Vínbúgarðar, villidýrasafari og paradísareyjan Máritíus
Kolumbus ævintýraferðir bjóða í annað sinn upp á einstaka ævintýraferð um Suður-Afríku og til Máritíus í Indlandshafi.

Við hefjum ferðina með flugi frá London til Höfðaborgar, Cape Town, í Suður-Afríku þar sem við gistum The Commodore í fjórar nætur. Þarna upplifum við töfra Höfðaborgar, stórkostlega náttúrufegurð, skoðum Góðrarvonarhöfða og Table Mountain, förum í siglingu og hittum seli og mörgæsir, ökum um vínlöndin frægu þar sem við heimsækjum valda vínframleiðendur og kynnumst menningu heimamanna. Við fljúgum síðan norður að Kruger National Park sem er eitt stærsta verndarsvæði villtra dýra í Afríku. Þar gistum við tvær nætur á Makalali Private Game Lodge þar sem við förum á villidýrasafari og freistum þess að sjá svokölluð „Big 5“ eða „Stóru fimmu“, ljón, hlébarða, nashyrninga, fíla og buffla en á þessu svæði lifa um 135 tegundir spendýra og 500 tegundir fugla. Eftir safarí-ævintýrið fljúgum við til stærstu borgar Suður-Afríku, Jóhannesarborgar, þar sem við gistum eina nótt.
Við kveðjum síðan Suður-Afríku og fljúgum í austur yfir Indlandshaf til paradísareyjarinnar Máritíus. Þessi perla í Indlandshafi er kringd undurfögru kóralrifi, hafið er tært og túrkisblátt og iðgrænar grundir, fjöll, fossar og regnskógar leika aðalhlutverk á móti hvítum sandströndum. Hér ætlar hópurinn að dveljast í sex nætur í góðu yfirlæti á 5-stjörnu hóteli, LUX Grand Gaube með einkaströnd og skoða sig um á eyjunni.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Við fljúgum frá Keflavík með British Airways kl. 11:55 til London. Lending þar kl. 15:05 og áfram kl.18:25 í beinu flugi (11,5 klst) til Cape Town. Lending þar áætluð næsta morgun kl. 08:05.

Komið til Cape Town
Við lendum á alþjóðaflugvellinum í Cape Town og förum beint í hálfsdagsferð upp á Table Mountain sem er tákn Höfðaborgar og trúlega það kennileiti í Suður-Afríku sem oftast er ljósmyndað. Þetta fjall er stundum nefnt eitt af Nýju sjö náttúruundrum veraldar, en síðan kláfurinn upp á fjallið var opnaður árið 1929 hafa meira en 22 miljónir manna farið upp á Table Mountain. Uppá fjallinu eru veitingastaðir og verslun. Hægt er að velja um nokkra mismunandi og mislanga göngustíga fyrir þá sem vilja kanna staðinn betur.
Eftir þessa stórbrotnu skoðunarferð höldum við á hótelið okkar, The Commodore og innritum okkur. Eftir innritun og frjálsan tíma eyðum við kvöldinu saman á veitingastað á V&A Waterfront svæðinu sem er í göngufæri, og fögnum komu til Cape Town með góðum kvöldverði.
– Höfðaborg er einn af vinsælustu áfangastöðum ferðamanna í Suður-Afríku enda hefur hið virta dagblað New York Times útnefnt borgina „besta stað á jörðinni til að heimsækja“. Hún er kraftmikil fjölmenningarborg þar sem er gróskumikil blanda af mannlífi í miðborg og úthverfum, miklu úrvali af skemmti- og veitingastöðum, hvort sem er að degi til eða á kvöldin og fjölbreyttum tækifærum til að iðka útivist eða slaka á. Öldur frá tveimur úthöfum halda utan um þessa fallegu borg þar sem náttúran setur sterkan svip á umhverfið og loftslag er frábært. Frjáls eftirmiðdagur.
Máltíðir innifaldar: Kvöldverður.

