Kolumbus stóð fyrir fyrstu ferð sinni til Ástralíu og Nýja Sjálands í október 2025 og þátttakan var mjög góð. Nú gerum við enn betur og framlengjum ferðina inná Kyrrahafið með viðkomu á Fiji eyjum og Hawai þar sem dvalið verður í höfuðborginni Honolulu. Flogið verður umhverfis jörðina á 24 dögum og því um sannkallað hnattflug að ræða.
Láttu ævintýradrauma þína rætast með ferð til Ástralíu og Nýja-Sjálands svo ekki sé talað um eyjar í Kyrrahafi á borð við Fiji og Hawaii. Þetta eru staðir sem hver ferðalangur verður að upplifa að minnsta kosti einu sinni á ævinni. Hér mætast stórbrotin náttúra, einstakt dýralíf og menning sem gleymist aldrei.

Í Ástralíu, þar sem glitrandi strendur liggja að endalausum eyðimörkum og regnskógum, bíða þín óviðjafnanlegar upplifanir – frá hvítum sandi Whitsunday-eyja til heimsborgarinnar Sydney með sínu táknræna óperuhúsi. Kynntu þér heillandi menningu frumbyggja og fylgstu með kengúrum hoppa um.

Á Nýja-Sjálandi finnur þú stórkostlegt landslag, frá glitrandi jöklum og grænbláum vötnum til gróskumikilla skóga og fjallshlíða.

Fiji eyjar eru eyjasafn í Suður Kyrrahafi. Eyjarnar eru þekktar fyrir ríka menning og sögu m.a. af pólynesískum áhrifum. Þar er líka sterk hefð fyrir söng, dansi og hefðbundnum hátíðum. Eyjaskeggjar taka áfkaflega vel á móti ferðmönnum og sýna þeim mikið þakklæti fyrir að leggja svo mikla lykkju á leið sína.

Hawaii eyjar eru eldfjallaklasi í norðarverðu Kyrrahafi í um 6 klst. flugfjarlægð frá borginni Seattle á vestur strönd Bandaríkjanna. Við ferðumst til Honolulu á eyjunni O’ahu sem er höfuðborg Hawaii-fylkis, mjög falleg og þekkt fyrir fallegar strendur, skemmtilegt mannlíf og mikið af sögu og menningu. 

Við heimsækjum alla þessa staði og gistum á sérdeilis fínum 4* og 5* hótelum á árstíma þar sem hitinn er 25–35°C á meðan skammdegið sækir að okkur á Íslandi.

Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi 

Brottför með flugi Icelandair til Osló kl. 07:50 þar sem lent verður kl. 11:35. Áfram verður flogið með flugfélaginu Emerates kl. 14:00 og lent í Dubai kl. 23:30. Eftir stutt stopp á flugvellinum í Dubai förum við með næturflugi Emerates kl. 02:55 áleiðis til Melbourne í Ástralíu.

Komið til Melbourne

Lent á flugvellinum í Melbourne kl. 23:20 að staðartíma.

Tímamismunur á Íslandi og Ástralíu eru 11 klst. á þessum árstíma. Rúta bíður hópsins ásamt enskumælandi staðarleiðsögumanni sem fylgir hópnum á Rydges Hotel 4* í miðborginni þar sem gist verður fyrstu 5 næturnar í ferðinni.

Gönguferð um Melbourne

Morgunverður á hótelinu og frjáls dagskrá fyrir hádegi. Eftir hádegi verður farið í gönguferð með staðarleiðsögumanni um miðborgina en að henni lokinni er frjáls tími og gefst fólki kostur á að halda áfram að skoða sig um. Melbourne er þekkt fyrir fjölbreytt og litríkt borgarskipulag sem býður upp á skemmtilega upplifun í gönguferðum.

Síðan verður hópurinn boðinn í tveggja rétta kvöldverð á veitingastað þar sem drykkir eru innifaldir meðan á máltíð stendur.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

„Great Ocean Road tour“

Lagt er af stað frá hótelinu snemma morguns í heilsdagsferð sem kallast „Great Ocean Road-tour“. Í ferðinni ber fyrir augu stórbrotið landslag og einstök náttúruupplifun. Vegurinn liggur meðfram sjónum þar sem sjá má bratta kletta og hvítar sandstrendur. Úr hafi rísa kalksteinsstólpar sem eru sérstaklega glæsilegir við sólsetur. Hádegisverður er snæddur á veitingastað á leiðinni. Komið til baka undir kvöld en þá frjáls dagskrá.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Frjáls dagur í Melbourne

