Töfrandi ferð um eitt fallegasta svæðið við Miðjarðarhaf sem skartar sínu fegursta í landslagi, matargerð og mannlífi.

Campania hérað er rómað fyrir matarmenningu, enda fæðingarstaður pizzunnar, þekkt fyrir dásamlegu Mozzarella osta og sítrónurækt svo eitthvað sé nefnt. Í þessari eintöku ferð dveljum við í þrjár nætur í Sorrento. Þaðan siglum í dagsferð til Capri sem verið hefur áfangastaður ferðamanna allt frá tímum Rómverja. Eftir dvölina í Sorrento siglum við meðfram Amalfíströndinni þar sem við munum m.a. dást að Positano frá sjónum, einum fallegasta og þekktasta bæ strandarinnar.

Leiðin liggur svo til Napólí sem er án efa ein af áhugaverðustu borgum Ítalíu, iðandi af mannlífi á hverju götuhorni, mörkuðum og veitingahúsum. Við njótum og skoðum borgina, heimsækjum Pompei sem er á heimsminjaskrá UNESCO og í hlíðum Vesúvíusar njótum við veitinga og útsýnisins yfir Napólíflóann.

Þórhallur Heimisson, fararstjóri í þessari einstöku ferð, fræðir gesti um sögu og menningu svæðisins, heimsækir með þeim heillandi þorp, sólrík torg og staði þar sem má njóta útsýnis yfir landið og miðin. Svæðið er sannkölluð perla Ítalíu.

Ferðatilhögun

Komudagur – Sorrento

Flogið er með beinu flugi Icelandair kl. 07:50 og lent á FCO-flugvellinum í Róm um kl. 14:35. Tímamismunur er 2 klukkustundir. Fararstjórinn tekur á móti hópnum á flugvellinum í Róm og ekur með honum í rútu til hótelsins okkar í hjarta Sorrento.

Á leiðinni verður stoppað og hægt að kaupa sér léttan kvöldverð.

Við komum svo að kveldi til Sorrento og gistum á Hotel Michelangelo 4*, sem státar af þægilegri sundlaug, góðum veitingastað, bar og er staðsett miðsvæðis.

Gönguferð um Sorrento

Við hefjum daginn á notalegri gönguferð um Sorrento þar sem helstu kennileiti bæjarins verða skoðuð. Þórhallur leiðir hópinn og með í för verður ítalskur leiðsögumaður til aðstoðar.

Að lokinni gönguferð er tilvalið að rölta um bæinn og setjast niður á einum af þeim fjölmörgu veitingastöðum sem þar er að finna.

Eftirmiðdagurinn og kvöldið eru frjáls til að njóta þess að rölta um Sorrento og kanna bæinn á eigin vegum eða setjast upp við sundlaugarbakkann.

Dagsferð til Capri

Siglt yfir til Capri frá Sorrento sem er aðeins um 20 mínútna ferð. Þegar komið er að landi verður farið í minni bát sem siglir með hópinn í klukkustundar bátsferð um eyjuna. Síðan er farið í rútum upp til Anacapri og í stólalyftu (fyrir þá sem treysta sér og greitt er fyrir það aukalega) upp á efsta topp eyjarinnar, á Monte Solaro, þar sem útsýnið er engu líkt.

Eftir útsýnisferðina í stólalyftunni er boðið upp á sameiginlegan hádegisverð í Anacapri. Að því loknu verður ekið til Capri þar sem frjáls tími gefst til að skoða sig um og versla.

Eftir yndislegan dag í Capri göngum við saman niður að höfn þar sem báturinn leggur af stað til baka til Sorrento og komið til Sorrento fyrir kvöldmat.

Amalfíströndin – Napólí

Brottför frá hótelinu með farangurinn um morguninn í heilsdagsferð þar sem siglt verður meðfram hinni stórbrotnu Amalfi-strönd. Ekið verður niður að höfninni í Salerno þar sem einkabátur bíður hópsins.

Siglt verður frá Salerno meðfram þessari einstöku strandlengju og við munum meðal annars dást að Positano frá sjónum, einum fallegasta og þekktasta bæ Amalfístrandarinnar, þar sem litrík húsin raðast upp í brattar hlíðarnar og mynda sannkallaða póstkortamynd.

Þaðan verður siglt áfram til Amalfí þar sem farið verður í land. Hópurinn snæðir sameiginlegan hádegisverð við sjóinn og að honum loknum gefst frjáls tími til að rölta um þennan sögufræga og heillandi bæ. Þeir sem hafa áhuga geta skoðað hina glæsilegu dómkirkju Amalfí (aðgangseyrir greiðist sérstaklega) í fylgd með leiðsögumanni okkar.