Skoðunarferð um Cape Town
Eftir morgunverð höldum við í skoðunarferð um Cape Town og sjáum hin mörgu andlit þessarar litríku borgar. Í ferðinni heimsækjum við fallega Kirstenbosch grasagarðinn og njótum margbreytilegrar fegurðar jurtaríkisins í þessum þjóðgrasagarði með Table Mountain í bakgrunni. Hér, í fyrsta grasagarðinum á svæði sem er á náttúruminjaskrá, getur að líta meira en 7.000 tegundir af plöntum sem vaxa í Suður-Afríku. Um garðinn liggja ótal göngustígar, þar eru lundir og lautir til að slaka á og fá sér nesti og í garðinum er einnig veitingastaður.
Máltíðir innifaldar: Morgunverður.


Heilsdagsferð um Cape Peninsula
Eftir morgunverð er lagt af stað í heilsdagsferð um höfðann suður af Höfðaborg, Cape Peninsula. Á þessari leið eru fjölmargir staðir sem áhugavert er að heimsækja og þeirra á meðal:
Sigling til Selaeyju (ef veður leyfir)
40 mínútna þægileg og örugg sigling frá höfninni í Hout Bay til Duiker Island, selalátursins þar sem gestir fá að virða fyrir sér þúsundir af Höfða-loðselum í sínu náttúrulega umhverfi.
Chapmans Peak Drive (ef vegurinn er opinn)
Chapmans Peak-vegurinn meðfram ströndinni við Atlantshaf milli Hout Bay og Noordhoek á Cape Peninsula er einn af stórbrotnustu strandvegum í heimi.
Vegurinn var fyrst lagður í fyrri heimsstyrjöld. Hann er 9 km langur og á honum eru 114 beygjur utan í snarbröttum klettahlíðum á Chapmans Peak. Á þessari leið er stórfenglegt útsýni þegar komið er upp á Chapmans Point og síðan þegar ekið er niður á við til Noordhoek.
Góðrarvonarhöfði (Cape of Good Hope)
Jóhannes II., Portúgalskóngur, gaf höfðanum þetta nafn en sæfarar á 15. og 16. öld höfðu mismikið dálæti á þessum siglingaslóðum. Bartolomeu Dias kallaði höfðann „Illviðrahöfða“ árið 1488 en Francis Drake nefndi höfðann „Fegursta höfða í heimi“ árið 1580. Góðrarvonarhöfði er auðugur að menningarminjum og einstöku plöntu- og dýralífi og einn af fjölsóttustu ferðamannastöðum í Suður-Afríku. Við njótum alls þessa og heimsækjum einnig Buffelstein upplýsingamiðstöðina. Í grennd við Góðrarvonarhöfða er Cape Point þar sem standa tveir vitar, sá eldri – og nú af lagður – og hinn yngri, og frá þeim báðum er stórfenglegt útsýni. Farþegum býðst að taka togbraut upp að eldri vitanum en göngugarpar geta að sjálfsögðu spreytt sig á tröppunum.
Mörgæsanýlendan í Boulders
Afrískar mörgæsir settust að við Boulders Bay árið 1982 og laða nú til sín fjölda ferðamanna. Nýlendan er í Simon’s Town.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Heilsdagsferð um vínekrur og fallega bæi
Eftir morgunverð leggjum við af stað í heilsdagsferð um stórkostlegu vínræktarhéruðin austur af Höfðaborg. Við ökum til Stellenbosch, næst elsta bæjar S-Afríku, heimsækjum vínframleiðendur og vínkjallara, lyftum glösum og brögðum á víðfrægum guðaveigum frá þessum slóðum.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður og vínsmökkun.

Kruger þjóðgarðurinn
Eftir morgunverð fljúgum við til smábæjarins Hoedspruit þar sem staðarleiðsögumenn taka á móti okkur og ferja okkur út á gresjurnar að gististaðnum okkar, Makalali Private Game Lodge. Strax eftir innritun og smá hressingu hefst ævintýrið og við förum í fyrsta safarítúrinn og upplifum töfra hinnar villtu Afríku. Sameiginlegur kvöldverður.
Kruger þjóðgarðurinn, í norðausturhorni Suður-Afríku, við landamærin að Mósambík, er eitt stærsta og fjölsóttasta verndarsvæði villtra dýra í Afríku, draumastaður allra sem þrá ævintýri og að komast í kynni við villt dýr í náttúrulegum heimkynnum þeirra. Garðurinn nær yfir landsvæði á stærð við Wales eða Ísrael og er sérstakur að því leyti hversu auðvelt er að aka um hann og njóta þess sem fyrir augu ber. Í garðinum halda til um 135 tegundir spendýra og 500 fuglategundir en eftirsóknarverðast á safaríferð um garðinn er að koma auga á „stóru fimmuna“, þ.e. ljón, hlébarða, nashyrninga, fíla og buffla.
Makalali, verndarsvæðið sem ber þetta nafn, og gististaðurinn, Makalali Private Game Lodge hafa verið í fararbroddi þegar kemur að umhverfisvænni ferðaþjónustu þar sem jafnframt er lögð áhersla á innlenda hefð í húsakynnum og matargerð.
Allir málsverðir (morgun-, hádegis- og kvöldverðir) eru innifaldir á Makalali Private Game Lodge.