Frjáls dagur í Melbourne. Margt er hægt að gera en sem dæmi má nefna; heimsókn í National Gallery of Victoria (Listasafn Viktoríuríkis); Queen Victoria markaðinn og Phillip Island mörgæsaferð sem er mjög vinsæl náttúruupplifun í Ástralíu. Þar gefst fólki tækifæri til að fylgjast með litlum mörgæsum ganga upp á ströndina úr sjónum.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Yarra Valley – kengúrur og vín- og súkkulaðismökkun

Eftir morgunverð verður haldið til Yarra Valley, eitt af þekktustu vínræktarhéruðum Ástralíu. Hópnum verður boðið að gæða sér á freyðivíni og súkkulaði auk þess að snæða hádegisverð. Í ferðinni eru miklar líkur á að sjá kengúrur en mikið er af þeim á þessu svæði. Komið á hótelið síðdegis og kvöldið er frjálst.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og hádegisverður.

Ferðast til Sydney

Við leggjum af stað frá hótelinu kl. 10.30 áleiðis á flugvöllinn í Melbourne þaðan sem við fljúgum til Sydney kl. 13.00 og lendum kl. 14.25. Rúta bíður hópsins ásamt enskumælandi staðarleiðsögumanni sem tekur á móti hópnum. Ekið á Hotel InterContinental 5* í miðborginni þar sem við gistum næstu 5 nætur. Um kvöldið verður snæddur sameiginlegur kvöldverður ásamt drykkjum meðan á máltíðinni stendur.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Skoðunarferð um Sydney og Óperuhúsið

Að loknum morgunverði verður boðið upp á gönguferð um hafnarsvæðið framhjá „The Rocks Precinet“ og farið á „The Rocks – helgar markaðinn“.

Við fáum hádegisnarl og eftir það heimsækjum við Óperuhúsið í Sydney í u.þ.b eina klukkustund þar sem við fáum sérstaka leiðsögn sem er eingöngu ætluð hópnum Óperuhúsið í Sydney er eitt af þekktustu kennileitum Ástralíu eins og margir vita. Eftir það er frjáls dagskrá og fullkomið tækifæri til að skoða hið fjölbreytta mannlíf í þessari stórbrotnu borg, einkum við höfnina, Darling harbour.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður og hádegissnarl (picnic).

Bondi Beach – Royal Botanic Gardens og kvöldsigling

Menningarferð um Sydney frá klukkan 9-15. Ekið verður að Bondi Beach ströndinni þar sem við fáum að kynnast mannlífinu þar. Við höldum til baka inn í borgina og fáum hádegissnarl áður en farið verður að stöðum eins og „Royal Botanic Gardens“ og „First Nations led Bush“.

Komið á hótelið um kl. 15 og þá er smá hvíld. Kl. 17.45 verður ekið að höfninni að Kings Wharf. Við förum þaðan í kvöldsiglingu (Dinner cruise) um höfnina og sjáum sólsetur meðan við snæðum 3ja rétta kvöldverð sem er innifalin ásamt drykkjum. Stórkostlegt útsýni er yfir borgina í ljósaskiptum í heitu og góðu veðri þegar sumarið er að nálgast í Ástralíu.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður, hádegissnarl og kvöldverður

Frjáls dagur í Sydney

Frjáls dagur og kærkomið tækifæri til að skoða sig um í stórborginni.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Skoðunarferð og Taronga dýragarðurinn

Lagt verður af stað í rútuferð kl. 11:00 og ekið yfir Sydney Harbour brú til Manly strandarinnar. Farið verður í göngutúr um Corso að Manly. Síðan er farið í heimsókn í Taronga-dýragarðinn þar við fræðumst um einstakt ástralskt dýralíf. Þar fáum við hádegissnarl og síðdegis siglum við með ferju frá Mosman til Circular Quay. Í framhaldi verður 3ja rétta kvöldverður ásamt drykkjum og eftir það haldið til baka á hótelið.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður, hádegissnarl (picnic) og kvöldverður.

Ferðast til Nýja-Sjálands

Brottför frá hótelinu kl. 08:00 til alþjóðaflugvallarins í Sydney. Flug NZ104 er með brottför frá Sydney kl. 11:45 til Auckland á Nýja Sjálandi og komutími er um kl. 16:50. Tímamismunur á Sydney og Auckland eru 2 klst. og alls +13 klst. milli Íslands og Nýja Sjálands.

Rúta bíður hópsins og ekur til borgarinnar á MSocial Hotel 4*, mjög vel staðsett hótel við höfnina í Auckland þar sem gist er í fimm nætur. Kvöldið er frjálst.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Skoðunarferð um Auckland

Lagt af stað í skoðunarferð um morguninn með rútu um Auckland, þar á meðal Auckland Harbour Bridge, Ponsonby, þar sem við fáum leiðsögn um Auckland safnið, maórísk menningarsýning og frjáls tími í safninu. Komið til baka um kl. 13:00 og eftirmiðdagurinn er frjáls.

