims, Perito Moreno. Því nær sem kemur að jöklinum því háværari verða brestirnir frá stórum og litlum jökum sem hrynja úr jökul jaðrinum og senda flóðbylgjur út í vatnið. Hér förum við einnig í 1 klst. siglingu á lóninu sem fellur til frá jöklinum og siglt er mjög nálægt honum þar sem frábært tækifæri gefst til myndatöku.

Perito Moreno er einstakur skriðjökull vegna þess að hann skríður áfram um tvo metra á dag og rekst á skaga sem hópurinn kemur til með að ganga á. Jökullinn myndar lítið stöðuvatn þar sem vatnsborðið rís hraðar en á hinni hlið skagans sem grefur úr jöklinum þar sem hann rekst á skagann. Nokkrum sinnum á ári brotnar svo mikið úr jökul­tungunni að vatnshæðin á milli litla stöðuvatnsins og stóra vatnsins jafnast út.

Eftir viðburðaríkan dag við jökulinn bíður okkar rútuferð þar sem ekið er yfir landamærin til Chile og til Puerto Natales þar sem við verðum komin undir kvöld.

Gist verður á Noi Patagonia 3 nætur rétt niður við höfnina, þaðan sem fallegt útsýni er til Andesfjalla. Tilvalið að snæða kvöldverð á hótelinu eftir langan og viðburðaríkan dag.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður og nestispakki

Torres del Paine

Við notum daginn til þess að heimsækja hinn stórbrotna og undurfagra þjóðgarð Torres del Paine. Við nemum fyrst staðar hjá hellinum Cueva Milodon. Hér leituðu menn og dýr skjóls fyrir mörgum þúsundum ára og árið 1895 fundust í þessum helli leifarnar af risa­vöxnu letidýri frá forsögulegum tíma. Inni í hellinum stendur tréstytta af þessari forsögulega skepnu svo að gestir geta séð með eigin augum hversu stór þau voru þessi dýr. Við höldum svo ferðinni áfram í átt að þjóðgarðinum og ökum um hrífandi landslag.

Þjóðgarðurinn Torres del Paine er í stórbrotnu fjalllendi með iðjagrænum dölum, skriðjöklum, ísbreiðum og grænbláum stöðuvötnum. Hér halda til meira en 100 fuglategundir. Þekktastur þeirra er kondórinn en einnig er algengt að sjá flamingóa á svæðinu. Þarna sjást einnig fjölmargar gúanökkur (villt lamadýr) og nandú-strútar. Við innganginn í þjóðgarðinn er frábært útsýni til hinna víðfrægu fjallatinda, Las Torres (Turnarnir), sem eru auðkennistákn þjóðgarðsins. Eftir að hafa notið dvalarinnar í þjóðgarðinum ökum við til Puerto Natales þegar nær dregur kvöldi.     

Máltíðir innifaldar: Morgunverður og nestispakki.

Puerto Natales – Balmaceda og Serrano

Enn bíður okkar eftirminnilegur dagur. Við förum um borð í skip sem siglir með okkur inn í Última Esperanza-fjörðinn til Bernando O’Higgins þjóðgarðs­ins þar sem getur að líta stórfenglega skriðjökla eins og Balmaceda og Serrano.

Á leiðinni fræðumst við um sögu Puerto Natales og sjáum Kondóra-fossinn. Siglt verður að skriðjökulstungu Balmaceda sem er áhrifamikil sjón. Þaðan er svo ferðinni haldið áfram til Puerto Toro þar sem við stígum í land og göngum gegnum Coihües-skóginn og næstum alveg að Serrano-skrið­jöklinum. Eftir það er snæddur hádegisverður á öðrum viðkomustað nálægt skóginum. Að loknum frábærum degi í nokkrum af fegurstu fjörðum Chile verður haldið aftur til Puerto Natales og gist þar.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Frá Puerto Natales til Santiago

Nú má pakka öllum úlpum niður þar sem við fljúgum frá Puerto Natales kl. 09:35 til Santiago, höfuðborgar Chile, en borgin er á fallegum slóðum milli snævi þakinna tinda Andesfjalla og á sér merka sögu. Lent er í Santiago kl. 12:44 og við komum síðdegis á hótelið okkar, þar sem við gistum 2 nætur á 4 stjörnu hóteli í miðbænum með útisundlaug, notalegum kaffihúsum og góðum veitingastöðum í grenndinni.

