Napolí, Pompei, Sorrento, Amalfíströndin, Procida eyjan og Capri
Napólí er án efa ein af áhugaverðustu borgum Ítalíu, iðandi af mannlífi á hverju götuhorni, mörkuðum, og veitingahúsum. Campania hérað er rómað fyrir matarmenningu, enda fæðingarstaður pizzunnar, og þekkt fyrir dásamlegu Mozzarella Osta og sítrónuræktina svo eitthvað sé nefnt. Í þessari einstöku ferð munum við ekki aðeins heimsækja Napólí sjálfa, heldur einnig fjölmarga áhugaverða staði í grennd við borgina. Þar má nefna Pompei, Amalfíströndina, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, að ógleymdri siglingu til Capri sem verið hefur áfangastaður ferðamanna allt frá tímum Rómverja og til hinnar einstöku eldfjallaeyjar Procida.
Þórhallur Heimisson er fararstjóri í þessari ferð og fræðir gesti um sögu og menningu svæðisins og heimsækir með þeim heillandi þorp, sólrík torg og staði þar sem má njóta útsýnis yfir landið og miðin. Töfrandi ferð um eitt fallegasta svæðið við Miðjarðarhaf sem skartar sínu fegursta í landslagi, matargerð og mannlífi. Sannkölluð perla Ítalíu.
Ferðatilhögun
Komudagur
Kl. 07:50. Flug Icelandair FI-562 frá Keflavík til Rómar. Fararstjórinn Þórhallur Heimisson tekur á móti hópnum á flugvellinum í Róm og ekur með honum í rútu á Hótelið okkar í hjarta Sorrento. Grand Hotel Cesare Augusto er með þaksundlaug og útsýni að Vesúvíus. Kvöldverður fyrir hópinn á veitingastað hótelsins.
Gönguferð um Sorrento og pastanámskeið í eftirmiðdaginn
Við byrjum daginn með gönguferð um Sorrento og helstu kennileiti bæjarins verða skoðuð. Þórhallur leiðir hópinn og með í för verður ítalskur leiðsögumaður til aðstoðar. Að lokinni göngu er frjáls tími til að skoða miðbæinn eða baða sig í sólinni við sundlaugarbakkann. Um kvöldið fer allur hópurinn og lærir að gera gnocchi pasta og annað góðgæti sem rennur ljúflega niður með víni frá héraðinu.
Dagsferð til Capri
Siglt yfir til Capri frá Sorrento sem er aðeins um 20 mínútna ferð. Þegar komið er að landi verður farið í minni bát sem siglir með hópinn í klukkustundar bátsferð um eyjuna. Síðan er farið í rútum upp til Anacapri og í stólalyftu upp á efsta topp eyjarinnar, á Monte Solaro, þar sem útsýnið er engu líkt. Eftir útsýnisferðina í stólalyftunni er boðið upp á sameiginlegan hádegisverð í Anacapri. Að því loknu verður ekið til Capri þar sem frjáls tími gefst til að skoða sig um og versla. Eftir yndislegan dag í Capri göngum við saman niður að höfn þar sem báturinn leggur af stað til baka til Sorrento og komið til Sorrento fyrir kvöldmat.
Amalfi ströndin
Brottför frá hótelinu með farangurinn um morguninn í heilsdagsferð þar sem siglt er meðfram ströndum Amalfi-skagans. Ekið verður niður að höfninni í Salerno þar sem einkabátur bíður hópsins. Siglt verður frá Salerno til Positano og gengið um sannkallaðan „póstkortabæ”. Eftir það verður siglt yfir til Amalfi þar sem hópurinn snæðir sameiginlegan hádegisverð við sjóinn, í framhaldinu er frjáls tími til að ganga um þann sögufræga bæ. Þeir sem hafa áhuga getað skoðað dómkirkjuna (greiða þarf aðgang) í fylgd með okkar leiðsögumanni. Siglt er til baka til Salerno þar sem rúta bíður hópsins og ekur ferðalöngum á Hotel Royal Continental í Napoli sem er staðsett á einstökum stað beint við höfnina og með útsýni yfir hafið.
Kvöldið er frjálst.