Makali og Kruger þjóðgarðurinn
Við vöknum fyrir birtingu og förum í safari (Game drive) fyrir morgunverð. Eigum síðan frjálsan tíma til að njóta við sundlaugina eða til hvíldar uns við förum aftur í safaríferð fram að kvöldverði.
Máltíðir innifaldar: Allir málsverðir eru innifaldir á Malakali Lodge.

Jóhannesarborg
Eftir síðasta safarítúrinn okkar og morgunverð ökum við á flugvöllinn í Hoedspruit og fljúgum þaðan til Jóhannesarborgar. Frá O.R. Tambo flugvelli ökum við rakleiðis á hótelið okkar, Peermont Mondior sem er skammt frá flugvellinum. Eftir innritun er frjáls tími, en hótelið er sambyggt Emperors Palace, heljarmiklum veitinga- og skemmtistaðakjarna. Innangengt er úr hótelinu yfir á veitingastaðina og því engin ástæða til að fara lengra fyrir eitt kvöld því Jóhannesarborg er gríðarstór borg og ekki alveg hættulaus.
Máltíðir innifaldar: Morgunverður.
Máritíus
Við fljúgum með South African Airways frá Jóhannesarborg kl. 09:45 og lendum á Máritíus kl. 15:45 að staðartíma. Höldum beint á hótelið okkar, LUX Grand Gaube sem er staðsett á norð-austur hluta eyjarinnar.
Máltír innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Máritíus
Frjáls dagur þar sem við njótum alls þess sem LUX Grand Gaube hefur uppá að bjóða.
Máltír innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Skoðunarferð um Máritíus
Skoðunarferð um eyjuna þar sem við heimsækjum m.a. höfuðborgina Port Louis og snæðum hádegisverð í Domaine des Aubineaux, gömlum herragarði frá nýlendutímanum þar sem við kynnum okkur einnig Rommframleiðslu eyjaskeggja.
Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis og kvöldverður.

Máritíus
Frjáls dagur.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.
Máritíus
Heilsdags ævintýraferð þar sem við siglum á Catamaran báti við Ile au Cerfs eyjuna, grillað um borð, syndum í sjónum og snorklum. (Valkvætt, ekki innifalið í verði ferðar)
Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.
Máritíus
Frjáls dagur.
Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Brottför frá Máritíus
Við kveðjum paradísareyjuna Máritíus og fljúgum kl. 22:25 áleiðis til London með Air Mauritius þar sem lent verður kl. 06:55 næsta morgun.
Máltíðir innifaldar: Morgunverður.
Heimkoma
Flug áfram frá London með Icelandair kl. 11:55 og lent heima kl. 15:20.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð

Goði Sveinsson er skipuleggjandi og fararstjóri í þessari ferð. Hann hefur ferðast um heiminn í áratugi og hefur langa reynslu af flug- og ferðaskrifstofurekstri.
Goði þekkir vel til í Suður-Afríku og á Máritíus
Verð á mann: 1.095.000 kr. Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 265.000 kr.
Geiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Allt flug skv. ferðalýsingu auk flugvallaskatta og gjalda
• Gisting og morgunverður á völdum gæðahótelum samkvæmt ferðatilhögun
• Fimm hádegisverðir
• Níu kvöldverðir
• Allar skoðunarferðir, aðgangur að söfnum og ferðamannastöðum skv. ferðalýsingu
• Íslensk fararstjórn Goða Sveinssonar
• Enskumælandi staðarleiðsögumenn í S-Afríku og á Máritíus
• Þjórfé
Ekki Innifalið
• Aðrar máltíðir en getið er í ferðalýsingu
• Drykkir með máltíðum
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar



























































































