Lúxus heilsuferð á Long Vita og 2 dagar í Gdańsk
Gefðu þér hlé frá amstri hversdagsins og upplifðu 7 daga endurnýjun á Long Vita heilsuhótelinu — þar sem vellíðan, fagmennska og náttúra skapa einstaka heildarupplifun. Í lok ferðar er gist í 2 nætur í Gdańsk.

Þessi vel skipulagða hópferð sameinar næringarríkt og ljúffengt mataræði, daglega hreyfingu undir leiðsögn sérfræðinga og djúpa slökun í glæsilegri SPA aðstöðu. Hver dagur er hannaður til að styðja við líkamlega og andlega heilsu, auka orku og bæta líðan til lengri tíma.
Long Vita stendur við vatnið Bukrzyno Duże, umlukið skógi í hjarta Kashubian Landscape Park. Hér fær náttúran að gegna lykilhlutverki í upplifuninni: kyrrðin, ferskt loftið, fuglasöngurinn og landslagið skapa kjöraðstæður fyrir hvíld og endurnýjun.
Fullkomin ferð fyrir þá sem vilja hlaða batteríin, styrkja heilsuna og koma heim með nýja orku og jafnvægi.

Heimspeki Long Vita
Hjá Long Vita er vellíðan ekki skammtímaverkefni heldur langtímaferðalag. Hugmyndafræðin byggir á því að raunveruleg heilsa verði til þegar helstu þættir lífsins styðja hver annan:
Hollt mataræði er grunnur að orku, jafnvægi og bata. Hér er lögð áhersla á gæði hráefna, rétt hlutfall næringarefna og einstaklingsmiðað mataræði fremur en skyndilausnir eða öfgar.
Hreyfing á að styðja líkamann á eðlilegan og uppbyggilegan hátt. Markmiðið er ekki að ganga fram af sér heldur að efla líkamsvitund, styrk, liðleika og þol með reglubundinni og notalegri hreyfingu.
Án hvíldar nær líkami og hugur ekki að jafna sig. Þess vegna er lögð rík áhersla á kyrrð, svefn, slökun og meðferðir sem hjálpa gestum að hægja á sér og finna aftur sitt náttúrulega jafnvægi.
Náttúran er ekki bara umgjörð heldur virkur þáttur í dvölinni. Skógur, vatn, fuglalíf og kyrrð hafa róandi áhrif og styðja við bæði andlega og líkamlega endurnæringu.
Holl næring er hjartað í upplifuninni hjá Long Vita. Hún er fyrsta skrefið í átt að endurnýjun og ein mikilvægasta undirstaða langvarandi vellíðanar.
Unnið er með reyndum næringarfræðingum og matreiðslufólki að matseðlum sem sameina næringu, bragð og fallega framsetningu. Markmiðið er að maturinn næri líkamann, styðji heilsu og sé á sama tíma ánægjulegur hluti af dvölinni. Boðið er upp á mismunandi mataræðisleiðir, meðal annars:
- hefðbundið hollt mataræði
- grænmetisfæði
- vegan fæði
- glútenlaust fæði
- laktósafrítt fæði
- sérsniðnar lausnir vegna ofnæmis eða óþols
Mataræðið er lagað að þörfum hvers gests og hægt er að aðlaga það eftir markmiðum, líkamsástandi og lífsstíl.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Flogið í beinu flugi með Icelandair kl. 07:20 og lent í Gdańsk um kl. 12:55. Tímamismunur er 2 klst. Rúta bíður hópsins og ekur á hótelið. Aksturinn tekur rúma klukkustund. Eftir innritun fer fram kynning á aðstöðu hótelsins en síðan er hægt að slaka á áður en snæddur verður kvöldverður á veitingastað hótelsins.
Vellíðan í fallegu og friðsælu umhverfi
Einstök dvöl þar sem hver dagur er tileinkaður vellíðan, endurnýjun og jafnvægi. Á Long Vita færð þú tækifæri til að stíga út úr daglegu amstri og einbeita þér að eigin heilsu í fallegu og friðsælu umhverfi.
Dagarnir hefjast á stuttri göngu í skóginum og léttum morgunæfingum í fersku lofti við vatnið. Þeir sem vilja geta stungið sér í hressandi morgundýfu í vatnið. Æfingunum er fylgt eftir með næringarríkum og ljúffengum máltíðum sem styðja við líkamann. Yfir daginn tekur við fjölbreytt dagskrá með hreyfingu, slökun og fræðslu, þar sem sérfræðingar leiða þig í gegnum æfingar, teygjur og vellíðunar upplifun. Hægt er bóka ýmsar nudd- og snyrtimeðferðir sérstaklega, það greiðist á staðnum.
Að loknum degi bíður þín djúp slökun í SPA aðstöðu með heitum potti, sauna og róandi umhverfi sem hjálpar líkama og huga að endurhlaða sig. Einnig er boðið upp á leiddar sauna athafnir með ilmkjarnaolíum, tónlist og faglegri hitastýringu. Þetta er ein af sérstöðuupplifunum staðarins.
Í kyrrð náttúrunnar, umkringd fersku lofti og fallegu landslagi, færð þú tíma til að hægja á, endurstilla þig og safna nýrri orku — sem fylgir þér langt umfram dvölina sjálfa.
Gdańsk
Eftir morgunverð og útritun af hóteli er ekið til Gdańsk þar sem dvalið verður á Focus Hotel í hjarta borgarinnar. Hægt er að geyma farangurinn á hótelinu ef herbergi verða ekki tilbúin við komuna þangað svo farþegar geti farið og notið borgarinnar að vild. Frjáls tími það sem eftir lifir dags.
Frjáls dagur í Gdańsk
Frjáls dagur í Gdańsk þar sem hægt er að rölta um sögufræga gamla bæinn, njóta líflegs andrúmsloftsins við höfnina og upplifa einstaka blöndu af sögu, menningu og fallegum arkitektúr borgarinnar. Einnig er hægt að kíkja í fjölbreyttar verslanir fyrir þá sem þess óska.
Heimferð
Rúta ekur hópnum á flugvöllinn kl. 10:30 þar sem innritað er í flug Icelandair FI 553 með brottför kl. 12:50 og lendingu í Keflavík 15:50.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð

Ólöf Einarsdóttir
Ólöf hefur starfað sem leiðsögumaður og ferðaskipuleggjandi með erlenda ferðamenn á Íslandi síðan 1991. Hefur ferðast til margra landa vegna atvinnu sinnar og hefur mikla reynslu af því að vera með fólki bæði í starfi og lífinu almennt. Hún fór á Long Vita heilsuhótelið í fyrsta sinn 2018 og hefur farið á hverju ári síðan. Ólöfu finnst þetta nauðsynleg dvöl fyrir sig, andleg og líkamleg næring og fjárfesting í heilsunni.
Verð á mann: 295.000 kr. Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 15.900 kr.
Greiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför með greiðslutengli sem sendur er í tölvupósti.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Beint flug með Icelandair fram og til baka, innrituð 23 kg taska, 1 handfarangurstaska
• Allar rútuferðir
• Hótelgisting í 8 nætur á Long Vita með fullu fæði
• Aðgangur að daglegri hreyfi- og vellíðunardagskrá meðan á dvöl stendur
• Aðgangur að SPA svæði hótelsins alla daga
• Sauna gusa leidd af reyndum pólskum gusumeisturum
• Hótelgisting í 2 nætur á Focus Hotel í Gdańsk ásamt morgunverði
• Íslensk fararstjórn
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar




































