Frjáls tími það sem eftir lifir dagsins og tilvalið að skoða sig um í miðborginni og njóta veðurblíðunnar en hitinn á þessum tíma er oftast 30-35°C. Útsýnið til Andesfjalla er stórbrotið en hæstu tindar í nálæð við höfuðborgina ná yfir 5000 m hæð. Einnig er hægt að heimsækja hæsta turn Suður Ameríku (62 hæðir) og fylgjast m.a. með sólsetri við Kyrrahafið sem er mögnuð sjón í björtu veðri.  

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Heilsdagsferð til Valparaiso og vínsmökkun í Casablanca-dalnum 

Eftir morgunverð, bíður okkur heilsdagsferð til Valparaiso, hafnarborgar við strendur Chile. Borg full af sögu, listum og menningu og þar ríkir annað andrúmsloft en í höfuðborginni Santiago. Á 19. öld setti straumur evrópskra innflytjenda mark sitt á arkitektúr og menningarstofnanir borgarinnar. Leiðsögumaður gengur með okkur um litríkar gögur borgarinnar, heimsækjum fiskmarkaðinn „Caleta Portales“ áður en við setjumst niður í sameiginlegan hádegisverð á eitt besta veitingahús bæjarins „Mar Alegre“, staðsett inn á hinu glæsilega Hotel Casa Higueras, með stórbrotnu útsýni yfir höfnina og flóann frá veröndinni. Hér verður boðið upp á 3ja rétta matseðil sem rennur ljúflega niður með chilensku vínglasi.

Að því loknu tökum við kláfinn upp að rútunni sem bíður okkar og keyrum í átt að hinni frægu vínekru Viña Casas del Bosque sem er staðsett inni í Casablanca dalnum. Þar er boðið upp vínsmökkun að hætti heimamanna þar sem 5 helstu vín þeirra verða smökkuð.

Komið til baka upp á hótel um kl 18 og er kvöldið frjálst.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður, hádegisverður  og vínsmökkun

Skoðunarferð um höfuðborgina Santiago

Í fáum borgum í Suður-Ameríku er andrúmsloftið jafn heillandi og í höfuð­borg Chile með sinni töfrandi blöndu af gömlu og nýju. Við byrjum skoðunarferð­ina í miðborginni þar sem við fræðumst um sögu Chile allt frá því að Spánverjar veittu landinu sjálfstæði árið 1818 þar til lýðveldi var komið á að nýju árið 1990 eftir einræðisstjórn Augusto Pinochet í sautján ár.

Einnig verður drepið á atburði í sögu landsins undir stjórn Spánverja þegar hinum herskáu Mapuche-indí­ánum, sem bjuggu á þessum slóðum, tókst að veita spænskum stjórnarherjum mótstöðu í þrjár aldir. Við heimsækjum forsetahöllina La Moneda þar sem sósíalistinn, Salvador Allende, forseti, svipti sig lífi þegar Pinochet braust til valda 11. september árið 1973. Við ökum áfram gegnum viðskiptahverfið í Santiago og á aðaltorg borgarinnar, Plaza de Armas, þar sem dómkirkjan gnæfir yfir, og síðan á freistandi markað þar sem söluborðin svigna undan glænýjum fiski úr Kyrrahafi.

Komið til baka um hádegi og gefst gestum þá kostur á að slaka á við sundlaugarbakkann. Kvöldið frjáls.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Frá Santiago norður til Iguazú

Flogið norður á bóginn kl. 08:15 að landamærum Argentinu og Brasilíu til Puerto Iguazú og lent þar kl. 15:55 með millilendingu á AEP flugvellinum í Buenos Aires. Farangur verður innritaður alla leið til Iguazú. Í flugstöðinni er hins vegar góð aðstaða og veitingastaðir þar sem hægt er að fá sér að borða. 

