Suðurhluti Póllands er eitt fjölbreyttasta og mest heillandi svæði landsins, þar sem glæsilegir kastalar, sögurík borgarmenning og stórbrotin náttúra mynda ógleymanlega heild sem kemur sannarlega á óvart.

Kolumbus ævintýraferðir bjóða nú í annað sinn í spennandi ferð til Suður-Póllands. Við fljúgum til Wrocław, þar sem litskrúðugur gamli bærinn tekur á móti okkur. Þaðan liggur leiðin til Zakopane, þar sem fjallasjarminn og stórbrotið útsýni bíða okkar ásamt siglingu á Dunajec ánni. Við endum ferðina í Kraków, þar sem saga og menning mæta okkur við hvert fótmál. Við könnum undraveröld Wieliczka-saltnámanna neðanjarðar og heimsækjum Auschwitz-Birkenau, þar sem við minnumst fórnarlamba og kynnumst einum þungbærasta kafla sögunnar. Fjölbreytt ferð þar sem fallegar borgir, merk saga og glæsileg náttúra skapa ógleymanlegar minningar.

Gist er á 5 stjörnu lúxus hótelum.

Ferðatilhögun

Wrocław

Flogið er með SAS, flugi SK 596, til Kaupmannahafnar kl. 10:30 og lent kl. 15:35. Brottför frá Kaupmannahöfn með SAS, flugi SK 765, til Wrocław er kl. 17:40 og lent þar kl. 19:00. Tímamismunur er 2 klst. Rúta bíður hópsins ásamt staðarleiðsögumanni og ekur á hið glæsilega Altus Palace Hotel 5* sem staðsett er í hjarta borgarinnar.

Fyrsta kvöldið verður afslappað upphaf ferðalags okkar um Suður-Pólland. Við hittumst yfir kvöldverðarhlaðborði á hótelinu og njótum með drykk. Kjörið tækifæri til að kynnast öðrum í hópnum.

Máltíðir innifaldar: Kvöldverður.

Wrocław

Eftir morgunverð hittum við staðarleiðsögumann og höldum af stað til að kynnast Wrocław sem er oft kölluð „Feneyjar Póllands“ – borg eyja, brúa og litskrúðugra húsa. Líflega markaðstorgið og skemmtilegar dvergastyttur gefa borginni sérstakan sjarma. Hún sameinar sögu, listir og nútímalíf á einstakan hátt. Að lokinni borgarskoðun gefst okkur tækifæri til að hægja á ferðinni og sjá borgina frá allt öðru sjónarhorni. Við förum í notalega siglingu á ánni Oder og njótum vínglass um borð.

Síðar um daginn bjóðum við upp á dálítið óvenjulega afþreyingu – dvergaleit í Wrocław. Borgin er þekkt fyrir hundruð lítilla bronsstytta af dvergum sem leynast víðs vegar um hana. Þátttakendur fá kort og fara tveir og tveir saman um götur og torg í leit að sem flestum dvergum. Dagur sem sameinar sögu, borgarskoðun, afslöppun og skemmtun – þannig viljum við upplifa Wrocław.

Kvöldið er frjálst til að  njóta borgarinnar.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Auschwitz og Zakopane

Eftir morgunverð og útritun yfirgefum við Wrocław og hefjum ferð okkar suður á bóginn í átt að Tatra-fjöllunum. Á leiðinni heimsækjum við minningarstaðinn og safnið í Auschwitz-Birkenau, fyrrum útrýmingarbúðir nasista sem nú eru á Heimsminjaskrá UNESCO. Auschwitz er einn merkilegasti minnisvarði í heimi. Heimsóknin er áhrifamikil, þar fá gestir innsýn í eitt myrkasta tímabil mannkynssögunnar. Svæðið stendur í dag sem minnisvarði um fórnarlömb helfararinnar og áminning um mikilvægi mannréttinda, umburðarlyndis og ábyrgðar í samtímanum.

Farþegar þurfa að hafa vegabréf meðferðis.

Að heimsókninni lokinni höldum við áfram suður til Zakopane, „fjallahöfuðborgar“ Póllands sem stendur í fallegu umhverfi við rætur Tatra-fjallanna. Við komuna innritum við okkur á hótelið okkar Bachleda Residence Zakopane 5* þar sem við dveljum í þrjár nætur.

Kvöldið er frjálst og gefst því tími til að slaka á eftir ferðalagið eða fara í fyrstu gönguferðina um Zakopane.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Zakopane – Gubałówka

Eftir morgunverð höldum við af stað með staðarleiðsögumanni okkar til að skoða Zakopane og Gubałówka. Við tökum togbraut upp á Gubałówka, einn þekktasta útsýnisstað svæðisins. Þaðan njótum við fallegs útsýnis yfir Zakopane og til stórbrotinna tinda Tatra-fjallanna og þar sem fallegt útsýni verður enn ánægjulegra með eitthvað gott í glasi njótum við glass af Prosecco á toppnum á meðan við virðum fyrir okkur landslagið.

