Víetnam er stórkostlegt land heim að sækja
– Einstakt tækifæri!
Við heimsækjum Hanoi í norðri, siglum á hinum stórkostlega Halong flóa, heimsækjum Hue og Hoi An í mið-Víetnam, Saigon í suðri, siglum á Mekongfljóti og endum ferðina á einni af fegurstu ströndum landsins í Mui Ne. Öll gisting er á gæðahótelum.
Víetnam er mjög áhugavert land heim að sækja. Það á sér langa, merka og átakamikla sögu og varð vettvangur örlagaríkra atburða og heimsfrétta í svonefndu Víetnamstríði – með þátttöku Bandaríkjamanna – á 7. áratug síðustu aldar. Kolumbus ævintýraferðir bjóða í enn eina stórkostlega ferð til þessa merka lands þar sem við heimsækjum stórborgirnar Hanoi í norðri og Saigon (Ho Chi Minh City) í suðri. Siglum á hinum stórkostlega Halong flóa, heimsækjum gömlu keisaraborgina Hue og luktaborgina Hoi An í mið-Víetnam. Siglum á Mekongfljóti og heimsækjum fólkið sem þar býr og endum síðan ferðina á einni af fegurstu ströndum Víetnam í Mui Ne. Flug í gegnum Osló og Bangkok með Icelandair og Thai Airways og þaðan til Hanoi. Til baka frá Saigon með einnar nætur stoppi í Osló þar sem gist verður á Clarion Hotel the Hub í miðborginni.
Ferðatilhögun
Brottför frá Íslandi
Flogið er með Icelandair FI318 til Osló kl. 07:50 og lent kl. 11:35. Bið eftir framhaldsflugi er aðeins eins ein klst. og 45 mín. áður en haldið er áfram með flugfélaginu Thai Airways áleiðis til Bangkok þar sem lent verður kl. 06:20 að staðartíma. Áfram er síðan flogið til Hanoi kl. 07:45 og lent í Hanoi kl. 09:35 að staðartíma.
Komið til Hanoi
Xin chao! Velkomin til Hanoi. Staðarleiðsögumaður tekur á móti hópnum á Noi Bai alþjóðaflugvellinum og síðan er ekið með rútu á The Ann Hanoi hótelið þar sem gist verður fyrstu tvær næturnar í Víetnam. Tími til að hvílast eftir langt flug en dagurinn annars frjáls fram að kvöldi. Kvöldverður á veitingastað í miðborginni.
Upplifun í Hanoi
Eftir morgunverð byrjum við daginn á að skoða mannlífið í gamla bænum og heimsækja Bókmenntahofið, helgað Konfúsíusi, umfangsmikið svæði þar sem einstök byggingarlist allt frá 11. öld og menningararfleifð Víetnama njóta sín til fullnustu. Síðdegis göngum við inn á Ho Chi Minh svæðið.
Við förum að hinu mikilfenglega grafhýsi Ho Chi Minh og röltum um blómskrýdda garðana við Forsetahöllina þar sem má sjá m.a. Pagóðuna á einni súlu og stólpahús Ho Chi Minh. Við setjumst svo upp í rafknúna bíla og bregðum okkur í ökuferð um litrík og erilsöm stræti gamla borgarhlutans í Hanoi. Andið að ykkur gjörólíkum blæbrigðum á mannlífi í borginni og njótið hennar með opnum huga.
Eftir ökuferðina tyllum við okkur niður á einum af flottustu börum (Roof-top bar) borgarinnar þar sem við fáum okkur kokteila (innifalið) og horfum á sólarlagið með útsýni yfir elstu borgarhverfin og tvö af helstu stöðuvötnunum í borginni. Snæðum síðan gómsætan víetnamskan kvöldverð.
Hanoi – Ninh Binh
Við ökum í suðaustur um Ninh Binh héraðið sem oft er nefnt „Halong flói á þurru landi“. Við snæðum hádegisverð á skemmtilegum stað hjá fjölskyldu með sveitagistingu og njótum frábærrar gestrisni eigenda.
Síðdegis förum við í ævintýralega siglingu með sampan-bátum um hrífandi landsvæði Tam Coc, dalsins sem er þekktur fyrir himingnæfandi kalksteinskletta og fallegar hrísgrjónaekrur. Við heimsækjum Bich Dong pagóðuna sem er á þremur hæðum utan í klettahlíð með góðu útsýni yfir svæðið frá efstu hæðinni. Gist er á Emeralda Resort Tam Coc í Ninh Binh.
Sameiginlegur kvöldverður á veitingastað.
Ninh Binh – Halongflói
Í dag ökum við yfir óseyrar Rauðafljóts og komum niður á strönd rétt fyrir hádegi.
Við förum um borð í fallegt skip, þar sem við eigum framundan sólarhringssiglingu um Halongflóa, hafsvæði sem þykir einstakt fyrir náttúrufegurð. Strax og lagt verður frá landi snæðum við ljúffengan hádegisverð þar sem sjávarfang er uppistaðan í réttunum og kalksteinsklettar eru til skrauts við matborðið. Síðdegis verður siglt um fáfarnari slóðir í flóanum og við slökum á, förum í sólbað á lítilli strönd eða róum á kajak. Dagskráin getur breyst og fer það eftir veðri. Við ljúkum deginum með því að njóta sólarlagsins af þilfarinu. Gestir geta valið á milli þess að gæða sér á fordrykk og/eða fá stutt matreiðslunámskeið fyrir kvöldverð. Gist um nóttina í notalegum sérklefa með baðherbergi á Alisa Premier Cruises.
Athugið:
– Siglingaleið og -áætlun geta breyst vegna veðurs, sjávarfalla eða annarra aðstæðna á hafinu. Ef veður er slæmt er ekki heimilt að synda í sjónum eða stunda kajakaróður.
Halongflói – Hanoi – Flogið til Hue
Einhver eftirminnilegasta upplifun ferðamanna í Víetnam er að fylgjast með sólarupprás yfir Halongflóa. Farið á fætur eldsnemma og förum öll í Tai Chi leikfimi til að liðka okkur og njótum þessarar hrífandi og friðsælu stundar.
Eftir morgunverð höldum við áfram að sigla um flóann og heimsækjum Sung Sot hellinn, einstaka og stórbrotna náttúrusmíð úr kalksteini sem geymir einnig æfafornar mannvistarleifar. Við snæðum léttan hádegisverð um borð og leggjum að höfn rétt fyrir hádegi. Þegar við komum í land heimsækjum við stóran perluframleiðanda og fáum að kynnast aðferðum þeirra við framleiðsluna.
Ekið til flugvallarins í Hanoi og flogið til Hue, litríkrar menningarborgar í Mið-Víetnam. Nýr staðarleiðsögumaður tekur á móti hópnum á flugvellinum og ekið á hótel. Gist er í 2 nætur á Senna Hue Hotel.
Kvöldverður á hótelinu.
Skoðunarferð um Hue
Við leggjum af stað frá hótelinu eftir morgunverð og heimsækjum fornu Keisaraborgina í Hue, rústir af gríðarmiklu borgarvirki. Hér má sjá hvernig eyðingarmáttur tímans og heiftarleg stríðsátök hafa leikið það sem áður var listilega hönnuð höfuðborg Nguyen-keisaraættarinnar. Við heyrum mergjaðar og oft ótrúlegar sögur af lífsstíl keisaranna og skoðum einnig grafhýsi Tu Duc keisara (1829-1883). Að því búnu snæðum við hádegisverð á veitingastað í grenndinni.
Eftir hádegi heimsækjum við Thuy Bieu, friðsælt og sjarmerandi sveitaþorp þar sem tíminn líður aðeins hægar en við eigum að venjast. Komum aftur á hótelið síðdegis þar sem tilvalið er að skella sér í nudd eða einhverja af þeim slökunar- og dekurmeðferðum sem í boði eru.
Kvöldverður í miðbænum.
Hue – Lang Co – Hoi An
Við leggjum af stað eftir morgunverð og ökum í suðurátt til gömlu hafnarborgarinnar Hoi An. Við nemum staðar við Dam Chuon lónið, en margir eiga hér leið um en fáir staldra við. Við höfum annan háttinn á og bregðum okkur í stutta bátsferð um lónið í fylgd fiskimanna til að kynnast veiðiaðferðum þeirra. Hádegismatur er borinn fram í einfaldri byggingu á stólpum úti á lóninu, ferskt sjávarfang sem landað var þá um morguninn.
– Við höldum áfram á ferð okkar í suður, gerum stutt stopp við hinn fagra Lang Co flóa og ökum síðan yfir Hai Van skarð þaðan sem er stórfenglegt útsýni yfir hafið og gylltar strendur. Við ökum gegnum Danang borg og komum síðdegis til Cam Thanh á óshólmum Thu Bon fljóts, í útjaðri Hoi An, svæðis sem er þéttvaxið kókospálmaskógi. Við stökkvum um borð í bát á fljótinu og njótum sólarlagsins á siglingu okkar inn til miðborgarinnar þar sem kveikt er á luktum þegar dimmir og líf færist á fljótsbakkana.
Gist er á Hadana Boutique Resort næstu 2 nætur. Sameiginlegur kvöldverður á spennandi veitingastað.
Hoi An – frjáls dagur
Frjáls dagur sem má nota til þess að rölta um þessa fornu hafnarborg, kíkja í verslanir og á markaðinn, fara á ströndina, rölta milli kaffi- og veitingahúsa eða bregða sér í hjólatúr, en á hótelinu eru ókeypis reiðhjól til afnota fyrir gesti.
Hoi An er líka þekkt fyrir mikið úrval góðra klæðskera og því tilvalið að láta sauma eitthvað fallegt á sig ef svo ber undir. Fararstjórar okkar aðstoða við slíkt. Spa deildin á Hadana veitir líka frábæra þjónustu gegn vægu gjaldi fyrir þá sem vilja láta dekra við sig.
Kvöldið er frjálst.
