
Þórhallur Heimisson
skrifar um Róm.
Allar leiðir liggja til Rómar segir málshátturinn.
Og það má með sanni segja.
Einhvern veginn hefur maður það alla vega á tilfinningunni í hvert sinn sem maður kemur þangað, að allt það sem við mennirnir höfum verið að bauka og erum að bauka eigi sér upphaf og endi þar. Komi þaðan. Eða sé á leiðinni þangað ef ekki vill betur. Þannig er Róm, undarleg borg, söguleg, töfrandi. Engri annarri borg lík. Og samt öllum lík. Því hún hefur staðið þarna svo lengi við fljótið Tíber á miðjum Ítalíuskaganum, gefið af sér og skreytt sig með því sem hún hefur tekið af öðrum. 2700 ára segir sagan að hún sé. Þar hafa listamenn, keisarar, páfar, víkingar, ræningjar, þrælar, fasistar, endurreisnarmenn og allra þjóða ævintýramenn sprangað um göturnar og skilið eitthvað eftir sig. Og gera enn.
Ég hef sjálfur verið svo lánsamur að mínar leiðir hafa oft legið til Rómar í gegnum tíðina. Einn og með öðrum hef ég gengið um götur hennar og torg, upp í turna, niður í borg hinna dauðu undir Vatikaninu og alla leið að gröf Péturs postula. Ég hef setið þar nokkrar páfamessur, verið í móttöku hjá Benediktusi XVI, hitt Fransiskus páfa og setið samkirkjulegt þing við borgarmúrana. Hvert sem erindið er, alltaf finnst mér borgin eins og ótæmandi fjársjóðskista. Samtímis því að hún sé allt það sem ég hef talið upp hér að ofan er hún líka nútímaleg tískuborg.
Borg hinna frægu og ríku. Tísku og tildurs. Og borg hinna fátæku. Ekki má gleyma þeim. En þannig er Róm. Stórkostleg, og um leið persónuleg. Hún snertir alla fleti hugarflugsins. Sem segir mikið, því þó borgin sé heimsborg er hún samt svo lítil um sig að hægt er að ganga um kjarna hennar á einum degi, með glans. Alla vega ef maður er vel skóaður.
En þegar allt hefur verið sagt um Róm, elska ég eitt öðru fremur við borgina. Það eru kaffihúsin. Fátt er betra en að tylla sér á kaffihúsi einhvers staðar á þröngum götum gömlu borgarinnar og fá sér rómverska köku með ítölsku kaffi eða glasi af einhverju köldu og freyðandi. Og seiðandi. Og gleyma sér ímannhafinu á meðan kakan bráðnar í munni og fólkið á næsta borði tapar sér yfir skóverðinu í borginni. Eða pantar sér bara eina köku enn og lætur hugann líða.
