Fjölbreytileiki í menningu, tungumálum og landslagi einkennir Indland ásamt töfrandi sögu og litríkum fatnaði.
Fjölbreytileiki í menningu, tungumálum og landslagi einkennir Indland ásamt töfrandi sögu og litríkum fatnaði.

Stígðu inn í annan heim þar sem tíminn virðist standa í stað og hver dagur leiðir þig dýpra inn í töfra Indlands. Á 14 dögum ferðu frá iðandi mannlífi Nýju-Delí yfir í marmaraskart Taj Mahal, áfram í villta náttúru Ranthambhore þar sem tígrisdýr svífa hljóðlega milli trjáa – og síðan inn í hjarta hins konunglega Rajasthan. Öll gisting í Indalandi er á 5* hótelum.

Rajasthan er stærsta fylki Indlands og er oft líst með orðunum. “Land of Maharajas“. Nafnið vísar til Maharaja, sem merkir „mikill konungur“ á sanskrít, og var titillinn notaður af voldugu konungunum sem ríktu yfir hinu fjölmörgu furstadæmum Rajasthan. Rajasthan er þekkt fyrir merkilega sögu sína, stórfengleg hallarsvæði, voldug virki og konunglega arfleifð. Þetta er ferðalag fyrir skynfærin, hjartað og söguna – þar sem hver borg segir sína ógleymanlegu sögu og skilur eftir sig spor í sál ferðalangsins.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Brottför með flugi Finnair AY0992 til Helsinki kl. 10:00 þar sem lent verður kl. 15:30 að staðartíma. Áfram verður flogið með Finnair AY0121 kl. 18:00 og lent í Delhi á Indlandi að morgni 20. febrúar kl. 06:05. Tímamismunur á Íslandi og Indlandi er +5 og hálf klukkustund.
Velkomin til Delhi!
Staðarleiðsögumaður tekur á móti hópnum á alþjóðaflugvellinum. Farið verður í skoðunarferð að Qutb Minar sem er ein af þekktustu minjum Indlands. Turninn var reistur sem sigurmerki fyrir sigur múslima á konungsríki Hindúa og til að tákna upphaf íslamskrar valdatíðar á svæðinu.
Hádegisverður snæddur áður en hópurinn bókar sig inn á hótel Leela Ambience 5* þar sem dvalið verður í tvær nætur. Eftir innritun á hótelið er frjáls dagur það sem eftir lifir dags. Delhi, höfuðborg Indlands, er borg sem gefur innsýn bæði í hið forna og nútímalega Indland. Hún er þriðja stærsta borg landsins og ein sú mest vaxandi í Asíu. Margar fornar rústir sem sjást víðsvegar um borgina eru þögul vitni um stórbrotna sögu hennar. Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Hádegis- og kvöldverður
Delhi
Eftir morgunverð er farið í skoðunarferð í líflegri höfuðborg Indlands, Delhi, þar sem forn saga mætir nútíma lífi. Gengið er um þröngar götur Gamla Delí og m.a. skoðum við Jama Masjid sem er ein stærsta og merkasta moska Indlands. Hún var byggð á tímum Mógúlveldisins og er fræg fyrir sína stórkostlegu byggingarlist og sögulegu þýðingu. Einnig heimsækjum við Chandni Chowk sem er eitt elsta og líflegasta markaðssvæði í Delhi. Það var upphaflega hannað á 17. öld af Shah Jahan, Mógúl keisaranum sem lét einnig byggja Taj Mahal. Chandni Chowk er frægt fyrir fjölda verslana, götumarkaði og söguleg minnismerki.
Síðan er haldið áfram til Nýja Delí, þar sem við skoðum helstu kennileiti þar á meðal eitt fyrsta grafhýsið á Indlandi, Humayun‘s Tomb, India Gate sem er stórkostlegt minnismerki sem var reist til minningar um indverska hermenn sem féllu í Fyrri heimsstyrjöldinni og Anglo-Afganastríðinu. Þá heimsækjum við Rashtrapati Bhavan, forsetahöll Indlands en höllin er jafnframt ein stærsta opinbera bygging heims og heimili forseta Indlands.
Eftir hádegisverð á Gulati Restaurant heimsækjum við Sikh temple, hof þar sem fólk af öllum trúarbrögðum og menningarheimum er boðið velkomið. Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun- hádegis- og kvöldverður
Delhi – Agra
Eftir morgunverð er ekið til Agra og tekur aksturinn um 4 klukkustundir. Agra er ein af merkustu borgum Indlands, þekkt um allan heim fyrir Taj Mahal, eitt frægasta og glæsilegasta byggingarverk sögunnar og eitt af sjö undrum nýja heimsins. Taj Mahal er glæsilegt marmarahof sem Shah Jahan lét reisa á 17. öld til minningar um eiginkonu sína, Mumtaz Mahal. Borgin Agra er staðsett við bakka Yamuna-fljóts og laðar að sér þúsundir ferðamanna á hverjum degi hvaðanæva að úr heiminum. Borgin hefur enn sterkan sögulegan blæ og heldur í arfleifð Mógúlanna með sínum stórbrotnu byggingum, handverki og menningu. Hádegisverður á The Salt Cafe Kitchen & Bar.
Að loknum hádegisverði innritar hópurinn sig á Double Tree by Hilton 5* þar sem dvalið verður í 2 nætur. Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður
Agra
Eftir morgunverð heimsækjum við Taj Mahal. Taj Mahal er stórkostlegt meistaraverk í byggingarlist og er yfirleitt aðalástæðan fyrir heimsókn ferðamanna til Agra. Taj Mahal var reist af Shah Jahan sem hvítmarmaraminnisvarði um hans ástkæru eiginkonu, Mumtaz Mahal. Það tók 22 ár að fullklára bygginguna sem var hönnuð og skipulögð af persneska arkitektinum Ustad Isa. Auk þess að vera ótrúlegt samspil hönnunar og fullkominnar samhverfu, er Taj Mahal einnig þekkt fyrir sín glæsilegu hvelfingarturnþök og fagurlega út skorna glugga. Bygginguna einkenna mörg falleg smáatriði, þar á meðal flókin innlagningarvinna (inlay work) úr steinum sem gefa byggingunni enn meiri sjarma. Hádegisverður á Pinch of Spice.
Eftir hádegisverð heimsækjum við Agra virkið. Virkið er byggt af hinum mikla Mógúlakeisara Akbar árið 1565 e.Kr. og er að mestu leyti úr rauðum sandsteini. Í hinum víðfeðmu sölum bergmála raddir liðinna alda og gestir upplifa ferð í gegnum tímann. Innan virkisins er hin myndræna Pearl Mosque sem er einn af helstu ferðamannastöðum borgarinnar Pearl Mosque er fallegur minnisvarði um menningu Mógúl-tímans, einfaldleika og friðsæld sem er mikilvægt í trúarlegum byggingum. Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun- hádegis- og kvöldverður
Agra – Ranthambore National Park
Eftir morgunverð er ekið til Ranthambore-þjóðgarðs með viðkomu í Fatehpur Sikri. Þessi sögufræga borg er staðsett um 40 km frá Agra og var byggð af Mógúlkeisaranum Akbar árið 1569. Hún var hins vegar yfirgefin eftir aðeins 15 ár vegna vatnsskorts. Fatehpur Sikri var höfuðborg Mógúlaveldisins frá 1570 til 1586 og er þekkt fyrir stórfenglega byggingarlist sem sameinar bæði hindúísk og íslömsk áhrif. Borgin er að mestu byggð úr rauðum sandsteini og helsta aðkomuleiðin er í gegnum hið glæsilega Buland Darwaja hlið sem er 53 metrar á hæð. Meðal merkustu bygginga eru:
Diwan-I-Am – Almenningsráðstefnusalur keisarans
Diwan-I-Khas – Einkafundurými keisarans
Panch Mahal – Fimm hæða höll með glæsilegum súlnagöngum
Jama Masjid – Ein stærsta moska þess tíma.
Hádegisverður á Bhanwar Vials Palace.
Að hádegisverði loknum heldur ferðin áfram til Ranthambore þjóðgarðsins. Eftir innritun á Tiger Den Resort hótelið geta gestir slakað á og kynnt sér svæðið.
