Kolumbus ævintýraferðir bjóða nú í fyrsta sinn upp á mjög vandaða golf- og skemmtiferð til Suður-Afríku í samstarfi við hjónin Kolbein Kristinsson og Ruth Gylfadóttur sem hafa búið í landinu í yfir 20 ár.

Kolumbus ævintýraferðir bjóða nú í fyrsta sinn upp á mjög vandaða golf- og skemmtiferð til Suður-Afríku í samstarfi við hjónin Kolbein Kristinsson og Ruth Gylfadóttur sem hafa búið í landinu í yfir 20 ár.

Golfvellirnir í Suður-Afríku eru í hæsta gæðaflokki. Þar hefur verið leikið golf síðan 1890 þegar fyrsti golfvöllurinn á suðurhveli jarðar, Royal Cape opnaði í Cape Town.

Suður-Afríka er mjög áhugaverður áfangastaður. Þar er verðlag hagstætt, saga lands og þjóðar áhugaverð, matur og þjónusta í háum gæðaflokki og svo er sumar þar þegar vetur ríkir á norðurhveli jarðar, með hitastig á bilinu 25-35°. Það er því tilvalið að bregða sér á þessar suðrænu slóðir til að ferðast um og njóta þess að leika á þeim frábæru golfvöllum sem þar eru í boði. Fara  í safarí ferð, heimsækja vínbúgarða og fleira áhugavert. Höfðaborg, Cape Town sem er elsta borg landsins var valin „the Worlds Best City“ af Time Out í janúar á þessu ári. Þá var borgin einnig valin „the Worlds best Food city “ hjá  Condé Nast Travellers Readers Choice Awards, árið 2024.

Flogið er frá Keflavík 27. febrúar á samfeldum flugmiða (farangur innritast í Keflavík alla leið) með British Airways um London og þaðan til Höfðaborgar (Cape Town) og sömu leið til baka. Dvalið er í 15 daga, leiknir 9 golfhringir á 6 frábærum golfvöllum, farið í Safarí og skemmtiferðir. Dvalið í 14 nætur á 3 glæsilegum 5 stjörnu hótelum þar sem frábær matur er í boði.

Ferðatilhögun

Brottfarardagur

Lagt af stað frá Keflavík kl. 11:45 með British Airways til London Heathrow þar sem beðið er í rúmar 3 klst. eftir næstu vél sem hefur sig til lofts kl. 18:25 að staðartíma í beinu flugi til Höfðaborgar.

Höfðaborg

Lent er í Höfðaborg kl. 08:00 að morgni, tímamismunur er +2 klst. m.v. Ísland. Eftir að farþegar hafa nálgast farangur sinn er haldið af stað með rútu áleiðis að fyrsta dvalarstað okkar Arabella Hotel þar sem dvalið verður fyrstu tvær næturnar. Komið þangað um 1 klst. síðar og farangri komið fyrir í geymslu þar til herbergi verða tilbúin síðdegis.

Fyrsti golfhringurinn hefst svo um kl. 13:00 og því tilvalið að hefja leikinn strax við komuna meðan beðið er eftir herbergjunum. Eftir 18 holu hring er innritun á hótelið og farþegar njóta þessa að hvíla sig eftir langt ferðalag. Kvöldverður á Arabella um kvöldið að hætti hvers og eins.

Golfhringur á Arabella

Leiknar eru 18 holur á Arabella Golf Course á rástímum frá kl. 10:10 – 11:40. Um kvöldið er farið á fallegan vínbúgarð, Creation Wine Estate í kvöldverð og vínsmökkun. Haldið til baka á hótelið eftir kvöldverð og vínkynningu.

Golfhringur á Pinnacle Point

Ekið af stað kl. 7:00 að morgni áleiðis til Pinnacle Point þar sem leikinn verður 18 holu hringur á mjög sérstökum og fallegum velli sem minnir einna helst á Pebble Bech.

Eftir hringinn er ekið í 30 mínútur áleiðis til Fancourt Hotel þar sem innritun fer fram í dvöl til næstu 5 nátta. Kvöldverður að eigin vali á La Cantina Restaurant á Fancourt. Fancourt Golf Estate hefur verið valið eitt af 10 bestu Golf Estates í heiminum undanfarin 15 ár.

Golfhringur á Fancourt Montague Course

Leiknar 18 holur á Montague vellinum á Fancourt.  Rástímar frá kl. 9:00 – 10:40. Eftir golfhring verður stuttur akstur inní miðbæ George á veitingastaðinn Hussar Grill Restaurant þar sem snæddur verður kvöldverður að eigin vali.

Golfhringur á Fancourt Outeniqua Course

Leiknar 18 holur á Onteniqua vellinum á Fancourt, með rástímum kl. 08:50 -10:40. Kvöldverður á Henry White Restaurant á Fancourt hótelinu.

Skoðunarferð um svæðið

Ekið í rútu um morguninn til Oudtshoorn þar sem við heimsækjum strútabúgarð og fáum að kynnast þeim dýrum. Þar er snæddur hádegisverður. Eftir það er heimsókn til Buffelsdrift Game Lodge þar sem við fáum að gefa fílum að borða og mynda okkur með þeim. Þá er tveggja tíma Safarí þar sem eru gíraffar, sebrahestar, nashyrningar og fleiri dýr. Kvöldverður á Game Lodge og síðan ekið til baka á hótelið.

