Kolumbus Ævintýraferðir bjóða nú enn eina spennandi hópferð til Japan. Flogið verður með Finnair alla leið til Tokyo með viðkomu í Helsinki.

Þessi ævintýraferð er blanda af einstöku borgarlífi, aldagamalli menningu, trúarbrögðum, magnaðri náttúru og mun jafnframt gefa okkur innsýn í nútímalegan menningarheim sem hvergi á sinn líka.

Kolumbus Ævintýraferðir bjóða nú enn eina spennandi hópferð til Japan. Flogið verður með Finnair alla leið til Tokyo með viðkomu í Helsinki.
Þessi ævintýraferð er blanda af einstöku borgarlífi, aldagamalli menningu, trúarbrögðum, magnaðri náttúru og mun jafnframt gefa okkur innsýn í nútímalegan menningarheim sem hvergi á sinn líka.

Við ferðumst vítt og breitt um Japan með Shinkansen (ofurhraðlestinni) en dveljum fyrstu næturnar í TOKYO, einni af stærstu borgum veraldar með sín ólíku og spennandi andlit. Heimsækjum Fuji fjall og Kawaguchi vatnið, förum til gömlu keisaraborgarinnar KYOTO og NARA, skoðum fegursta kastalann í Japan og fögru garðana í HIMEJI. Síðan liggur leið hópsins til HIROSHIMA, borgarinnar sem hvarf að mestu en reis aftur,  förum út á MIYJIMA eyju og skoðum Buddha hofin og hið magnaða „Fljótandi hofhlið“. Við endum ferðina í OSAKA, næststærstu borg Japans þar sem við kynnumst töfrum þessarar kraftmiklu borgar þar sem hjarta japanskra viðskipta slær. Þar skoðum við áhugaverðustu staði og byggingar borgarinnar og förum í stærsta sjávardýrasafn í heimi, OSAKA AQUARIUM KAIUKAN.

Ferðamáti

Í þessari ævintýraferð okkar um Japan leitumst við við að upplifa landið og þjóðfélagið á svipaðan máta og heimamenn gera. Við ferðumst mest með lestum og trillum töskunum okkar sjálf milli lestarstöðva og hótela sem alltaf eru í stuttu göngufæri. Við mælum því með einni meðalstórri ferðatösku og bakpoka á mann. Hótelin okkar eru 3–4 stjörnu, vel staðsett og með vel búin herbergi 20–24m2 að stærð, en það er algengasta stærð herbergja á japönskum hótelum fyrir viðskiptaferðalanga og almenna ferðamenn.

Nauðsynlegt er að þátttakendur séu góðir til gangs.

Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi 

Flogið er með Finnair til Helsinki kl. 08:35 og lent kl. 15:00. Brottför frá Helsinki til Tokyo er kl. 18:30 og lent á Haneda-flugvelli kl.13:50 að staðartíma daginn eftir (11. maí).

Komið til Tokyo

Lent í Tokyo (HND) kl. 13:50. Ekið á Shinawgawa Prince Hotel, miðsvæðis í Tokyo þar sem gist verður fyrstu fjórar næturnar. Eftir innritun á hótel er dagurinn frjáls. Tilvalið að skoða sig um í grennd við hótelið, líta í verslanir og fá tilfinningu fyrir mannlífinu í þessari stórborg þar sem búa um 14 milljónir manna (37 milljónir manna á höfuðborgarsvæðinu öllu).

Skoðunarferð um Tokyo

Heilsdags skoðunarferð með lestum um Tokyo. Brottför frá hóteli um kl. 10:00.

