Tónlistarævintýri í Nashville og Memphis, m.a. heimsókn á Graceland og tónleikar í Grand Ole Opry

Tennessee fylki í Bandaríkjunum er þekktast fyrir stórbrotna tónlistarsögu þar sem frægustu nöfn í country, blues og soul-tónlist hafa alið manninn og hljóðritað lögin sín inn á hljómplötur í hart nær 100 ár.

Má þar nefna stórnöfn á borð við Elvis Presley, Louis Armtrong, Count Basie, Jim Reeves, Allan Jackson, Lainey Wilson, Taylor Swift, Dolly Parton, Johnny Cash, John Denver, Roy Orbison, Waylon Jennings, Charlie Pride og Eddie Arnold. Kolumbus ævintúraferðir bjóða nú í fyrsta sinn ævintýraferð til tónlistarborganna Nashville og Memphis þar sem við kynnum okkur þessa miklu tónlistarsögu og njótum  tónlistar í ýmsu formi alla daga í ferðinni.

Við heimsækjum tónlistarsöfn og þekkt upptökustudio á borð við RCA og Sun Studio auk þess sem farið verður á „Country Music“ tónleika í hina heimsfrægu tónlistarhöll Grand Ole Opry. Ekki má gleyma dagsferð á fyrrum búgarð Elvis, Graceland sem er mögnuð upplifun. Auk þess verða skemmtilegar upplifanir utan stórborganna tengdar tónlist og menningu Tennessee fylkis. 

Flogið er í beinu flugi með Icelandair til og frá Nashville og dvalið verður á góðum 4* hótelum þ.a. 4 nætur í Nashville og 3 nætur í Memphis.

Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi

Lagt af stað frá Keflavík kl. 17:10 með beinu flugi Icelandair til Nashville þar sem lent verður kl. 19:30 að staðartíma. Tímamismunur er -4 klst. Fararstjóri safnar hópnum saman eftir að farangur hefur verið afhentur og svo verður haldið af stað með rútu á hótelið okkar Caption by Hyatt Downtown Nashville 4*, þar sem dvalið verður næstu 4 nætur.

Heimsókn út í sveitina

Morgunverður er innifalinn og eftir að allir hafa notið hans höldum við af stað í rútu út fyrir Nashville í dagsferð sem kölluð er „The Whiskey Trail“. Við fáum notarlegar móttökur á veitingastaðnum Stable Reserve í bænum Franklin þar sem smakkað verður á nokkrum góðum víntegundum frá héraðinu meðan við njótum veitinga sem bornar verða fram.

Eftir það göngum við um miðbæ Franklin og upplifun sveitastemningu í miðju Tennessee fylki þar sem allt er rólegt og notarlegt. Eftir það förum við á Whiskey búgarðinn „Leiper‘s Fork Distillery House of Spirits“ þar sem við fáum að kynnast muninum á „Burboun“ whiskey og skosku Malt whiskey undir handleiðslu skosks leiðsögumanns sem búið hefur á staðnum undanfarin 25 ár og veit allt um whiskey og sögu þess frá upphafsárum framleiðslunnar í Bandaríkjunum.

Eftir kynninguna borðum við hádegisverð og höldum síðan til baka til Nashville en aksturinn þarna á milli tekur um 45 mín. Komum á hótelið um miðjan dag og kvöldið er frjálst þar sem tilvalið er að ganga um aðalgötu borgarinnar „Lower Broadway“ þar sem heyra má „Country tónlist“ við hvert fótmál og fjöldi veitingastaða býður uppá lifandi tónlist meðan fólk nýtur matar og drykkja.

American brunch og Grand Ole Opry

Um morguninn ökum við örstutta leið í úthverfi Nashville og fáum okkur alvöru amerískan Brunch á veitingastaðnum Urban Crub (innifalið í verði). Þaðan fer enginn svangur og í framhaldi förum við í stuttan göngutúr um svæðið. Síðan er haldið til baka á hótelið og komið þangað í hádeginu.