Gönguferð um Napólí
Hótelið okkar er á frábærum stað við ströndina og nærri miðbænum í Napólí. Við göngum þess vegna beint frá hótelinu og niður í bæinn eftir morgunverð, þar sem Þórhallur segir okkur frá öllu sem fyrir augu ber, allt frá konungshöllinni, kastalanum og dómkirkjunni, yfir í göngugöturnar í gamla bænum, verslunarhverfi og hverfi Maradonna. Gönguferðin endar í hjarta borgarinnar þar sem hver og einn getur sest niður í hádegismat í gamla bænum. Eftirmiðdagurinn er frjáls og veitir leiðsögumaður allar upplýsingar um það sem er hægt að nota daginn í.
Pompei og vínsmökkun
Brottför eftir morgunverð frá hóteli í heilsdagsferð um Pompei og í vínsmökkun. Ekið til Pompei þar sem gengið er um hina fornu borg sem grófst undir eldgosinu þegar Vesúvíus sprakk í loft upp árið 79. Þórhallur leiðir ferðina og lýsir því sem fyrir augu ber ásamt heima leiðsögumönnum. Eftir magnaðan morgun í Pompei verður farið í einn af hápunktum ferðarinnar, vínsmökkun á yndislegum og sólríkum stað nærri Pompei í hlíðum Vesúvíusar þar í fylgd með Andrea (Sommelier) sem gengur með hópnum og kynnir gestum fyrir því sem þessi sérstaki vínbóndi ræktar. Að því loknu verður þriggja rétta hádegisverður með einstöku útsýni yfir Napoli flóann þar sem boðið verður upp á árstíðarbundinn mat og Andrea mun para saman vín og mat samhliða því. Sannkölluð sælkeraferð.
Dagsferð til Procida
Eftir morgunverð göngum við niður að höfn og siglum til eldfjalla eyjarinnar Procida. Eyjan er um fjögurra kílómetra löng og þar búa aðeins um 10.000 manns. Eyjan er hluti af virku eldfjallasvæði og er einstök náttúruperla. Við munum skoða bæinn sem heitir Procida eins og eyjan og var valinn menningarhöfuðborg Ítalíu árið 2022 þrátt fyrir smæð sína. Motto bæjarbúa lýsir staðnum vel: ”dolce far niente” eða hið dásamlega sem felst í því að gera ekki neitt! Bærinn er ótrúlega fallegur og náttúrufegurðin þar engri lík. Yfir bænum trónir hið forna Terra murata þaðan sem er stórkostlegt útsýni yfir Napólíflóa. Þangað upp liggur einstigi sem við munum feta þau sem vilja. Við endum skoðunarferðina með hádegisverði. Eftir mat er frjáls tími og þá er um að gera að skella sér í sólbað á ströndinni við Procida eða á einhverri annarri af hinum 6 ströndum eyjarinnar. Seinni partinn siglum við aftur til Napólí og göngum á hótelið.
Kvöldið er frjálst.
Heimferð
Lagt af stað frá hóteli eftir morgunverð og keyrt til FCO-flugvallarins í Róm. Þaðan verður flogið með flugi Icelandair FI-563 kl. 15:55 til Íslands. Lent í Keflavík kl. 18:45.
Fararstjórn, verð, greiðslur og innifalið
Sr. Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.
Hildur Jónsdóttir svæðisstjóri Kolumbus á Ítalíu verður Þórhalli til aðstoðar.
Verð: 395.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi. Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 49.000 kr.
Geiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
● Flug frá Keflavík til Rómar fram og til baka, allir skattar og gjöld
● 23 kg innrituð taska
● Gisting á Hotel Grand Hotel Cesare Augusto 4* í Sorrento í 3 nætur með morgunverði
● Gisting á Hotel Royal Continental 4* með sjávarútsýni að hluta í Napoli í 4 nætur með morgunverði
● Allur rútuakstur til og frá flugvelli, hóteli og að öllum stöðum skv. ferðalýsingu
● 4 hádegsiverðir, 1 kvöldverður og vínferð
● Aðgöngumiðar, bátsferðir og þjónusta staðarleiðsögumanna skv. ferðalýsingu
● Íslensk fararstjórn og leiðsögn sr. Þórhalls Heimissonar
Bóka
Uppselt – Biðlisti!
Uppselt er í þessa ferð. Hægt er að skrá sig á biðlista með því að hafa samband við okkur á niko@niko.is.
Þegar þú hefur staðfest bókun verður
stofnaður greiðsluseðill í heimabanka fyrir staðfestingargreiðslu.
Uppselt – Biðlisti
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma
499-2960 eða á netfanginu niko@niko.is.
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar





