Fullkomin blanda af skíðum, fjallalofti, Yoga, öndunaræfingum, góðum mat og afslöppun.

Í hraða nútímans er auðvelt að missa tengslin við líkamann og fara á sjálfstýringu. Í þessari vellíðunarferð gefst þér tækifæri til að stíga út úr amstri dagsins, færa athyglina inn á við og njóta þess að vera til staðar.
Við sameinum útivist, hreyfingu, endurheimt og slökun í einstöku fjallaumhverfi Livigno á Ítalíu.
Livigno er skíðaparadís fyrir þá sem vilja meira en bara skíði

Þar sameinast snjótryggar og góðar brekkur í notalegu ítölsku fjallaþorpi, einstök matarmenning og afslappað andrúmsloft. Þorpið stendur í 1.816 metra hæð og efstu brekkurnar ná nær 2.800 metrum. Hotel Lac Salin er einstaklega vel staðsett við rætur Carosello 3000-skíðasvæðisins og býður upp á þægilegt ski-in/ski-out. Á morgnana er aðeins örstutt ganga úr hótelinu að lyftunum og í lok dags er hægt að renna sér nánast alla leið heim. Þannig nýtist hver dagur á skíðunum sem best.

Ferðin hentar öllum sem vilja njóta útivistar og hreyfingar á sínum forsendum, hvort sem það er:

Fjallaskíði, svigskíði eða snjóbretti
• Gönguskíði
• Göngur á snjóþrúgum
• Léttir göngutúrar um fallegan miðbæ Livigno
• Mjúkt jógaflæði og Yin Yoga
• Bandvefslosun
• Leiddar öndunaræfingar
• Djúpslökun og endurheimt

Engin fyrri reynsla af Yoga er nauðsynleg og öll eru velkomin, óháð aldri, kyni eða bakgrunni.

Ferðalýsing

Flogið er með Icelandair FI 568 til Zurich kl. 7:20 og lent kl. 12:05. Ekið  með rútu til Livigno. Aksturstími er ca. 4,5 klst. Innritun á Hotel Lac Salin SPA & Mountain Resort ★★★★ sem er staðsett við skíðasvæðið sjálft, aðeins um 50 metrum frá fyrstu skíðalyftu.

Á hótelinu er meðal annars:

• Glæsileg heilsulind
• Upphituð útisundlaug
• Saltvatnslaug
• Heitir pottar
• Margar tegundir af saunum
• Rúmgóð herbergi
• Skíðaleiga á staðnum
• Upphitaðir skápar fyrir skíðabúnað

Heildræn upplifun sem sameinar ævintýri, vellíðan og endurheimt

Dagurinn hefst á brekkunum nánast við hóteldyrnar og endar á notalegu torgi þar sem ilmar af nýlöguðu kaffi, fersku pasta og ekta ítalskri matargerð.

Daglega verður boðið upp á valfrjálsar Yoga- og öndunaræfingar sem styðja við líkamlega og andlega heilsu.

Við leggjum áherslu á:
• Mjúkar og liðkandi æfingar
• Bætta öndun
• Endurheimt eftir útivist
• Slökun og jafnvægi

Þátttakendur hafa jafnframt ótakmarkaðan aðgang að heilsulind hótelsins allan tímann.

Heimferð

Brottför af hóteli snemma dags og ekið á flugvöllinn þar sem innritað er í flug Icelandair FI 569 með brottför kl. 13:00 og lendingu í Keflavík 16:00.°

Leiðbeinendur, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Eva K. Sigurðardóttir:
Eva er almennur læknir sem brennur fyrir auknum forvörnum og bættri lýðheilsu almennt. Hún er viðurkenndur Thermalist instructor frá Soeberg Institute, Wim Hof Method leiðbeinandi og HRV breathwork leiðbeinandi frá Aria Breath. Samhliða læknisstörfum síðastliðin ár hefur Eva haldið ýmis námskeið og fyrirlestra með áherslu á mátt andardráttarins til bættrar heilsu.

Silja Hrund Einarsdóttir:
Silja er með B.Sc. í umhverfis & byggingarverkfræði, viðurkenndur yogakennari (200klst yogakennaranám) og hefur einnig bætt við sig réttindum í Yin yoga, Bandvefslosun/Body Reroll og Yoga Nidra. Silja hefur undanfarin ár kennt Yoga bæði hérlendis og erlendis. Samhliða kaffihúsarekstri og Yoga kennslu stundar Silja daglega útiveru og Yoga til að minnka streitu og auka jafnvægi í daglegu lífi.

Verð á mann: 449.000 kr. 
Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 115.000 kr.

Greiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför með greiðslutengli sem sendur er í tölvupósti.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

  Beint flug með Icelandair fram og til baka, allir skattar og gjöld
  23 kg innrituð taska og handfarangur
  Rútuferðir til og frá flugvelli
  7 nætur á Hotel Lac Salin Spa & Mountain Resort 4*
  Veglegur morgunverður alla daga
  4ra rétta kvöldverður alla daga
  Daglegar Yoga- og öndunaræfingar
  Aðgangur að heilsulind og spa
  Sloppur, inniskór og saunahandklæði
  Vínsmökkun
  Upphituð skíðageymsla
  Gjaldfrjálsir viðburðir á vegum hótelsins (snjóþrúgur, skautar, sleðaferðir o.fl.)
  Bagbee þjónusta fyrir alla sem gista á höfuðborgarsvæðinu eða í Reykjanesbæ nóttina fyrir brottför.
  Aðgangur að hraðhliði (Fast track) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega).

Ekki innifalið
  Skíðapassi
  Skíðaleiga
  Skíðakennsla
  Farangursgjald fyrir eigin skíðabúnað
  Sérmeðferðir í heilsulind
  Hádegisverðir

Hótelið sem við dveljumst á

Lac Salin SPA & Mountain Resort ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.