Hoi An – Danang – Saigon (Ho Chi Minh City)
Eftir morgunverð ökum við til Danang flugvallar til að ná flugi til Saigon um hádegisbil. Við komu til Saigon hittum við þriðja staðarleiðsögumann okkar og ökum á hótel í miðborginni.
Eftir hádegisverð förum við í gönguferð um miðborgina og skoðum m.a. stríðsminjasafnið (The War Remnants Museum) auk helstu kennileita Ho Chi Minh-borgar.
Gist er á Northern Charm Hotel næstu 2 nætur.
Kvöldverður í miðborginni.
Saigon – óshólmar Mekong – Saigon
Við leggjum af stað snemma dags út úr Saigon og komum að víðáttumiklum óseyrum Mekong-fljóts eftir u.þ.b.tveggja og hálfs tíma akstur. Við höldum okkur frá fjölsóttum ferðamannastöðum og förum til bæjarins Sadec. Þetta er lítill bær með bátasíkjum, þröngum götum og blómaökrum.
Við stígum um borð í einkaferju á fljótinu og snæðum hádegisverð á meðan við líðum áfram eftir Mekong. Við komum við á svæði nærri Cai Be sem er ekki ýkja fjölsótt af ferðamönnum. Hér gefst tækifæri til að hitta heimamenn, fræðast um handiðnir og eldamensku og njóta lita og ilms regnskógarins.
Við komum síðdegis aftur til Saigon og njótum kvöldsins á fallegum veitingastað.
Saigon – Mui Ne
Undir hádegi ökum við frá Saigon til Mui Ne í Binh Thuan héraði, sem er einn af fegurstu strandbæjunum Suður-Víetnam við Suður-Kínahaf. Eftir innritun á hótelið er öllum frjálst að slaka á, hverjum eftir sínu höfði. Gist á 5-stjörnu The Anam Mui Ne næstu 2 nætur. K
völdið er frjálst.
Mui Ne – frjáls dagur
Njótið lífsins eins og ykkur best lystir. Farið í sólbað á ströndinni, takið sundsprett í blágrænum sjónum, slakið á í hótelgarðinum eða spilið golf, fáið lánað hjól á hótelinu, skellið ykkur í nudd og dekur eða skellið ykkur á sjódrekanámskeið (Kite surfing). Allt þetta er hægt að gera á staðnum.
Kvöldið er frjálst en fararstjóri hóar hópnum saman ef áhugi er á sameiginlegum kvöldverði á spennandi veitingastað.
Mui Ne – Saigon – brottför
Upp úr hádegi kveðjum við Mui Ne, þessa hitabeltisparadís, og ökum á alþjóðaflugvöllinn í Saigon þar sem innritun fer fram í flug Thai Airways með brottför kl. 20:10 til Bangkok þar sem lent verður kl. 21:35.
Dubai – Osló
Brottför flugs Bangkok til Osló er kl. 00:05 og lent í Osló kl. 07:05. Rúta bíður hópsins og ekur áleiðis á hið vel staðsetta Clarion Hotel the Hub þar sem gist verður í eina nótt.
Osló – Keflavík
Rúta ekur hópnum kl. 10:30 á Gaardermoen-flugvöll þar sem innritun fer fram í flug Icelandair FI319 kl. 13:10. Lent í Keflavík kl. 15:20 að staðartíma.
Þar með er komið að lokum þessarar ævintýraferðar til Víetnam.
Fararstjórn, verð, greiðslur, innifalið og bóka ferð
Ingi Þór Jónsson er fararstjóri í þessari ferð, en hann er markaðsstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. Ingi Þór er víðsigldur og hefur ferðast vítt og breitt um Víetnam m.a. sem fararstjóri Kolumbus.
Auk Inga Þórs verða enskumælandi staðarleiðsögumenn.
Verð á mann: 790.000 kr. Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 110.000 kr.
Geiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.
Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 70 dögum fyrir brottför, með greiðslutengli sem sendur er í tölvupósti.
Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
• Allar flugferðir, milli landa og innanlands í Víetnam skv. ferðatilhögun ásamt sköttum og gjöldum.
• Gisting í tveggja manna herbergi.
• Vegabréfsáritun, tveggja manna káeta í 2 daga/1 nótt um borð í skemmtiferðaskipi á Halong flóa.
• Akstur í loftkældum rútum.
• Enskumælandi staðarleiðsögumenn.
• Bátsferðir skv. ferðatilhögun.
• Aðgangur að öllum stöðum sem heimsóttir verða skv. ferðatilhögun.
• Máltíðir: morgunverður alla daga, 8 hádegisverðir og 9 kvöldverðir.
• Þjórfé
• Íslensk fararstjórn frá upphafi ferðar.
• Bagbee töskuþjónusta og Fast Track í Keflavík.
Brottför
Umsagnir viðskiptavina okkar







































































































