Síðdegis verður siglt til baka til Salerno þar sem rúta bíður hópsins og ekur ferðalöngum til Hotel Royal Continental 4* í Napólí, sem er staðsett á einstökum stað við sjávarsíðuna með fallegu útsýni yfir Napólíflóa.

Kvöldið er frjálst.

Gönguferð um Napólí

Hótelið okkar er á frábærum stað við ströndina og nærri miðbænum í Napólí. Við göngum þess vegna beint frá hótelinu og niður í bæinn eftir morgunverð, þar sem Þórhallur segir okkur frá öllu sem fyrir augu ber, allt frá konungshöllinni, kastalanum og dómkirkjunni, yfir í göngugöturnar í gamla bænum, verslunarhverfi og hverfi Maradonna. Gönguferðin endar í hjarta borgarinnar þar sem hver og einn getur sest niður í hádegismat í gamla bænum.

Eftirmiðdagurinn er frjáls og veitir leiðsögumaður allar upplýsingar um það sem er hægt að njóta síðdegis og um kvöldið.

Pompei og hádegisverður í hlíðum Vesúvíusar

Eftir morgunverð leggjum við af stað í heilsdagsferð þar sem við skoðum hina einstöku fornu borg Pompei og njótum síðan ljúffengs hádegisverðar í fallegu umhverfi í hlíðum Vesúvíusar.

Ekið verður til Pompei þar sem gengið er um hina fornu borg sem grófst undir ösku og gjósku þegar Vesúvíus gaus árið 79. Þórhallur leiðir ferðina og lýsir því sem fyrir augu ber ásamt heimaleiðsögumönnum.

Eftir magnaðan morgun í Pompei verður haldið upp í hlíðar Vesúvíusar þar sem okkar bíður yndislegur hádegisverður á fallegum stað með stórbrotnu útsýni yfir Napólíflóann. Þar njótum við ljúffengra ítalskra rétta og einstakrar náttúrufegurðar, þar sem fjöllin, hafið og landslagið skapa ógleymanlega umgjörð um máltíðina.

Frjáls dagur í Napólí

Dagurinn er frjáls og tilvalið að njóta alls þess sem hin líflega og heillandi borg Napólí hefur upp á að bjóða. Napólí er ein elsta og litríkasta borg Ítalíu, þar sem saga, menning og ítalskt mannlíf mætast á einstakan hátt. Hér er sannarlega nóg að sjá og upplifa!

Tilvalið er að rölta um þröngar götur gamla bæjarins, skoða fallegar kirkjur, lífleg torg og litlar verslanir eða setjast niður á notalegu kaffihúsi og fylgjast með mannlífinu. Napólí er jafnframt fæðingarstaður pizzunnar og því kjörið tækifæri til að smakka ekta napólíska pizzu á einhverjum af fjölmörgum veitingastöðum borgarinnar.

Þeir sem kjósa rólegri dag geta notið þess að ganga meðfram fallegri strandgötunni við hótelið, með stórkostlegu útsýni yfir Napólíflóann og Vesúvíus.

Heimferð

Lagt af stað frá hóteli eftir morgunverð og keyrt til FCO-flugvallarins í Róm. Lagt verður af stað með rútu á flugvöllinn um kl. 07:30 og komið þangað 3,5 klst. síðar.

Innritun í flug Icelandair sem er áætlað kl. 15:45 og lendir í Keflavík kl. 18:35 að íslenskum tíma.

Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð

Þórhallur Heimisson verður fararstjóri okkar. Hann er öllum hnútum kunnugur og hefur starfað sem leiðsögumaður allt frá árinu 2005.

Verð: 439.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi. Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 122.000 kr.

Geiða þarf 50.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar 70 dögum fyrir brottför.

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

●  Flug frá Keflavík til Rómar fram og til baka, allir skattar og gjöld.
●  Gisting á Hotel Michelangelo 4* í Sorrento í 3 nætur með morgunverði.
●  Gisting á Hotel Royal Continental 4* með svölum og sjávarútsýni yfir Napólí flóann með morgunverði.
●  Allur rútuakstur til og frá flugvelli, hóteli og að öllum stöðum skv. ferðalýsingu.
●  3 hádegisverðir.
●  Aðgöngumiðar, bátsferðir og þjónusta staðarleiðsögumanna skv. ferðalýsingu.
●  Íslensk fararstjórn og leiðsögn Þórhalls Heimissonar.
●  Bagbee þjónusta fyrir alla sem gista á höfuðborgarsvæðinu eða í Reykjanesbæ nóttina fyrir brottför. Boðið er uppá að innrita farþega og sækja farangur þeirra degi fyrir brottför, þannig að hægt er að ganga beint að öryggishliði í Leifsstöð á brottfarardegi.
●  Aðgangur að hraðhliði (Fast track) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega).

Hótelin sem við gistum á

Hotel Michelangelo ★★★★
Hotel Royal Continental ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.