Kl. 18:00 er hópurinn síðan boðinn formlega velkominn til Auckland með kvöldverði á veitingastað þar sem boðið er upp á eitt glas af víni, bjór eða óáfengum drykk með matnum.

Máltíðir innifaldar: Morgun- og kvöldverður.

Skoðunarferð í regnskóga o.fl. – fyrri hópur

Hópnum er skipt í tvo hópa. Annar helmingur hópsins – hópur A fer í skoðunarferð frá kl. 09:45 til ca. 15:00. Skoðunarferðin felur í sér heimsókn í regnskóga, á svartar sandstrendur, skógargöngu, fjölbreytt fuglalíf og frábær tækifæri til ljósmyndunar ásamt nestisstoppi í hádeginu. Að skoðunarferðinni lokinni er kvöldið frjálst.

Hinn helmingur hópsins – hópur B á frjálsan dag. Í boði eru aukatúrar sem fólk greiðir sjálft fyrir. Leiðsögumaður aðstoðar við bókanir. Tillögur eru m.a; dagsferð til Bay of Islands, ferð til Hobbiton, Waitomo hellaferð eða Rotorua dagsferð svo eitthvað sé nefnt.

Máltíðir innifaldar:
Hópur A: Morgun- og nestishádegisverður.
Hópur B: Morgunverður.

Skoðunarferð í regnskóga o.fl. – síðari hópur

Þennan dag er sama dagskrá og deginum áður, nú fer síðari hópurinn í skoðunaferð en sá fyrri á frí til að skoða sig um í Auckland.

Máltíðir innifaldar:
Hópur B: Morgun- og nestishádegisverður.
Hópur A: Morgunverður.

Sigling til Waiheke eyju

Þennan dag leggjum við af stað frá hótelinu eftir morgunverð að höfninni. Síðan er sigling, sem tekur um 45 mínútur, með ferju frá Auckland til Waiheke Island. Leiðsögn um Waiheke Island með vín-, bjór-, viskí- og ólífuolíusmökkun. Að loknum hádegisverði er frjáls tími á hvítri sandströnd og einnig gefst tími til að skoða sig um í bænum Oneroa. Sigling með ferju til baka til Auckland og kvöldið frjálst eftir komuna á hótelið síðdegis.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður og hádegisverður (ekki drykkir).

Haldið til Fiji eyja

Við leggjum af stað á flugvöllinn í Auckland kl. 11.30 og innritum okkur í flug FJ410 til Fiji eyja í Suður Kyrrahafi með brottför kl. 14.50. Við lendum í höfuðborginni Nadi kl. 17:05 en tímamismunur er -1 klst. á Fiji og Nýja Sjálandi og því +12 klst milli Íslands og Fiji eyja.

Enskumælandi staðarleiðsögumaður tekur á móti okkur með fallegri kveðju og okkur hópnum verður ekið á Sofitel Fiji Resort 5* þar sem dvalið verður næstu 3 nætur. Kvöldið er frjálst á þessu stórglæsilega hóteli.

Sólin sleikt yfir daginn og kvöldskemmtun

Við njótum verunnar á hótelinu, við sundlaugarbakkann eða með öðrum hætti frameftir degi. Kl. 16:00 förum við í svokallaða „Cultural Nigth Tour Ex Dearau Area“ þar sem gengið verður um þorpið og í framhaldi snæddur kvöldverður meðan dansarar og tónlistarfólk skemmta okkur að hætti eyjaskeggja. Komið til baka um kl. 21 á hótelið og kvöldið frjálst.

Slökun

Þennan dag hvílum við okkur frá allri dagskrá og njótum veðurblíðu við sundlaugarbakkann eða með öðrum hætti t.d. bæjarrölti. – Engin skipulögð dagskrá.

Haldið til Hawaii

Við tékkum út af Sofitel Fiji snemma morguns og höldum stutta leið út á flugvöllinn í Nadi og innritum okkur í flug FJ853 með brottför til Honolulu á Hawaii kl. 10:15.

Nú gerist hið merkilega! Við lendum á flugvellinum í Honolulu kl. 21:10 að kvöldi gærdagsins, 26. nóvember þar sem við fljúgum til austurs yfir daglínuna. Nú snýst tímabeltið algerlega við því tímamismunur er orðinn -22 klst. milli Fiji eyja og Honolulu og -10 klst. milli Íslands og Hawaii eyja. Við upplifum því 27. nóvember í raun sem tvo daga þó svo að flugtíminn þarna á milli sé í raun um 6:30 klst.