Við komuna til Iguazú verður haldið rakleiðis á hótel okkar, Mercure Iguazu Hotel 4*  þar sem gist verður í 2 nætur. Svæðið hefur verið nefnt eitt af sjö undrum veraldar en gríðarlegt vatnsmagn í Iguazú fossum fellur með ótrúlegum krafti fram af allt að 100 metra háum klettabrúnum allan sólarhringinn. Efnt verður til kvöldverðar á veitingastaðnum Hito ef áhugi er fyrir hendi (ekki innifalið í verði) en stórkostleg sjón er að sitja við landamærin Argentínu, Brasilíu og Paraguay og fá sér kvöldverð með útsýni yfir River Iguazú.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Dagur við Iguazú fossa
– eina af stærstu fossum veraldar

Heilsdagsferð til Iguazú þjóðgarðsins þar sem við sjáum stærstu fossa í heimi. Þetta eru í raun 275 fossar sem dreifast yfir 80.000 ha svæði. Þar er frumskógur eins langt og augað eygir með tukan-fuglum, páfagaukum, öskuröpum, jagúörum og mörgum öðrum frumskógardýrum svo dæmi séu tekin. Þjóðgarðurinn Argentínu megin er tengdur þjóðgarðinum Brasilíu megin en hann heimsækjum við daginn eftir.

Ekið verður í lítilli opinni lest að stærstu fossunum – Gapi Djöfulsins – sem eru á landamærum Argentínu og Brasilíu. Fyrir hádegi verður gengið á þar til gerðum göngustígum sem liggja að og við rætur fossanna með tilheyrandi upplifun frá öllum hliðum séð. Á sumum stöðum er nauðsynlegt að pakka myndavélum og símum vel inn vegna vatnsgufunnar og loftrakans. Um hádegi verður gert hlé á dagskránni þar sem ferðalöngum gefst kostur á að kaupa sér hressingu á tveim mismunandi veitingastöðum.

Eftir hádegi er síðan haldið í einskonar „Safaríferð“ þar sem hópnum verður ekið á opnum pallbíl í gegnum regnskóginn niður að fljótinu River Iguazú þar sem stigið verður upp í lítinn bát sem siglir með hópinn upp að fossunum. Þetta er mikið ævintýri þar sem fólk blotnar töluvert en allir fá þar til gerða vatnshelda poka sem hægt er að geyma töskur, síma, skó og annað sem ekki er æskilegt að nota rétt meðan siglt er undir fossana. Ferðinni lýkur síðdegis og þá er haldið beint á hótelið.

Máltíðir innifaldar:  Morgunverður

Iguazú fossarnir séðir frá Brasilíu
– haldið til Rio de Janeiro

Lagt er snemma af stað með rútu frá hótelinu að landamærum Brasilíu og Argentínu. Bið á landamærunum getur tekið allt að 1 klst. samanlagt og því þarf að fara snemma af stað. Fyrri hluta dagsins fær hópurinn að upplifa náttúrufegurðina við Iguazú fossana séð frá brasilísku hlið þjóðgarðsins og þá sjást flestir þeir fossar sem barðir voru augum daginn áður, Argentínumegin. Upplifunin er talsvert önnur og áhrifameiri m.t.t. myndatöku. Ferðalangar munu þá njóta 360° útsýnis yfir allt svæðið í gönguferð sem spannar um 1,5 km. Meiriháttar upplifun og margir telja að hápunktinum sé náð við lok göngunnar þegar komið er eins nálægt „Gapi Djöfulsins“ og hægt er að komast.

Eftir göngu meðfram fossunum er hópnum safnað saman um hádegisbil og eftir það verður svo haldið af stað frá Iguazú áleiðis á flugvöllinn Brasilíu megin þaðan sem flogið verður til Rio de Janeiro, næst stærstu borgar Brasilíu þar sem íbúar eru um 7 milljónir skv. opinberum tölum. Brottför til Rio de Janeiro er áætluð kl. 14:20 þar sem lent verður kl. 16:10.

