
Þórhallur Heimisson
skrifar um perlur norðursins „Norðurkolluna“ eins og faðir hans Heimir Steinsson kallaði svæðið.
Það má með sanni segja að Skandinavía hafi snemma orðið mitt annað heimaland. Ég hef búið ein 20 ár ævinnar í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, ferðast ótal sinnum um Finnland og Álandseyjar og dvalið þar löngum stundum. Enda þykir mér ákaflega vænt um þessi lönd öll.
Norðurkolla!
Einna fallegasti og magnaðasti hluti Skandinavíu er að mínu mati það landsvæði sem Svíar og Norðmenn kalla Nordkalotten. Faðir minn, Heimir Steinsson, ferðaðist oft með hópa um þetta svæði og íslenskaði hann heiti þess sem „Norðurkolla“. Norðurkolla er svæðið þar sem nyrstu hlutar Noregs, Svíþjóðar og Finnlands mætast. Þetta er land víðáttunnar, mikilla andstæðna og stórbrotinnar náttúru. Hér hafa ísaldarjöklar mótað landslagið og lífið um aldir snúist um náin tengsl manns og umhverfis .
Svæðið á sér langa og merka sögu. Þar hafa Samar, frumbyggjar norðursins, búið frá örófi alda. Menning þeirra, tungumál og hefðir ná yfir landamæri allra þriggja ríkjanna og eiga sterkar rætur í hreindýrahaldi, veiðum og árstíðabundnum flutningum. Nokkurra vikna bein útsending sænska sjónvarpsins á hverju vori af ferðalagi elgsins til sumarbeitar segir sitt um áhuga almennings á þessum hefðum og sögu. Norðurkollan er því ekki aðeins landfræðilegt svæði heldur einnig sögulegt menningarsvæði sem sameinar ólík samfélög.
Náttúra Norðurkollu er einstök. Víðáttumiklir barrskógar, þúsundir vatna, stórfljót, fjallgarðar og djúpir norskir firðir einkenna landslagið. Á sumrin lýsir miðnætursólin upp norðurslóðirnar og sest ekki norðan heimskautsbaugs. Í 307 metra hæð er Nordkapp í Norður-Noregi vinsæll áfangastaður til að upplifa birtuna. En Norðurkolla er einmitt öll fyrir norðan bauginn. Birtan, kyrrðin og víðáttan skapa einstaka stemningu sem erfitt er að finna annars staðar í Evrópu. Nema á Íslandi auðvitað.
Um aldir lágu hér mikilvægar verslunarleiðir milli Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Rússlands. Fólk flutti milli svæða með hreindýrahjörðum sínum, verslaði yfir landamæri og blandaði saman tungumálum og menningarhefðum. Landamæri ríkjanna voru lengi óljós en tóku smám saman á sig þá mynd sem við þekkjum í dag. Öll þrjú ríkin mætast við landamærastikuna Treriksröset og er hægt að komast að henni gangandi.
Á 20. öldinni varð svæðið einnig mikilvægt í hernaðarlegu tilliti. Í síðari heimsstyrjöldinni var barist af hörku í Norður-Noregi og Finnlandi. Nálægðin við Sovétríkin gerði svæðið síðan að mikilvægu landamærasvæði í kalda stríðinu. Það sama á við enn í dag.
Það eru margir fallegir bæir sem prýða Norðurkollu. Luleå við Botníuflóa hefur lengi verið mikilvæg hafnar- og iðnaðarborg Norður-Svíþjóðar. Þaðan liggja sögulegar samgönguleiðir inn í Lappland og norður til járngrýtisnámanna sem gerðu Svíþjóð að heimsveldi á 17. öldinni. Og eru enn gríðarlega mikilvægar. Í Rovaniemi, við heimskautsbauginn, mætast finnsk náttúra, menning og saga Lapplands. Skógar, stórfljót og þúsundir vatna einkenna víðfeðmt landsvæðið þar í kring. Skammt undan í Jukkasjärvi er hið þekkta Icehotel sem dregur ferðamenn víða að yfir veturinn. Kirkenes stendur við Barentshaf, nærri landamærum Rússlands, og er einstakt dæmi um menningarleg og söguleg tengsl austurs og vesturs. Þaðan liggur norska strandlengjan með djúpum fjörðum og hrikalegum fjöllum til Tromsø, sem varð snemma mikilvæg miðstöð heimskautakönnunar og norðurslóðarannsókna.
Sú strandlengja er sannarlega kóróna norðursins. Í Kiruna í Svíþjóð hefur járngrýtið mótað bæði atvinnulíf og byggð. Borgin var stofnuð í tengslum við námuvinnsluna um aldamótin 1900 og er nú að ganga í gegnum einstæða umbreytingu þar sem stór hluti hennar hefur verið fluttur vegna námanna.
Svona mætti lengi telja. Nordkalotten eða Norðurkolla, er einstakt svæði þar sem saga jarðarinnar, menning frumbyggja, iðnvæðing, stríðssaga og stórbrotin náttúra fléttast saman. Á sumrin bætist við töfrandi birta miðnætursólarinnar, þegar dagur og nótt renna saman, náttúran sýnir sína fegurstu hlið og hreindýrahjarðirnar þvera landamæri.
