Napólí, Sorrento, Amalfíströndin og Pompei

Napólí er án efa ein af áhugaverðustu borgum Ítalíu, iðandi af mannlífi á hverju götuhorni, mörkuðum, og veitingahúsum. Campania hérað er rómað fyrir matarmenningu, enda fæðingarstaður pizzunnar, og þekkt fyrir dásamlegu Mozzarella Osta og sítrónuræktina svo eitthvað sé nefnt. 

Í þessari einstöku ferð munum við ekki aðeins heimsækja Napólí sjálfa, heldur einnig fjölmarga áhugaverða staði í grennd við borgina. Þar má nefna Pompei sem er á heimsminjaskrá UNESCO, Amalfíströndina, ásamt því að fara í dagsferð til Sorrento sem skartar fegurð sem hefur gert hana að einni þekktustu perlu Amalfí strandarinnar.

Örlygur Atli Guðmundsson er fararstjóri í þessari ferð og fræðir gesti um sögu og menningu svæðisins og heimsækir með þeim heillandi þorp, sólrík torg og staði þar sem má njóta útsýnis yfir landið og miðin. Töfrandi ferð um eitt fallegasta svæðið við Miðjarðarhaf sem skartar sínu fegursta í landslagi, matargerð og mannlífi. Sannkölluð perla Ítalíu.

Ferðatilhögun

Komudagur

Kl. 07:50. Flug Icelandair FI-930 frá Keflavík til Rómar. Fararstjórinn Örlygur Atli Guðmundsson tekur á móti hópnum á flugvellinum í Róm og ekur með honum í rútu á Hótelið okkar Hotel Royal Continental í Napoli sem er staðsett á einstökum stað beint við höfnina og með útsýni yfir hafið.

Á leiðinni verður stoppað og hægt að kaupa sér léttan kvöldverð.

Við komum svo að kveldi til Sorrento og gistum á Grand Hotel Cesare Augusto, sem státar af þaksundlaug og glæsilegu útsýni yfir Vesúvíus.

Gönguferð um Napólí

Hótelið okkar er á frábærum stað við ströndina og í göngufæri frá miðbæ Napólí. Eftir morgunverð leggjum við af stað fótgangandi beint frá hótelinu niður í bæ, þar sem Örlygur Atli segir okkur frá öllu því sem fyrir augu ber, allt frá konungshöllinni og kastalanum yfir í göngugöturnar í gamla bænum.

Gönguferðin endar við sjóinn, skammt frá hótelinu, á skemmtilegum stað í miðbænum þar sem hópurinn snæðir saman alvöru napólískan hádegisverð og er val um bæði pizzu og pasta að hætti heimamanna. 

Eftirmiðdagurinn er frjáls og leiðsögumaður veitir allar upplýsingar um það sem hægt er að gera og skoða.

Kvöldið er frjálst.

Amalfíströndin

Brottför frá hótelinu um morguninn í heilsdagsferð þar sem siglt er meðfram ströndum Amalfi-skagans. Ekið verður niður að höfninni í Salerno þar sem einkabátur bíður hópsins. Siglt verður frá Salerno til Positano og áfram til Amalfi þar sem hópurinn snæðir sameiginlegan hádegisverð við sjóinn, í framhaldinu er frjáls tími til að ganga um þann sögufræga bæ. Þeir sem hafa áhuga getað skoðað dómkirkjuna í fylgd með leiðsögumanni. Siglt er til baka til Salerno þar sem rúta bíður og ekið verður til baka til Napolí.

Kvöldið er frjálst.

Dagsferð til Sorrento

Dásamleg dagsferð þar sem náttúrufegurð og kyrrð við sjóinn mætast. Við keyrum suður með ströndinni frá Napólí. Á leiðinni gefst tækifæri til að njóta fallegs útsýnis yfir Vesúvíus og glitrandi Miðjarðarhafið. Við komum til hinnar sjarmerandi Sorrento sem er þekkt fyrir sítrónu ræktun, fallega gamla bæinn og hlýtt andrúmsloft. Þar fer hópurinn í stuttan og rólegan göngutúr um miðbæinn þar sem saga og menning Sorrento eru kynnt.

Við endum svo saman í hádegisverði undir sítrónutrjám á stað í hjarta miðbæjarins. Eftir hádegismat er frjálst tími til að ganga í búðir á göngugötunni og keyrt verður af stað til Napólí í eftirmiðdaginn.

Kvöldið er frjálst.

Pompei og hádegisverður í hlíðum Vesúvíusar

Brottför eftir morgunverð frá hótelinu í heilsdags ferð til Pompei þar sem gengið er um hina fornu borg sem grófst undir ösku og vikri þegar Vesúvíus gaus árið 79 e.Kr. Örlygur Atli leiðir ferðina ásamt staðarleiðsögumanni og lýsir því sem fyrir augu ber á þessum einstaka stað.

Eftir skoðunarferð dagsins verður ekið upp að hlíðum Vesúvíusar þar sem snæddur verður hádegismatur með stórbrotnu útsýni yfir Napólíflóann. Boðið verður upp á þriggja rétta léttan hádegisverð þar sem framreiddir eru árstíðabundnir réttir í einstakri náttúru.

Kvöldið er frjálst.

Heimferð

Lagt af stað frá hóteli eftir morgunverð og keyrt til FCO-flugvallarins í Róm. Þaðan verður flogið með flugi Icelandair FI-931 kl. 15:45 til Íslands. Lent í Keflavík kl. 18:35.

Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð

Örlygur Atli Guðmundsson verður fararstjóri í þessari ferð. Hann er kórstjóri kennari og fararstjóri sem hefur starfað sem leiðsögumaður/fararstjóri til fjölda ára bæði hér heima og erlendis samhliða tónlistar og kennslustöfum. Örlygur Atli er víðförull og hefur mikla reynslu af ferðalögum, fararstjórn og að vinna með stórum sem smáum hópum á öllum aldri.

Verð á mann: 389.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í eins manns herbergi er 95.000 kr.

Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

 Flug frá Keflavík til Rómar og til baka, allir skattar og gjöld
 23 kg innrituð taska
 Gisting á Hotel Royal Continental 4* með sjávarútsýni að hluta í Napoli í 5 nætur með morgunverði
 Allur rútuakstur til og frá flugvelli, hóteli og að öllum stöðum skv. ferðalýsingu
 4 hádegsiverðir
 Aðgöngumiðar, bátsferðir og þjónusta staðarleiðsögumanna skv. ferðalýsingu
 Íslensk fararstjórn og leiðsögn Þórhalls Heimissonar
Bagbee þjónusta fyrir alla sem gista á höfuðborgarsvæðinu eða í Reykjanesbæ nóttina fyrir brottför. Boðið er uppá að innrita farþega og sækja farangur þeirra degi fyrir brottför, þannig að hægt er að ganga beint að öryggishliði í Leifsstöð á brottfarardegi.

Hotel Royal Continental ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.