Nice höfuðborg Alpes-Maritimes héraðsins og stærsta borgin á Frönsku rívíerunni (Côte d’Azur) er heillandi blanda af líflegu borgarlífi, fallegri náttúru og ríkri menningu
Nice höfuðborg Alpes-Maritimes héraðsins og stærsta borgin á Frönsku rívíerunni (Côte d’Azur) er heillandi blanda af líflegu borgarlífi, fallegri náttúru og ríkri menningu. Borgin er þekkt fyrir sitt einstaka Miðjarðarhafsloftslag, glæsilega strandlengju og listræna arfleifð. Kolumbus ævintýraferðir bjóða upp á einstaka ferð á Frönsku rívíeruna, með íslenskri fararstjórn, þar sem farþegum gefst kostur á að heimsækja marga af fallegustu stöðum borgarinnar ásamt því að ferðast til og njóta fjölmargra þekktra staða í nágrenni borgarinnar. Má þar nefna dagsferð til Furstadæmisins Mónakó, ferð til Grasse, ilmvatnshöfuðborgar Frakklands og Cannes.
Gist er á Aston La Scala 4*. Hótelið er staðsett í miðbæ Nice, í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá Promenade des Anglais og ströndinni. Þetta gerir það mjög þægilegt fyrir þá sem vilja njóta strandarinnar, verslana og veitingastaða borgarinnar. Þá er einnig stutt í fjölmarga áhugaverða staði í borginni.
Ferðatilhögun
Flogið frá Íslandi til Nice
Flogið í beinu flugi með Icelandair FI560 kl. 08:20 og lent á NCE-flugvellinum hjá Nice um kl. 14:35. Fararstjórinn safnar hópnum saman og gengur með að rútu sem ekur ferðalöngum að Aston La Scala 4* þar sem dvalið verður í 7 nætur.
Máltíðir innifaldar: Kvöldverður.
Nice / Saint-Jean-Cap-Ferrat / Nice – heilsdagsferð
Eftir morgunverð er haldið í heilsdagsferð um hina víðfrægu Côte d’Azur (Bláströnd). Dagurinn hefst með skoðunarferð í rútu um Nice, borg á undurfögrum stað á milli fjalls og fjöru sem er þekkt fyrir fallegar baðstrendur, heillandi gamlan miðbæ og kjötkveðjuhátíðina. Ekið er m.a. eftir Promenade des Anglais sem sveigir meðfram einum fegursta flóa í heimi, Baie des Anges eða Englaflóa. Listamenn hafa verið gagnteknir af fegurðinni á þessum stað og friðsælu andrúmsloftinu. Í lokin á þessari skoðunarferð um Nice er rölt um gamla miðbæinn þar sem umferð bíla er bönnuð. Hér er gengið um falleg stræti meðfram húsum sem bera svip af einkennandi byggingarstíl í Provence. Aðalgatan nefnist Cours Saleya þar sem er m.a. dæmigerður blómamarkaður fyrir Provence og fjölmargir veitingastaðir og krár. Hádegisverður á veitingastað í Nice.
Að loknum hádegisverði er ekið upp í hæðirnar fyrir ofan Nice til að heimsækja Château de Crémat. Þar er að finna einstaklega fallegt umhverfi, umlukið stórbrotnu landslagi Côte d’Azur, og einstaka vínræktarhefð sem nær meira en heila öld aftur í tímann. Vínrækt hefur verið stunduð á Château de Crémat allt frá tímum Rómverja, á þessum einstaklega fallega stað milli sjávar og fjalla.
Château de Crémat gnæfir yfir Nice-flóa og þaðan er stórkostlegt útsýni yfir hina glæsilegu Côte d’Azur. Þessi ævintýralegi kastali hefur allt sem þarf til að verða goðsögn og telst til fegurstu gersema frönsku Rivíerunnar.
Kastalinn hefur verið innréttaður með húsgögnum sem áður voru á hinu fræga Ritz-hóteli í París. Hin glæsilegu húsgögn úr goðsagnakenndri svítu Coco Chanel hafa verið varðveitt og halda öllum sínum upprunalega sjarma. Farið verður í skoðunarferð um kastalann sem hefur verið endurnýjaður frá grunni og innréttaður með húsgögnum frá Ritz-hótelinu í París. Vínsmökkun að skoðunarferð lokinni og síðan haldið aftur á hótelið.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.
