Flórens er töfrandi borg og algerlega ómótæðileg
Borgin er vagga endurreisnarinnar og heimaborg helstu listamanna hennar eins og Michelangelo, Leonardo da Vinci, Dante Alighieri og Filippo Brunelleschi. Um leið er hún hjarta ítalskrar matarmenningar, höfuðborg Toskana héraðs og hvergi betra að upplifa það besta sem Ítalía hefur upp á að bjóða í mat og drykk.
Í Flórens nýtur þú þess að heimsækja Galleria dell’Accademia undir leiðsögn Þórhalls Heimissonar en það er listasafn sem meðal annars geymir styttuna Davíð eftir Michelangelo um leið og þú færð tækifæri til að ganga um hinar fornu götur þessarar ljúfu borgar, sækja heim markaðinn, kíkja í búðirnar á Piazza Santo Spirito og njóta fegurðar dómkirkjunnar Santa Maria Del Fiore og umhverfis hennar.
Einn af hápunktum ferðarinnar er heilsdags matar- og vínferð til hins undurfagra Toskana héraðs.
Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi
Flogið með Icelandair og lent á FCO flugvellinum í Róm í eftirmiðdaginn um kl 14:35. Tímamismunur eru +2 klst. Þórhallur tekur á móti hópnum á flugvellinum og ekið er á hótel Grand Hotel Adriatico sem er í hjarta Flórens þar sem dvalið er í 5 nætur. Þórhallur nýtir tímann til að fara yfir dagana sem eru í vændum og segja frá því sem fyrir augu ber. Rútuferðin til Flórens tekur rúmar þrjár klukkustundir og er stoppað einu sinni á leiðinni svo fólk geti farið á salerni og fengið sér hressingu. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu við komu
Máltíðir innifaldar: Kvöldverður.
Fyrri dagur skoðunarferða um Flórens – Akademían
Sérstakar hámarksreglur gilda um stærð hópa og verður hópnum því skipt í tvo hluta á mismunandi tímum. Hópur 1 fer í skoðunarferðina að morgni en hópur 2 síðdegis. Á meðan nýtur hinn hópurinn frjáls tíma í Flórens.
Minni hópar gera okkur kleift að veita betri og persónulegri þjónustu, auk þess sem auðveldara er að njóta leiðsagnar og fræðslu um sögu og menningu borgarinnar.
Hópur 1: Morgunferð
Hópur 2: Eftirmiðdags ferð
Lýsing á ferðinni:
Gengið er frá hótelinu og leiðir Þórhallur hópinn um sögulega miðborg Flórensar. Á leiðinni verður gengið um nokkrar af helstu perlum borgarinnar, meðal annars um San Lorenzo-hverfið, framhjá hinum líflega markaði þar, og áfram að Piazza della Signoria, einu glæsilegasta torgi Flórensar þar sem finna má fjölmargar sögufrægar byggingar og höggmyndir.
Að því loknu heimsækir hópurinn Galleria dell’Accademia, sem er staðsett í hjarta borgarinnar. Þar er að finna einhver þekktustu listaverk sögunnar og þeirra fremst höggmyndir Michelangelo, þar á meðal hina heimsfrægu Davíðsstyttu. Ekki síðra er safn gamalla og nýrra ítalskra málverka sem þar er að finna, auk safns gifsmynda eftir Lorenzo Bartolini og nemanda hans Luigi Pampaloni, svo fátt eitt sé nefnt.
Skoðunarferðin tekur um 3 tíma.
Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Frjáls dagur í Flórens
Í dag gefst tækifæri til að njóta Flórens á eigin vegum. Hægt er að rölta um hinn fallega gamla bæ, skoða verslanir og markaði eða setjast niður á einhverju af þeim fjölmörgu kaffihúsum og veitingastöðum sem borgin hefur upp á að bjóða.
Margir nýta daginn til að fara í dagsferð til Pisa, sem er aðeins rúmlega klukkustundar lestarferð frá Flórens. Einnig er upplagt að heimsækja hið heimsfræga Uffizi-safn, sem hýsir eitt merkasta listasafn Ítalíu. Þar sem aðsókn er mikil er ráðlegt að bóka aðgangsmiða með góðum fyrirvara.