Staðarleiðsögumaður tekur á móti okkur og fylgir að rútu sem ekur hópnum inn í þessa stórbrotnu borg að glæsilegu hóteli, Windsor California 4* þar sem gist verður í 4 nætur (herbergi leigð í 5 nætur). Frjáls dagskrá um kvöldið og tilvalið að skoða sig um á strandgötunni við frægustu baðströnd veraldar, Copacabana. Í borginni eru margar strendur, sem liðast meðfram fjalllendi, og borg, náttúra og haf renna saman í eitt og hafa gefið Rio de Janeiro gælunafnið „Guðs borg“.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Kristsstyttan

Lagt af stað kl. 8:30 í skemmtilega skoðunarferð meðfram ströndum Rio de Janeiro, þ.m.t. Copacabana og Ipanema þannig að þátttakendur átti sig betur á því hvernig borgin liggur landfræðilega. Eftir það er farið í innri bæinn að lestarstöðinni sem flytur okkur með tannhjóla lest upp á topp hins 713 metra háa Corcovado fjalls. Lestarferðin er stórkostleg í gegnum bæjar þjóðgarðinn í Rio de Janeiro með apa og páfagauka í návígi.

Héðan er ótrúlegt og ógleymanlegt útsýni suður í átt að Ipanema-ströndinni, norðan við hótelið okkar á Copacabana-ströndinni, og ef litið er enn lengra má sjá hið mikla stöðuvatn enn norðar. Á toppnum, bíður eitt af opinberum sjö undrum heims: „Kristsstyttan“ sem gnæfir hátt yfir „Borg Guðs“. Sjálf styttan er 38 m há og vegur 1145 tonn. Haldið niður eftir 1 klst. dvöl við Kristsstyttuna og komið á hótelið um miðjan dag.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Sykurtoppurinn

Lagt er af stað kl. 08.30 í skoðunarferð á stað sem hugsanlega er enn frægari tákn fyrir Rio de Janeiro en Krists­styttan en það er „Sykurtoppurinn“. Það er steinstallur sem farið er upp að með tveimur svifbrautum að endastöðinni sem er í 396 metra hæð með útsýni yfir Guanabaraflóann og innsiglinguna frá Atlantshafi. Stórkostlegt útsýni er þarna á efsta hluta efri klettsins þar sem strendur Rio blasa við ásamt öðrum borgarhlutum, smábátahöfn og innanlandsflugvelli borgarinnar.

Svo er farið aftur niður með kláfnum og við rennum fram hjá ýmsum ströndum og yfir lónið mikla sem meðal annars var vettvangur róðrarkeppninnar á Ólympíuleikunum árið 2016. Eftir að komið er til baka verður svo ferðast um miðborg Rio, við skoðum hina nýju og sérstöku dómkirkju Lipa Cathedral og gamla fallega óperuhúsið og farið að hinu þekkta listasafni borgarinnar við höfnina í Rio de Janeiro. Þeir sem áhuga hafa gefst kostur á að heimsækja hinar heimsfrægu tröppur „Selarons“ og koma sér síðan til baka á eigin vegum með leigubíl. Komið á hótelið laust eftir hádegi og frjáls dagskrá það sem eftir lifir dags til að skoða sig um í borginni. Um kvöldið verður blásið til kveðjukvöldverðar á spennandi veitingastað í Rio.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður  og kvöldverður

Frjáls dagur

Í dag eigum við frjálsan dag í þessari litríku borg og hægt að njóta þess að liggja á ströndinni, ganga eftir Copacabana strandlengjunni eða kíkja á búðir eða á kaffiús enda nóg í boði.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Brottför / heimferð

Dagurinn er frjáls fram eftir degi og þá er hægt skoða sig betur um í stórborginni eða njóta strandlífsins á Copacabana. Herbergi eru innifalin í verði fram á kvöld og því þarf ekki pakka niður í töskur fyrr en líða fer að brottför. Brottför frá hótelinu með rútu áleiðis á alþjóðaflugvöllinn GIG er um kl. 18:30 þaðan sem flogið verður með American Airlines í beinu næturflugi AA-974 áleiðis til Miami kl. 22:15.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Frá Rio til Miami

Lent er á Miami flugvelli kl. 05:00 eftir næturflug frá Rio de Janeiro. Farþegar sækja töskur sínar og halda ásamt fararstjóra út fyrir flugstöðvarbygginguna í hótel rútu sem ekur mannskapnum að Sonesta Miami Airport hótelinu þar sem herbergi bíða tilbúin til afnota strax um morguninn.

