Kólumbus – Ævintýraferðir bjóða uppá ógleymanlega ferð á Ólafsvökuna í Færeyjum þar sem gleðin ræður ríkjum og Færeyingar skemmta sjálfum sér og gestum sínum. Fararstjóri í ferðinni er Gísli Jafetsson sem er okkar reyndasti fararstjóri í Færeyjum. Hann gerþekkir eyjarnar og margan manninn sem á eftir að koma sér vel fyrir farþega.

Ólafsvakan eða Olaj eins og hún er kölluð er aldagömul hefð þar í landi en þá halda Færeyinga tveggja daga þjóðhátíð árlega dagana 28. og 29. júlí. Við tökum þátt í gleðinni og förum auk þess í hefðbundnar skoðunarferðir um eyjarnar. Dvalið verður á hinu nýja og glæsilega Hotel Brandan 4* og morgunverður innifalin ásamt tveimur kvöldverðum þ.m.t. Ólafsvökuhlaðborð í miðbænum. Dagskráin er glæsileg og gaman verður fyrir þátttakendur að samgleðjast frændum okkar á þessari miklu hátíð.
Flogið er frá Keflavík með Atlantic Airways fyrir hádegi þann 27. júlí, gist í 4 nætur og komið til baka 31. júlí.
Ferðatilhögun
Gásadalur – Þórshöfn – Hótel Brandan
Flogið með Atlantic Airways frá Keflavík kl. 11:45 og lent á flugvellinum í Vogey í Færeyjum kl. 14:10 að staðartíma. Flogið er með nýlegum og þægilegum þotum af gerðinni Airbus A320 sem skila farþegum upp að nýlegri og glæsilegri flugstöð í Vaagar. Farið er í stutta skoðunarferð til Gásadals þar sem er fámennasta byggðin í Færeyjum með aðeins 15 íbúa. Á leiðinni til baka er ekið í gegnum Sørvág og Sandvág og áætluð koma til Þórshafnar er um kl. 17:30. Innritun á Hotel Brandan skömmu síðar þar sem gist verður í 4 nætur. Hótelið er nýlegt 4* hótel í Þórshöfn.
Tímamismunur á Íslandi og Færeyjum er +1 klst.
Ólafsvakan
Ólafsvakan sett kl. 14:00 í miðbæ Þórshafnar. Frjáls dagskrá yfir daginn. „Ólafsvökuhlaðborð“ á Hótel Brandan kl. 18:00 og síðan heldur fjörið áfram í bænum langt fram á nótt fyrir þá sem vilja taka þátt í gleðinni.
Ólafsvakan
Ólafsvakan nær hámarki með dagskrá frá hádegi fram á nótt.
Ólafsvöku-kvöldverður á Katrina Christiansen restaurant kl. 19:00.
Klaksvík – Fuglafjörður – Austurey
Lagt af stað frá hóteli kl. 10:00 og ekið áleiðis til Klaksvíkur sem er næst fjölmennasti bær í Færeyjum. Hádegissnarl á eigin vegum á Restaurant Amaranten (Smørrebrød – kaffi og kökur á boðstólum) eftir heimsókn í Christians kirkjuna í Klaksvík. Eftir það er ekið til baka um Austurey og á leiðinni er komið við í Fuglafirði. Á leið til Klaksvíkur verður ekið í gegnum göngin sem voru opnuð í desember 2020 og til baka yfir brúna við Streymin til Streymoy og Þórshafnar. Koma aftur að Brandan um kl. 16:30.
Heimferð
Lagt er af stað frá hóteli á flugvöllinn kl. 05:30. Innritun í flug Atlantic Airways með brottför kl. 07:45 og lent í Keflavík kl. 08:15 að íslenskum tíma.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð
Gísli Jafetsson
Gísli er einn reyndasti fararstjórinn okkar. Hann hefur komið víða við á undanförnum árum og er m.a. mjög reyndur í Færeyjum. Gísli er þekktur fyrir hvað hann heldur vel utan um hópinn á hverjum tíma. Gísli hefur mikil tengsl við samfélagið í Færeyjum og var um árabil framkvæmdastjóri FEB.
Verð: 289.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 75.000 kr.
Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.
• Flug með Atlantic Airways, allir skattar og gjöld.
• 23 kg taska og 10 kg handfarangur.
• 4 nætur á Hótel Brandan með morgunverði.
• 2 kvöldmáltíðir, þ.m.t. Ólafsvökuhlaðborð í miðbænum.
• Skoðunarferð til Klaksvíkur, Gásadals, Fuglafjarðar og Götu.
• Allur rútuakstur.
• Íslensk fararstjórn Gísla Jafetssonar allan tímann.
Hótel Brandan
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar

















