Við skoðum Harajuku, borgarhluta þar sem ótrúleg unglingastíska og menning ráða ríkjum. Hjarta Harajuku er án efa Takeshita-stræti og hliðargötur út frá því. Meðfram götunum eru lífstíls, fata- og tískuverslanir, verslanir með notuð föt og fjölbreyttir veitingastaðir. – Í Meiji-hofinu, kynnumst við algjörri andstæðu við ysinn og þysinn í Harajuku. Meiji-hofið, eitt af frægustu hofum Tokyoborgar, var reist árið 1920 til að varðveita í helgidómi anda Meiji keisara og Shoken keisaraynju, eiginkonu hans. Ólíkt öðrum erilsömum helgistöðum í Asíu er Meiji-hofið friðsæll og kyrrlátur tilbeiðslustaður, umlukið þéttum skógi með meira 120.000 trjám. Líkt og Central Park í New York er Meiji-hofið og skógurinn umhverfis það eins og náttúruleg vin í steinsteyptri veröld allt um kring.

Við ljúkum þessari hálfs dags ferð með því að heimsækja vinsælasta verslunar- og afþreyingarhverfið í Tokyo, Shibuya. Hér gefst tækifæri til að fara yfir heimsfrægt göngubrauta­torgið  í Shibuya. Fullyrt er að á grænu ljósi á hinu heimsfræga Scramble Crossing sem eru fjölmennustu gatnamót í heimi, streymi allt að 2.500 manns eftir gangbrautunum á hverjum tíma.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður og kvöldverður

Fuji fjall og Kawaguchi-vatn

Dagsferð með rútu til Fuji-fjalls. Brottför frá hóteli um kl. 09:00.

Fuji-fjall og Kawaguchi-vatn eru um 140 km í suðvestur af Toyko.

Fyrsti áfangastaður okkar er við Oshino Hakkai uppsprettulindirnar en síðan er haldið að hinu undurfagra Kawaguchi-vatni. Það er annað stærsta af Fuji-vötnunum fimm. Hér njótum við þess ekki aðeins að horfa til Fuji-fjalls af norðurströnd vatnsins og upplifa japanska náttúru í allri sinni vordýrð heldur gefst nægur tími til að rölta meðfram vatnsbakk­anum, bregða sér í skemmtisiglingu út á mitt vatnið eða taka kláf upp á Tenjo-fjall og virða þar fyrir sér ógleymanlegt útsýnið. Áfram höldum við og heimsækjum nú afar fallegt lítið þorp, Saiko Iyashi-no-Sato sem er í klassískum japönskum stíl. Ógleymanleg heimsókn þar sem Fuji-fjall trónir yfir þessu litla fallega þorpi.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Tokyo

Skoðunarferð með lestum um Tokyo. Brottför frá hóteli um kl. 09:00.

Við byrjum ferðina á því að heimsækja eina af frægustu nútímabygg­ingunum í Tokyo, Tokyo Sky Tree. Lokið var við að reisa Himnatréð í Tokyo árið 2012 og það er hæsta bygging í Japan. Við förum upp á fyrstu útsýnissvalir (350 m) og njótum þess að sjá yfir stórborgina og til Fuji-fjalls í 100 km fjarlægð. Næst skoðum við okkur um í gamla miðbænum í Tokyo, Asakusa og Ueno, göngum niður verslunar­götuna frægu NakamiseAsakusa Kannon musterinu (Sensoji-hofinu), elsta og fjölsóttasta búddhahofinu í Tokyo. Við ljúkum ferðinni í Ueno með gönguferð um Ueno-garð og kynnumst loks erli og umstangi á einum af frægustu mörkuðum í Tokyo, Ameya-Yokocho markaðnum. 

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Kyoto

Haldið til Kyoto. Brottför frá hóteli um kl. 10:00.