Dagurinn og kvöldið frjálst.

Brottför til Íslands 

Eftir morgunverð er hægt að taka það rólega við sundlaugina enda engin þörf á að skila herberginu fyrr en farið er út á völl síðdegis og er áætluð brottför frá hóteli kl 14 og komið þangað skömmu síðar þar sem innritun fer fram í flug Icelandair FI69 með brottför kl. 17:00.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Koma til Íslands 

Lent er í Keflavík að morgni 2. febrúar kl. 05:55.

Þar með lýkur þessari glæsilegu ferð um Suður Ameríku löndin þrjú, Argentínu, Brasilíu og Chile.

Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð

Sædís Íva Elíasdóttir verður fararstjóri ferðarinnar. Íva hefur ferðast víða þ.á.m. með Kolumbus – Ævintýraferðum til Suður Ameríkulandanna. Íva sér um framleiðslustjórn og utanumhald á fjölmörgum af ferðum Niko Travel Group. Henni til aðstoðar verða staðarleiðsögumenn á öllum viðkomustöðum sem veita fræðslu um staðarhætti og annað sem áhugavert er að upplifa.

Verð á mann: 1.490.000 kr. Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 350.000 kr.

Greiða þarf 150.000 kr. staðfestingargjald innan 3ja daga frá skráningu.

Greiða þarf 670.000 kr. inná ferðina 15. ágúst og lokagreiðsla, kr. 670.000 er þann 1. nóvember.

Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt eftir 14. ágúst.

Að öðru leyti gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 499-2960 eða á netfanginu niko@niko.is.

• Flug á Economy Class frá Keflavík til Buenos Aires (um Miami) og heimflug frá Rio de Janeiro, þ.m.t. skattar og gjöld.
• Allt innanlandsflug í Argentínu, Chile og Brasilíu, þ.m.t. skattar og gjöld.
• Gisting í tveggja manna herbergi í góðum og vel staðsettum hótelum í 22 nætur.
• Máltíðir samkvæmt ferðalýsingu.
• Allur flutningur og skoðunarferðir, þ.m.t. aðgangseyrir samkvæmt ferðaáætluninni.
• Skoðunarferðir í Buenos Aires og aðgangur að grafhýsi Evu Peron.
• Tangósýning og sameiginlegur kvöldverður í Buenos Aires.
• Skoðunarferðir í Santiago og dagsferðir frá Puerto Natales .
• Ferðalög til Tierra del Fuego þjóðgarðsins auk bátsferðar.
• Kvöldverður í El Calafate á Argentískum búgarði .
• Dagsferð til stærsta stöðuvatns Argentínu, Lago Argentino, og stærsta innanlands-
skriðjökuls veraldar, Perito Moreno.
• Heimsókn til hinna heimsfrægu Iguazú fossa bæði frá argentínskum og brasilískum
landsvæðum, þ.m.t. bátsferð.
• Skoðunarferðir og slökun í Rio de Janeiro.
• Svæðisleiðsögumenn / náttúruleiðsögumenn.
• Ferðaleiðsögn Ívu Sædísar Elíasdóttur sem ferðast með hópnum og verður með honum allan tímann sem fararstjóri.
• Sérstakur kynningarfundur í byrjun janúar 2026 þar sem fararstjóri og starfsfólk Kólumbus – Ævintýraferða mun upplýsa þátttakendur um helstu atriði sem hafa ber í huga áður en lagt er upp í þessa langferð.

Hilton hotel – Buenos Aires 4*
Hotel Albatros – Ushuaia 4*
Hotel Posada Los Alamos – El Calafate 4*
Noi Patagonia – Puerto Natales 4*
Mercure Iguazu Hotel – Puerto Iguazú 4*
Windsor California – Rio de Janeiro 4*
Sonesta Miami Airport – Miami 4*

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.