Enskumælandi staðarleiðsögumaður tekur á móti okkur og síðan er ekið beint á hótelið okkar Hyatt Centric sem er við Waikiki ströndina í höfuðborginni Honolulu. Allir eru þreyttir eftir flugið og tími til að hvílast vel.

Slökun

Við vöknum í annað sinn föstudaginn 27. nóvember og hvílum okkur við hótelið, eða á ströndinni og kynnum okkur mannlífið í Honolulu. Engin skipulögð dagskrá verður þennan dag.

Skoðunarferð um Pearl Harobur

Snemma morguns hálfsdagsferð um eyjuna O‘ahu. Við byrjum á því að heimsækja hina heimsþekktu höfn, Pearl Harbour sem Japanir sprengdu nánast í loft upp sunnudaginn 7. desember 1941.

Það er mjög merkileg og sögulegt að koma þarna enda er árásin á Pearl Harbor ein sú eftirminnilegasta úr síðari heimstyrjöldinni en hún markaði upphaf þátttöku Bandaríkjamanna í styrjöldinni. Síðan er haldið áfram víðsvegar um eyjuna þar sem við kynnumst sögu og menningu O‘ahu eyjunnar undir leiðsögn enskumælandi staðarleiðsögumanns. Komið á hótelið síðdegis og kvöldið er frjálst.

Ferðast frá Hawaii til Seattle

Við tékkum út af hótelinu um hádegi og eyðum öllum eftirmiðdeginum við sundlaugina eða í nágrenni hótelsins meðan farangur er geymdur fyrir farþega.

Haldið verður á flugvöllinn í Honolulu undir kvöld og farið í næturflugi til Seattle með brottför kl. 22.30.

Heimferð

Lent verður í Seattle um kl. 6 að morgni og við förum beint í hvíld á Seattle Airport Marriott hotel (herbergi verða tilbúin) og höfum nokkrar klukkustundir til að hvílast
og undirbúa okkur fyrir heimflug til Íslands með brottför kl. 14:30.

Komið til Íslands

Lent í Keflavík kl. 06:15 að morgni.

Stórkostlegri ferð umhverfis jörðina á 24 dögum lýkur hér með.

Fararstjórn, verð, greiðslur,  innifalið og bóka ferð

Draupnir Rúnar Draupnisson er fararstjóri í þessari ferð. Hann hefur ferðast vítt og breyttum um heiminn og starfað sem flugþjónn í aldarfjórðung. Draupnir Rúnar hefur heimsótt alla staði í þessari ferð og býr jafnframt að góðri reynslu við skipulagningu fjölmargra ferða á vegum Niko Travel Group.

Verð: 1.790.000 kr. á mann miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir gistingu í einstaklingsherbergi er 369.000 kr.

Geiða þarf 300.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka. Staðfestingargjaldið er óafturkræft frá og með 16. júní 2026.

Greiða þarf hlutagreiðslu þann 16. júní, kr. 745.000 og eftirstöðvar þann 10. ágúst.

Að öðru leiti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko Travel Group sem nálgast má á heimasíðu kolumbus.is.

Öll flug skv. ferðalýsingu, 23 kg taska, allir skattar og gjöld.

Bagbee þjónusta fyrir alla sem gista á höfuðborgarsvæðinu eða á Reykjanesi nóttina fyrir brottför. Boðið er uppá að innrita farþega og sækja farangur þeirra degi fyrir brottför, þannig að hægt er að ganga beint að öryggishliði í Leifsstöð á brottfarardegi.

Aðgangur að Hraðhliði (Fast rack) í Leifsstöð (líkt og gildir fyrir Saga Class farþega).        

Gisting í 20 nætur á hótelum í Melbourne, Sydney, Auckland, Nadi, Honolulu og Seattle skv. ferðalýsingu. Morgunverður innifalinn á öllum hótelunum.

Skoðunarferðir, veitingar og aðgangur að söfnum skv. ferðalýsingu.

Enskumælandi staðarleiðsögumenn á stöðum sem heimsóttir verða.

Allur rútuakstur skv. ferðalýsingu.

Íslensk fararstjórn Draupnis Rúnars Draupnissonar frá upphafi ferðar til enda.

Hótelin sem við dveljumst á

Melbourne: Hotel Rydges ★★★★
Sydney: Hotel Intercontinental ★★★★★
Auckland: MSocial Hotel ★★★★
Fiji eyjar: Sofitel Fiji Resort ★★★★★
Hawaii: Hyatt Centric ★★★★
Seattle: Seattle Airport Marriott ★★★★

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.