Þeir sem vilja njóta stórbrotins útsýnis yfir borgina geta gengið eða tekið strætó upp að Piazzale Michelangelo, sem er einn vinsælasti útsýnisstaður Flórensar. Þaðan blasir við einstakt útsýni yfir dómkirkjuna, Arno-fljótið og rauðu þökin sem einkenna borgina.
Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Matar- og vínferð um Toskana-hérað
Lagt er af stað um kl 9 frá hótelinu í Flórens og ekið út í hið fallega Toskana-hérað. Fyrsti viðkomustaður dagsins er hinn heillandi miðaldabær San Gimignano, þekktur fyrir steinturna sína, þröngar götur og einstakt andrúmsloft. Þar gefst tími til að ganga um bæinn, njóta útsýnisins yfir vínekrur og kynnast sögu og menningu staðarins ásamt staðarleiðsögumanni.
Að heimsókninni lokinni er ekið áfram að vínbúgarði í nágrenninu þar sem við erum boðin velkomin af heimamönnum. Þar fáum við fræðslu um vínrækt og vínframleiðslu á svæðinu og njótum vínsmökkunar á ljúfum vínum Toskana-héraðs. Í kjölfarið er boðið upp á ljúffengan hádegismat, unninn úr ferskum og staðbundnum hráefnum, þar sem matarmenning svæðisins fær að njóta sín til fulls.
Seinnipart dags er ekið til baka til Flórens og komið á hótel seinni hluta dags.
Kvöldið er frjálst til að njóta borgarinnar á eigin vegum.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður og vínsmökkun.

Seinni dagur skoðunarferða um Flórens
Sérstakar hámarksreglur gilda um stærð hópa og því höldum við hópaskiptingu einnig þennan dag. Hópur 1 fer í skoðunarferðina að morgni en hópur 2 síðdegis. Á meðan nýtur hinn hópurinn frjáls tíma í Flórens.
Hópur 1: Morgunferð
Hópur 2: Síðdegisferð
Í þessari ferð kynnumst við einu merkasta kennileiti Flórensar, Dómkirkjunni Santa Maria del Fiore, sem er meðal glæsilegustu kirkna heims. Heimsóknin nær yfir allt dómkirkjusvæðið, þar á meðal sjálfa kirkjuna, skírnarkapelluna (Battistero) með sínum frægu bronshliðum, Opera del Duomo-safnið, þar sem varðveitt eru mörg af upprunalegum listaverkum dómkirkjunnar, og að lokum hvelfingu Brunelleschis.
Fyrir þá sem treysta sér til endar ferðin með göngu upp í hina heimsfrægu hvelfingu þar sem gestir fá einstakt tækifæri til að skoða meistaraverk Brunelleschis að innan og njóta stórbrotins útsýnis yfir , Arno-dalinn og hinar fallegu sveitir Toskanahéraðs.
Skoðunarferðin tekur um 3 klukkustundir.
Um kvöldið er sameiginlegur hátíðarkvöldverður á veitingahúsi í gamla bænum. Gengið er saman frá hótelinu ásamt Þórhalli
Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.
Heimfarardagur
Lagt verður af stað með rútu á flugvöllinn um kl. 07:30 og komið þangað 3 klst. síðar. Innritun í flug Icelandair, FI 563 sem er áætlað kl. 14:45 og lendir í Keflavík kl. 18:40 að íslenskum tíma.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð
Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.
Verð: 379.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 105.000 kr.
Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Flug Icelandair til Rómar fram og til baka – 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
• Gisting í 5 nætur á Grand Hotel Adriatico 4* með morgunverði.
• Máltíðir samkvæmt ferðalýsingu.
• Skoðunarferð í dómkirkjuna Santa Maria del Fiore og aðgöngumiði sem gildir í 3 daga í alla hluta kirkjunnar ásamt aðgangi upp í kúpulinn fyrir þá sem treysta sér upp.
• Skoðunarferð í Galleria dell’Accademia.
• Heilsdagsferð um Toskana, vínsmökkun og veglegur hádegisverður.
• Allur flutningur og skoðunarferðir, þ.m.t. aðgangseyrir samkvæmt ferðaáætluninni.
• Íslensk fararstjórn og leiðsögn í öllum skoðunarferðum ásamt heyrnartólum.
• Rútuakstur frá flugvelli að hóteli og til baka.
Grand Hotel Adriatico ★★★★
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar






































