Víðáttur, kyrrlát vötn, tignarlegir firðir og líflegir bæir

Norðurslóðir Svíþjóðar, Finnlands og Noregs bjóða upp á heillandi heim þar sem víðáttur Lapplands, kyrrlát vötn, tignarlegir firðir og líflegir bæir mynda stórbrotna heild. Kynni af hreindýrum og sigling með MS Kong Harald gera þetta fjölbreytta ferðalag að eftirminnilegu ævintýri.

Kolumbus ævintýraferðir bjóða nú í fyrsta sinn upp á fjölbreytt ferðalag um norðlægar slóðir Svíþjóðar, Finnlands og Noregs, þar sem náttúra, mannlíf og sigling með MS Kong Harald fléttast saman. Við fljúgum um Stokkhólm til Luleå í Svíþjóð þar sem ævintýrið hefst og höldum þaðan um Rovaniemi og Inari í finnska Lapplandi til Kirkenes í Noregi. Þar tekur við nýr kafli ferðarinnar þegar við stígum um borð í skip MS Kong Harald og njótum siglingar meðfram norðurströnd Noregs til Tromsø. Þaðan liggur leiðin um Narvik til Kiruna í Svíþjóð. Þaðan fljúgum við aftur heim um Stokkhólm.

Ferðatilhögun

Komið til Luleå

Flogið með Icelandair FI 306 klukkan 07:35 og lent í Stokkhólmi um klukkan 12:45. Þaðan er flogið áfram með flugi SAS SK 012 klukkan 14:35 og lent í Luleå klukkan 15:55.

Við komuna til Luleå tekur enskumælandi staðarleiðsögumaður á móti hópnum og leiðir okkur að rútu sem ekur okkur á hótelið, Elite Stadshotellet Luleå 4* þar sem hópurinn innritar sig. Að því loknu er farið í tveggja klukkustunda gönguferð um borgina. Við kynnumst Luleå og fáum fyrstu innsýn í staðinn áður en við snæðum sameiginlegan kvöldverð á hótelinu.

Máltíðir innifaldar: Kvöldverður.

Frá Luleå til Rovaniemi

Að loknum morgunverði og útritun leggjum við af stað með rútu klukkan 08:30 og höldum til Rovaniemi í Finnlandi. Frá Luleå liggur akstursleiðin um norðurhluta Svíþjóðar að landamærabæjunum Haparanda og Tornio. Þar er farið yfir til Finnlands og haldið áfram inn til landsins að Rovaniemi í finnska Lapplandi. Á leiðinni snæðum við hádegisverð á veitingastaðnum Saihu, í þorpinu Hirvas.

Áfram er haldið og við komuna til Rovaniemi, skömmu síðar, tekur enskumælandi staðarleiðsögumaður á móti okkur og leiðir okkur um borgina. Að því loknu heimsækjum við hreindýrabúið Santa Claus Reindeer í Jólasveinaþorpinu, þar sem við kynnumst hreindýrunum.

Síðdegis förum við á hótelið, Arctic City Hotel Rovaniemi 4*, þar sem tími gefst til að koma sér fyrir og hvíla sig fram að kvöldverðinum sem bíður okkar klukkan 19:00 á veitingastaðnum Nili þar sem við fáum að upplifa mat í anda matargerðar Lapplands.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Til Inari og sigling á Inarivatni

Klukkan 10:00 höldum við áfram með rútu frá Rovaniemi til Inari. Leiðin frá Rovaniemi til Inari liggur norður um víðáttur finnska Lapplands, um Sodankylä, Saariselkä og Ivalo. Á leiðinni njótum við skóglendis og aflíðandi fjalla við Saariselkä, áður en komið er til Inari við samnefnt vatn. Hér gefst okkur tækifæri til að njóta norðlægrar náttúru úr rútunni — og með heppni sjáum við hreindýr á leiðinni. Gert verður gott stopp á leiðinni þar sem hægt er að kaupa létta hressingu og nýta snyrtiaðstöðu.

Komum um miðjan dag á Hotel Inari 4* og eftir að við höfum komið okkur fyrir förum við í siglingu á Inarivatni klukkan 17:00–19:30. Þar gefst okkur tækifæri til að njóta útsýnisins frá vatninu og eiga rólega stund.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Frá Inari til Kirkenes

Við leggjum af stað klukkan 09:00 og höldum með rútu til Kirkenes í Noregi. Á leiðinni verður gert stopp þar sem hægt er að kaupa létta hressingu og nýta snyrtiaðstöðu. Gist er á Thon Hotel Kirkenes 4*.

Klukkan 13:00 hefst hálfs dags skoðunarferð um Kirkenes með enskumælandi staðarleiðsögumanni. Ferðinni lýkur á svæði með veitingastöðum og kaffihúsum þar sem hver og einn getur valið sér stað fyrir kvöldverð á eigin vegum.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Um borð í MS Kong Harald

Eftir morgunverðinn og útritun ekur rútan okkur frá hótelinu að höfninni klukkan 10:00. Um klukkan 11:00 förum við um borð í MS Kong Harald og komum okkur fyrir áður en skipið leggur af stað til Tromsø klukkan 12:30.

Nú tekur við annar taktur á ferðalaginu. Við njótum siglingarinnar, fylgjumst með útsýninu og höfum tíma til að slaka á um borð. Gisting um borð í skipinu.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Sigling til Tromsø

Við verjum deginum um borð í MS Kong Harald og njótum áfram siglingarinnar til Tromsø. Dagurinn gefur svigrúm til hvíldar og til að fylgjast með landslaginu sem ber fyrir augu á leiðinni.