Eftir að hafa notið útsýnisins förum við á veitingastaðinn Gwarno, þar sem okkar bíður hádegisverðarhlaðborð með pólskum réttum og sérkennum matargerðar svæðisins. Það sem eftir lifir síðdegis er frjálst. Þátttakendur geta rölt um hina þekktu Krupówki-götu, heimsótt verslanir og kaffihús eða einfaldlega slakað á og notið hins sérstaka andrúmslofts í Zakopane.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Flekasigling á Dunajec

Í dag upplifum við einn af hápunktum dvalarinnar í fjöllunum – rólega og töfrandi flúðasiglingu á viðarbátum eftir Dunajec ánni í öruggum höndum flisak-leiðsögumanna.

Umkringd fallegu landslagi Pieniny-fjallanna siglum við eftir ánni og njótum stórkostlegs útsýnis yfir skóga, fjallatinda og tilkomumikla kalksteinskletta. Áin liggur að hluta á landamærum Póllands og Slóvakíu. Þetta er ein eftirminnilegasta leiðin til að upplifa þennan hluta Suður-Póllands. Að siglingunni lokinni snúum við aftur til Zakopane.

Kvöldið er frjálst.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Wieliczka-saltnámurnar – Kraków

Eftir morgunverð útritum við okkur af hótelinu og kveðjum Zakopane. Á leið okkar til Kraków heimsækjum við hinar einstöku Wieliczka-saltnámur, eina elstu saltvinnslu heims. Hópurinn fer 130 metra niður í jörðina og skoðar stórbrotna sali, kapellur og skúlptúra – allt úr salti. Eftir skoðunarferðina dveljum við áfram neðanjarðar og njótum hádegisverðar á einum dýpsta neðanjarðar veitingastað heims.

Að hádegisverði loknum snúum við aftur upp á yfirborðið og höldum ferð okkar áfram til Kraków fyrrum höfuðborgar landsins. Gamli bærinn einkennist af fallegum torgum, kirkjum og sögulegum byggingum, ásamt líflegu menningarlífi, kaffihúsum og veitingastöðum. Borgin sameinar ríkulega sögu, listir og nútímalegt borgarlíf á einstakan hátt.

Við komuna innritum við okkur á hið glæsilega Stradom House-hótel 5* sem er afar vel staðsett á milli gamla bæjarins og Kazimierz-hverfisins. Kvöldið er frjálst og gefst því tími til að koma sér fyrir, slaka á og njóta borgarinnar á eigin hraða.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Kraków – Wawel-kastali

Eftir morgunverð fáum við leiðsögn um helstu menningarperlur Kraków: Gamla bæinn, aðaltorgið, sögulegar götur og nokkur af helstu kennileitum Kraków. Hópurinn endar svo ferðina á einstakri upplifun með heimsókn í Wawel-kastala. Hópnum gefst færi á að kanna og upplifa konungssali, íbúðir og gotneskar kapellur sem færa okkur nær konungasögu Póllands og mikilvægi kastalans í pólskri sögu.

Kvöldið er frjálst.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Kraków

Engin skipulögð dagskrá verður yfir daginn og því getur hver og einn notið Kraków eftir eigin höfði. Þátttakendur geta heimsótt uppáhaldsstaðina sína aftur, skoðað gamla bæinn eða Kazimierz, farið í verslanir eða á söfn, notið kaffihúsa og veitingastaða borgarinnar eða einfaldlega farið í rólega gönguferð.

Um kvöldið hittumst við öll aftur á Stradom House og njótum kveðjukvöldverðar af hlaðborði ásamt glasi af drykk. Þetta verður tækifæri hópsins til að njóta loka kvöldstundar saman, rifja upp ferðalagið og fagna ævintýris okkar um Suður-Pólland.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Kveðjum Pólland

Lagt verður af stað með rútu á flugvöllinn kl. 07:00. Innritun í flug SAS, SK1736, kl. 10:05 til Kaupmannahafnar þaðan sem er brottför til Íslands með flugi SAS, SK2595, kl. 14:55 með lendingu í Keflavík kl. 16:15 að íslenskum tíma.

Þar með er lokið þessari áhugaverðu ferð um Suður-Pólland.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Dorota Joanna Burba
Dorota er fædd og uppalin í Póllandi en hefur búið á Íslandi í 27 ár og talar mjög góða íslensku. Hún hefur ástríðu fyrir ferðalögum og að deila áhuga sínum á náttúru og stórkostlegu landslagi Póllands með öðrum. Dorota er menntaður leiðsögumaður.

Verð: 599.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.

Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 105.000 kr.

Greiða þarf 100.000.- kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför, með greiðslutengli sem sendur er í tölvupósti.

Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko ehf. sem nálgast má á heimasíðu skrifstofunnar.

•  Flug SAS til Wrocław og til baka frá Kraków – 23 kg taska, 8 kg handfarangur, allir skattar og gjöld.
•  Gisting í 8 nætur á 5 stjörnu hótelum með morgunverði.
•  2 hádegisverðir.
•  2 kvöldverðir.
•  Allar skoðunarferðir, afþreying og aðgangseyrir skv. ferðalýsingu.
•  Íslensk fararstjórn og enskumælandi leiðsögumenn.
•  Allur rútuakstur, vatn í rútunni.
•  Aðgangur að hraðhliði (Fast track) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega).

Hótelin sem við gistum á

Altus Palace Hotel ★★★★★
Stradom House – Autograph Collection ★★★★★
Bachleda Residence Zakopane ★★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.