Kl. 17:00 verður haldið af stað að hinni heimsfrægu tónlistarhöll „Grand Ole Opry“ þar sem við fáum að hlýða á eina af fjölmörgum stórkostlegum tónleikum sem haldnir eru þar fjölmarga daga í hverjum mánuði. Við erum með aðgang að „The Circle Room“ sem er eins konar VIP Lounge sem opnar 1 klst. áður en tónleikarnir hefjast. Innifalið í aðgöngumiðanum er sæti á besta stað í höllinni, létt snarl og áfengir/óáfengir drykkir, bæði fyrir tónleika og í hléi. Einn af skemmtikröftum kvöldsins hittir hópinn og segir frá því sem fram fer á sviðinu. Þetta er einn af hápunktum ferðarinnar og nokkuð sem marga hefur dreymt um. Tónleikarnir hefjast kl. 19:00 og lýkur kl. 21:15. Eftir það er ekið á hótelið.

Söfn og stúdíó í Nashville

Eftir morgunverð höldum við stutta leið að hinu fræga upptökustúdíói „RCA Studio B“ þar sem staðarleiðsögumaður segir okkur sögu þessa fræga hljóðvers allt frá 1958 þegar fyrstu upptökur fóru þar fram. Elvis Presley er allra frægastur þeirra sem þar tóku upp á sínum tíma og við fáum að upplifa hvar og hvernig upptökur fóru fram. Einnig er lítið safn með plakötum frá útgáfu hljómplatna með heimsþekktum tónlistarmönnum sem þarna lögðu leið sína um sem við skoðum um leið og við hlýðum á fjölda tónbrota m.a. frá 6. og 7. áratugnum sem rifja upp gamlar góðar minningar hjá mörgum.

Eftir heimsóknina í RCA verður haldið áfram stutta leið að „Country Music Hall of Fame“ sem geymir stórkostlega sögu Country tónlistarflytjenda frá upphafi. Gaman er að koma inn í sér stofur tileinkaðar Dolly Parton, Taylor Swift og Rosan Cash svo dæmi séu tekin auk þess að berja augum hina frægu Cadillac bifreið Elvis sem hann ók í, við tíðar upptökuferðir frá Memphis til Nashville.

Við fáum okkur hádegisverð í mathöll í miðbænum (ekki innifalið í verði) og höldum því næst á safnið „Museum of African American Music“ þar sem við kynnumst m.a. sögu jazz og blues frá stórkostlegum listamönnum á borð við Louis Armstrong og Count Basie auk þekktra gospel tónlistarmanna. Við dveljum þarna í um 1 klst. og höldum yfir götuna á The Ryman Auditorium sem er elsta tónlistarhús í Nashville þar sem Grand Ole Opry var fyrst til húsa. Við fáum leiðsögn staðarleiðsögumanns sem kynnir okkur sögu hússinns og berjum sjálfan tónlistarsalinn augum.

Um kvöldið er stefnt að því að fara á tónleika sem ákveðið verður síðar þegar nánari dagskrá liggur fyrir.

Haldið af stað til Memphis

Við vöknum snemma og tékkum út af hóteli áður en lagt verður af stað með rútu áleiðis til Memphis þangað sem við áætlum að koma um kl. 13:00. Við byrjum á því að fá okkur léttan hádegisverð í miðbænum (innifalið í verði) og förum síðan á safn sem heitir Memphis & the National Civil Rights Museum. Eftir það göngum við stutta leið um miðborgina ásamt staðarleiðsögumanni áður en við höldum á hótelið, Canopy by Hilton, Memphis Downtown 4* þar sem dvalið verður síðustu 3 næturnar í ferðinni. Dagurinn og kvöldið eru frjáls en við áskiljum okkur rétt á að breyta dagskrá ef svo ber undir.

