Komdu með okkur í heillandi strandbæinn Sitges, skammt frá Barcelona, þar sem bíða okkar ljúfir dagar þar sem spænskur sjarmi, glæsileg hóteldvöl og skemmtilegar upplifanir mynda þægilega umgjörð um fríið.

Sitges er heillandi strandbær við Miðjarðarhafið þar sem fallegar sandstrendur, notalegar götur og lífleg veitingahúsamenning skapa yndislega umgjörð um afslappandi frí. Hér er auðvelt að njóta augnabliksins, rölta um gamla bæinn, tylla sér á kaffihús eða njóta góðrar máltíðar með sjávarútsýni. Meðfram ströndinni liggur falleg gönguleið sem býður upp á rólegar stundir við hafið og útsýni yfir bæinn.

Við dveljum í níu nætur á hinu glæsilega ME Sitges Terramar 5*, sem stendur við strandgötuna. ME Sitges Terramar er fimm stjörnu hótel í Sitges, þar sem nútímaleg hönnun og afslappaður Miðjarðarhafsandi fara saman. Hótelið stendur við ströndina og falleg gönguleið meðfram sjónum tengir það við miðbæinn. Hér er notalegt að njóta sjávarloftsins og láta líða úr sér í fallegu umhverfi.

Á hótelinu eru veitingastaðir og barir þar sem matur og umhverfi njóta sín saman. Veitingastaðurinn Beso býður upp á Miðjarðarhafsmatargerð með baskneskum áherslum og á þakbarnum Radio Rooftop má njóta glæsilegs útsýnis yfir hafið og Sitges. Fyrir þá sem vilja gera sérstaklega vel við sig er einnig boðið upp á nudd og líkamsmeðferðir gegn gjaldi.

Í ferðinni er innifalin ferð til Barcelona og skoðunarferð til Tarragona með vínsmökkun hjá Scala Dei. 

Dr. Janus Guðlaugsson

Janus er fararstjóri í þessari ferð. Hann er landsþekktur fyrir störf sín víða um land á sviði heilsueflingar. Hann verður með léttar morgungöngur í nágrenni hótelsins auk liðkandi og styrkjandi æfinga fyrir þá sem hafa áhuga. 

Dr. Janus Guðlaugsson

Janus er fararstjóri í þessari ferð. Hann er landsþekktur fyrir störf sín víða um land á sviði heilsueflingar. Hann verður með léttar morgungöngur í nágrenni hótelsins auk liðkandi og styrkjandi æfinga fyrir þá sem hafa áhuga. 

Ferðatilhögun

Komudagur til Sitges

Flogið frá Keflavík kl. 8:25 og lent í Barcelona kl. 14:45. Tímamismunur er +2 klst. Rúta bíður hópsins og ekur á hið glæsilega ME Sitges Terramar 5* hótel. Aksturinn á hótelið tekur rúmlega hálfa klukkustund.

Kvöldverður á hótelinu er frá kl. 18:30.

Máltíðir innifaldar: Kvöldverður.

Dagur í Sitges

Kl. 08:30–08:50: Morgunganga, liðkun og teygjur með Janusi. – Frjáls mæting! 

Dagurinn og kvöldið er frjálst.

Hótelið okkar býður upp á notalega dvöl og auðvelt að ganga um nágrennið.

Á hótelinu eru veitingastaðir og barir þar sem matur og umhverfi njóta sín saman, kvöldverður er frá kl. 18:30. Veitingastaðurinn Beso býður upp á Miðjarðarhafsmatargerð með baskneskum áherslum og á þakbarnum Radio Rooftop má njóta glæsilegs útsýnis yfir hafið og Sitges. Fyrir þá sem vilja gera sérstaklega vel við sig er einnig boðið upp á nudd og líkamsmeðferðir gegn gjaldi.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Dagur í Sitges

Kl. 08:30–08:50: Morgunganga, liðkun og teygjur með Janusi. – Frjáls mæting! 

Dagurinn er frjáls. Í gamla bænum er gaman að rölta um þröngar götur, kíkja í litlar verslanir og njóta stemningarinnar á torgum og kaffihúsum. Fjölbreytt úrval veitingastaða og tapasbara gefur færi á að kynnast spænskri matarmenningu eða setjast niður yfir góðri máltíð með sjávarútsýni. Listir og menning setja einnig svip sinn á bæinn og þar má finna söfn og sýningar fyrir þá sem vilja krydda dvölina með menningarlegri upplifun.

Kvöldverður á hótelinu er frá kl. 18:30.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Dagur í Sitges

Kl. 08:30–08:50: Morgunganga, liðkun og teygjur með Janusi.

Dagurinn og kvöldið er frjálst.

Sitges býður upp á ánægjulega blöndu af strandlífi, bæjarrölti og góðum mat – stað þar sem hægt er að njóta dagsins á eigin hraða og eiga ljúfar stundir við spænsku ströndina.

Það má einnig gera sér ferð til Barcelona, þá er tilvalið að taka leigubíl (40 mín. akstur) í Gaudi garðinn Park Guel, rölta svo að Sagrada Familia (2 km) og enda svo síðdegið á La Rambla (2,8 km) þar sem er úrval af Tapas stöðum og þá sérstaklega í hliðargötunum. Það tekur um 40 mínútur með leigubíl frá hótelinu. – Athugið að í Barcelona er vasaþjófnaður algengur, gætið því vel að verðmætum.