Skipið kemur til Tromsø klukkan 23:45. Við komuna tekur rúta á móti hópnum við höfnina og ekur okkur á hótel Radisson Blu Hotel Tromsø 4* þar sem gist verður í tvær nætur.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Tromsø og Íshafsdómkirkjan

Klukkan 9:00 leggjum við af stað í hálfs dags skoðunarferð með rútu og enskumælandi staðarleiðsögumanni. Við heimsækjum Íshafsdómkirkjuna, aðgangur er innifalinn. Í ferðinni förum veð einnig á nokkra útsýnisstaði þar sem við njótum útsýnis yfir firðina. Skoðunarferðinni lýkur á svæði með kaffihúsum og veitingastöðum, þar sem hægt er að snæða hádegisverð á eigin vegum. Það sem eftir lifir dags er frjálst.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Frá Tromsø til Narvik

Við kveðjum Tromsø og leggjum af stað með rútu klukkan 09:00 til Narvik. Samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir komu um klukkan 12:00. Á leiðinni verður eitt stopp þar sem hægt er að kaupa létta hressingu og nýta snyrtiaðstöðu. Gist er í tvær nætur á Quality Hotel Grand Royal 4*. Við komuna gefst tími til að koma sér fyrir og kvöldið er frjálst. Hver og einn getur því nýtt tímann eftir eigin höfði.
Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Narvik

Klukkan 09:00 hefst hálfs dags skoðunarferð um Narvik með rútu og enskumælandi staðarleiðsögumanni. Við kynnumst borginni, förum með kláfi og sjáum stórfenglegt útsýni.  Skoðunarferðinni lýkur um klukkan 12:00. Ferðin endar á svæði með veitingastöðum þar sem hægt er að snæða hádegisverð á eigin vegum. Síðdegis og um kvöldið er frjáls tími.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Frá Narvik til Kiruna

Lagt er af stað klukkan 10:00 með rútu frá Narvik til Kiruna í Svíþjóð. Á leiðinni verður gert stopp þar sem hægt er að kaupa létta hressingu og nýta snyrtiaðstöðu.

Við komuna til Kiruna komum við okkur fyrir á hótelinu Elite Hotel Frost 4* þar sem gist verður í tvær nætur. Kvöldið er frjálst til að njóta bæjarins eða hvíla sig eftir ferðalag dagsins.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Kiruna og lokakvöldverður

Að loknum morgunverði leggjum við af stað klukkan 09:00 í hálfs dags skoðunarferð um Kiruna með rútu og enskumælandi staðarleiðsögumanni. Tími verður gefinn svo fólk geti keypt sér hressingu í hádeginu. Klukkan 13:00 förum við í heimsókn í járngrýtisnámu LKAB sem er stærsta járngrýtisnáma heims neðanjarðar. Þar fer fram heillandi starfsemi, en málmgrýtið er unnið langt undir yfirborði jarðar með fjarstýrðum vélum og sjálfkeyrandi lestum. Námuvinnsla LKAB nær nú niður á 1.365 metra dýpi. Leiðsögumaður sýnir okkur um 20.000 fermetra gestasvæði í raunverulegu námuumhverfi. Þar varpa sýningar, kvikmyndir og vélar ljósi á námuvinnsluna og framleiðslu járns.

Klukkan 18:30 förum við með rútu frá hótelinu til Camp Ripan þar sem við snæðum sameiginlegan lokakvöldverð og rifjum upp upplifanir ferðalagsins. Að kvöldverði loknum er ekið aftur á hótelið.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Heimferð

Snemma morguns kveðjum við Kiruna. Rútan sækir okkur á hótelið klukkan 06:30 og ekur hópnum á flugvöllinn fyrir heimferðina. Flug SAS er klukkan 8:45 með millilendingu í Stokkhólmi þaðan sem við höldum áfram með flugi Icelandair klukkan 14:35 og lendum í Keflavík um klukkan 16:00.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Þórhallur Heimisson verður fararstjóri í ferðinni. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005 og farið með fjölda hópa Íslendinga víða um heim. 

Verð á mann: 695.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi. Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 129.000 kr.

Geiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka. 

Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

• Flug með Icelandair og SAS – 23 kg innrituð taska ásamt 8 kg handfarangurstösku, allir skattar og gjöld.
• Gisting í 10 nætur á 4ra stjörnu hótelum með morgunverði eins og fram kemur í ferðalýsingu.
• Sigling með MS Kong Harald og gisting 1 nótt ásamt fullu fæði.
• Hádegis- og kvöldverðir eins og tilgreint er í ferðalýsingu.
• Skoðunarferðir skv. ferðalýsingu ásamt leiðsögumanni.
• Allur rútuakstur skv. lýsingu.
• Íslensk fararstjórn Þórhalls Heimissonar.
• Enskumælandi leiðsögumenn.
• Bagbee þjónusta fyrir alla sem gista á höfuðborgarsvæðinu eða í Reykjanesbæ nóttina fyrir brottför. Boðið er uppá að innrita farþega og sækja farangur þeirra degi fyrir brottför, þannig að hægt er að ganga beint að öryggishliði í Leifsstöð á brottfarardegi.
• Aðgangur að hraðhliði (Fast track) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega).

Hótelin sem við dveljumst á

Elite Stadshotellet Luleå ★★★★
Arctic City Hotel Rovaniemi ★★★★
Hotel Inari ★★★★
Thon Hotel Kirkenes ★★★★
MS Kong Harald
Radisson Blu Hotel Tromsø ★★★★
Quality Hotel Grand Royal ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.