Ranthambore þjóðgarðurinn er staðsettur á milli hinna hrjóstrugu Aravalli- og Vindhya hálanda og er eitt af fyrstu “Project Tiger” verndarsvæðunum á Indlandi. Þjóðgarðurinn er enn einn besti staðurinn í heiminum til að sjá tígrisdýr í sínu náttúrulega umhverfi. Garðurinn státar af stórbrotnu landslagi með vötnum, ám og klettasléttum þar sem einnig má finna fornar virkisleifar og yfirgefnar moskur. Allt þetta skapar hrífandi aðstæður fyrir dýraskoðun. Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður
Ranthambore National Park
Morgun- og eftirmiðdags safarí með enskumælandi náttúrufræðingi.
Eftir að hafa hresst sig við með te eða kaffi og kexi um morguninn leggur hópurinn af stað í fyrra safarí dagsins. Frá hóteli til þjóðgarðsins er um 10 mínútna akstur. Við heimkomu verður morgunverður og nokkrir tímar í afslöppun við sundlaugina, á gönguferð um svæðið eða hvað sem hugurinn girnist.
Morgunsafarí byrjar kl. 7 og stendur til kl. 10:30.
Eftirmiðdagssafarí byrjar kl. 14:00 og stendur til kl. 17:30.
Áhugavert er að náttúrufræðingar nota fyrst og fremst heyrn sína frekar en sjónina til að finna tígrisdýrin. Þegar hirtir og apar finna að tígrisdýr nálgast, gefa þau frá sér sérstakt viðvörunarhljóð sem vekur athygli villtra dýra og leiðsögumanna okkar á nálægð tígrisdýrsins. Næst munu leiðsögumennirnir áætla hvar líklegt er að sjá tígrisdýrin koma úr skóginum. Auk Bengal tígurs er mjög fjölbreytt dýra- og plöntulíf í garðinum. Tígrisdýraferðir fara yfirleitt fram við sólarupprás og sólsetur þegar stórir kettir eru á ferð, stundum við veiðar. Þess vegna er farið bæði að morgni og síðdegis til að fá sem besta upplifun í garðinum.
Hádegis- og kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður
Ranthambore National Park – Jaipur
Að loknum morgunverði er lagt af stað kl. 10:00 og ekið til Jaipur. Á leiðinni má sjá fjölmarga áhugaverða staði og fjölbreytt landslag Rajasthan sem einkennist af eyðimörkum, fjöllum og þurrum svæðum. Á leiðinni er snæddur hádegisverður á Rajasthani Midway Restaurant.
Við komuna til Jaipur er innritun á hótel V Sarovar Portico 5* þar sem gist er í 2 nætur. Kvöldverður snæddur á hótelinu.
Jaipur, lífleg höfuðborg Rajasthan, er almennt þekkt sem “The Pink City” vegna rósrauðra bygginganna í gamla bænum. Hún stendur á þurrum stöðuvatnsbotni, umkringd þurrum hæðum með virkjum og varnarmúrum. Borgin Jaipur er eitt besta dæmið um menningu og hefðir þessa svæðis. Á þessu svæði voru stórfengleg virki byggð, bæði til að sýna velgengni sem og til að hræða óvininn. Það var konungurinn Sawai Jai Singh II (1693-1743) sem lagði grunninn að borginni. Hann var einn af fáum konungum síns tíma sem hafði gott auga fyrir smáatriðum og mjög góðan skilning á vísindum. Þar sem borgin er höfuðborg norður-indverska ríkisins Rajasthan, speglar borgin allt það sem Rajasthan táknar, hvort sem það er menning, hefðir, samfélag og mikilvægast af öllu, fólkið. Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
Jaipur
Eftir morgunverð heimsækjum við Amber Fort þar sem farið er í fíla- eða jeppasafarí. Amber er klassískt, rómantískt Rajasthani virki og höll. Þrátt fyrir að múrar virkisins líti ekki fallega út að utan er annað upp á teningnum þegar inn er komið. Lítil málverk á veggjunum sýna veiðar og stríðsatriði, auk hátíða. Í Amber er hægt að komast í fílasafarí, þessi ferð á fílum, sem eru skreyttir fyrir ferðina, er ógleymanleg upplifun og eykur á upplifun um konunglegan lífsstíl Maharajanna. Inni í virkinu er að finna Jag Mandir (Hall of Victory). Inni í Jag Mandir er hið fræga Sheesh Mahal – Glerhöll eða Höll speglanna, herbergi með öllum fjórum veggjum og lofti klædd glitrandi speglum sem voru sérstaklega fluttir inn frá Belgíu á sínum tíma. Á leiðinni að Amber Fort verður gert stutt stopp fyrir myndatöku við Hawa Mahal – Palace of Winds eða Vindhöllina. Hádegisverður á The Royal Retreat Restaurant.