Við ferðumst með háhraðalest (Shinkansen) til Kyoto og leiðin liggur m.a. fram hjá Fuji-fjalli. Eftir innritun á Richmond Hotel Premier Kyoto Ekimae förum við í hálfs dags ferð um borgina. Við höldum til Arashiyama sem að flestra dómi er annað áhugaverðasta svæðið í Kyoto. Helsta aðdráttaraflið á svæðinu er Bamb­us-skógurinn í Arashyiama. Þangað leggja flestir ferðamenn leið sína og ekki að ástæðulausu: Engu líkara en verið sé í öðrum heimi þegar staðið er inn á milli himinhárra bambusstilkanna. Við heimsækjum einnig Tenryuji-musterið. Þetta fornfræga musteri var reist árið 1339 og er talið mikilvægasta musterið í Arashiyama. Umhverfis musterið er yndisfagur japanskur garður, einn sá fegursti í Kyoto.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Kyoto

Hálfsdagsferð með lestum um Kyoto. Brottför frá hóteli um kl. 09:00.

Við skoðum fyrst Nijo-kastala. Þessi sögufrægi kastali var reistur árið 1603 og var aðsetur Tokugawa Ieyasu, fyrsta yfirhershöfðingja (shogun) Edo-tímabilsins (1603-1867). Byggingar kastalans þykja best varðveittu dæmin um húsagerðarlist kastala-halla á öldum lénsskipulags í Japan. Göngum um hið myndræna Pontocho stræti til Gion (Geishu-hverfisins) og hins forna Yasaka-hofs. Gion er hið víðkunna geishu-hverfi í Kyoto. Hér má hverfa aftur í tímann og sjá fyrir sér hvernig umhorfs var í Kyoto fyrr á öldum. Ef heppnin er með gætum við komið auga á raunverulega geishu á gangi eftir einhverju strætinu. Frjáls tími í eftirmiðdaginn.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Nara

Dagferð með rútu til Nara. Brottför frá hóteli um kl. 09:00.

Þegar komið er til Nara röltum við um Naragarðinn fræga og fylgjumst með villtu dádýrunum sem eru í hundruðavís í þessari vin þar sem þau blanda gjarnan geði við okkur gestina. Þá heimsækjum við Todaiji musterið og Kasugahofið, staði sem eru báðir á menningarminjaskrá UNESCO. Todaiji musterið var reist að skipun Shomu keisara árið 752 og er talið eitt af merkustu búddhamusterum í Japan. Stóri Buddha-salurinn í musterinu var áður fyrr stærsta timburmannvirki í heimi. Í salnum er geysistór 16 metra há bronsstytta af Buddha en í styttunni eru meira en 400 tonn af bronsi og 130 kíló af gulli. Ekki langt frá Todaiji musterinu er Kasugahofið. Þetta sögufræga hof er merkasta og mikilsvægasta hofið í hinni fornu höfuðborg Nara. Hofið er víðfrægt fyrir fallegar luktir sem trúariðkendur hafa gefið til musterisins. Bronsluktir, svo hundruðum skiptir, hanga utan á bygg­ingunum og meðfram göngustígum að musterinu eru fjölmargar mosavaxnar steinluktir.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Himeji

Brottför frá hóteli um kl. 10:00 og ferðast með háhraðalest frá Kyoto til Himeji.

Eftir innritun á Daiwa Roynet Hotel Himeji heimsækjum við hinn stórfenglega Himeji-kastala sem talinn er besta dæmið um hefðbundna japanska kastalabygg­ingu frá fyrri tíð. Kastalinn, sem gengur einnig undir nafninu „Kastali hvíta hegrans“, er einn af tólf upprunalegu köstulunum í Japan og þykir glæsi­legastur þeirra allra. Við hliðina á kastalanum er næsti áfangastaður okkar, japanski garðurinn Kokoen. Garðurinn er í reynd níu aðskildir garðar, hannaðir eftir mismunandi stílbrigðum frá Edotímabilinu.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Hiroshima

Brottför frá hóteli um kl. 09:30 og ferðast með háhraðalest frá Himeji til Hiroshima.