Golfhringur á Pezula

Við ökum stutta og einstaklega fallega leið til Pezula Golf Estate þar sem leikinn verður 18 holu hringur með rástímum kl. 09:30 – 11:00. Eftir hringinn förum við í siglingu á Knysna Lagoon, fáum ostrur og hvítvín og fylgjumst með sólsetri, vonandi í fallegu veðri. Kvöldverður verður á veitingastað við höfnina áður en ekið er til baka á hótelið.

Pearl Valley

Rútuakstur frá Fancourt til Pearl Valley, um 5 klst. akstur á Route 62 sem er falleg og þekkt aksturs leið í Suður Afríku. Um miðja vegu er stoppað fyrir hádegisverð í bænum Barrydale. Komið á Pearl Valley hótelið síðdegis þar sem innritun fer fram. Kvöldverður á hótelinu að eigin vali.

Golfhringur á Pearl Valley

Við leikum 18 holur á þessum glæsilega velli, Pearl Valley, sem valinn hefur verið sá þriðji besti í Suður Afríku, með rástímum frá kl. 10:00 – 11:30. Frjáls tími eftir það. Skipuleggendur ferðarinnar, Kolbeinn og Ruth eru búsett á svæðinu og munu þau verða hópnum innan handar um veitingastaði og annað áhugvert á staðnum.

Dagsferð á vínbúgarð

Þennan dag hvílum við golfið og förum snemma í 15 mín akstur til Franschhoek á La Motte Wine Estate. Morgunverður í bakaríi La Motte og gönguferð með leiðsögn frá La Motte (innifalið í verði ferðarinnar). Síðan verður snæddur hádegisverður sem innifelur vínpörun og tökum við smá tíma í þennan dagskrárlið áður en haldið verður til baka á hótelið á Pearl Valley.

Hvíldardagur

Þennan dag er hægt að hvíla sig við sundlaugarbakkann eða bóka sér golfhring að eigin vali sem ekki er innifalið í verði ferðarinnar. Einnig er hægt að skoða það sem er í boði í nánasta nágrenni.

Skoðunarferð um Góðrarvonarhöfða

Dagsferð með innlendum fararstjóra Table Mountain ef veður leyfir, mörgæsirnar í Simonstown, skoðaðar sem og hinn heimsfrægi Góðravonarhöfði (Cape of good hope). Chapmanns Peak vegurinn keyrður til Waterfront í Cape Town þar sem úrval veitingastaða og verslana er við höfnina. Keyrt til baka til Pearl Valley um kvöldið.

Golfhringur á Pearl Valley

Leikinn verður 18 holu hringur þennan dag á Pearl Valley golfvellinum með rástímum frá kl. 09:00 – 10:30. Kvöldverður á veitingastaðnum Noop í Paarl.

Síðasti golfhringurinn

Síðasti golfhringur ferðarinnar á Pearl Valley hefst með rástímum kl. 10:00 – 11:30. Kvöldverður á hótelinu þar sem ferðaskipuleggjendur standa fyrir kvöldskemmtun með lifandi tónlist og dansi fram eftir kvöldi.

Heimferðardagur

Tékkað út af hótelinu fyrir hádegi og haldið á Constantia Glen Wine Estate þar sem við snæðum gómsætan hádegisverð og þiggjum vínkynningu. Höfum það huggulegt saman fram eftir degi en höldum á flugvöllinn um kl. 16:00 og komum þangað 30 mín. síðar til innritunar í heimflug með British Arways. Brottför er kl. 18:45 til London.

Heimkoma

Lent í London eldsnemma morguns eftir næturflug frá Höfðaborg. Við verðum í sömu flugstöð (Terminal 5) og farangur er innritaður alla leið til Keflavíkur. Brottför flugs BA til Keflavíkur er kl. 07:20 þar sem lent verður kl. 10:40 að íslenskum tíma.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

 

Ingi Þór Hermannsson er fararstjóri í þessari ferð en hann þekkir svæðið vel og hefur farið í nokkrar ferðir þangað á undanförnum árum. Ingi mun sjá um að raða á rástíma og fylgjast með gangi mála meðan leikið er á golfvöllunum.

Honum til aðstoðar eru hjónin Kolbeinn Kristinsson og Ruth Gylfadóttir sem eru ábyrg fyrir skipulagi ferðarinnar. Þau búa að mikilli reynslu í Suður-Afríku, hafa enda verið búsett þar um árabil og tekið á móti fjölda íslenskra gesta.

Verð: 975.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.

Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 190.000 kr.

Greiða þarf 100.000.- kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar 90 dögum fyrir brottför eða um 1. nóvember.

Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko ehf. sem nálgast má á heimasíðu skrifstofunnar. 

Flug Brithis Airways til Höfðaborgar um London, báðar leiðir – 23 kg taska, golfsett, allir skattar og gjöld.
9 golfhringir skv. ferðalýsingu á 6 golfvöllum ásamt golfbíl fyrir hverja tvo farþega.
2 gistinætur með morgunverði á Arabella Hotel
5 gistinætur með morgunverði á Fancourt Hotel
7 gistinætur Pearl Valley Mantis Hotel, morgunverður ekki innifalinn.
Allur rútuakstur í fyrsta flokks loftkældum rútum.
• Skoðunarferðir skv. ferðalýsingu, þ.m.t. fíla- og mörgæsaskoðanir ásamt ferð til Góðrarvonarhöfða.
• Inneign á La Motte búgarðinn að andvirði Rd 500.

Hótelin sem við gistum á

Arabella Hotel 5* (Cape Overberg)
Fancourt Hotel 5* (George)
Pearl Valley Mantis Hotel 5* (Cape Winelands) 

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.