Eftir hádegisverð er borgarferð í Jaipur sem hefst með heimsókn í Maharaja’s City Palace, fyrrum heimili konungs, þar sem hluta hallarinnar hefur verið breytt í safn. Lítill hluti er enn notaður af konungsfjölskyldunni í Jaipur. Hluti safnsins kallast Armoury og hýsir mikið safn vopna s.s. byssur, sverð, riffla og hnífa. Einnig verður farið í heimsókn í Jantar Mantar, sem er stærsta steina- og marmarastjörnustöð í heimi. Í stöðinni er að finna 17 stór mælitæki og eru mörg þeirra enn í nothæfu ástandi. Kvöldmatur á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
Jaipur – Jodhpur
Brottför af hóteli kl. 08:30 og ekið sem leið liggur til Jodhpur eða „Bláu borgarinnar“ eins og hún er oft kölluð vegna fjölda húsa sem máluð eru í mismunandi bláum tónum. Aksturinn tekur um 5-6 klst. Akstursleiðin liggur í gegnum fallegt landslag Rajasthan þar sem fyrir augu ber m.a. eyðimerkurlandslag og litríkir smábæir. Hugsanlega sjáum við hjarðmenn með kameldýr á beit en mikið er af kameldýrum á þessu svæði. Á leiðinni snæðum við hádegismat á Megh Malhar Hotel. Við komuna til Jodhpur er innritun á hótel Novotel Accor þar sem gist er í 2 nætur en að henni lokinni er farið í gönguferð um Bláu borgina, þar sem ferðalangar upplifa ekta menningu og sögu Jodhpur. Að heimsækja lítt þekktu svæðin í Bláu borginni, sem fyllilega verðskulda heimsókn, mun skilja eftir sig ógleymanlega upplifun og minningar frá Jodhpur. Kvöldmatur á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
Jodhpur
Eftir morgunverð heimsækjum við hið glæsilega Mehrangarh virki sem þekur landsvæði upp á 486 hektara. Virkið er staðsett á um 122 hæð metra yfir borginni og var byggt um 1459 af Rajput-höfðingjanum Rao Jodha, þó flestar núverandi byggingarnar séu frá 17. öld. Innan virkisins eru nokkrar hallir sem eru þekktar fyrir einstakan arkitektúr, víðáttumikla garða, auk safns sem geymir ýmsar fornar minjar. Á öðrum hliðargarðinum má enn sjá merki um sprengjuskot eftir árásir herja frá Jaipur. Hádegisverður snæddur á Indigo.
Að hádegisverði loknum heimsækjum við Jaswant Thada, fallegt marmarahof sem reist var árið 1899 til minningar um Maharaja Jaswant Singh II. Minnisvarðinn er byggður úr hreinum hvítum marmara sem gefur byggingunni einstakan ljóma þegar sólin skín á hana. Á staðnum eru fallegir listmunir og málverk. Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun- hádegis- og kvöldverður.
Jodhpur – Udaipur
Brottför frá hótelinu kl. 09:30 og ekið til Udaipur, um sex klukkustunda akstur. Leiðin liggur um hæðótt og skógi vaxið landslag. Á leiðinni er stoppað til að snæða hádegisverð. Eftir hádegisverð heldur aksturinn til Udaipur áfram og á leiðinni má sjá falleg vötn og konunglegar hallir.
