Menning, matur og vín
Einkasigling Kolumbus ævintýraferða á Douro ánni um Portúgal og til Spánar
Í þessari ljúfu en spennandi ferð siglum við á skipinu MV Spirit of Chartwell frá Porto í Portúgal austur Douro dalinn að landamærum Spánar þar sem við heimsækjum hina fornfrægu borg Salamanca. Á leið okkar um Douro siglum við um mögnuð vínræktarsvæði en Douro dalurinn er komin á Heimsminjaskrá UNESCO sem eitt elsta skipulagða vínræktarsvæði heims. Við höfum það verulega huggulegt á þessari fallegu siglingarleið, heimsækjum sögustaði og víngerðarhús og kynnum okkur matargerð og aðra menningu heimamanna á stöðum s.s. Entre-os-Rios, Régua, Lamego, Castelo Rodrigo og Salamanca auk skoðunarferðar um Porto.
Spirit of Chartwell heitir eftir bústað Winston Churchill, Chartwell House, en skipið var gert upp árið 2012 í núverandi mynd vegna 60 ára krýningarafmælis Elísabetar II Bretadrottningar. Í tilefni þessara tímamóta sigldi drottningin og konungsfjölskyldan á Spirit of Chartwell upp Thames ána en skipið er innréttað í stíl Orient Express járnbrautarinnar. Skipið tekur aðeins 28 farþega í 14 huggulegum káetum sem eru með aðskildum rúmum (Twin bed). Áhöfnin telur 12 manns.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Flogið með Swiss flugfélaginu til Zürich kl. 09:15 og áfram til Porto þar sem lent er kl. 18:30 að staðartíma, tímamismunur er + 2 klst.
Eftir komu til Porto verður ekið að hótelinu okkar, Forte de Gaia í Vila Nova de Gaia sem stendur við Gaia Pier við Douro.
Kvöldið er frjálst.

Siglt til Entre-os-Rios
Eftir morgunverð er upplagt að taka sér göngutúr meðfram bryggjunni og taka brúna yfir í miðbæinn. Tilvalið að fá sér létta hressingu á einhverjum hinum fjölmörgu veitingastöðum sem standa við ána. Um 14:30 göngum við frá hótelinu yfir í MV Spirit of Chartwell sem liggur skammt undan og innritum okkur í skipið. Í framhaldi leysum við landfestar og siglum til Entre-os-Rios þar sem lagst verður við bryggju yfir nóttina.
Kvöldverður um borð og skemmtun með portúgölskum tónlistarmönnum.

Régua – Lamego
Eftir morgunverð um borð siglum við áfram til Púrtvínsbæjarins Régua. Hádegisverður um borð en síðan haldið í skoðunarferð með rútu til fallega bæjarins Lamego sem er þekktur fyrir Barok arkitektúr og oft nefndur menningarhöfuðborg Douro dalsins. Þar smökkum við ýmislegt spennandi.
Kvöldverður í landi í víngerðarhúsi skammt frá Régua.

Barca D‘Alva – Castelo Rodrigo
Morgunverður og siglt áfram til Barca D‘Alva og hádegisverður um borð.
Eftir hádegi förum við í skoðunarferð með rútu í sjarmerandi miðaldaþorpið Castelo Rodrigo þar sem kristnir, múslimar og Gyðingar lifðu í sátt og samlyndi um aldir. Þarna skoðum við okkur um og smökkum á framleiðslu heimamanna.
Kvöldverður um borð og fáum kynningu á Púrtvíni (Vintage Port).

Salamanca
Eftir morgunverð er ekið til spænsku borgarinnar Salamanca. Þessi fallega háskólaborg sem er á Heimsminjaskrá UNESCO á ríka sögu, glæsilegar byggingar og hér var fyrsti háskóli Spánar stofnaður árið 1218. Sagt er að Salamanca sé ákjósanlegasta borg Spánar ef þú ætlar að læra spænsku, en hér varð spænska málfræðin til.
Við snæðum hádegisverð og horfum á skemmtilega Flamenco danssýningu.
Kvöldverður um borð í Spirit of Chartwell með portúgölsku þema.

Barca D‘Alva – Réguao
Morgunverður um borð og við njótum siglingarinnar frá Barca D‘Alva til Régua. Hádegisverður um borð.
Skoðunarferð í rútu í hina stórkostlegu Mateus barokk höll og garðana umhverfis, en flest þekkjum við til þessa heimsfræga Rósavíns framleiðanda. Fáum fyrirlestur um Portúgal nútímans.
Kvöldverður um borð.

Entre-os-Rios
Morguverður og siglt frá Régua til Entre-os-Rios.
Heimsókn og hádegisverður í landi. Siglum síðdegis frá Entre-os-Rios til Porto (Vila Nova de Gaia) og njótum samverunnar á efra dekkinu á þessari fallegu siglingarleið.
Kvöldverður um borð.

Heimferðardagur
Eftir morgunverð förum við í skoðunarferð um Porto og kíkjum til Púrtvínsframleiðanda.
Hádegisverður um borð og síðan frjáls tími til kl. 15:30.
Ökum með rútu kl. 16:00 til Lissabon fyrir flug Icelandair heim til Keflavíkur. Brottför flugs kl. 22:20 og lending heima kl. 01:50 að staðartíma.
Dagskrá getur tekið breytingum og færst til milli daga sökum aðgangs að skipastigum sem eru fjölmargir í ferðinni.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð
Goði Sveinsson er skipuleggjandi og fararstjóri þessarar ferðar. Hann hefur áratuga reynslu af flug- og ferðaskrifstofurekstri og er í dag framleiðslustjóri fjölmargra Kolumbusferða í Evrópu, Asíu og Afríku.
Auk Goða verður enskumælandi staðarleiðsögumaður.
Verð á mann: 629.000 kr. Einungis er boðið uppá gistingu í tvíbýli.
Geiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför og þá er hægt að velja á milli greiðslu með greiðslu í gegnum heimabanka eða kreditkorti.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Flug og flugvallaskattar ásamt 20 kg tösku
• Ferðir til og frá flugvelli í Porto
• Ein nótt á hóteli í Porto
• Sigling með gistingu í 6 nætur
• Allar skoðunarferðir og aðgangur að söfnum skv. ferðalýsingu
• 7 morgunverðir, 6 hádegisverðir og 6 kvöldverðir
• Drykkir með hádegis- og kvöldverðum
• Íslensk fararstjórn og enskumælandi staðarleiðsögumaður.
• Aðgangur að hraðhliði (Fast track) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega).
• Þjórfé
Ekki Innifalið
• Aðrar skoðunarferðir en tilgreindar í ferðalýsingu
• Sérvalin vín og drykkir aðrir en með máltíðum
Spirit of Chartwell
Douro dalurinn
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar

