Kvöldverður á hótelinu er frá kl. 18:30.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Tarragona og vínsmökkun hjá Scala Dei

Eftir morgunverð kl. 09:00 höldum við frá Sitges til Tarragona, þar sem saga, menning og matur fá að njóta sín. Við byrjum á um tveggja klukkustunda gönguferð með enskumælandi staðarleiðsögumanni og kynnumst helstu kennileitum borgarinnar frá tímum Rómverja. Sögulegt umhverfið myndar fallega umgjörð um ferðina og gefur okkur innsýn í merka fortíð Tarragona. Meðal þekktra kennileita má nefna Rómverska hringleikahúsið, Fornu borgarmúrana, Dómkirkjuna og Circ Romà  sem er rómverskur kappakstursvöllur þar sem haldin voru kappakstursmót með hestvögnum. Hlutar mannvirkisins eru enn varðveittir, meðal annars stórar hvelfingar og gangar undir áhorfendastæðunum.

Að gönguferð lokinni kl. ca 12:00 liggur leiðin niður að höfninni, þar sem við setjumst saman að hádegisverði á veitingastaðnum El Pòsit (ekki innifalið í verði ferðarinnar).

Klukkan 13:30 liggur leiðin í víngerðina Scala Dei Celler. Þar förum við í skoðunarferð með leiðsögn og kynnumst víngerðinni áður en við fáum að smakka vínin.

Að heimsókninni lokinni höldum við aftur til Sitges eftir viðburðaríkan dag þar sem saga og bragðgóðar upplifanir fara saman.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Dagur í Sitges

Kl. 08:30–08:50: Morgunganga, liðkun og teygjur með Janusi. – Frjáls mæting! 

Það gæti freistað að finna nýtt uppáhaldskaffihús, stinga tánum í Miðjarðarhafið eða leyfa deginum einfaldlega að koma skemmtilega á óvart.

Kvöldverður á hótelinu er frá kl. 18:30.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Dagur í Barcelona

Eftir morgunverð leggjum við af stað kl. 09:00 frá hótelinu og höldum til Barcelona. Rútan skilar okkur við stórverslunina El Corte Inglés á Plaça de Catalunya, þaðan sem hver og einn getur haldið í sína eigin borgarkönnun. Tilvalið er að rölta niður hina líflegu Römblu, kanna götur og torg Gotneska hverfisins eða njóta glæsilegra bygginga við Passeig de Gràcia. Þá er notalegt að setjast á kaffihús, fylgjast með mannlífinu og gæða sér á góðum hádegisverði. Þeir sem vilja versla geta skoðað úrvalið í El Corte Inglés eða kíkt í verslanir miðborgarinnar. Kl. 15:00 hittumst við aftur við El Corte Inglés og höldum heim á hótel eftir skemmtilegan dag í borginni.

Kvöldverður á hótelinu er frá kl. 18:30.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Dagur í Sidges

Kl. 08:30–08:50: Morgunganga, liðkun og teygjur með Janusi. – Frjáls mæting! 

Tilvalið er að rölta um Sitges, kanna götur sem enn á eftir að skoða og finna notalegan stað fyrir hádegisverð. Síðdegis má svo njóta afslöppunar á hótelinu eða eiga ljúfa stund við sjóinn.

Kvöldverður á hótelinu er frá kl. 18:30.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Dagur í Sidges

Kl. 08:30–08:50: Morgunganga, liðkun og teygjur með Janusi. – Frjáls mæting! 

Við höldum áfram að njóta í Sitges og gefum okkur tíma fyrir það sem hefur staðið upp úr í dvölinni. Kannski verður uppáhaldsstaðurinn heimsóttur aftur eða einfaldlega slakað á á ströndinni.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Sitges og heimferð

Eftir morgunverð er tilvalið að njóta á ströndinni.

Kl. 13:00: Hópnum ekið á flugvöllinn í Barcelona þar sem Icelandair vélin, FI993, tekur á loft heimleiðis til Íslands kl. 15:45. Lending á Íslandi áætluð um kl. 18:20.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Dr. Janus Guðlaugsson

Janus er fararstjóri í þessari ferð. Hann er landsþekktur fyrir störf sín víða um land á sviði heilsueflingar. Hann verður með léttar morgungöngur í nágrenni hótelsins auk liðkandi og styrkjandi æfinga fyrir þá sem hafa áhuga. 

Verð: 639.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.

Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 239.000 kr.

Greiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

•  Flug Icelandair – 23 kg. taska, handfarangurstaska, allir skattar og gjöld
•  Gisting í 9 nætur á ME Sitges Terramar 5* með morgunverði
•  Léttar morgungöngur undir stjórn fararstjóra
•  6 Kvöldverðir, 28., 30. og 31. maí, 2., 3. og 4. júní
•  Skoðunarferðir skv. ferðalýsingu ásamt leiðsögumanni
•  Rútuakstur skv. lýsingu
•  Íslensk fararstjórn dr. Janusar Guðlaugssonar
• Enskumælandi staðarleiðsögumaður í Tarragona
• Bagbee þjónusta fyrir alla sem gista á höfuðborgarsvæðinu eða í Reykjanesbæ nóttina fyrir brottför. Boðið er uppá að innrita farþega og sækja farangur þeirra degi fyrir brottför, þannig að hægt er að ganga beint að öryggishliði í Leifsstöð á brottfarardegi
•  Aðgangur að hraðhliði (Fast track) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega)

Hótelið sem við gistum á

ME Sitges Terramar ★★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.