Eftir að komið er til Hiroshima og innritun á Daiwa Roynet Hotel Hiroshima-ekimae förum við í hálfsdags skoðunarferð og heimsækjum hið áhrifamikla Friðarminningarsafn, Friðarminnigargarðinn, Atómsprengju­hvelfinguna og staðinn sem var beint fyrir neðan kjarnorkusprengjuna þegar hún sprakk í 600 m hæð. Hér sjáum við með eigin augum afleiðingar kjarnorku­sprengjunnar sem varpað var á Hiroshima 6. ágúst árið 1945. Þessi heimsókn lætur engan ósnortinn.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Miyajima-eyja

Dagsferð með lest og báti til Miyajima-eyjar. Brottför frá hóteli um kl. 09:30.

Þegar komið er til Miyajima-eyjar skoðum við fyrst hið heimsfræga Itsukushima-hof. Þetta stórfenglega hof er þekktast fyrir hið „fljótandi hlið“ að hofinu (jap. torii) sem virðist fljóta á öldunum á flóði. Næst heimsækjum við Daisho-in musterið, fallegt búddhamusteri, eitt af höfuðmusterum Shingon-búddhadóms. Musterið stendur við rætur Misenfjalls og þar má skoða margar sögulegar byggingar, styttur og önnur trúarleg verk. Mikil ostrurækt er í kringum eyjuna og því tilvalið fyrir ostruunnendur að heimsækja einhvern þeirra mörgu veitingastaða sem bjóða ostrur beint upp úr hafinu.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Osaka

Brottför frá hóteli um kl. 11:00 og ferðast með Shinkansen háhraðalest til Osaka.

Eftir innritun á DEL style Osaka Shinsaibashi hótelið verjum við síðdeginu í hálfsdags skoðunarferð um miðborgina og kíkjum meðal annars á mikilfenglegar verslunargötur s.s. Shinsaibashi og Namba.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Dagsferð um Osaka

Brottför frá hóteli um kl. 09:30 í hálfsdagsferð með lestum um Osaka.

Við heimsækjum Kaiyukan sjávardýrasafnið í Osaka, stærsta sjávar­dýrasafn í heimi. Þetta gríðarmikla sjávadýrasafn er eitt helsta aðdrátt­araflið í Osaka og þar má sjá búsvæði sjávardýra í Kyrrahafi og víðar í risastórum vatnsgeymum. Í safninu er gríðarlegt úrval dýra og stórkostleg umgjörð þar sem dýrin eru í fjölbreyttu náttúrulegu umhverfi.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður og kvöldverður

Heimför

Útritun af hóteli kl. 11:00.

Frjáls dagur í Osaka og tilvalið að fara upp í Umeda Sky Building eða eða kíkja í verslanir.

Haldið út á Kansai-flugvöll (KIX) þaðan sem flogið verður með Finnari til Helsinki  kl. 23:25 og lent síðan í Keflavík kl. 07:50 á staðartíma næsta morgun (24. maí) eftir stutt stopp í Helsinki.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður

Fararstjóri, verð, greiðslur og innifalið

Draupnir Rúnar Draupnisson Norðfirðingurinn sem hefur ferðast til 134 landa í heiminum. Hann er fjölmenntaður, m.a. sem kennari og leiðsögumaður. Draupnir býr að langri reynslu sem fararstjóri með fjölda hópa víðs vegar um heim.

Verð á mann: 1.050.000 kr. Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 95.000 kr.

Geiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför, með greiðslutengli sem sendur er í tölvupósti.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

• Flug fram og til baka til Japan auk flugvallaskatta
• Gisting og morgunverður á völdum gæðahótelum samkvæmt ferðatilhögun
• Tveir kvöldverðir
• Allar ferðir innan Japan, þ.m.t. með háhraðalestinni („Shinkansen“)
• Allur aðgangur að söfnum og ferðamannastöðum
• Íslensk fararstjórn
• Staðarleiðsögumaður í Japan

Hótelin

Tokyo: Shinwgawa Prince Hotel
Kyoto: Richmond Hotel Premier Kyoto Ekimae
Himeji: Daiwa Roynet Hotel
Hiroshima: Daiwa Roynet Hotel Hiroshima Ekimae
Osaka: Daiwa Roynet Hotel DEL style Shinsaibashi

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.