Víetnam er stórkostlegt land heim að sækja. – Einstakt tækifæri!

Við heimsækjum Hanoi í norðri, siglum á hinum stórkostlega Halong flóa, heimsækjum Hue og Hoi An í mið-Víetnam, Saigon í suðri, siglum á Mekongfljóti og endum ferðina á einni af fegurstu ströndum landsins í Mui Ne. Öll gisting er á gæðahótelum.

Víetnam er mjög áhugavert land heim að sækja. Það á sér langa, merka og átakamikla sögu og varð vettvangur örlagaríkra atburða og heimsfrétta í svonefndu Víetnamstríði – með þátttöku Bandaríkjamanna – á 7. áratug síðustu aldar. Kólumbus – Ævintýraferðir bjóða í þriðja sinn stórkostlega ferð til þessa merka lands þar sem við heimsækjum stórborgirnar Hanoi í norðri, siglum á hinum stórkostlega Halong flóa, heimsækjum Hue og Hoi An í mið-Víetnam, Saigon í suðri, siglum á Mekongfljóti og endum ferðina á einni af fegurstu ströndum landsins í Mui Ne. Flug í gegnum Dubai með Emirates og þaðan til Hanoi. Til baka frá Saigon með einnar nætur stoppi í Kaupmannahöfn þar sem gist verður á 25hours Hotel í miðborginni.

Fararstjóri: Ingi Þór Jónsson

Ferðatilhögun

Brottför frá Íslandi 

Flogið er með Icelandair FI306 til Stokkhólms kl. 07:35 og lent kl. 11:45. Aðeins þarf að bíða á flugvellinum í tvær klst. og 45 mín áður en haldið er áfram með flugfélaginu Emirates áleiðis til Dubai þar sem lent verður kl. 00:10 að staðartíma. Dvalið verður á flug­vellinum í Dubai í 3:30 klst. og flogið áleiðis til Víetnam kl. 03:40. Lent er í Hanoi 3. mars kl. 12:40 að staðartíma.

Máltíðir innifaldar: Tvær máltíðir á hvorum fluglegg Emirates.

Komið til Hanoi

Xin chao! Velkomin til Hanoi. Staðarleiðsögumaður tekur á móti hópn­um á Noi Bai alþjóðaflugvellinum og síðan er ekið með rútu á The Ann Hanoi Hotel þar sem gist verður fyrstu tvær næturnar í Víetnam. Tími til að hvílast það sem eftir lifir dags eftir langt og strangt flug frá Íslandi. Kvöldverður á veitingastað í miðborginni.

Máltíðir innifaldar: Kvöldverður.

Upplifun í Hanoi

Lagt af stað með rútu kl. 10:00.

Við byrjum morguninn á að skoða mannlífið í gamla bæn­um og heimsækja Bókmenntahofið, helgað Konfúsíusi, umfangsmikið svæði þar sem einstök byggingarlist allt frá 11. öld og menningararfleifð Víetnama njóta sín til fullnustu. Síðdegis göngum við inn á Ho Chi Minh svæðið. Við förum að hinu mikilfenglega grafhýsi Ho Chi Minh og röltum um blómskrýdda garðana við Forsetahöllina þar sem má sjá m.a. Pagóðuna á einni súlu og stólpahús Ho Chi Minh. Við setjumst svo upp í raf­knúna bíla og bregðum okkur í ökuferð um litrík og erilsöm stræti gamla borgarhlutans í Hanoi. Andið að ykkur gjörólíkum blæbrigðum á mannlífi í borginni og njótið hennar með opnum huga. Eftir ökuferðina tyllum við okkur niður á einum af flottustu börum (Roof-top bar) borgarinnar þar sem við fáum okkur kokteila (innifalið) og horf­um á sólarlagið með útsýni yfir elstu borgarhverfin og tvö af helstu stöðu­vötn­unum í borginni. Snæðum síðan gómsætan víetnamskan kvöldverð.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Hanoi – Ninh Binh

Við förum frá hótelinu kl. 08:00 að morgni og ökum í suðaustur um Ninh Binh héraðið sem oft er nefnt „Halong flói á þurru landi“. Við snæðum hádeg­isverð á skemmtilegum stað hjá fjölskyldu með sveitagistingu og njótum frábærrar gestrisni eigenda. Síðdegis förum við í ævintýralega siglingu með sampan-bátum um hríf­andi landsvæði Tam Coc, dalsins sem er þekktur fyrir himingnæfandi kalksteinskletta og fallegar hrísgrjónaekrur. Við heimsækjum Bich Dong pagóðuna sem er á þremur hæðum utan í klettahlíð með góðu útsýni yfir svæðið frá efstu hæðinni. Gist er á Hidden Charm Hotel & Resort í Ninh Binh. Sameiginlegur kvöldverður á veitingastað.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Ninh Binh – Halongflói

Í dag ökum við yfir óseyrar Rauðafljóts og komum niður á strönd rétt fyrir hádegi. Áður en við förum í siglingu lítum við við hjá stórum perluframleiðanda og fáum að kynnast aðferðum þeirra við framleiðsluna. Við förum um borð í fallegt skip, þar sem við eigum framundan sólarhringssiglingu um Halongflóa, haf­svæði sem þykir einstakt fyrir náttúrufegurð. Strax og lagt verður frá landi snæðum við ljúffengan hádegisverð þar sem sjávarfang er uppi­staðan í réttunum og kalksteinsklettar eru til skrauts við matborðið. Síðdegis verður siglt um fáfarnari slóðir í flóanum og við slökum á, förum í sólbað á lítilli strönd eða róum á kajak. Dagskráin getur breyst og fer það eftir veðri. Við ljúkum deginum með því að njóta sólarlagsins af þilfarinu. Gestir geta valið á milli þess að gæða sér á fordrykk og/eða fá stutt matreiðslunámskeið fyrir kvöldverð. Gist um nóttina í notalegum sérklefa með baðherbergi á La Regina Royal Cruise.

Athugið: 
– Siglingaleið og -áætlun geta breyst vegna veðurs, sjávarfalla eða annarra aðstæðna á hafinu. Ef veður er slæmt er ekki heimilt að synda í sjónum eða stunda kajakaróður.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Halongflói – Hanoi – Flogið til Hue

Við leggjum af stað frá hótelinu kl. 09:00. Við heimsækjum fornu Keisara­borg­ina í Hue, rústir af gríðarmiklu borgarvirki. Hér má sjá hvernig eyðingar­máttur tímans og heiftarleg stríðsátök hafa leikið það sem áður var listi­lega hönnuð höfuðborg Nguyen-keisaraættarinnar. Við heyrum mergjaðar og oft ótrúlegar sögur af lífsstíl keisaranna og skoðum einnig grafhýsi Tu Duc keisara (1829-1883). Að því búnu snæðum við há­degisverð á veitingastað í grenndinni. Eftir hádegi heimsækjum við Thuy Bieu, friðsælt og sjarmerandi sveitaþorp þar sem tíminn líður aðeins hægar en við eigum að venjast. Komum aftur á hótelið síðdegis þar sem tilvalið er að skella sér í nudd eða einhverja af þeim slökunar- og dekurmeðferðum sem í boði eru. Kvöldverður í miðbænum.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Skoðunarferð um Hue

Við leggjum af stað frá hótelinu kl. 09:00. Við heimsækjum fornu Keisara­borg­ina í Hue, rústir af gríðarmiklu borgarvirki. Hér má sjá hvernig eyðingar­máttur tímans og heiftarleg stríðsátök hafa leikið það sem áður var listi­lega hönnuð höfuðborg Nguyen-keisaraættarinnar. Við heyrum mergjaðar og oft ótrúlegar sögur af lífsstíl keisaranna og skoðum einnig grafhýsi Tu Duc keisara (1829-1883). Að því búnu snæðum við há­degisverð á veitingastað í grenndinni. Eftir hádegi heimsækjum við Thuy Bieu, friðsælt og sjarmerandi sveitaþorp þar sem tíminn líður aðeins hægar en við eigum að venjast. Komum aftur á hótelið síðdegis þar sem tilvalið er að skella sér í nudd eða einhverja af þeim slökunar- og dekurmeðferðum sem í boði eru. Kvöldverður í miðbænum.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Hue – Lang Co – Hoi An

Við leggjum af stað kl. 09:00 og ökum í suðurátt til gömlu hafnarborgarinnar Hoi An. Við nemum staðar við Cau Hai flóa, en margir eiga hér leið um en fáir staldra við. Við höfum annan háttinn á og bregðum okkur í stutta bátsferð um lónið í fylgd fiskimanna til að kynnast veiðiaðferðum þeirra. Hádegismatur er borinn fram í einfaldri bygg­ingu á stólpum úti á lóninu, ferskt sjávarfang sem landað var þá um morguninn. – Við höldum áfram á ferð okkar í suður, gerum stutt stopp við hinn fagra Lang Co flóa og komið er að hápunkti dagsins þegar við ökum yfir Hai Van skarð þaðan sem er stór­fenglegt útsýni yfir hafið og gylltar strendur. Við ökum gegnum Danang borg og komum síð­degis til Cam Thanh á óshólmum Thu Bon fljóts, í útjaðri Hoi An, svæðis sem er þéttvaxið kókospálmaskógi. Við stökkvum um borð í bát á fljótinu og njótum sólarlagsins á siglingu okkar inn til miðborgarinnar þar sem kveikt er á luktum þegar dimmir og líf færist á fljótsbakkana. Gist er á Hoi An Central Boutique Hotel & Spa næstu 2 nætur. Sameiginlegur kvöldverður á spennandi veitingastað.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Hoi An – frjáls dagur

Frjáls dagur sem má nota til þess að rölta um þessa fornu hafnarborg, versla, fara á ströndina, rölta milli kaffihús eða bregða sér í hjólatúr, en á hótelinu eru ókeypis reiðhjól til afnota fyrir gesti. Fyrir strandferð mælum við með An Bang ströndinni um 4 km í norður af Hoi An. Hoi An er líka þekkt fyrir mikið úrval góðra klæðskera og því tilvalið að láta sauma eitthvað fallegt á sig ef svo ber undir. Kvöldið er frjálst.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Hoi An – Danang – Saigon (Ho Chi Minh City)
Eftir morgunverð ökum við til Danang flugvallar til að ná flugi til Saigon um hádegisbil. Við komu til Saigon hittum við þriðja staðarleiðsögumann okkar og ökum á hótel í miðborginni. Eftir hádegisverð förum við í gönguferð um miðborgina og skoðum m.a. stríðsminjasafnið (The War Remnants Museum) auk helstu kennileita Ho Chi Minh-borgar. Gist er á The Equatorial Hotel næstu 2 nætur. Kvöldverður í miðborginni.Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.
Saigon – óshólmar Mekong – Saigon

Við leggjum af stað kl. 08:00 út úr Saigon og komum að víðáttumiklum óseyrum Mekong-fljóts eftir u.þ.b.tveggja og hálfs tíma akstur. Við höldum okkur frá fjölsóttum ferðamannastöðum og förum til bæjarins Sadec. Þetta er fallegur lítill bær með bátasíkjum, þröngum götum og blómaökrum. Við stígum um borð í einkaferju á fljótinu og snæðum hádegisverð á meðan við líðum áfram eftir Mekong. Við komum við á svæði nærri Cai Be sem er ekki ýkja fjölsótt af ferðamönnum. Hér gefst tækifæri til að hitta heimamenn, fræðast um handiðnir og elda­mensku og njóta lita og ilms regnskógarins. Við komum síðdegis aftur til Saigon og njótum kvöldsins á fallegum veitingastað.

Máltíðir innifaldar: Morgun-, hádegis- og kvöldverður.

Saigon – Mui Ne 

Um morguninn ökum við frá Saigon til Mui Ne í Binh Tuan héraði, sem er einn af fegurstu baðstrandabæjunum í Suður-Víetnam. Eftir innritun á hótelið er öllum frjálst að slaka á, hverjum eftir sínu höfði. Gist á Seahorse Resort & Spa, næstu 2 nætur. Kvöldið er frjálst.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Mui Ne – frjáls dagur

Njótið lífsins eins og ykkur best lystir. Farið í sólbað á ströndinni, takið sundsprett í blágrænum sjónum, slakið á í hótelgarðinum eða spilið golf, fáið lánað hjól á hótelinu, skellið ykkur í nudd og dekur eða skellið ykkur á sjódrekanámskeið (Kite surfing). Allt þetta er hægt að gera á staðnum. Kvöldið er frjálst en fararstjóri hóar hópnum saman ef áhugi er á sameiginlegum kvöldverði á spennandi veitingastað.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Mui Ne – Saigon – brottför

Síðdegis kveðjum við Mui Ne, þessa hitabeltispara­dís, og ökum á alþjóða­flugvöllinn í Saigon þar sem innritun fer fram í flug Emirates með brottför kl. 23:55 til Dubai. Lent verður í Dubai kl. 04:25 aðfaranótt 16. mars.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður og tvær máltíðir um borð.