Nice / Grasse / Saint Paul de Vence / Nice – heilsdagsferð
Eftir morgunverð er lagt af stað til Grasse, ilmvatnshöfuðborgar Frakklands. Grasse er aðsetur sérfræðinga og kunnáttumanna í ilmvatnsgerð, sannkallaðra listamanna þegar kemur að því að setja saman og búa til ilmvötn. Upphaflega, á miðöldum, var Grasse víðkunn í Evrópu fyrir skinnaverkun, sútun og leðurhanskagerð. En leðrið lyktaði ekki vel eftir sútunina og aðalsmenn kvörtuðu undan því að fýla væri af hönskunum. Þá datt handverksmanni nokkrum í hug að dýfa nýsaumuðum hönskum ofan í ilmandi kjarnaolíur. Frá og með 16. öld voru ilmefni borin á nýja hanska og þar með hófst ilmefnagerð í Grasse og þróaðist smám saman í þá listiðngrein að blanda ilmvötn. Í Grasse heimsækjum við hina kunnu Fragonard ilmvatnagerð.
Frá Grasse verður ekið til Saint-Paul-de-Vence, smábæjar uppi á hæð sem girtur er múrum sem François I. lét reisa í byrjun 16. aldar. Gengið er um þröng og hrífandi strætin í Saint-Paul-de-Vence, frá Porte Royale að Suðurhliðinu. Saint-Paul er eflaust eitt af fegurstu þorpunum á Côte d’Azur, töfrandi staður sem hefur laðað til sín ótal kunna listamenn, málara, rithöfunda og ljóðskáld sem sumir hafa sest þar að. Hádegisverður á veitingastað í bænum. Sjá má nokkur af verkum þessara listamanna í Maeght-stofnuninni (aðgangseyrir innifalinn) sem geymir safn af málverkum, höggmyndum, teikningum og grafíkmyndum frá 20. öld. Að lokinni dvöl í Saint-Paul-de-Vance er ekið til baka til Nice.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.
Frjáls dagur í Nice
Tilvalið að rölta um og njóta þess sem borgin hefur upp á að bjóða.
Máltíðir innifaldar: Morgunverður.
Nice / Cannes / Nice – heilsdagsferð
Eftir morgunverð er ekið til Cannes þar sem farið verður í gönguferð um elsta hluta borgarinnar utan í og uppi á hæð við höfnina, Le Suquet–hverfið, með sínum þröngu, steinlögðu strætum, kirkju frá 16. öld og forngripasafninu Castre. Efst á hæðinni er frábært útsýni yfir borgina fyrir neðan, blátt hafið og Lérins-eyjar. Haldið verður áfram um þröngar göturnar að Forville-markaðnum og þaðan um húsasund umlukin trjám, þar til komið er niður að sjó.
Skoðunarferðin heldur síðan áfram fram hjá Palais des Festivals, þar sem ein virtasta og þekktasta kvikmyndahátíð heims, Kvikmyndahátíðin í Cannes, er haldin ár hvert. Ferðinni lýkur við Boulevard de la Croisette, hina frægu breiðgötu meðfram sjávarsíðunni. Þar verður stuttur frjáls tími til að njóta útsýnisins og umhverfisins.
Eftir hádegisverð á veitingastað í Cannes er haldið til baka til Nice með viðkomu í Antibes. Antibes er töfrandi strandbær á Frönsku rívíerunni, staður sem hefur laðað til sín og laðar enn til sín listamenn og stórstjörnur í tónlist og kvikmyndum og þar er haldin virt jasshátíð á hverju ári. Farið verður í gönguferð um bæinn. Picasso bjó hér um tíma og safn með verkum eftir hann er í Château Grimaldi. Bærinn á sér langa sögu og þar gnæfa yfir virkiskastalinn Fort Carré og Sarrasines-turnar, en samtíminn blasir við í Port Vauban, falleg höfn fyrir lúxusskútur og snekkjur. Eftir viðdvöl í Antibes verður svo ekið á hótelið í Nice.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.
Frjáls dagur í Nice
Tilvalið að rölta um og njóta þess sem borgin hefur upp á að bjóða.
Máltíðir innifaldar: Morgunverður.
Nice / Mónakó-Monte Carlo / Eze / Nice – heilsdagsferð
Eftir morgunverð er haldið í heilsdagsferð til Mónakó og ekið þangað eftir hinni kunnu Basse Corniche, neðstu Hlíðarbraut sem þræðir snarbrattar hlíðar upp frá sjónum, m.a. fram hjá Cap d’Ail, fallegu þorpi með glæsilegum einbýlishúsum.
