
Sr. Þórhallur Heimisson
skrifar um Filippseyjar.
Filippseyjar eru ævintýralegt og fjölbreytt land sem samanstendur af yfir 7.000 eyjum í Suðaustur-Asíu og eru áfangastaður sem býður upp á einstaka blöndu af náttúrufegurð, dulrænni menningu og hlýlegu fólki. Landið er þekkt fyrir strendur sínar, eldfjöll, regnskóga og kóralrif, sem gerir það að paradís fyrir náttúruunnendur og ævintýramenn. Ekki er saga eyjanna minna áhugaverð þykir mér og snertir hún reyndar alla mannkynssöguna.
Um 130 milljónir manna búa á Filippseyjum sem eru 13. fjölmennasta land heims. Í höfuðborginni Manilla búa um 12 milljónir ef úthverfin eru tekin með. Aðrir 11 milljónir Filippseyinga búa erlendis, margir hér á landi þar sem þeir hafa getið sér gott orð. Fjölbreytt þjóðerni og margskonar menningarheima er að finna á öllum eyjunum. Þar má nefna áhrif frá frumbyggjum, hindúum og múslímskum samfélögum. Kínversk og malasísk áhrif eru líka sterk. Og svo auðvitað evrópsk og kristin.
Koma Ferdinands Magellan árið 1521 markaði upphaf tímabils spænskra yfirráða. Nafnið Filippseyjar er tekið frá Filippusi II. konungi Spánar (1556-1598). Það voru einmitt spænskir kristniboðar kaþólsku kirkjunnar sem kristnuðu Filippseyjar í umboði konungs. Bandaríkin lögðu síðan undir sig eyjarnar 1899 og réðu þeim sem nýlendu til 1946, fyrir utan árin 1942-1945 þegar Japanir hernámu Filippseyjar. Filippseyjar fengu sjálfstæði 4. júlí 1946 og eru í dag eitt af lýðræðisríkjum Asíu, en glíma við ýmiss vandamál sem rekja má til nýlendutímans.
Á Filippseyjum er að finna nokkrar fallegustu strandir í heimi, eins og Boracay, Palawan og Siargao. Þar eru einnig virk eldfjöll, miklir regnskógar og ríkt dýralíf. Filippseyjar eru þekktar fyrir hlýlegt og gestrisið eðli sitt. Íbúar eru stoltir af menningu sinni og hefðum. Gestir eru alltaf velkomnir og kynnast einstakri gestrisni heimamanna.