Eftir innritun á hótel Tatsaraasa Resort & Spa 5* förum við í einka bátsferð á Pichola-vatni og könnum litríka markaði og hof í gamla bænum. Borgin glæsilega – Udaipur er þekkt undir mörgum nöfnum, þar á meðal Borg sólarupprásarinnar, Gimsteinn Mewar og Borg vatnanna. Án efa ein rómantískasta borg Indlands, hún liggur milli glitrandi vatnanna og hinna fornu Aravalli-hálsa. Þrátt fyrir að vera ein stærsta borg Rajasthan, heldur Udaipur áfram að geisla af heillandi smábæjarstemningu. Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun- hádegis- og kvöldverður.
Udaipur
Eftir morgunverð er heimsókn í City Palace sem er staðsett á austurbakka Pichola-vatns og er einn vinsælasti áfangastaðurinn í Udaipur. City Palace er stór hallarsamstæða með fjórum aðalhöllum og mörgum smærri höllum. Þar er einnig safn með fjölbreyttum gripum. Frá svölum, turnum og hvelfingum hallarinnar er magnað útsýni yfir vatnið og borgina. Hallarsamstæðan var byggð fyrir framlag margra konunga Mewar-ættarinnar og heillar stórfengleg byggingarlist gesti. Hádegisverður á veitingastað við vatnið.
Eftir hádegisverð er heimsókn í Saheliyon-ki-Bari, sem er eitt fegursta og glæsilegasta svæði Udaipur, einnig kallað Garður heiðursmeyjanna. Garðurinn er þekktur fyrir marmaralistaverk og gosbrunna. Hann sameinar á fullkominn hátt indverskan og enskan byggingarstíl. Vatn gosbrunnanna kemur frá Fateh Sagar-vatni. Í miðju garðsins er lítið skýli með hvelfingu og þar er einnig rósagarður með yfir 100 tegundum af rósum sem gleðja gesti. Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun- hádegis- og kvöldverður.
Udaipur – Delhi
Eftir morgunverð er ekið til Udaipur-flugvallar og innritað í flug til Delhi með Indigo Airline kl. 15:05 með komu til Delhi klukkan 16:25. Hádegisverður er snæddur á veitingastað á flugvellinum. Við komuna til Delhi er akstur og innritun á hótel Leela Ambience 5*. Kvöldverður á hótelinu.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
Delhi – Helsinki
Brottför eldsnemma af hótelinu og ekið á alþjóðaflugvöllinn í Delhi þar sem innritað er í flug Finnair til Helsinki með brottför kl. 07:50. Lent í Helsinki um 14:10 og farið með rútu á gott 4* hótel. Frjáls dagur.
Heimferð
Brottför frá hótelinu kl. 11:00 og ekið á flugvöllinn til innritunar í flug Icelandair FI343 með brottför kl. 14:00. Áætluð heimkoma er kl. 15:55.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð
Sr. Þórhallur Heimisson verður fararstjóri í ferðinni. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005 og farið með fjölda hópa Íslendinga víða um heim.
Sædís Íva Elíasdóttir verður sr. Þórhalli til aðstoðar. Íva hefur ferðast víða og sér um framleiðslustjórn og utanumhald á fjölmörgum af ferðum Niko Travel Group.
Verð: 849.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 185.000 kr.
Greiða þarf 100.000.- kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko ehf. sem nálgast má á heimasíðu skrifstofunnar.
• Allt flug – allir skattar og gjöld
• Gisting í 13 nætur á 5* hótelum á Indlandi skv. ferðalýsingu.
• Gisting í Helskinki á 4* hóteli
• Morgun-, hádegis- og kvöldverðir eins og tilgreint er í ferðalýsingu.
• Skoðunarferðir skv. ferðalýsingu ásamt leiðsögumanni
• Allur rútuakstur skv. lýsingu
• Íslensk fararstjórn Þórhalls Heimissonar
Hótelin sem við gistum á
Leela Ambience 5* hótel
DoubleTree By Hilton Hotel Agra 5*
Tiger Den Resort 5*
V Sarovar Portico 5*
Novotel Jodhpur ITI Circle 5*
Tatsaraasa Resort & Spa 5*
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar








