KOLUMBUS – ÆVINTÝRAFERÐIR FILIPPSEYJAR 7.–22. janúar 2027 með Goða Sveinssyni

Enn á ný býður Kolumbus ævintýraferðir Íslendingum nýjung á ferðamarkaði

Í þessari ævintýralegu ferð mun Goði Sveinsson leiða hóp um hinar fögru Filippseyjar.

Það er óhætt að segja að ólíkir menningarheimar mætist í þessu landi sem telur alls 7.641 eyjar, hver annarri fegurri. Stærsti hluti landsmanna er kristinnar trúar og enska og filipino eru opinber tungumál. Mikilla spænskra áhrifa gætir á Filippseyjum, en þær heyrðu undir Spán í 333 ár. Auk þess eru sýnileg bandarísk áhrif frá því að landið heyrði undir Bandaríkin í tæp 50 ár. Samt sem áður eru Filippseyjar einstakar í allri sinni fjölbreytni og Filippseyingar brosmildir og gestrisnir.

Við hefjum ferðina í höfuðborginni Manila á eynni Luzon, fljúgum til Bohol og skoðum ótrúlega náttúru og dýralíf, fljúgum síðan yfir Sulu hafið til eyjarinnar Palawan. Þar njótum við góðra daga í El Nido áður en við ökum gegnum græna regnskóga þessarar fögru eyju til suðurs á vit nýrra ævintýra í grennd við Puerto Princesa. Þar upplifum við meðal annars Puerto Princesa neðanjarðarána frægu (New 7 Wonders of Nature).

Eftir dvöl á Palawan fljúgum við aftur til austurs og endum þessa fjölbreyttu ferð á eynni Boracay þar sem við munum vinda ofan af okkur í sól, sælu og heitum sjó á fallegu hóteli við ströndina áður en haldið er heim á ný. Boracay var valin næstbesta eyja í heimi í vali lesenda ferðatímaritsins Condé Nast árið 2019. Á heimleið hvílum við okkur eina nótt á góðu hóteli í Amsterdam.

Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi

Flogið með FI500 til Amsterdam kl. 07:40, lent þar 11:55. Upplagt að nýta daginn og skreppa inn í borg en flugið okkar með KLM, KL 807 Amsterdam-Manila er kl. 20:05. Töskur innritaðar alla leið til Manila í Keflavík svo ekki þarf að hafa áhyggjur af þeim ef fólk fer út úr Schiphol flugstöðinni yfir daginn.

Manila

Lent í Manila kl. 19:30 að staðartíma en tímamismunur er 8 klst. Ökum beinustu leið á hótelið okkar, Seda Residences Makati þar sem við tékkum inn og fáum langþráða hvíld.

Makati hverfið og skoðunarferð um höfuðborg Manila

Við tökum því rólega um morguninn, kíkjum í sundlaugargarðinn eða göngutúr um næsta nágrenni við hótelið. Makati hverfið er helsta viðskiptahverfi Manila og mikið úrval verslana og veitingastaða allt um kring.

Eftir hádegi höldum við síðan í skoðunarferð um höfuðborg Filippseyja, Manila með enskumælandi staðarleiðsögumanni.  Við ökum um Makati hverfið, förum í Manila American Cemetery og safnið þar og höldum síðan í miðborgina í elsta og sögufrægasta borgarhlutann, Intramuros. Skoðum  þar Fort Santiago, San Agustin kirkjuna sem er á Heimsminjaskrá UNESCO og heimsækjum Casa Manila,  ríkra manna hús frá spænska nýlendutímanum. Ferðinni ljúkum við síðan með sameiginlegum kvöldverði á Barbara‘s Heritage Restaurant þar sem við eigum góða stund saman yfir mat og tónlist heimamanna.

Panglao eyjan við Bohol

Um hádegisbil yfirgefum við hótelið okkar og höldum út á flugvöll þar sem við tökum innanlandsflug kl. 15:20 Manila-Bohol. Við lendum á Tagbilaran flugvelli kl. 17:00 og ökum stutta leið á fallega hótelið okkar, The Bellevue Resort, 5- stjörnu hótel sem stendur við ströndina á Panglao Island við Bohol.

Frjáls eftirmiðdagur og kvöld.

Bohol – Chocolate Hills – Loboc áin

Við tökum daginn snemma og höldum í afar fjölbreytta skoðunarferð um hina yndislegu Bohol eyju með skemmtilegum staðarleiðsögumanni. 

Meðal þess sem við fáum að kynnast er friðland hinna sjaldgæfu Tarsier dýra, kíkjum í áhugaverðar kaþólskar kirkjur og hlustum á Gospel tónlist ef við erum heppin.

Skoðum magnaða náttúrufyrirbærið Chocolate Hills og snæðum hádegisverð um borð í fljótabáti á Loboc River. Góður matur og skemmtileg tónlist í bland við magnaðan regnskóginn.

Frjálst kvöld.

El Nido

Við tökum því rólega um morguninn og njótum fyrirtaks aðstöðu á hótelinu.

Yfirgefum hótelið okkar um hádegi og eigum flug kl. 15:40 frá Bohol og vestur yfir Sulu hafið beint til litla bæjarins El Nido á norðurhluta Palawan eyju. El Nido er einn af vinsælustu áfangastöðum erlendra ferðamanna á Filippseyjum. Hótelið okkar Seda Lio El Nido stendur við ströndina steinsnar frá flugvellinum.

Frjáls eftirmiðdagur og kvöld.

Frjáls dagur og kvöld í El Nido

Glæsilegur sundlaugargarðurinn og ströndin fyrir framan hótelið munu sannarlega freista margra. Síðan er auðvelt að taka TukTuk (leigubíl) inn í litla miðbæinn, kíkja í búðir og á veitingastaði.

Eyjahopp

Eftir morgunverð setjum við á okkur sólgleraugun og nóg af sólarvörn því dagurinn fer í svokallað „Eyjahopp“.  Við siglum milli fallegra eyja og voga þar sem við njótum náttúrufegurðarinnar og góðs félagsskapar fram eftir degi.

Kvöldið frjálst.

Palawan eyja – Sabang

Við tökum daginn snemma, útritum okkur af Seda Lio hótelinu og ökum suður Palawan eyju í gegnum sígræna regnskógana og fjölbreytt landslag. Ferðin tekur 5 – 6 klst með stuttum stoppum. Við komum til strandbæjarins Sabang í eftirmiðdaginn og innritum okkur á Four Points by Sheraton hótelið þar sem við munum dvelja næstu tvær nætur. 
Hótelið er glæsilegt með fallegum sundlaugagarði, frábærri strönd og í stuttu göngufæri frá litla miðbænum í Sabang.

Puerto Princesa Underaground River

Eftir morgunverð gerum við okkur klár í ævintýralega heimsókn í Puerto Princesa Underground River. Ferðin hefst með stuttri siglingu frá miðbæ Sabang á svokölluðum „Banka“ bátum yfir í þjóðgarðinn við neðanjarðarána. Þar skiptum við yfir í litla árabáta með leiðsögumönnum sem taka okkur inn í þessa undraveröld sem er á Heimsminjaskrá UNESCO og eitt af „Nýju 7 náttúruundrum veraldar“ (New 7 Wonders of Nature). Áin er alls um 8,2km löng inn í kalksteinsfjöllin en við förum um einn fjórða af þeirri vegalengd. Þarna upplifum við einstaka undraveröld.

Þegar við komum aftur til Sabang förum við á skemmtilegan veitingastað og fáum okkur sameiginlegan hádegisverð sem er innifalinn.

Eftirmiðdagur og kvöldið frjálst.

Boracay

Við vöknum eldsnemma, útritum okkur af hótelinu og ökum út á flugvöllinn í Puerto Princesa sem er í um eins og hálfs tíma fjarlægð. Þar tökum við innanlandsflug til Boracay en með millilendingu í Manila þar sem við skiptum um flugvél.

Áætluð koma til Caticlan Airport (Boracay) er kl. 11:30. Við höldum niður að höfn, tökum bát yfir á Boracay eyjuna sjálfa og síðan er ekið að hótelinu okkar, Mövenpick Resort & Spa Boracay.

Frjáls eftirmiðdagur og kvöld.

Frjáls dagur

Dagurinn er frjáls til að njóta lystisemda lífsins, hvort sem sundlaugargarðurinn verður fyrir valinu, einkaströndin, nudd eða fyrsta flokks veitingar og dekur á einhverjum þriggja veitingastaðanna eða strandbarnum  – allt í einstaklega fallegu umhverfi og með þjónustulunduðu starfsfólki.

Skemmtisigling og kveðjukvöldverður

Eftir morgunverð njótum við saman þessa síðasta dags okkar á Filippseyjum og förum í skemmtisiglingu með ströndum Boracay. Við kíkjum á Puka Beach sem er falleg strönd fjarri mannabústöðum, snorklum (fyrir þá sem vilja skoða litríkt sjávarlíf og fagurt kóralrif) við Coral Garden og fáum okkur hádegisverð í landi sem er innifalinn. Semsagt góður dagur í sól og sælu.

Um kvöldið er sameiginlegur kveðjukvöldverður fyrir hópinn á ítalska veitingastaðnum BREZZA sem er í hótelinu okkar.

Flogið til Amsterdam

Við yfirgefum Mövenpick hótelið um hádegi, komum okkur aftur út á Caticlan Airport og tökum flug til Manila kl. 15:10. Lendum þar kl. 16:25 og eigum síðan flug með KLM til Amsterdam kl. 20:45.

Frjáls dagur í Amsterdam

Áætluð lending í Amsterdam er kl. 08:15.

Við tökum kærkomna hvíld í Amsterdam á Mövenpick Amsterdam City Centre hótelinu í miðborginni.

Dagur og kvöld frjálst.

Heimfarardagur

Við eigum frítíma í Amsterdam fram eftir degi en ökum út á Schiphol flugvöll síðdegis og fljúgum heim með Icelandair FI 505 kl. 20:20. Áætluð lending í Keflavík kl. 22:50.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Goði Sveinsson er skipuleggjandi og fararstjóri í þessari ferð. Hann hefur ferðast um heiminn í áratugi og hefur langa reynslu af flug- og ferðaskrifstofurekstri.

Goði er sérfræðingur og framleiðslustjóri Kolumbus í Asíuferðum og þekkir vel til á Filippseyjum.

Verð á mann: 929.000 kr. Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 195.000 kr.

Geiða þarf 150.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka. 

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

Flug fram og til baka til Filippseyja auk flugvallaskatta
Bagbee og Fast Track í Leifsstöð
Málsverðir og drykkir um borð í breiðþotum KLM
Gisting og morgunverður á völdum gæðahótelum samkvæmt ferðatilhögun
Fjórir hádegisverðir
Tveir kvöldverðir
Allar ferðir innan Filippseyja, þ.m.t. allt innanlandsflug
Allur aðgangur að söfnum og ferðamannastöðum
Íslensk fararstjórn 
Enskumælandi staðarleiðsögumenn á Filippseyjum
Vatnsflöskur í rútum
Þjórfé

Hótelin sem við dveljumst á

Seda Residences Makati ★★★★
The Bellevue Resort ★★★★★
Seda Lio El Nido ★★★★★
Four Points by Sheraton ★★★★
Mövenpick Resort & Spa Boracay ★★★★★
Mövenpick Amsterdam City Centre ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.