
Sr. Þórhallur Heimisson
skrifar um Napólí.
Ítalía er eitt virkasta eldfjallaland Evrópu fyrir utan Ísland. Eitt þekktasta eldfjall þess er Vesúvíus sem gróf borgina Pompey undir ösku og eðju í miklu sprengjugosi árið 79 eftir Krist. En í skugga eldfjallsins hvílir borgin Napolí og úthverfi hennar teygja sig upp hlíðar þess.
Gamla miðborg Napolí stendur aftur á móti við flóann sem ber nafn borgarinnar, Napólíflói. Þar er að finna eina stærstu höfn Ítalíu þangað sem sigla farskip og skemmtiferðaskip frá öllum heimshornum. Napolí er því sannarlega milli fjalls og fjöru og náttúran öll og magnað umhverfið setur mark sitt á þessa gömlu borg sem býr yfir svo mikilli sögu og fjölbreyttu mannlífi.
Saga Napolí teygir sig allt aftur á áttundu öld fyrir Krist. Það voru Grikkir sem stofnuðu borgina á sínum tíma, eins og margar aðrar borgir á suður Ítalíu og kringum Miðjarðarhafið. Heiti borgarinnar er þannig komið úr grísku, Nea Polis, og þýðir einfaldlega Nýja borgin.
Lega borgarinnar við flóann á besta stað gerði hana að miklu aðdráttarafli fyrir fjölbreyttan skara menningarþjóða og innrásaraðila sem lögðu hana undir sig gegnum tíðina, meðal annars Rómverja, forfeðra okkar Normana, Frakka, Spámverja og loks konungsætt Bourbona.
Napolí var þannig höfuðborg sjálfstæðs ríkis Suður ítalíu um aldir, sem gekk undir ýmsum nöfnum og laut margskonar stjórnendum, allt til ársins 1870 þegar Ítalía var sameinuð. Konungshöllin gamla setur þannig sterkan svip á bæinn ásamt köstulunum Castel dell Ovo, Castel Nuovo og Sant’ Elmo.
Að ekki sé talað um katakomburnar sem geyma leyfar frá öllum þessum öldum. Hvert tímabil sögunnar hefur sett mark sitt á Napolí eins og gönguhverfin sýna með sýnum mögnuðu byggingum, þröngu götum, smáverslunum, kaffihúsum og börum. Þannig er Napolí einstök blanda hins gamla og hins nýja.
Matarmenningin er líka engu lík í Napolí. Borgin er fæðingarstaður pizzunnar og bíður upp á heimsins bestu pizzur að mati þess er þetta skrifar. Djúpsteikt pizza er til dæmis pizza sem þú færð hvergi annars staðar. Margarítan er líka einstök þar, enda varð hún til í Napolí og heitir eftir annarri drottningu sameinaðrar Ítalíu. En margt annað er í boði fyrir mataráhugafólk, til dæmis sjávarréttirnir sem borgin er fræg fyrir. Vínið er líka einstakt, bragðmikið og safaríkt, enda ræktað úr Lacryma Christi drúfunni sem vex í hlíðum Vesúvíusar. Drúfan var fyrst ræktuð af Rómverjum og er því einstök. Napolí er þannig upprunaleg á allan hátt og engin túristagildra. Heimamenn taka vel á móti gestum en um leið getur borgin verið varasöm eins og margar aðrar stórborgir.
Napolíflói er líka einstök náttúruperla þar sem eyjan Caprí blasir við, dulúðug og spennandi í fjarska. Ekki er síðra að heimsækja litlu eyjuna Procidu sem er rétt utan við landsteinana, örskots siglingu frá miðbæ Napolí.