Komið til Mónakó. Furstadæmið Mónakó er lítið borgríki þar sem fegurð, lúxus og vellystingar setja svip sinn á mannlífið. Ferðaþjónusta er stærsta tekjulind furstadæmisins og þar ræður nú ríkjum Albert II. prins, sonur leikkonunnar Grace Kelly og Rainiers fursta. Margt er einstakt og einkennandi fyrir Mónakó. Fyrir utan mállýskuna monégasque (sem tiltölulega fáir nota dagsdaglega, opinbert mál er franska) og staðbundna, ljúffenga rétti er þetta örlitla land einkum þekkt fyrir fallegar baðstrendur, spilavítið fræga og verslanir þar sem í boði eru munaðar- og merkjavara. Á meðal fjölsóttra ferðamannastaða í furstadæminu er Monte Carlo-hverfið, aðsetur ríka fólksins, þekkt fyrir glamúr og lystisemdir. Þar er hið fræga Carré d’Or (Gullna torgið), Monte Carlo-spilavítið og Café de Paris. Hópurinn snæðir hádegisverð á staðnum og að honum loknum er farið í gönguferð um Mónakó og leiðin liggur m.a. fram hjá furstahöllinni, dómkirkjunni, þar sem gröf Grace Kelly er, og litið er inn í mikilfenglegt sædýrasafnið, aðgangseyrir ekki innfalinn í verði ferðar. Að heimsókninni lokinni verður ekið aftur til Nice eftir Corniche-strandveginum. Á leiðinni verður stoppað í Èze og farið í stutta gönguferð um þetta forna miðaldaþorp, sem á rætur að rekja allt aftur til 10. aldar.
Gamli hluti Èze stendur hátt yfir sjónum og hefur varðveitt einstakan sjarma sinn í gegnum aldirnar. Þar má rölta um þröng og hlykkjótt stræti og sjá rústir miðaldakastalans, um leið og hægt er að njóta stórbrotins umhverfisins. Èze hefur lengi verið þekkt fyrir friðsæld og kyrrð og ýmsir þekktir einstaklingar hafa dvalið þar. Kunnastur er trúlega þýski heimspekingurinn Friedrich Nietzsche. Hann dvaldi á svæðinu á þeim tíma sem hann vann að verkinu Svo mælti Zarathustra (Thus Spake Zarathustra). Minningunni um veru Nietzsches á þessum slóðum er haldið á lofti með Chemin de Nietzsche, eða Nietzsche-stígnum, sem ber nafn heimspekingsins.
Komið síðdegis á hótelið í Nice.
Máltíðir innifaldar: Morgun og hádegisverður.
Brottför frá Nice
Eftir morgunverð er tilvalið að byrja síðasta daginn á Frönsku rívíerunni með því að rölta á Blómamarkaðinn í gamla bænum í Nice og hugsanlega kaupa þar eitthvað til minja um ferðina. Hádegisverður á veitingastað í nágrenni flugvallarins. Síðan er hópnum ekið á NCE flugvöllinn í Nice þar sem Icelandair vélin, FI561, tekur á loft heimleiðis til Íslands kl. 15:35. Lending á Íslandi áætluð um kl. 18:00.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.
Fararstjóri, verð, greiðslur og innifalið
Draupnir Rúnar Draupnisson
Norðfirðingurinn sem hefur ferðast til yfir 140 landa í heiminum. Hann er fjölmenntaður, m.a. sem kennari og leiðsögumaður. Draupnir býr að langri reynslu sem fararstjóri og hefur farið með fjölda hópa víðs vegar um heim.
Verð: kr. 539.000 á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er kr. 139.000.
Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu kolumbus.is
• Flug Icelandair – 23 kg. taska, handfarangurstaska, allir skattar og gjöld
• Gisting í 7 nætur á Aston La Scala 4* með morgunverði
• Máltíðir, morgun-, hádegis- og kvöldverðir eins og tilgreint er í ferðalýsingu. Vatn, vín- eða bjórglas ásamt kaffi fylgir máltíðum
• Skoðunarferðir skv. ferðalýsingu ásamt leiðsögumanni
• Allur rútuakstur skv. lýsingu
• Íslensk fararstjórn Draupnis Rúnars Draupnissonar
• Enskumælandi staðarleiðsögumaður
• Bagbee þjónusta fyrir alla sem gista á höfuðborgarsvæðinu eða í Reykjanesbæ nóttina fyrir brottför. Boðið er uppá að innrita farþega og sækja farangur þeirra degi fyrir brottför, þannig að hægt er að ganga beint að öryggishliði í Leifsstöð á brottfarardegi
• Aðgangur að hraðhliði (Fast track) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega)
Aston La Scala ★★★★
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar






















