Memphis upplifun og tónleikar

Eftir morgunverð á hótelinu (innifalinn í verði) heimsækjum við tvö tónlistarsöfn; Memphis Rock n Soul Museum og Memphis Music Hall of Fame og klárum þær heimsóknir í hádeginu. Í framhaldi fáum við okkur hádegisverð á veitingastað nálægt hótelinu ef áhugi er fyrir hendi (ekki innifalið í verði ferðarinnar). Til stendur að fara á tónleika um kvöldið sem tilkynnt verður nánar um.

Heimsókn á Graceland og Sun Studio

Eftir morgunverð leggjum við uppí ferð til hins sögufræga staðar Graceland þar sem Elvis Presley bjó megnið af sinni ævi. Þetta er einn af hápunktum ferðarinnar og við erum með dýrustu aðgöngumiðana „VIP Tour + Airplanes“ þar sem við förum framfyrir allar biðraðir og fáum að kynnast þeim lífsstíl sem „Kóngurinn“ bjó við á hátindi ferils síns. Við snæðum hádegisverð á staðnum (innifalið í verði) og höldum síðan áfram á Graceland fram á miðjan dag.

Eftir það höldum við í hið heimsþekkta hljóðver Sun Studio og fáum þar að kynnast sögu þess á svipaðan hátt og við gerum hjá RCA í Nashville. Eftir langan dag höldum við á hótelið og kvöldið er frjálst til að hvíla sig og safna kröftum fyrir heimferðardaginn.

Heimferðardagur

Við leggjum af stað með rútu fyrir hádegi áleiðis á flugvöllinn í Nashville. Við stoppum á leiðinni og fáum okkur hádegisverð (ekki innifalið í verði ferðarinnar). Við komum á flugvöllinn um miðjan dag þaðan sem flogið verður með Icelandair kl. 18:30 og lent í Keflavík kl. 06:15 að morgni 31. október.

Stórkostlegri tónlistarferð til Tennessee lýkur þar með.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Sigurður K. Kolbeinsson, forstjóri Kolumbus ævintýraferða, er skipuleggjandi og fararstjóri í þessari ferð. Hann hefur ferðast vítt og breyttum Bandaríkin s.l. 40 ár og jafnframt til Tennessee. Hann hefur leitt margar hópaferðir á vegum Kolumbus víðsvegar um heim og býr að langri reynslu við skipulagningu fjölmargra ferða á vegum Niko Travel Group.

Auk Sigurðar verða enskumælandi staðarleiðsögumenn á völdum stöðum sem heimsóttir verða.

Verð: 569.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.

Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 159.000 kr.

Greiða þarf 150.000.- kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför, með greiðslutengli sem sendur er í tölvupósti.

Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko ehf. sem nálgast má á heimasíðu skrifstofunnar.

Flug Icelandair til Nashville, báðar leiðir, 23 kg taska, allir skattar og gjöld.
Bagbee þjónusta fyrir alla sem gista á höfuðborgarsvæðinu eða á Reykjanesi nóttina fyrir brottför. Boðið er uppá að innrita farþega og sækja farangur þeirra degi fyrir brottför, þannig að hægt er að ganga beint að öryggishliði í Leifsstöð á brottfarardegi.
Aðgangur að hraðhliði (Fast rack) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega).
7 gistinætur á hótelum í Nashville og Memphis skv. ferðalýsingu. Morgunverður innifalinn alla daga.
Skoðunarferðir, veitingar og aðgangur að söfnum og tónleikum skv. ferðalýsingum.
Enskumælandi staðarleiðsögumenn á völdum stöðum sem heimsóttir verða.
Allur rútuakstur skv. ferðalýsingu.
Íslensk fararstjórn Sigurðar K. Kolbeinssonar frá upphafi. ferðar til enda.

Hótelin sem við gistum á

Caption by Hyatt Downtown Nashville ★★★★ 
Canopy by Hilton, Memphis Downtown ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.