Dubai – Kaupmannahöfn

Brottför flugs Emirates frá Dubai til Kaupmannahafnar er kl. 08:30 og lent í Kaupmannahöfn kl. 12:30. Rúta bíður hópsins og ekur áleiðis á hið vel staðsetta 25hours Hotel þar sem gist verður í eina nótt.

Máltíðir innifaldar: Tvær máltíðir um borð.

Kaupmannahöfn – Keflavík

Rúta ekur hópnum kl. 10:30 á Kastrup-flugvöll þar sem innritun fer fram í flug Icelandair FI205 kl. 13:05. Lent í Keflavík kl. 15:30 að staðartíma. Þar með er komið að lokum þessarar ævintýraferðar til Víetnam.

Máltíðir innifaldar: Morgunverður.

Fararstjórn, verð, greiðslur og innifalið

Ingi Þór Jónsson er fararstjóri í þessari ferð, en hann er markaðsstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði. Ingi Þór er víðsigldur og hefur ferðast vítt og breitt um Víetnam. Hann tekur nú að sér fararstjórn fyrir Kolumbus í fyrsta sinn.

Verð á mann: 635.000 kr. Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 80.000 kr.

Geiða þarf 100.000 kr. staðfestingargjald pr. farþega við bókun sem innheimt verður í heimabanka.

Eftirstöðvar verða innheimtar allt að 60 dögum fyrir brottför og þá er hægt að velja á milli greiðslu með peningum eða kreditkorti. 

Að öðru leyti og um endurgreiðslur gilda ferðaskilmálar Niko travel group sem nálgast má á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

Allar flugferðir, milli landa og innanlands í Víetnam skv. ferðatilhögun ásamt sköttum og gjöldum. 
Gisting í tveggja manna herbergi með morgunverði.
Tveggja manna klefi í 2 daga/1 nótt um borð í skemmtiferðaskipi á Halong flóa.
Akstur í loftkældum rútum.
Enskumælandi staðarleiðsögumenn.
Bátsferðir skv. ferðatilhögun.
Aðgangur að öllum stöðum sem heimsóttir verða skv. ferðatilhögun.
Máltíðir; (morgun-, hádegis- og kvöldverðir) eins og tilgreint er í ferðatilhögun.
Tvær flöskur af vatni á mann á hverjum degi í öku- og skoðunarferðum með rútu.
Allir skattar í Víetnam og þjónustugjöld.
Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið:
• Þjórfé
• Vegabréfsáritun
• Matur annar en tilgreindur í ferðalýsingu

Bóka

Uppselt – Biðlisti

Uppselt er í þessa ferð. Hægt er að skrá sig á biðlista með því að hafa samband við okkur á niko@niko.is.

Skilaboð með pöntun geta t.d. verið óskir um séraðgengi, tegund herbergis (t.d. aðskilin rúm), spurningar til okkar varðandi ferðina. Hér er einnig góð hugmynd að taka það fram ef ferðast er með öðrum sem hafa bókað ef áhugi er fyrir því að vera með herbergi nálægt viðkomandi.

Þegar þú hefur staðfest bókun mun starfsmaður okkar hafa samband við þig til þess að ganga frá staðfestingargreiðslu. 

Nánari upplýsingar

Allar nánari upplýsingar eru veittar
í síma 499-2960 eða á netfanginu niko@niko.is

Brottför

Dagar
Klst.
Mín.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim. Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir, Kolumbus – Siglingar og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita. 

Niko Travel Group er alhliða ferðaskrifstofa sem býður viðskiptavinum sínum fjölbreyttar ferðalausnir víða um heim.

Niko Travel Group rekur vörumerkin Kolumbus – Ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara auk bókunarþjónustu fyrir Hótel Skt. Petri í Kaupmannahöfn.

Við leggjum áherslu á spennandi áfangastaði sem eftirsóknarvert er að heimsækja og auk þess vel skipulagðar ferðir fyrir eldri borgara. Við þjónustum einnig sérhópa sem til okkar leita.